Morgunblaðið - 14.04.1994, Qupperneq 63
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 14. APRÍL 1994
63
I
I
I
I
I
I
í
í
4
i
i
4
Í
4
4
4
4
i
4
4
HANDKNATTLEIKUR
Skyttumar með stórleik
STÓRSKYTTUR Selfyssinga,
Einar Gunnar Sigurðsson og
Sigurður Sveinsson, voru í
miklum ham í fyrsta leik liðsins
gegn KA í átta liða úrslitum
Islandsmótsins. Þeirfélagar
gerðu 18 mörk er Selfoss vann
29:22.
Selfyssingar hafa greinileg lagt
rækt við varnarleikinn í fríinu
því þeir léku mjög góða vörn í
gærkvöldi, nokkuð
Skúli Unnar sem ekki hefur verið
Sveinsson algeng sjón á þeim
skrifar bæ. „Vörnin hefur
verið vandamál hjá
okkur í vetur en við unnum vel í
henni um páskana og sjáum árang-
urinn af því puði núna. Vörnin er
í rauninni ekkert nema vinna,“
sagði Einar Gunnar Sigurðsson fyr-
irliði Selfyssinga eftir sigurinn í
gær, en hann átti stórleik.
Selfoss var sterkara liðið á vellin-
um í gær. KA tókst þó að standa
í þeim fram yfir miðjan síðari hálf-
leik en þá sprungu þeir á limminu.
Selfyssingar geta fyrst og fremst
þakkað Einari Gunnari og Sigurðu
Sveinssyni sigurinn. Einar Gunnar
lék mjög vel og gerði hluti sem
hann hefur gert allt of lítið af; að
stökkva upp langt fyrir framan
vörnina og skjóta. í gær var hann
óragur við það og gerði níu glæsi-
leg mörk með þeim hætti. En hann
gerði meira því í vörninni var hann
eins og klettur og varði ein sex skot.
Sigurður var einnig í miklum
ham og þrátt fyrir að Alfreð færði
sig til í vörninni til að aðstoða þeim
megin náðist ekki að stöðva hann.
„Þeir tveir áttu allt of góðan leik
og okkur gekk erfiðlega að eiga við
þá. Ég held þó að „statistikinn"
segi okkur að þeir geti ekki báðir
átt stórleik tvo leiki í röð. Við ætlum
að læra af þessum leik og erum
alls ekki búnir,“ sagði Alfreð Gísla-
son þjálfari og leikmaður KA.
En það voru ekki bara þeir sem
léku vel því vörn Selfoss var sterk
og liðsheildin lék vel, einn fyrir alla
og allir fyrir einn.
Hjá KA lék Valdimar mjög vel
og Alfreð átti ágætan dag en aðrir
eiga að geta betur og það var áber-
andi í sóknarleiknum að menn virt-
ust hræddir við að taka frumkvæð-
ið, nema þessir tveir og Valur.
KA byijaði betur og gerði fyrstu
tvö mörkin en eftir það var jafn-
ræði með liðunum. KA-menn klauf-
ar að láta heimamenn gera tvö síð-
ustu mörkin fyrir hlé. I síðari hálf-
leik gekk allt eðlilega fyrir sig ef
svo má að orði komast, framan af
en síðan kom rosalegur kafli hjá
Selfyssingum sem skoruðu úr níu
sóknum í röð, klikkuðu síðan í einni
og skoruðu í næstu fjórum. Nýting-
in hjá þeim í síðari hálfleik var
hvorki meiri né minni en 75% og í
leiknum í heild 63%.
Júlíus og
Geir eru enn
í myndinni
Júlíus Jónasson og Geir Sveinsson léku
báðir vel með liði sínu Alzíra í gærkvöldi
þegar þeir tóku á móti liði Teka Santander
í undanúrslitum spænsku deildarinnar. Alz-
íra sigraði 26:22 og staðan er því 1:1 í
baráttu liðanna um að komast í úrslitaleik-
ina.
„Þetta var góður leikur hjá okkur og
eins og svo oft var það vörnin og markvarsl-
an sem smullú," sagði Júlíus í samtali við
Morgunblaðið í gærkvöldi. „Það var jafnt
á flestum tölum upp í 18:18 en þá náðum
við tveggja marka forystu og undir lokin
náðum við að auka hana í fjögur mörk.
Geir lék mjög vel og gerði ein fimm mörk
og ég komst meira að segja á blað, gerði
eitt mark við mikinn fögnuð áhorfenda,"
sagði Júlíus en hann leikur venjulega lkki
í sókninni hjá Alzíra.
Kraftur
BÆÐI Haukar og Selfoss
unnu nokkuð öruggan
sigur á mótheijum sínum
í fyrsta leiknum í 8 liða
úrslitunum í gær. Hér til
hliðar er það Einar Gunn-
ar Sigurðsson sem hefur
lyft sér upp fyrir vöm
KA, en hann gerði mikið
af því í leiknum. Á neðri
myndinni er Aron Kristj-
ánsson Haukamaður í
baráttunni við Mos-
fellsbæinga.
Deildarmeistarar Hauka áttu ekki
í erfiðleikum með leggja nýliða
Aftureldingar að velli að Strandgöt-
unni, 28:21. Það var
SigmundurÓ. aldrei spurning hver
Steinarsson færi með sigur af
skrifar hólmi, svo miklir voru
yfirburðir heima-
manna. „Ég var ánægður með varn-
arleikinn hjá okkur í bytjun leiksins
og þá var sóknarnýtingin góð. Við
lögðun þá grunninn að sigrinum,"
sagði Jóhann Ingi Gunnarsson, þjálf-
ari Hauka. „Það þýðir ekkert að of-
metnast við þetta — við eigum eftir
að leika í Mosfellsbæ."
Haukar léku við hvern sinn fingur
gegn Aftureldingu. Varnarleikur
þeirra var mjög sterkur, þannig að
gestirnir áttu í miklum erfiðleikum
að finna glufu á varnarvegg Hauka,
sem komst yfir 13:7 fyrir leikhlé. Það
eina sem leikmenn Aftureldingar,
sem léku einhæfan sóknarleik, gátu
til að reyna að koma knettinum í
Lauflétt hjá Haukum
gegnum „múr“ Hauka, voru lang-
skot. Þeir skoruðu sex af sjö mörkum
sínum í fyrri hálfleik með langskot-
um. Á sama tíma og leikur Aftureld-
ingar var máttlaus, fóru leikmenn
Hauka á kostum og lék Petr Baumruk
aðalhlutverkið. Heimamenn léku
gestina grátt með því að klippa
skemmtilega fyrir framan vörn
þeirra. Trúfan reyndi að stöðva
Baumruk, en það tókst illa. Hann fór
eitt sinn grimmt út gegn Baumruk,
sem sýndi það í næstu sóknarlotu
hver það væri sem réði ríkjum á
Strandgötunni — hann skoraði fram-
hjá Trúfan með föstu undirhandar-
skoti.
Haukar héldu uppteknum hætti í
seinni hálfleik, en slökuðu á klónni
þegar þeir voru búnir að ná níu marka
forskoti, 19:10. Þá fóru leikmenn
Aftureldingar að taka Pál Ólafsson
úr umferð og Petr Baumruk hægði
á ferðinni. Halldór Ingólfsson og Sig-
uijón Sigurðsson fengu að leika laus-
um hala — og háðu harða skot-
keppni, sem þeir nutu svo sannarlega
— skoruðu hvert markið á fætur öðru,
eða tíu af síðustu ellefu mörkum
Hauka. Halldór sex, en Siguijón fjög-
ur — þar af þrjú síðustu mörk leiks-
ins. Haukar skoruðu 15 mörk í seinni
hálfleik og þar af 13 með langskotum
— mörgum gullfallegum.
Haukar eru með sterka liðsheild,
sem leikur sterkan varnarleik og fjöl-
breittan sóknarleik, þar sem knöttur-
inn gengur hratt manna á milli. Þá
er markvörðurinn Magnús Árnason
sterkur. Varnarleikur Aftureldingar
er aftur á móti slakur og sóknarleik-
urinn einhæfur og máttlaus. Það
verður kraftaverk ef Afturelding leik-
ur aftur í Hafnarfirði í vetur.
Morgunblaðið/Kristinn
Þannig vörðu þeir
Markvarslan í leikjum gærkvöldsins (innan sviga varið, en knötturinn aftur til mótheija):
Magnús Árnason, Haukum - 18/1(3) 6(1) langskot, 2 vítaköst, 2(1) úr horni, 1 hrað-
aupphlaup, 2(1) af línu.
Bjarni Flosason, Haukum - 2(1) 1 hraðaupphlaup, 1(1) langskot
Sigurður Sigurðsson, Afturelding - 3 1 úr horni, 1 hraðaupphlaup, 1 langskot.
Viktor R. Viktorsson, Aftureldingu - 3 3 langskot.
Gísli F. Bjarnason, Selfossi - 14/1(4) 7(2) langskot, 4 úr horni, 4(2) af línu, 1 víti.
Ásmundur Jónsson, Selfossi - 1 1 úr hraðaupphlaupi.
Sigmar Þ. Óskarsson, KA - 8/1(2) 6(2)langskot, 1 úr horni, 1 víti.
SÓKNAR-
NÝTING
Selfoss
UMFA
. V * '■/
Haukar Afturelding
Mörk Sóknir % Mórk Sóknir % Mörk Sóknir % Móik Sóknir %
111 22 50 F.h 11 22 50 : 13 21 62 F.h 7 21 33
18 24 75 S.h 11 23 48 15 25 60 S.h 14 25 56
29 46 63 Alls 22 45 49 M 28 46 61 Alls 21 46 46
Langskot 6
Hraðaupphlaup 3
Hom g
Una 1
Viti S
Langskot
Hraðaupphlaup
norn
Lina
Urslitakeppnin í
handknattleik 1994