Morgunblaðið - 16.04.1994, Blaðsíða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. APRÍL 1994
STJÖRNUSPÁ
eftir Frances Drake
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Gættu þess að glata engum
verðmætum í dag. Eitthvað
óvænt gerist í sambandi við
vinnuna. Varastu deilur í
kvöld.
Naut
(20. apríl - 20. maí) Iffö
Stattu við loforð sem þú hef-
ur gefið einhvetjum nákomn-
um. Breytingar geta orðið á
ferðaáætlun. Þú færð góða
ábendingu.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní) Æ*
Einhver óvissa ríkir varðandi
fyrirhuguð viðskipti.
Skemmtanalífið heillar í
kvöld, en þú ættir að varast
deilur um peninga.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú eyðir talsverðum tíma í
að sinna verkefnum úr vinn-
unni í dag. Einhver nákom-
inn á erfitt með að gera upp
hug sinn.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú gerir vini greiða með því
að heimsækja hann í dag.
Eitthvað óvænt gerist er
varðar vinnuna. Þú átt rólegt
kvöld.
Meyja
(23. ágúst •- 22. snntcmbcrl <&%
Þú getur orðið fyrir aukaút-
gjöldum sem tengjast
skemmtanalífinu og ágrein-
ingur getur komið upp milli
vina um peninga.
(23. sept. - 22. október)
Þér gengur vel að semja við
aðra í dag, en eitthvað kem-
ur upp á heima í kvöld. Þú
þarft að sinna þörfum fjöl-
skyldunnar.
Sporódreki
(23. okt. -21. nóvember)
Þér miðar hægt áfram við
vinnuna í dag og breytingar
geta orðið á fyrirætlunum
þínum. Þú átt erfitt með að
taka ákvörðun.
Bogmaóur
(22. nóv. -21. desember)
Útgjöld sem þú reiknaðir
ekki með geta breytt ferða-
áætlunum þínum. Það er
ekki sama hveijum þú trúir
fyrir leyndarmáli í dag.
.Steingeit
(22. des. - 19. janúar) m
Þú vilt gjarnan fara eigin
ieiðir í dag en ættir samt að
hafa fjölskylduna með í ráð-
um. Þú kemur mikiu í verk.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar) ðh
Einhver er tregur til að gefa
afdráttarlaust svar við fyrir-
spurn þinni í dag. Láttu ekki
skapið hlaupa með þig í gön-
ur.
'Fiskar
(19. febrúar - 20. mars) 't5í
Vinir gætu komið óvænt í
heimsókn til þín í dag. Óvissa
ríkir varðandi fyrirhugað
ferðalag. Varastu óþarfa
eyðslu.
gtjörnuspána á aó lesa sem
dœgradv'ól. Spár af þessu tagi
byggjast ekki á traústum grunni
vtsindalegra staóreynda.
DYRAGLENS
/HéK ILL/i V/E> /\p> 1/E/?/t krALLA
AÐUR,, kfJ/trr/iSiajR / \-------—^
—J,----------——-
GRETTIR
TOMMI OG JENNI
1 lÁO 1/ i\
LJUoKA
HrjrunK vc kjuj viljum t-r*
/>€> aee>A \ /vtet/zi v/ts/-
S/MMN PEb/lN£A
FERDINAND
THI5 15 MV REPORTOH
THE BU5INE55MAN 6ARBER
I INTERVIEWEP..
YEAR5 ASO, HE 5AIP,
HAIRCUT5 UIERE THIRTY-FIVE
CENT5 ANPICE CREAM C0NE5
IUERE A NICKEL..
rz'
'BRINE5 BACK A LOT OF
MEMORIE5 FOR T0U,
HUH, MA'AM?
Þetta er ritgerðin mín um kaup- Hann sagði að fyrir mörgum arum
sýslumanninn, rakarann, sem ég tók hefði klipping kostað 250 kr. og
viðtal við ... rjómaís í kramarhúsi 35 kr.
Rifjar þeta upp, margar minningar,
kennari, ha?
BRIDS
Umsjón Guðm. Páll
Arnarson
Eitt frægasta bridslögmál Mollos
hljóðar svo: „Framboð veikra mak-
kera er meira en eftirspurn." í lög-
málinu felst m.a. að það sé jafnan
líklegra til árangurs við spilaborðið
að hafa vakandi makker sem kann
eitthvað fyrir sér. En auðvitað eru
undantekingar frá þessu lögmáli eins
og öllum öðrum.
Vestur gefur; allir á hættu.
Norður
♦ G10984
V 8
♦ D106
♦ ÁKG6
Vestur Austur
♦ - ♦ 32
V ÁK763 llllll ▼ 9542
♦ ÁKG ♦ 9543
* D10987 ♦ 532
Suður
♦ ÁKD765
V DG10
♦ 872
♦ 4
Vcstur Norður Austur Suður
1 hjarta Pass Pass 2 spaðar ■
Pass 4 spaðar Pass Pass
Pass
Útspil: lyartaás.
Vestur var ekki vonlaus um að fá
fjóra slagi þegar hann lagði af stað
með hjartaás, en blindur var sannar-
lega ekki uppörvandi. Fullur sjálfs-.
vorkunnar hugsaði vestur með sér:
„Ekki nóg með að sitja uppi með
veikasta spilarann sem makker, held-
ur lendir maður í þessu þegar maður
loksins fær þokkalega opnun."
Eftir að hafa dvalið nokkra stund
við þessar hugleiðingar, kviknaði
skyndilega hugmynd í huga vesturs.
Hann leit á makker sinn og sá að
hann var álíka liflegur og stillimynd-
in í sjónvarpinu. Það fór ekki fram
hjá nokkrum manni og allra síst sagn-
hafa. Svo vestur ákvað að hrinda
hugmynd sinni í framkvæmd. Ilann
lagði niður tígulás og fylgdi fast á
eftir með gosanum!!
Suður leit sem snöggvast á austur
og flýtti sér svo að fylgja með tíunni
í borði. Og hló óstjórnlega þegar gos-
inn átti slaginn. En aðeins skamma
stund.
Umsjón Margeir
Pétursson
Þetta endatafl kom upp á opnu
móti í Cappelle la Grande í Frakk-
landi í febrúar í viðureign tveggja
stórmeistara. Englendingurinn
Tony Miles (2.590) hafði hvítt
og átti leik gegn Nino Kirov frá
Búlgaríu (2.485). Svartur lék síð-
ast 33. — Kf8-e7.
34. hxg6! - Kx<16, 35. gxh7 -
Hc8, 36. Rh6! (Svartur getur nú
ekki bæði varist hótuninni 37. Rg8
og því framhaldi sem verður uppi
á teningnum í skákinni).
36. - Rf6, 37. h8=D - Hxh8,
38. Rf7 - Ke6, 39. Rxh8 -
Rxe4!? (Annars leikur hvítur 40.
Rg6 og vinnur riddaraendataflið
auðveldlega. En peðsendataflið er
líka tapað;)
40. fxe4 — Kf6, 41. Kc3 og Kirov
gafst upp því eftir 41. — Kg7,
42. b4 - axb4, 43. Kxb4 - Kh8,
44. a5 kemst hvíti kóngurinn í
gegn og vinnur. Fjórir urðu jafnir
og efstir á mótinu með 7 vinninga
af 9 mögulegum, þeir Miles, Rúss-
arnir Tsjútsjelov og Gennadi
Kuzmin og Mark Ilebde, sem nú
teflir á alþjóðamótinu í Kópavogi.