Morgunblaðið - 16.04.1994, Blaðsíða 24
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. APRÍL 1994
Framkvæmdir við Sundlaug Akureyrar
Sex buðu í verkið
SEX tilboð bárust í lóðafram-
kvæmdir við Sundiaug Akureyrar
sem opnuð voru hjá byggingar-
deild Akureyrarbæjar í gær.
Kostnaðaráætlun hljóðar upp á
31.880.500 kr.
Lægsta tilboðið var frá Blikk- og
tækniþjónustunni upp á rúmar 26,6
milljónir eða 83,4% af kostnað-
aráætlun. Garðverk og SJS verktak-
ar buðu nímar 28,9 milljónir króna
í verkið sem er 96,4% af áætluðum
kostnaði og Fjölnir hf. bauð 30,3
milljónir eða 98,2% af kostnaðar-
áætlun. Tilboð Björgvins Leonards-
sonar var upp á 31,3 milljónir eða
98,2% af kostnaðaráætlun, Verkval
bauð 36,3 milljónir eða 113,9% af
áætluðum kostnaði við verkið og Vör
Messur
■akureyrarpresta-
hf. bauð 37,1 milljón eða 116,3% af
kostnaðaráætlun.
Um er að ræða framkvæmdir við
1.200 fermetra lóð við Sundlaug
Akureyrar sem felast m.a. í því að
byggja eimbað, setja upp vatnsrenni-
brautir með tilheyrandi lendingar-
laugum, gera banialaug, steypa stoð-
og skjólveggi, reisa geymsluskúr og
endurnýja núverandi heita potta við
laugina, helluleggja og leggja iagnir
og snjóbræðslukerfi í stéttar og
gróðursetja tré og runna.
--------» ♦ ♦-------
■ KARLAKÓR Akureyrar-
Geysir skemmtir gestum Blóma-
hússins á Akureyri með söng ann-
að kvöld, sunnudagskvöldið 17.
apríl kl. 21. Sungin verður stærstur
hluti söngdagskrár kórsins en vor-
tónleikar hans verða í Akureyrar-
kirkju 24. og 27. apríl næstkom-
andi.
Morgunblaðid/Rúnar Þór
Fékk silfuruglu
TRYGGVI Gíslason skólameistari MA sæmdi fjármálaráðherra silfur-
uglunni, merki skólans „af því hann átti átti þess ekki kost að nema
við skólann líkt og bæjarstjóri og menntamálaráðherra sem sóttu
þangað nokkurn þroska“. Friðrik þakkaði heiðurinn en gat þess
jafnframt að honum þætti að vísu alltaf vænt um fálkann!
Leikfélag Akureyrar
Barpar sýnt
á Listahátíð
LEIKFÉLAGI Akureyrar hefur
verið boðið að sýna leikritið Barp-
ar á Listahátíð í Reykjavík í júní
en þessi sýning félagsins hefur
notið fádæma vinsælda.
Sunna Borg og Þráinn Karlsson
fara með öll hlutverkin í leikritin, eða
14 talsins, en í því segir frá pari sem
rekur bar og gestum þeirra. Hafa
þau Sunna og Þráinn hlotið lof fyrir
frammistöðu sína í verkinu.
Sýningum fer að ljúka á heima-
slóðum Barparsins, Þorpinu, sem er
krá sem leikfélagið innréttaði sér-
staklega fyrir þessa uppsetningu.
Leikstjóri sýningarinnar er Hávar
Siguijónsson, Helga I. Stefánsdóttir
er höfundur leikmyndar og búninga,
Ingvar Bjömsson annaðist lýsingu
en Guðrún J. Bachman þýddi þetta
verk Jim Cartwright.
Samningar um byggingamál framhaldsskólanna á Akureyri til aldamóta
Undirstrikar mikilvægi
bæjarins sem skólabæjar
Samningar um fjárframlög til Leikfélags Akureyrar og Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands
SAMNINGAR voru undirritaðir um byggingamál framhaldsskólanna
á Akureyri, Menntaskólans á Akureyri og Verkmenntaskólans á
Akureyri sem ná til framkvæmda við skólana til ársins 1999. Samn-
ingarnir eru milli menntamálaráðuneytis, fjármálaráðuneytis og
hérðaðsnefndar Eyjafjarðar og voru undirritaðir af Ólafi G. Einars-
syni menntamálaráðherra, Friðrik Sophussyni fjármálaráðherra og
Halldóri Jónssyni formanni héraðsnefndar. Þá voru einnig undirrit-
aðir samningar um fjárframlög ríkis og Akureyrarbæjar til Leikfé-
lags Akureyrar og Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands.
KALL: Sunnudagaskólinn kl. 11 á
morgun í Safnaðarheimilinu þar sem
margt skemmtilegt verður gert. Sagt
frá fyrirhugaðri vorferð. Munið
kirkjubílana. Messað í kirkjunni kl.
14. Kór Menntaskólans á Akureyri
syngur, m.a. negrasálma undir stjórn
Ragnheiðar Ólafsdóttur. Konur úr
Kvenfélagi Akureyrarkirkju verða
með kirkjukaffi í Safnaðarheimilinu
að lokinni messu. Aðalfundur
Bræðrafélags Akureyrarkirkju í
Safnaðarheimili eftir messu. Bilíu-
lestur nk. mánudagskvöld kl. 20.30.
■ GLERÁRKIRKJ A: Biblíulestur
og bænastund í dag, laugardag kl.
13. Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11
með hljóðfæraleik og söng. Fundur
æskulýðsfélagsins kl. 17.30.
■HVITASUNNUKIRKJAN: Sam-
koma í umsjá ungs fólks í kvöld kl.
20.30. Bamakirkjan á morgun kl.
11, óvæntur gestur kemur í heim-
sókn. Vakningarsamkoma sem Vörð-
ur Traustason stjómar kl. 15.30 á
morgun, sunnudag. Ferð eldra fólks
til Ólafsfjarðar verður nk. fimmtudag
kl. 14.30. Biblíulestur og bænasam-
koma föstudagskvöld kl. 20.
■HJÁLPRÆÐISHERINN: Sam-
kirkjulegur gospelkór frá Reykjavík
syngur kl. 14 á morgun, sunnudag
á Hjálpræðishemum við Hvannavelli
10.
■KAÞÓSLKA KIRKJAN, Eyr-
arlandsvegi 26. Messa í dag, laugar-
dag kl. 18 og á morgun, sunnudag
kl. 11.
Samningar um byggingamál
framhaldsskólanna voru tveir, ann-
ars vegar um 7. áfanga við VMA,
en byggingu álmunnar sem 'er rúm-
lega 1000 fm. lýkur á þessu ári.
Hlutur ríkisins er 70 milljónir króna
og sveitarfélaganna í Eyjafirði sem
standa að héraðsnefnd 47 milljónir
króna. Þá var undirritaður samn-
ingur um nýbyggingu við MA en
framkvæmdir munu standa yfir til
ársins 1997. Byggingin er um 2.400
fm og er hlutur ríkisins 158 milljón-
ir og sveitarfélaganná 105 milljónir
króna.
Loks var undirrituð viljayfírlýs-
ing um áframhaldandi uppbygingu
VMA og er þar um þijár byggingar
að ræða, 900 fm verknámsskóla
sem byggður verður á árinum 1995-
1997, um 750 fm þjónusturými sem
áætlað er að verði byggt árin 1996-
1998 o g kennslurými af sömu stærð
og ná framkvæmdir við þann
áfanga yfír árin 1997-1999.
Framsýni
Ólafur G. Einarsson mennta-
málaráðherra sagði undirritun
samninganna marka þáttaskil en
nú væru sveitarfélög aðilar að upp-
byggingu skólanna sem áður hefði
eingöngu verið hlutverk ríkisins.
„Þetta er til fyrirmyndar og undir-
strikar þá framsýni sem einkennt
hefur þetta hérað á sviði skólamála
og mikilvægi Akureyrar sem skóla-
bæjar,“ sagði menntamálaráðherra.
Einnig var undirritaður samning-
ar milli ríkis, Akureyrarbæjar og
Leikfélags Akureyrar sem kveður á
um 19,7 milljóna króna framlag
ríkis til leikfélagsins og sömu upp-
hæðar frá Akureyrarbæ árlega á
samningstímanum en hann er frá
1. janúar 1994 til loka ársins 1997.
Að síðustu var skrifað undir samn-
ing um tveggja milljóna króna
framlag til Sinfóníuhljómsveitar
Norðurlands bæði frá ríki og bæ á
tímabilinu frá ársbyijun 1994 til
loka árs 1995. Ólafur G. Einarsson
menntamálaráðherra sagði samn-
inginn vera nýmæli og þess vænst
að hann skili sér í góðum árangri
hljómsveitarinnar.
A AKUREYRI
Kaupvangsstræti 16, pósthólf 39, 602 Akureyri. Bréfsími: 96-12398.
Myndlistaskólinn á Akureyri auglýsir inntöku
nýrra nemenda ífornámsdeild, málunar-
deild og grafíska hönnun, veturinn 1994-95.
Umsóknarfresturtil 10. maí.
Allar nánari upplýsingar veittar í síma 96-24958.
Skólastjóri.
Enskunám í Englandi
Við bjóðum enskunám við einn virtasta málaskóla Englands.
Skólinn sér þérfyrir fæði og húsnæði hjá enskri fjölskyldu.
Um er að ræða: Alhliða ensku - 18 ára og eldri, 2ja til 11
vikna annir.
Unglingaskóla, júlí og ágúst, 13-17 ára, 4ra vikna annir.
Viðskiptaenska - 2ja og 4ra vikna annir.
Allar nánari upplýsingar gefa: Júlíus Snorrason
og Linda Ragnarsdóttir, í síma 96-23509 og 21173,
Bæjarsíðu 3, 603 Akureyri.
Kirkjulistahátíð að ljúka
Morgunblaðið/Rúnar Þðr
Heimsókn í Glerárkirkju
BÖRN úr 2. bekk Glerárskóla komu í heimsókn í Glerárkirkju í vik-
unni og nutu leiðsagnar sr. Gunnlaugs Garðarssonar sóknarprests
sem sýndi þeim kirkjuna.
Kosningaskrifstofa opnuð
KIRKJULISTAHÁTÍÐ barnanna
sem staðið hefur yfir í Glerár-
kirkju lýkur með fjölskylduguðs-
þjónustu í kirkjunni á morgun,
sunnudag.
Sýning á myndum eftir böm af
leik- og grunnskólum í sókninni
hefur staðið yfír í kirkjunni og hafa
börnin verið dugleg að heimsækja
kirkjuna, skoða sýninguna og og
kirkjuna undir leiðsöng sóknar-
prestsins sr. Gunnlaugs Garðars-
sonar.
Lokapunktur kirkjulistahátíðar
barnanna er á morgun en þá verður
fjölskylduguðsþjónusta í kirkjunni
sem hefst kl. 11 og lýkur þá jafn-
framt barnastarfi vetrarins. Hljóð-
færaleikarar úr Tónlistarskólanum
á Akureyri leika, félagar úr æsku-
lýðsfélagi kirkjunnar taka þátt í
athöfninni og gospelkór frá Reykja-
vík syngur. Að þessari stund lok-
inni verður kirkjugestum boðið upp
á léttan málsverð í safnaðarsalnum.
„Kirkjulistahátíð hefur gengið
mjög vel og mörg börn komið og
heimsótt kirkjuna sína af þessu til-
efni. Þetta er í fyrsta sinn sem við
efnum til slíkrar hátíðar og ég vona
að þróunin verði sú að þetta verði
að árvissum atburði í kirkjustarf-
inu,“ sagði sr. Gunnlaugur.
Sjálfstæðisflokkurinn opnar
kosningaskrifstofu í Listhúsinu
Þingi við Hólabraut á Akureyri í
dag, laugardaginn 16. apríl, kl. 14.
Skrifstofan verður opin daglega frá
kl. 13 til 19. Tveir starfsmenn hafa
verið ráðnir að kosningaskrifstof-
unni, þau Magnús Már Þorvaldsson
og Ásta Pálmadóttir, en Óli D. Frið-
bjömsson starfsmaður flokksins á
Akureyri verður eftir sem áður á
skrifstofunni í Kaupangi við Mýrar-
veg.