Morgunblaðið - 14.04.1994, Page 36
36
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. APRIL 1994
Af hveiju er greitt
fyrir not af tónlist?
Greinargerð frá
stjórn STEFs
Vegna umfjöllunar í fjölmiðlum
um STEF og opinberan flutning
tónlistar, sem ýmsir álíta að sé
endurgjaldslaus, hefur stjórn sam-
takanna tekið saman eftirfarandi
greinargerð þar sem m.a. er svar-
að margs konar misskilningi og
rangfærslum sem birst hafa á
prenti og á öldum ljósvakans að
undanförnu.
Hvað er STEF?
í upphafi er rétt að vekja at-
hygli á því að aðild að Sambandi
tónskálda og eigenda flutningsrétt-
ar (STEFi) eiga lang flest þau ís-
lensk tónskáld og textahöfundar,
sem eitthvað hafa látið að sér kveða
á þessu sviði, jafnt þeir sem samið
hafa „alvarlega" og „létta“ tónlist
og texta við hana. STEF hefur síð-
an gert gagnkvæma samstarfs-
samninga við systursamtök í flest-
mýkt
í matargerðina
AKRA
FLJÓTANÐI
Nýr og spennandi
möguleiki í alla matargerð
#
Inniheldur
hollustuolíuna, rabsolíu
# .
Þœgilegt beint úr
kœliskápnum
mm
SMJÖRLÍKISGERÐ
AKUREYRI
tft r 11 s t í n a a ð m a t b é a
um menningarlöndum heims og sér
samkvæmt þeim samningum um
að innheimta höfundarréttargjöld
af tónlistarflutningi hér á landi
fyrir erlend tónskáld og textahöf-
unda meðan systursamtökin gera
slíkt hið sama fyrir íslensk tón-
skáld og textahöfunda erlendis.
Höfundarréttur er
stj órnarskrárvarinn
Réttur höfunda, þ.á m. tón-
skálda og textahöfunda, telst til
eignaréttinda og nýtur þar með
verndar stjómarskrárinnar. Höf-
undaréttur fer eftir höfundalögum
nr. 73/1972, með síðari breyting-
um. Höfundalögin eru í meginatrið-
um byggð á alþjóðasáttmálum um
höfundarétt, þ.á m. Bernarsátt-
málanum til verndar bókmenntum
og listverkum frá 1886, með síðari
breytingum, en aðild að þeim sátt-
mála eiga nú flest þeirra ríkja sem
telja má nútíma menningarríki.
Samkvæmt höfundalögum er
óheimilt að flytja listaverk, þ.ám.
tónverk, opinberlega nema með
leyfí höfundar. í lögunum sjálfum
og greinargerð, sem fylgdi frum-
varpi til laganna þegar það var
lagt fyrir Alþingi, er „opinber flutn-
ingur“ skýrður mjög rúmt. Þannig
er í greinargerðinni sagt að það
teljist ekki opinber flutningur ef
verk eru kynnt „á heimilum, í lok-
uðum hópi íjölskyldu eða kunn-
ingja“, en hins vegar segir þar
berum orðum að um opinberan
flutning sé að ræða ef verk er „flutt
eða sýnt á stöðum, sem almenning-
ur á fijálsan aðgang að, hvort held-
ur gegn aðgangseyri eða gjald-
fijálst".
í höfundalögum er sérstaklega
tekið fram að það teljist sjálfstæð-
ur flutningur á verki í skilningi
laganna „þegar útvarpsflutningi á
tónlist eða bókmenntaverki er
dreift til almennings með hátalara
eða á annan hátt“. í útvarpslögum
nr. 68/1985 er hugtakið „útvaip"
ekki skýrt eins rúmt og í höfunda-
lögum, en rétt er að endurtaka að
um rétt höfunda gilda höfundalög,
en ekki útvarpslög eða önnur lög.
Tónlist er eins og hver
önnur „vara“
Þessum ákvæðum höfundalaga
er ætlað að tiyggja að höfundar,
þ.á m. tónskáld og textahöfundar,
fái endurgjald fyrir það þegar ver-
ið er að nota „afurð“ eða „vöru“
sem þeir hafa skapað eins og
hveijir aðrir í þjóðfélaginu sem
stunda einhveija „framleiðslu".
Skiljanlega á almenningur erfitt
með að átta sig á því að eðlilegt
sé að greiða fyrir not á tónlist, sem
enginn getur þreifað á þótt hún
heyrist, alveg á sama hátt og ver-
ið er að greiða fvrir ýmiss konar
vöru og þjónustu. Kaupmaðurinn
telur t.d. sjálfsagt að hann eigi
að fá greidda álagningu í vöru-
verði þótt hennar sjái ekki bein
merki á vörunni, en finnst á sama
tíma óeðlilegt að greiða lítilræði
fyrir það að laða að viðskiptavini
með því að nota „vöru“ á borð við
tónlist.
Ef hægt er að flytja tónverk
úr útvarpi, án þess að tónhöfundar
fengju sérstakt endurgjald fyrir,
væri hægur vandi að nota tónlist
endurgjaldslaust t.d. á dansstöð-
um og í heilsuræktarstöðvum, þar
sem tónlistin er talin ómissandi. í
samningum STEFs við útvarps-
stöðvar er líka sérstaklega tekið
fram að heimild til flutnings tón-
verka í útvarpi feli ekki í sér neinn
rétt til handa útvarpsnotendum til
opinbers flutnings á tónlist úr út-
varpi.
Höfundarrétturinn er
alþjóðlegur
Þau ákvæði íslensku höfunda-
laganna, sem hér hefur verið vitn-
að til, eru öll í samræmi við al-
þjóðasáttmála um höfundarrétt og
þar með höfundalögum í flestum
ríkjum heims. í öllum nágranna-
löndum okkar hafa um árabil ver-
ið innheimt höfundarréttargjöld
af þeim stöðum þar sem tónlist
hefur verið flutt opinberlega,
þ.á m. í verslunum og flugvélum,
á feijum, hárgreiðslu- og rakara-
stofum, svo að nokkur dæmi séu
tekin.
Ekki skattur, heldur
endurgjald fyrir afnot
í umfjölluninni að undanförnu
hefur því oft verið haldið fram að
höfundarréttargjöld vegna opin-
bers flutnings á tónverkum væru
skattur. Þetta er alrangt, því eins
og gerð hefur verið grein fyrir hér
að framan er um að ræða endur-
gjald fyrir not á „vöru“ — endur-
gjald sem rennur til þeirra ein-
staklinga sem „framleitt" hafa
„vöruna“. Gjöldin byggjast ýmist
á samningum STEFs við þá aðila,
sem tónlist flytja, t.d. útvarps-
stöðvarnar, eða á gjaldskrá sem
stjórn samtakanna hefur sett með
heimild í höfundalögum og stað-
fest hefur verið af menntamála-
FAGOR
ÞVOTTAVtLAtl ft&4 & FLS3
Magn afþvotti 5 kg
Þvottakerfi 17
Hitar sföasta skolvatn
Sér hitastillir 0-9CPC
Ryöfrí tromla og beigur
Hraöþvottakerfi
Áfangaþeytivinda
Sjálfvirkt vatnsmagn
Hæg vatnskæting
Sparneytin
Hljóöiát
ráðuneytinu. Samkvæmt gjald-
skránni nema höfundarréttargjöld
til STEFs vegna flutnings tónlistar
í venjulegri rakara- eða hár-
greiðslustofu 4.124 kr. eða 8.249
kr. á ári, þ.e. 16-32 kr. fyrir hvern
virkan dag, eftir stærð stofunnar.
Tekjunum er úthlutað
til réttra aðila
Að gefnu tilefni er rétt að skýra
frá því að þeim tekjum, sem STEF
innheimtir, er úthlutað jafn óðum
til tónskálda, textahöfunda og
annarra rétthafa að tónlist sem
flutt eða gefin er út. Meirihluti
tekna, sem innheimtur er fyrir
flutning tónlisf .. hér á landi, renn-
ur til erlenura rétthafa. Hinum
hlutanum er skipt á milli innlendra
rétthafa miðað við það hvaða tón-
list hefur verið flutt í útvarpi og
annars staðar. í því efrii er m.a.
byggt á tónflutningsskýrslum frá
útvarpsstöðvunum sem þeim er,
samkvæmt samningum við STEF,
skylt að láta samtökunum reglu-
lega í té.
Því miður hefur orðið misbrest-
ur á því að minni útvarpsstöðvarn-
ar gerðu það og þess vegna hefur
ekki verið hægt að taka tillit til
flutnings tónlistar í þeim stöðvum
við úthlutun til rétthafa. Það hefur
hins vegar ekki leitt til þess að
minna fé væri úthlutað en til
skipta er hveiju sinni, heldur hafa
höfundar „léttrar" tónlistar, en
slík tónlist er nánast einvörðungu
flutt á umræddum stöðvum, feng-
ið meira fyrir flutning verka sinna
á stóru stöðvunum en þeir hefðu
ella fengið ef full skil hefðu verið
gerð á tónflutningsskýrslum. Það
er því sem betur fer rangt að höf-
undar „léttrar" tónlistar hafi borið
skarðan hlut frá borði vegna þess-
ara vanefna minni útvarþsstöðv-
anna á samningsskyldum sínum.
Samvinna í stað illdeilna
Að lokum vill stjórn STEFs taka
fram að hún óskar eftir sem bestri
samvinnu við þá aðila sem kjósa
að flytja tónlist opinberlega. Þeir,
sem ekki flytja tónlist þannig að
viðskiptavinirnir megi njóta henn-
ar, greiða hins vegar engin gjöld
til STEFs vegna þess að um er
að ræða endurgjald fyrir not á
„vöru“ eins og lýst er hér að fram-
an.
í stjórn STEFs,
Magnús Kjartansson, formaður
Áskell Másson, varaformaður
Árni Harðarson
Hrafn Pálsson
John Speight
Ólafur Haukur Símonarson
Þórir Baldursson.
-------♦ ♦ ♦------
Erindi flutt
um tölvu-
mál fatlaðra
VINAFÉLAG Blindrabókasafns
íslands þeldur aðalfund sinn í
dag, fimmtudaginn 14. apríl, í
húsakynnum Blindrafélagsins
Hamrahlíð 17 kl. 20.30.
Að loknum aðalfundarstörfum
flytur Sigrún Jóhannsdóttir, for-
stöðumaður Tölvumiðstöðvarinnar
í Hátúni 10 erindi sem hún nefnir:
Tölvumál fatlaðra.
Sjíamðu
þcrsporiii!
Faxbúnaður fyrir
einmenningstölviir
ogtölvunel
#BOÐEIND
Austurstrpnd 12. Sími 612061. Fax 612081
■Vjdijiy. rr.fi jp.fi [.fn;nt„fili) ).i J