Morgunblaðið - 14.04.1994, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. APRÍL 1994
Félag íslenskra stórkaupmanna kærir Tryggingastofnun
Auglýsingar um lyf kærð-
ar til Samkeppnisráðs
FÉLAG íslenskra stórkaupmanna hefur kært til samkeppnisráðs
auglýsingar sem birst hafa að undanförnu á vegum Trygginga-
stofnunar ríkisins og heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins
um lyf. í kærunni segir m.a. að félagið telji auglýsingarnar brjóta
í bága við samkeppnislög, enda séu upplýsingar í auglýsingunum
bæði rangar og villandi gagnvart neytendum fyrir utan að vera
afar ósanngjarnar gagnvart frumlyfjaframleiðendum og umboðs-
mönnum þeirra.
Félag íslenskra stórkaupmanna
gerir fyrst og fremst athugasemd-
ir við eftirfarandi fullyrðingar í
umræddum auglýsingum: „sam-
heitalyf eru samskonar, jafngild
lyf“, „verðmunur á frumlyfjum og
eftirlíkingum þeirra er ótrúlegur",
„annars vegar eru hagsmunir
hinna erlendu lyfjaframleiðenda
og umboðsmanna þeirra, hins veg-
ar hagsmunir kaupenda, þ.e. ís-
lenskra sjúklinga og samfélags-
ins“ og „útreikningar um áætlaðan
sparnað upp á 200-300 milljónir
króna sem iæknar eiga að geta
náð fram“.
í kærunni er meðal annars bent
á að samheitalyf og frumlyf séu
hvorki samskonar né sé aðgengi
þeirra eins, að baki frumlyfja liggi
gífurlega ..tímafrekar og kostn-
aðarsamar rannsóknir en fram-
leiðendur eftirlíkingalyfja þurfi
hins vegar ekki að leggja út í þenn-
an kostnað. Þá séu tölur í auglýs-
ingunum um mögulegan sparnað
gróflega ýktar. Fer Félag ís-
lenskra stórkaupmanna fram á
skjóta afgreiðslu samkeppnisráðs
á málinu þar sem enn sé verið að
birta auglýsingarnar og miklir
hagsmunir og starfsheiður margra
sé í húfi.
Númer af
100 bílum
LÖGREGLAN á höfuðborg-
arsvæðinu hefur tekið núm-
eraplötur af rúmlega 100 bíl-
um undanfarna daga vegna
gjaldfallinna bifreiðagjalda
fyrir síðasta ár.
Á sólarhringnum frá kl. 6 á
þriðjudagsmorgun til 6 í gær-
morgun voru númer fjarlægð
af 54 bílum í Reykjavík.
VEÐURHORFUR í DAG, 14. APRÍL
YFIRLIT: Við Hvarf er 985 mb lægö aem þokast norðauatur, en skammt vestur
af írlandi er kyrrstæð 1.038 mb hæð.
STORMVIÐVORUN: Búíst er við atorml á Suðvesturmlðum, Faxaflóamiðum, Breiða-
fiarðarmiðum, Vestfjarðamiðum 09 ó Vesturdjúpi, Grænlandssundi og Suðurdjúpi.
SPÁ: Sunnanstrekkingur og rlgnmg um austanvert landið en suðvestankaldi og
skúrir eða slydduél um vestanvert landið, síðdegis og annað kvöld léttir tll austan-
lands með suðvestankalda.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FÖSTUDAG: Fremur hæg suðvestlæg átt. Skúrir eða slydduél sunnan-
og vestanlands. en léttskýjað norðaustanlands. Hiti 0-6 stig, hlýjast austanlands.
HORFUR Á LAUGARDAG: Litur út fyrir hæga breytilega átt og yfirleitt þurrt veður
á landinu. Fremur hlýtt og bjart inn til landsins að deginum, annars mun svalara.
HORFUR Á SUNNUDAG; Búaat má vlð vestanstrekkingi, sums staðar slydduéljum
og svölu veðri við noröur- og norðvesturströndina, en hægri breytilegri átt, þurru
og sæmilega hlýju veðrl yflr daglnn annars staðar á landlnu.
Heiðskírt Léttskýjað
/ / /
Rigning
* / *
* /
r * r
Slydda
Hálfskýjað
* * *
* *
* * *
Snjókoma
Skýjað Alskýjað
V $ V
Skúrir Slydduél Él
Sunnan, 4 vindstig.
Vindörin sýnir vindstefnu
og fjaðrimar vindstyrk,
heil fjöður er 2 víndstig._
10° Hitastig
Súld
= Þoka
itig-.
FÆRÐA VEGUM:
(Kl. 17.30 fgeer)
Ófært er um Breiöadalsheiöi vegna snjóflóðs, sem þar féll. Annars er fært um
alla helstu vegi landsins og hálkulaust er orðið á láglendi.
Upplýsingar um færð eru vefttar hjá Vegaeftlrlhi f síma 81-631600 og á grænni
línu, 98-6316. Vegagerðln.
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að í$l. tíma
hiti veður
Akureyri 8 skýjað
Reykjavfk 6 rignlng
Bergen 6 léttskýjað
Helslnkl 12 heiðskfrt
Kaupmannahöfn 7 rigning
Narssarssuaq 4 skýjað
Nuuk -r4 alskýjað
Ósló 12 léttskýjað
Stokkhólmur 12 skýjað
Pórshöfn 6 léttskýjað
Algarve 19 skýjað
Amsterdam 10 skýjað
Barcelona vantsr
Berlín 10 skýjað
Chicago 6 rigning
Feneyjer 14 þokumóða
Frankfurt 10 rigning
Glasgow 11 léttskýjað
Hamborg 8 rigning
London 10 skýjað
LosAngeles 14 skýjað
Lúxemborg vantar
Madríd vantar
Malaga vantar
Mallorca vantar
Montreal 6 rlgning
NewYork 7 þoka
Orlando 21 skýjað
Paría 8 rignlng
Madeira 18 léttskýjað
Róm 16 hálfskýjað
Vín 10 rigning
Washington 12 rigning
Winnipeg 5 skýjað
Morgunblaðið/Jón Stefánsson
Slapp lítt meiddur
úr hörðum árekstri
HARÐUR árekstur varð á mótum Bústaðavegar og Flugvallarvegar í
gærmorgun um kl. 10.30. Tveir bílar skullu harkalega saman og kastað-
ist annar á umferðarvita, sem féll í götuna. Ökumaður annars bílsins var
fluttur á slysadeild, en meiðsli hans reyndust ekki mikil. Bílarnir eru hins
vegar báðir mjög mikið skemmdir og varð að fjarlægja þá af slysstaðnum
með kranabíl.
Japanska sjónvarpið
gerir þátt um ísland
Vilja kynna sér daglegt líf fólksins
JAPANSKA ríkissjónvarpið hyggst gera þátt um ísland sem áætlað
er að sýna þar í landi 15. júní. I byijun maí er von á þremur Japönum
hingað til lands til að taka upp efni í þáttinn að sögn Nobuyasu Yama-
gata, sem vinnur að því að skipuleggja dvölina og útvega upplýsingar
fyrir hópinn.
Að sögn Yamagata mun hópurinn
dvelja hér í þijár vikur og hafa sjón-
varpsmennimir mestan áhuga á að
kynna ser lífið í Vestmannaeyjum
og þá sérstaklega það líf sem snýr
að sjómönnum. Aðrir staðir komi þó
líka til greina. Hann segist nú þeg-
ar hafa haft samband við fólk í eyjum
vegna þáttagerðarinnar, en áætlað
er að hann taki 45 mínútur í sýningu.
Japanimir hafa áhuga á að taka
myndir af giftingu, einnig stóm ætt-
armóti eða stórafmæli ef möguleiki
er fyrir hendi, segir hann. Þeir hafa
og mikinn áhuga á að kynna sér líf
sjómannsfjölskyldna.
Aldrei að vita hvernig
þátturinn þróast
Fieiri þættir hafa verið gerðir af
þessu tagi um ýmis lönd og segir
Yamagata að í þeim sé reynt að lýsa
daglegu lífí í viðkomandi landi, bæði
í myndum og máli. Sjónvarpsmenn-
irnir vilji þvi taka myndir af raun-
verulegum atburðum og hvemig þeir
ganga fyrir sig. Ekki sé fastákveðið
hvað verður gert, heldur muni það
sem fyrir augu ber 0g stemmningin
í kringum það verða myndað. Það
sé því aldrei að vita hvemig þáttur-
inn þróist.
Þáttagerðarmennimir reyna að
bera lífíð hér á landi saman við dag-
legt líf fólks í Japan, hvernig íslend-
ingar lifa lífínu, búa og hugsa um
framtíðina. Reynt verður að fínna
út hvernig þessar tvær þjóðir eru lík-
ar og á hvernig ólíkar, segir Yama-
gata.
Brugg í
Grafarvogi
LÖGREGLAN í Reykjavík
stöðvaði í gær starfsemi í
bruggverksmiðju í Grafarvogi
og lagði þar hald á 133 lítra
af gambra og 31 lítra af eim-
uðum landa, auk bruggtækja.
Ungur maður var handtek-
inn á staðnum gmnaður um
að hafa staðið að framleiðsl-
unni. Hann var til yfírheyrslu
í gær og lá þá ekki fyrir hvort
hann hefði gengist við að fram-
leiða mjöðinn í því skyni að
selja hann, eins og gmnur hafði
legið á.
Alþjóðleg drengjakórakeppni í Tampa
Drengjakór Laugarnes-
kirkju bar sigur úr bítum
DRENGJAKÓR Laugarneskirkju sem þessa dagana tekur þátt f alþjóð-
legu móti drengjakóra í borginni Tampa í Bandaríkjunum bar sigur
úr bítum í aðal kórakeppninni og einnig í flutningi tuttugustu aldar
verka. Þá sigruðu drengir úr kórnum í tvísöngskeppni, en þar voru
fulltrúar kórsins þeir Hrafn Davíðsson og Ólafur Friðrik Magnússon.
Stjórnandi Drengjakórs Laugarneskirkju er Ronald W. Turner.
Kórakeppnin í Tampa skiptist í skránni auk sígildra drengjakórs-
þijá hluta, en keppt er í flutningi
gömlu meistaranna, tuttugustu aldar
tónsmíða og að síðustu er kamm-
erkórakeppni. í keppninni sem haldin
er annðhvert ár taka þátt margir af
þekktustu drengjakórum í heimi, en
Drengjakór Laugameskirkju er
yngsti kórinn á mótinu. Kórinn mun
á næstu dögum halda tónleika á
fimm stöðum í Flórída og eru á efnis-
verka lög eftir Þorkel Sigurbjöms-
son, Jón Þórarinsson, Atla Heimi
Sveinsson og Jón Ásgeirsson. í kóm-
um, sem stofnaður var haustið 1990,
eru 32 drengir á aldrinum 9 til 15
ára, auk undirbúningsdeildar, Schola
Cantorum, fyrir drengi á aldrinum 7
til 9 ára. Hefur Ronald W. Tumer
verið stjórnandi kórsins frá upphafi.