Morgunblaðið - 16.04.1994, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. APRÍL 1994
7
Vinnumiðlun borgar
innar í nýtt húsnæði
Skráning skólafólks hefst á mánudaginn
VINNUMIÐLUN Reykjavíkur-
borgar er þessa dagana að flylja
hluta starfsemi sinnar í nýtt hús-
næði á Engjateig 11. Á mánudag-
inn hefst þar skráning skólafólks
sem óskar eftir vinnu hjá borg-
inni. Skránin 14 og 15 ára nema
í Vinnuskóla Reykjavíkur hefst
2. maí. Onnur starfsemi Vinnu-
miðlunar flyst á Engjateig í vor.
Að sögn Oddrúnar Kristjánsdótt-
ur, framkvæmdastjóra Vinnu-
miðlunar borgarinnar, munu
með þessum breytingum skapast
aðstæður til að veita atvinnu-
lausu fólki betri þjónustu en
hægt hefur verið að veita hingað
til.
Á síðasta ári veitti Reykjavíkur-
borg öllum ungmennum vinnu í
Vinnuskólanum sem sóttu um. Alls
störfuðu rösklega 2.200 manns í
Vinnuskólanum, en það eru ungl-
ingar á aldrinum 14-15 ára. Um
3.700 skólanemar á aldrinum 16-25
ára sóttu um vinnu hjá borginni,
en um 2.600 fengu vinnu. Rúmlega
1.000 fengu vinnu eftir öðrum leið-
um. Oddrún sagði, að menn viti
Flugfélag Austurlands
2 milljóna
rekstrar-
hagnaður
Egilsstöðum.
FLUGFÉLAG Austurlands var
rekið með hagnaði upp á 2 millj-
ónir síðastliðið ár, ef frá eru tal-
in fjármagnsgjöld. Að þeim með-
töldum er tap upp á fimm hundr-
uð þúsund. Flugfélagið gerir út
2 vélar og eru stöðugildin fimm
og hálft. Þar af eru þrír flug-
menn.
Eftir nokkur erfið ár er rekstur
Flugfélags Austurlands nú komin í
jafnvægi. Eiginfjárhlutfall félagsins
er um 30% og heildarskuldir losa
17 milljónir. Að sögn framkvæmda-
stjóra félagsins Gústafs Guðmunds-
sonar, er fjárhagsstaðan góð og
allt er í skilum. Flugfélagið sinnir
mest stuttum flugum á Austurlandi
en fer þó tvisvar í viku til Reykjavík-
ur. Einnig er nokkuð um það að
flogið sé með íslendinga til Fær-
eyja. Sjúkraflug er stór þáttur í
rekstri félagsins og hafa ferðir með
sjúklinga verið um 130 á ári. Heild-
arflugtími á síðasta ári var um 900
hundruð klukkustundir, en þarf að
vera heldur meiri.
Komu í veg fyrir aukningu
Gústaf segir að úthlutun á flug-
leyfi til handa íslandsflugi á síðasta
ári til Egilsstaða hafi komið í veg
fyrir aukningu umsvifa Flugfélags
Austurlands. Að hans mati átti fé-
lagið að fá leyfi á þessari leið og
þar með hefði skapast grundvöllur
undir kaup á stærri flugvél. Sá
grundvöllur væri hins vegar ekki
fyrir hendi nú. Hann sagði þó ekki
mikla hættu á að félagið legðist af
vegna þessa. Sjúkraflugi þyrfti allt-
af að sinna, og það væri ekki hægt
að gera frá Reykjavík.
Bjart framundan
Gústaf sagði að ekki væri ástæða
að óttast framtíðina hjá Flugfélagi
Austurlands. Félagið væri vissulega
lítið en ef það fengi frið til að sinna
sínum málum væri framtíðin björt.
Nú er meðal annars búið að ákveða
að fljúga til Vestmannaeyja í sumar
þrisvar í viku með viðkomu á
Hornafirði.
-Ben.S
ekki hvað mörg ungmenni óski eft-
ir vinnu í ár, en stefnt sé að því
að veita öllum vinnu sem þess óska.
Vinnumiðlun Reykjavíkurborgar
er til húsa í Borgartúni 3 í þröngu
húsnæði. Oddrún sagði, að þröng
húsakynni hefðu lengi háð stofn-
unni og löngu tímabært hefði verið
að bæta þar úr. „Við stefnum að
því að taka upp breyttar aðferðir
við vinnumiðlun, sérstaklega varð-
andi ráðgjöf fyrir þá sem eru at-
vinnulausir. Rýmra húsnæði gefur
okkur tækifæri til að veita betri
þjónustu og virkari vinnumiðlun,"
sagði Oddrún.
Fólk sem er á atvinnuleysisskrá,
á áfram að koma í Borgartún 3 til
að skrá sig, en skólafólk er beðið
um að fara í nýju húsakynnin á
Engjateig ef það óskar eftir vinnu
hjá borginni í sumar.
x'
5S 5i g |
mmm;
Morgunblaðið/Þorkell
Yinnumiðlunin flytur
SKRÁNING skólafólks hjá Vinnumiðlun Reykjavíkurborgar hefst í
nýjum húsakynnum á Engjateig 11 næstkomandi mánudag. Frá-
gangi á nýja húsnæðinu er að ljúka.
Hvað fœrðu fyrir
mikil innlánsviðskipti
í bankanum þínum...
...annað en vexti?
Til mikils aö vinna meö Vildarþjónustu íslandsbanka!
Vildarþjónustu íslandsbanka njóta þeir vibskiptavinir sem eiga mikil og gób
innlánsvibskipti vib bankann; ab lágmarki 500.000,- kr. í samanlögbum
innstœbum.
Þú hefur beinan abgang ab þjónustufulltrúa. Forgangsverkefni hans er ab veita
persónulega þjónustu og þekkja vibskipti þeirra sem eru í Vildarþjónustunni og
vera þeim innanhandar um hvabeina sem varbar dagleg samskipti vib bankann.
Þú fœrb afhent nafnspjald þjónustufulltrúans meb beinu símanúmeri hans. Eftir
lokun tekur símsvari vib skilabobum sem þjónustufulltrúinn afgreibir síban strax
ab morgni.
Þú fœrb yfirlit reglulega yfir vibskipti þín í bankanum.
VILDARÞJONUSTA
ISLANDSBANKA
Þar ab auki spararbu þér umtalsverbar fjárhcebir árlega vegna niburfellingar
ýmissa þjónustugjalda eins og eftirfarandi dœmi sýnir:
Yfirdráttarheimild 200.000 kr., 50% nýting 9.000,-
Tólf tékkhefti 3.300,-
Þrjú skuldabréf meb einni afborgun á ári í innheimtuþjónustu 2.175,-
Mánabarleg innheimta á húsaleigu 5.820,-
Creibslukort, árgjald 1.750,-
Vibskiptayfirlit 190,-
Samtals: 22.235,-
Efþú vilt fá meira en vexti fyrir mikil innlánsviöskipti
skaltu kynna þér Vildarþjónustu íslandsbanka;
menn hafa skipt um banka fyrir minna!
veU>öí
ISLANDSBANKI