Morgunblaðið - 14.04.1994, Síða 39

Morgunblaðið - 14.04.1994, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. APRÍL 1994 39 Enn um Breiðholtslögregluna eftir Gunnar Jóhann Birgisson Árið 1989 var opnuð lögreglustöð í Breiðholtshverfi þar sem settir voru til starfa þrír lögreglumenn sem fal- ið var að starfa í anda forvarnar- starfs og grenndarlöggæslu, þ.e. mynda náið og traust samband við íbúa svæðisins í þeim tilgangi að halda niðri tíðni afbrota og draga úr ótta við afbrot og glæpi. Til að þetta mætti takast var gripið til nýrra vinnubragða eins og gert hef- ur verið víða erlendis í sama til- gangi. Lögreglustöðinni í Breiðholti var sköpuð sú sérstaða hér á landi að þaðan skyldi ekki fyrst og fremst sinnt almennum útköllum úr merkt- um lögreglubílum. Lögreglumenn á Breiðholtsstöð skyldu ferðast á milli á ómerktri lögreglubifreið og leggja áherslu á að mynda traust persónu- legt samband við íbúa hverfisins, skólastjórnendur og þá sem starfa að félagsþjónustu á svæðinu. Látið skyldi á það reyna hvort ekki mætti með þeim aðferðum ná árangri í að draga úr afbrotatíðni og beita kröft- um lögregluliðsins með jákvæðum hætti til að bæta mannlíf i hverfinu. Frábær árangur Breiðhoitsstöðin hafði ekki starf- að lengi þegar ljóst var að björtustu vonir sem við hana voru bundnar voru að rætast. Þar völdust til starfa áhugasamir menn sem reyndust eiga auðvelt með að umgangast fólk og vinna traust þess og láta sér annt um hag þess; „láta mannleg tengsl ganga fyrir tækninni". Á skömmum tíma tókst lögreglumönnunum þremur að mynda svo gott samband við fólk í hverfinu sínu að fjöldi fólks sneri sér til þeirra með upplýsingar um hvers kyns afbrotastarfsemi sem það vart vart við í umhverfi sínu. Slíku trúnaðarsambandi hafa fáir aðrir lögreglumenn náð við svo mik- inn fjölda í jafnstóru samfélagi og Reykjavík er. í hugum flestra sem fylgjast með fréttum er lögreglu- stöðin í Breiðholti sjálfsagt tengdust baráttu gegn landabruggi enda skipta bruggverksmiðjurnar sem lögreglumenn í Breiðholtsstöð hafa lokað, tugum ef ekki hundruðum og landalítrarnir sem aldrei komust á markað fyrir þeirra tilverknað skipta tugum þúsunda. Þetta var afrakstur rannsókna lögreglumannanna þriggja, árangur sem aðeins forvarn- arstarf og grenndarlöggæsla gerðu mögulegan. En fleira ber að nefna. Ýmis stór afbrotamál hafa verið upplýst eftir að lögreglunni í Breið- holti bárust upplýsingar frá fólki sem bar traust til þeirra. Þar mætti nefna íkveikju í sumarbústað í Heið- mörk; þjófnað á sprengiefni, sem fannst í fjölbýlishúsi í Breiðholti og tugi innbrota og þjófnaða, sem leyst- ust með þeim hætti að þýfi komst í hendur réttra eigenda. „ Auðvitað þarf lögregl- an að sinna útköllum og eftirliti og undanfar- in misseri hefur lög- reglustjórinn í Reykja- vík haft yfir um það bil 200 lögreglumönnum að ráða til þeirra starfa. Nú hefur hann 203. Þremur færri en áður einbeita sér hins vegar að forvarnar- starfi og að því að „láta mannleg tengsl ganga fyrir tækninni“.“ Það var með þessa sögu í huga sem ég fullyrti í grein sem birtist í Morgunblaðinu skömmu fyrir páska að starf lögreglustöðvarinnar í Breiðholti hefði verið þakklátasta og best heppnaða starfsemi sem emb- ætti lögreglustjórans í Reykjavík hefði staðið fyrir og um leið og þau orð eru ítrekuð er skylt að geta þess að fullyrt er að Böðvar Bragason lögreglustjóri hafi verið allra manna áhugasamastur um það að ryðja þessari nýjung í löggæslustarfi hér á landi braut, nýjung sem gerir nýj- Gunnar Jóhann Birgisson ar kröfur jafnt til almennra lögreglu- manna og yfirmanna þeirra. Breyttur starfsgrundvöllur Einmitt vegna þessa frumkvæðis og áhuga iögreglustjórans á forvarn- arstarfi kallaði ég það „ótrúlegar fréttir" þegar það spurðist út að forvarnarstefnu hefði verið ýtt til hliðar í Breiðholtsstöðinni og henni Menntun gegn atvinnuleysi eftir Guðmund Gunnarsson Ein þeirra leiða sem oft ber á góma í baráttunni gegn atvinnuleysi er aukin menntun og starfsfræðsla. Menntun, einkum starfsmenntun, getur og á að vera eitt af mikilvæg- ustu tækjum okkar til þess að efla atvinnulífið og til þess að skapa ný og jafnframt góð störf. Það þarf að grundvalla menntastefnu okkar á mati á styrkleika og veikleika at- vinnulífsins. Bóknám hefur verið of ráðandi í námsvali ungs fólks. Marg- ar greinar atvinnulífsins hafa ekki verið studdar af nauðsynlegri upp- byggingu menntunar. Þetta á bæði við undirbúningsmenntun í fram- haldsskóla og eftirmenntun, sem boðið er upp á eftir að út í atvinnu- lífið er komið. í starfsmenntakerfi okkar er ekk- ert sem gerir ráð fyrir að styðja ein- staklinginn til menntunar í öðrum störfum en þeim sem eru innan þess starfsgeira sem hann er í, jafnvel þó að það sé atvinnuleysi innan hans og atvinnumöguleikar bjóðist á öðr- um starfssviðum. Fólk sem á að baki stutta menntun hefur engan eða takmarkaðan aðgang að starfs- menntakerfi, en starfsstéttir sem hafa að baki menntun hafa aðgang að virku kerfi. Þær semja um að- gang að starfsmenntakerfi, námsfrí, greiddan ferðakostnað vegna nám- skeiða erlendis o.þ.h. Þeim einstak- lingi, sem af einhverjum ástæðum fellur úr námi og fer út á vinnumark- aðinn, er búin sú framtíð að hafa mjög takmarkaða möguleika til þess að komast til náms. Það eru ekki einungis mestar líkur til þess að hann verði atvinnulaus meðal launa- manna, heldur má einnig segja að kerfið standi gegn því að hann kom- ist frá þessu. Atvinnulausir þurfa skipulagt starfsnám Hér er verk að vinna og þar þurfa fulltrúar atvinnulífsins að vera við stjórnvölinn. Það þarf að skapa nýja kosti fyrir. ungt fólk á sviði starfs- og tæknimenntunar sem eru grund- vallaðir á þörfum atvinnullfsins. Við verðum jafnframt að gefa þeim sem eru komnir út á vinnumarkaðinn jafngilda möguleika til þess að afla sér menntunar. Það er mikilVægt að brjóta niður ýmsa þá múra sem byggðir hafa verið og skoða heild- stætt hvernig nýta má námsframboð menntastofnana til þess að byggja upp starfsmenntabrautir. Það má minnka atvinnuleysi með tvennskonar aðgerðum, fjölga at- vinnutækifærum eða minnka at- vinnuframboð. Sú vinna sem lögð hefur verið í að leysa atvinnuleysið hingað til hefur aðallega snúist um að skapa skammtímastörf. Það hefur lítið farið fyrir langtímalausnum. Það má nýta tíma atvinnulausra til jákvæðrar uppbyggingar bæði fyrir einstaklinginn sjálfan og atvinnulíf- ið, með aukinni skipulagðri starfs- og tæknimenntun. Langflestir þeirra sem atvinnu- lausir eru er fólk með mjög skamma menntun. Tíma þessa fólks er lang- best varið í heildstætt og skipulegt nám, sem stefnir að ákveðnu markmiði. Hingað til hefur atvinnu- laust fólk haft takmarkaðan aðgang að menntun nema þá að einstökum námskeiðum sem ekki mynda heild. Með þannig skipulagi er tryggt áhugaleysi einstaklingsins á því að sækja sér aukna menntun, því hagur hans með námskeiðasókninni er lítill Fúllá eftir Guðrúnu Ágústsdóttur Alveg ný baráttuaðferð í kosning- um hefur nú rutt sér til rúms, hér á síðum Morgunblaðsins. Sá sem stendur fyrir þessari nýbreytni í áróðurstækni er á launum sem borg- arstjóri — annar af tveimur — nánar tiltekið, sá þeirra sem er hættur. Nýbreytnin er í því fólgin að hafa allt á hornum sér, vera með ólund og nöldur og skammir, aðallega út í gamla daga. Engin framtíðarsýn ríkir. Hann er ekki meira hættur en svo að á hverjum degi nánast birtist ný og ný grein í þessum stíl nei- kvæðni og fortíðarhyggju. Greina- skrif þessi hljóta að vera til þess ætluð að draga úr fólki kjark — og á því þurfa Reykvíkingar síst að baldá nú. „Hér þarf að sameina þá menntunarkosti sem í boði eru hjá mennta- stofnunum atvinnulífs- ins og hinu almenna skólakerfi og skapa heildstæðar starfs- menntabrautir.“ og þjóðfélagslega séð er ávinningur- inn takmarkaður. Hér þarf að sameina þá menntun- arkosti sem í boði eru hjá mennta- stofnunum atvinnulífsins og hinu almenna skólakerfi og skapa heild- stæðar starfsmenntabrautir. Með því að beina atvinnulausu fólki inn á þessar brautir, sem gætu verið eins til tveggja anna nám, er verið að gera marga hluti samtímis. Atvinnuþátttaka er minnkuð og annars dauður tími er nýttur til þess að byggja upp einstaklinginn, þann- ig að hann geti á raunhæfari hátt sótt inn í atvinnulífð á ný eftir betri störfum. Atvinnulífið fær hæfari móti? Enga ólund Enginn er að biðja um skemmti- dagskrá í þessari kosningabaráttu. Til þess eru þau vandamál sem þarf að leysa of stór og brýn. Auðvitað er það skiljanlegt að sjálfstæðismenn í borgarmálum Reykjavíkur séu svo- lítið niðurlútir nú og lítið glaðir, það skilja allir. Það er ekki neitt gaman- mál að skila borginni af sér til kosn- inga nú með skuldabagga sem hefur fjórfaldast á hvern borgarbúa á nokkrum árum. Hægt væri að fyrir- gefa margt ef þessi mikla skulda- aukning hefði farið til þarfra verk- efna sem skiptu borgarbúa verulegu máli, en ekki í óþarfa. En fyrr má rota en dauðrota. Ólund og nei- kvæðni eru ekki góðir förunautar í þeim brýnu verkefnum sem leysa þarf í borginni; s.s. atvinnumál, fé- lagsleg vandamál af ýmsu tæi og fjárhag borgarinnar. Guðmundur Gunnarsson starfskrafta og virðisauki vinnu- framlags vex. Síðast en ekki síst er komið í veg fyrir það vonleysi og uppgjöf sem því fylgir að vera at- vinnulaus, hafa ekkert fyrir stafni og hafa að engu að stefna. Höfundur er formaður Rafiðna ðursam bands islands og skipar 1J. sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Guðrún Ágústsdóttir Borgarstjórabíllinn enn í bakkgír Það er betra að fela bjartsýnu og jákvæðu fólki úrlausn þessara brýnu hefði verið breytt í venjulega útkalls- stöð. Sú staðreynd stendur óhögguð eftir andsvar það við grein minni sem lögreglustjóri birti í Morgunblaðinu . hinn 7. þessa mánaðar. Það er rétt sem lögreglustjóri seg- ir að starfandi lögreglumönnum í Breiðholtsstöðinni hefur verið fjölg- að úr þremur í fimm og þeir hafa fengið merktan lögreglubíl til um- ráða. Jafnframt ganga þeir vaktir þannig að ekki eru fieiri að störfum hverju sinni en áður. Meginbreyting- in er hins vegar sú að aðalhlutverk lögreglumannanna í Breiðholtsstöð er nú að sinna útköllum frá fjar- skiptamiðstöð lögreglunnar, aka um hverfið á svokölluðum eftirlitsferð- um og fylgjast með umhverfinu í - - gegnum bílrúðuna. Þessu er sinnt á kostnað þess sem áður var gert, forvarnarstarfsins. Auðvitað þarf lögreglan að sinna útköllum og eftirliti og undanfarin misseri hefur lögreglustjórinn í Reykjavík haft yfir um það bil 200 lögreglumönnum að ráða til þeirra starfa. Nú hefur hann 203. Þremur færri en áður einbeita sér hins vegar að forvarnarstarfí og að því að „láta mannleg tengsl ganga fyrir tækn- inni“. Togstreita nýrra og gamalla tíma Sú breyting sem gerð hefur verið í Breiðholtsstöðinni átti sér nokkurn aðdraganda því að fullyrt er að ekki hafi allir yfírmenn lögreglunnar í Reykjavík verið hrifnir af þeirri nýj- ung sem forvarnarstarfið var og lög- reglustjóri. Sívaxandi togstreitu hafði gætt milli forvarnarmanna og þeirra sem ekki eru reiðubúnir að vinna að framgangi þeirrar nýjungar sem í forvörnunum felst. Vegna þessarar togstreitu hafði m.a verið sett alvarlega ofan í við Breiðholts- menn fyrir að halda sínu striki og tregðast við að hlýða fyrirskipunum um að breyta starfsháttum sínum. Þessi togstreita og þær breytingar sem gerðar hafa verið á starfsemi lögreglustöðvarinnar í Breiðholti á kostnað forvarnarstarfsins eru á vit- orði allra lögreglumanna í Reykjavík þótt þeir kjósi að bijóta ekki húsaga með því að ræða málið á opinberum vettvangi. Hér er hins vegar ekki um að ræða innanhússmál lögregl- unnar heldur mál sem varðar Reyk- víkinga alla. Sá árangur sem grenndarlögreglumennirnir í Breið- holti náðu meðan þeir fengu að ein- beita sér að starfí sínu varpaði ljósi á það hvaða möguleikar eru ónýttir í starfi lögreglunnar í þágu borg- arbúa. Lögreglustjóra kann að bresta stuðning í eigin röðum til að vinna að framgangi forvarnarstefnu og grenndarlöggæslu en hann getur reitt sig á stuðning borgarbúa, sem vonandi fá aukin áhrif á stefnumörk- un flytjist forræði löggæslumála yfír til borgarinnar. Höfundur er lögmaður ! Reykjavik og skipar 5. sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins við borgarstjómarkosningarnar í vor. „Það er ekki neitt gam- anmál að skila borginni af sér til kosninga nú .<• - með skuldabagga sem hefur fjórfaldast á hvern borgarbúa á nokkrum árum.“ verkefna. Fólki með þekkingu og reynslu, sem kemur óþreytt að mál- um. Fólkið í borginni vill breyta til. Breyta stjórn borgarinnar. Það skynjaði borgarstjórinn og hætti. Það virðist ekki ætla að duga tiL Borgarstjórabíllinn er enn í bakkgír. En hvernig er þetta með Markús? Ætlar hann ekki að hætta alveg? Ætlar hann að halda áfram að stjórna, en nú bara úr aftursæti borgarstj órabílsins? Höfundur skipar 2. sæti á Reykjavíkurlistanum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.