Morgunblaðið - 20.03.1994, Síða 2

Morgunblaðið - 20.03.1994, Síða 2
2 FRÉTTIR/INNLENT MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. MARZ 1994 t Stjómarformaður Flugleiða Avinningur fyr- ir Flugleiðir að reka Urval-Utsýn HÖRÐUR Sigurgestsson stjórnarformaður Flugleiða segist telja það mjög gagnlegt fyrir markaðmn og ávinning af því fyrir Flugleiðir að reka ferðaskrifstofuna Úrval-Útsýn. „Stundum verður tap og stundum verður hagnaður, en við teljum ávinning af þessu fyrir- tæki. Staða þess hefur styrktst mjög mikið á þessum markaði og það hefur tekið þátt í að breyta honum og gera hann burðugri," segir Hörður. Greint var frá því í Morgunblað- inu í gær að tap ferðaskrifstofunn- ar Úrvals-Útsýnar á síðasta ári hafí verið 12 milljónir króna saman- borið við 24,5 milljóna hagnað á árinu 1992, en Flugleiðir eiga 81,5% hlutabréfa í ferðaskrifstofunni. Á aðalfundi Flugleiða í vikunni gagnrýndi Kristjana Milla Thor- steinsson fyrrum stjómarmaður í Flugleiðum þátttöku félagsins í rekstri ferðaskrifstofunnar og kvaðst telja að selja ætti hana til starfsmanna. Hörður Sigurgestsson sagði í samtali við Morgunblaðið að af einhveijum ástæðum hefði Kristjana Milla lengi haft þá skoðun að Flugleiðir ættu ekki að reka Úrval-Utsýn. Ákveðin afstaða í stjórn Flugleiða „Það kunna að vera einhveijar sögulegar skýringar á því að hún hafi þessa skoðun, um það get ég ekki sagt, en það er mjög ákveðin afstaða í stjóm Flugleiða að það sé mjög gagnlegt og það sé ávinn- ingur af því að Flugleiðir reki ferða- skrifstofu með þessum hætti. Jafn- framt að það sé mjög gott að eiga þama fyrirtæki sem sé sjálfstætt frá Flugleiðum og það sé gagnlegt einnig fyrir markaðinn að hafa þetta með þessum hætti,“ sagði Hörður. Morgunblaðið/Þorkell Kynningarfundur STEFNUYFIRLÝSING Reykjavíkurlistans var kynnt á opnum fundi í Súlnasal Hótels Sögu kl. 14 í gær. Reykjavíkurlistinn lagði fram stefnuyfirlýsingu á opnum fundi í gær Félagshyggja, kvenfrelsi og umhverfísvernd að leiðarljósi STEFNUYFIRLYSING sam- eiginlegs lista femra stjórnmála- samtaka og áhugafólks, vegna borgarstjómarkosninganna í vor, var lögð fram á opnum borg- arafundi á Hótel Sögu síðdegis í Framboðslisti fernra stj órmálasamtaka Reykjavíkurlist- inn lagður fram FERN stjórnmálasamtök, Al- þýðubandalag, Alþýðuflokkur, Framsóknarflokkur og Kvenna- listi standa að sameiginlegum framboðslista fyrir borgarstjóm- arkosningarnar í Reykjavík í vor. Listann skipa eftirtaldir frambjóðendur: 1. Sigrún Magnúsdóttir, kaup- maður og borgarfulltrúi. 2. Guðrún Ágústsdóttir, fræðslu- og kynning- arfulltrúi. 3. Guðrún Ögmundsdótt- ir, borgarfulltrúi. 4. Pétur Jónsson, viðskiptafræðingur. 5. Ámi Þór Sigurðsson, félagsmálafulltrúi. 6. Alfreð Þorsteinsson, forstjóri. 7. Steinunn V. Óskarsdóttir, sagn- fræðingur. 8. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, alþingismaður. 9. Gunnar Levy Gissurarson, tækni- fræðingur. 10. Guðrún Jónsdóttir, arkitekt. 11. Helgi Pétursson, markaðsstjóri. 12. Arthúr Morth- ens, kennari. 13. Ingvar Sverrisson, háskólanemi. 14. Hulda Ólafsdóttir, sjúkraþjálfari. 15. Guðrún Kr. Óla- dóttir, varaformaður Sóknar. 16. Sigfús Ægir Ámason, fram- kvæmdastjóri TBR. 17. Bryndís Kristjánsdóttir, blaðamaður. 18. Margrét Sæmundsdóttir, fóstra. 19. Óskar D. Ólafsson, tómstundafull- trúi. 20. Jónas Engilbertsson, strætisvagnastjóri. 21. Bima Kr. Svavarsdóttir, hjúkmnarforstjóri. 22. Helgi Hjörvar, háskólanemi. 23. Kristín A. Amadóttir, deildarstjóri. 24. Vilhjálmur Þorsteinsson, kerfís- fræðingur. 25. Sigþrúður Gunnars- dóttir, háskólanemi. 26. Óskar Bergsson, trésmiður. 27. Kristín Dýrijörð, fóstra. 28. Kristín Blön- dal, myndlistarkona. 29. Kristbjörg Kjeld, leikkona. 30. Guðmundur Amlaugsson, fyrrverandi rektor. gær. Listinn gengur undir nafn- inu Reykjavíkurlistinn og býður fram undir kjörorðinu „Opin og lýðræðisleg borg - heimili - at- vinna - skóli“. I yfirlýsingunni segir að listinn muni hafa hug- myndir félagshyggju, kvenfrelsis og umhverfisvemdar að leiðar- Ijósi. Ingibjörg Sólrún Gísladótt- ir, borgarstjóraefni listans, og fleiri frambjóðendur fluttu ávörp á fundinum. Ingibjörg sagði ákvörðunina um að gefa kost á sér í baráttusæti listans hafa verið sér erfiða persónulega. Það væri hvorki einfalt né útlátalaust fyrir sig sem þingmann Reykvík- inga að yfirgefa þau verkefni og skyldur sem hún tók að sér i síð- ustu þingkosningum. Hún myndi eftir sem áður vinna fyrir og sækja umboð sitt til þess fólks sem hún þekkti best, það er Reykvíkinga. Flokkamir sem standa að listan- um em Alþýðubandalagið, Alþýðu- flokkurinn, Framsóknarflokkurinn og Kvennalistinn. Meðal helstu markmiða listans er að auka vald- dreifingu í borginni, meðal annars með stofnun embættis umboðs- manns borgarbúa, skýrri hverfa- skiptingu og auknum rétti borg- arbúa til að hafa áhrif, meðal ann- ars með því að greiða atkvæði um einstök borgarmál. Atvinna og aðbúnaður Reykjavík á að verða miðstöð nýsköpunar og þróunar í atvinnu- málum. Stefnt er að samstarfí við verkalýðsfélög og atvinnurekendur um örvun atvinnulífs, stofnun at- vinnuþróunarsjóðs og stuðningi við lítii og meðalstór fyrirtæki. Vinna á að því að tryggja öllum bömum, sem á þurfa að halda, að- gang að leikskóla meðan foreldrar em utan heimilis. Endurskoða á fyrirkomulag og eftirlit með dag- vistun og vinna að því að gmnnskól- inn verði einsetinn og skóladagur samfelldur. Stuðlað skal að auknum jöfnuði í lífskjömm borgarbúa. Aðstoð við einstaklinga og fjölskyldur á að miðast við að hjálpa þeim til sjálfs- hjálpar. Stefnt skal að aukinni þjón- ustu við aldraða hjúkrunarsjúklinga og lögð áhersla á uppbyggingu hjúkmnarheimila. Umhverfis- og menningarmál Það er markmið Reykjavíkurlist- ans að borgin taki forystu í um- hverfismálum hér á landi. Skipulag mannvirkja, borgarhverfa og allrar starfsemi taki mið af náttúmlegu umhverfí og virðingu við sögu borgarinnar. Öryggissjónarmið hafí forgang við hönnun umferðarmann- virkja. Bæta á aðstæður fyrir gang- andi og hjólandi vegfarendur. Endurskoða á aðferðir við förgun úrgangs og nýta lífrænan úrgang. Styrkja á Reykjavík sem miðstöð menningarlífsins og efla list- og verkmenningu. Styrkja á menningar- hlutverk skólanna, efla almennings- íþróttir og stuðla að greiðari aðgangi almennings að íþróttamannvirkjum. Fjármál og framkvæmdir Hætta skal bmðli og vanhugsuð- um skyndiákvörðunum í fjármálum borgarinnar og hafin endurreisn borgarsjóðs. Byggja á ákvarðanir um verklegar framkvæmdir á þörf- um borgarbúa fyrir nýja eða bætta þjónustu. Endurskoða skal rekstur borgarinnar og stjómkerfí hennar með það fyrir augum að gera hvort tveggja skilvirkara og hagkvæmara. Setja á skýrar reglur um allar fram- kvæmdir og bjóða út allar nýfram- kvæmdir. Þá á að stöðva einkavæð- ingu þjónustufyrirtækja borgarinnar og færa rekstur SVR í fyrra horf. Drewrys segir íslenska sjóflutningamarkaðinn nær lokaðan fyrir samkeppni Stjórn skipafélaganna á hafnaraðstöðu fælir frá Jafndæg’- ur í dag I DAG eru voijafndægur en það er sú stund þegar sól fer yfir miðbaug og dægrin verða jafnlöng. Á norðurhveli jarðar era jafn- dægur um 21. mars og haust- jafndægur um 23. september og öfugt á suðurhveli. DREWRY Shipping Consultants telja að íslenski gámaflutnings- markaðurinn einkennist af skorti á samkeppni, sem sé sjaldgæft í milliríkjasiglingum og komast að þeirri niðurstöðu að markaðurinn hér sé nánast lokaður. í skýrslunni segir að hörð samkeppni skipafé- laga á Atlantshafi hafi ekki náð til íslands, og er rætt um ástæður þess að erlendir flutningssalar skuli ekki sjá sér hag í viðkomusigling- um til íslands. í skýrslunni segir að nær öll undanfarin tíu ár hafi aðeins tvö skipafélog veitt flutningaþjónustu milli íslands og Evrópu og þijú á milli íslands og Bandaríkjanna. Fram kemur í skýrslunni að skipafélög á Atlantshafsleiðum nytu ekki sömu samkeppnisaðstöðu hér á landi og innlendu skipafélögin ef þau hefðu áhuga á viðkomusigling- um til Reykjavíkur. Ein þeirra hindr- ana sem væri í vegi fyrir því að skipafélög í Norður-Atlantshafssigl- ingum hefðu viðkomu á Islandi fel- ist í þeirri staðreynd að gámaflutn- ingsstöðvamar í Reykjavíkurhöfíi séu í höndum Eimskips og Samskipa „og það væri ekki þægileg aðstaða fyrir nokkurt skipafélag að höfuð- keppinautamir skuli stjóma upp- og útskipunarstarfseminni," segir í skýrslunni. Skýrsluhöfundar benda einnig á að fleiri ástæður kunni að vera fyr- ir því hve fá félög keppi um íslands- siglingar. Dýpt hafna og hafnarað- staða komi í veg fyrir að stærri flutningsskip hafi hér viðkomu og fjarlægð Iandsins frá helstu sigl- ingaleiðum geri það hugsanlega einnig að verkum að skipafélög sem væm í mikilli samkeppni í frakt- flutningum á Atlantshafi sæju sér ekki hag í viðkomusiglingum til ís- lands. Tekið er sem dæmi að það myndi lengja siglingu skipa á milli Montreal og Halifax um einn sólar- hring að hafa viðkomu á Islandi. Að mati skýrsluhöfunda ætti það þó engan veginn að útiloka að ein- hveijir flutningsseljendur hefðu áhuga á að tengja ísland við áætlun- arsiglingar sínar um Norður-Atl- antshafíð. Hagnýta sér litla samkeppni með háum gjöldum Niðurstaða þeirra er sú, að ýmsar ástæður hafi leitt til þess, að ís- lenski flutningsmarkaðurinn verði að teljast nær lokaður en þá mætti líka líta svo á að gámaflutningar fh °g frá landinu veittu flutninga- sölufyrirtækjum næg tækifæri til að hagnýta sér þá litlu samkeppni sem hér ríkti með háum flutnings- gjöldum jafnvel þó að á sama tíma væra erfíðleikar á flestum gáma- flutningsmörkuðum vegna aukins framboðs á flutningarými. Sjá bls. 6: „Efast ekki um .-, .“ i * i í i i 1

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.