Morgunblaðið - 16.04.1994, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 16.04.1994, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. APRÍL 1994 Morgunblaðið/Kara Amgrímsdóttir Islensku keppendurnir ÍSLENSKU dansararnir sem tóku þátt í danshátíðinni í Blackpool. íslensku keppendumir stóðu sig framúrskarandi vei __________Pans______________ Jóhann Gunnar Arnarsson EFLAUST hafa margir tekið eftir því í vetur, að íslenskir dansarar hafa verið með fjöl- breytta og mikla fjáröflun vegna keppnisferðar sem fara átti um páskana. Ferðinni var heitið til „Mekka“ dansins; Blackpool á Englandi, þar sem hin árlega danshátíð barna og unglinga hefur farið fram í 37 ár. Þessi keppni hefur af mörg- um verið kölluð hin óopinbera heimsmeistarakeppni fyrir börn og unglinga 15 ára og yngri. Bæði dansarar og for- eldrar sem hafa komið til Blackpool hafa lýst sínum ferð- um á þann hátt að þær séu svo einstakar og skemmtilegar að orð fái þeim vart lýst. Hingað til hafa ekki mjög margir notið þess að fara í slíkar ferðir, en í ár varð breyting þar á. íslensku ferðalangarnir sem voru um 180 talsins leigðu sér þotu og létu hana fljúga með sig til Blackpool, þar sem tekið var á móti þeim með „pompi og pragt“, blaðamenn voru á staðnum og fleira í þá átt. Ástæðan var sú að þota hefur ekki lent í Blackpo- pl til fjölda ára og vakti koma íslendinganna því mikla athygli. Blackpool-hátíðin nær yfir sex daga og er keppt á hverjum ein- asta degi, en að þessu sinni hófst hún mánudaginn 4. apríl. Mis- munandi keppni er í boði bæði í einum dansi, tveimur dönsum og einnig er liðakeppni milli landa, svo eitthvað sé nefnt, að ógleymdri keppni í gömlum „breskum" dönsum. Það gefur augaleið að keppni sem þessl reynir á þolrifin í hverjum einasta. manni sem nálægt henni kemur. Keppendur fara eldsnemma á fætur, því á morgnana eru æfing- ar í „Tower“-keppnissalnum, sem er ákaflega fallegur og mikill sal- ur, en þar er keppendum gefið tækifæri til að staðsetja sig og prufa gólfið fyrir keppnina. Eftir það gefst örskammur tími til að fara heim á hótel og fá sér eitt- hvað að borða og laga sig svo til fyrir keppnina, því hún hefst klukkan 16, og það er eins gott að vera kominn í hús í tæka tíð, því þarna er ekki beðið eftir nein- um. Svo er dansað langt fram eftir kvöldi og þegar keppnin er búin þá er að drífa sig í háttinn og safna orku fyrir komandi dag. Á þennan hátt líða sex dagar hjá dansara í Blackpool. Árangur íslendinganna átti eftir að verða stórkostlegur. Er ætlunin nú að rékja það, í stórum dráttum, sem gerðist á hveijum degi. Mánudagur Fyrsti dagurinn _ var loksins runninn upp. íslendingarnir kepptu einungis í tveimur grein- um þennan dag; keppni í vínarv- alsi fyrir 10-12 ára og samba fyrir flokk 12-15 ára. Hinar keppnisgreinarnar þennan dag voru allar í gömlum dönsum. Það bar helst til tíðinda í yngri hópnum að öll pörin átta sem tóku þátt í vínarvalskeppninni komust áfram í aðra umferð 0g þar af komust tvö alla leið í undanúrslit, þar sem einungis dansa 12 pör. Eldri hópurinn, sem keppti í samba þennan dag, stóð sig ekki síður vel en sá hinn yngri. Alls keppti í þessu flokki 131 par, víðs vegar úr heiminum, þar af voru 26 pör íslensk.* Af þeim komust 19 áfram í 2. umferð, eitt par í 4. umferð og tvö pör náðu þeim glæsilega árangri að komast í undanúrslit.- íslendingarnir sneru þreyttir en glaðir í bragði heim á hótel að afloknum fyrsta deginum, þar sem árangurinn hafði verið mun betri en menn höfðu þorað að vona. Þriðjudagur Eins og lög gera ráð fyrir kom þriðjudagur á eftir vel heppnuðum mánudegi og var þar ekkert sleg- ið af.t Yngri hópurinn keppti í suður-amerískum dönsum og stóð sig mjög vel, þó að ekkert par- anna hefði komist í undanúrslit. Þau komust nær öll í 2. umferð og þrjú pör komust í 3. umferð. Það segir manni að þau höfðu þá „hent“ aftur fyrir sig um 40 pör- um. Eldri hópurinn keppti hins veg- ar í tveimur greinum þennan dag, þ.e. í yínarvalsi í flokki 12-15 ára og í tangó og quickstep í flokki 12-13 ára. í vínarvalsinum komst um helmingur paranna áfram í 2. umferð og þijú pör komust í 3. umferð, en þá höfðu þau „hent“ aftur fyrir sig tæplega 100 pörum, sem i er mjög góður árangur. Áfram var haldið í tangó og qu- ickstep. Þar áttum við íslendingar einungis sex pör, en af þeim kom- ust þtjú í undanúrslit og eitt par- ið kojnst í úrslit og náði 5. sæti. Það :er sérdeilis góður árangur, en þáð voru þau Sigursteinn Stef- ánssön og Elísabet Sif Haralds- dóttir sem hlutu 5. sætið, en þau áttu eftir að láta meira að sér kveða síðar í keppninni. Nú var þó fyrsti ís- lenski verðlauna- peningurinn í höfn. Islendingar voru einnig með í landsl- iðakeppninni, þar sem þeir höfnuðu í 4. sæti. Svo má auðvitað ekki gleyma gömlu- dansa-keppninni! Miðvikudagur Yngri hópurinn keppti einungis í einum dansi á mið- vikudeginum, en það var quickstep. Þar komust öll ís- lensku pörin áfram í aðra umferð, í undanúrslitum voru þá tvö pör og annað þeirra, þau Haf- steinn Jónasson og Laufey K. Einars- dóttir, komst í úr- slitin, þar sem þau höfnuðu í 8. sæti, sem er besti árang- ur sem íslenskt par hefur náð í þessari grein. Eldri hópurinn hafði í meiru að snúast því þennan dag var keppt í suður-amerísku dönsunum fimm. Af þeim 22 íslensku pörum sem kepptu komst ríflega helm- ingurinn áfram í 2. umferð. Alla leið í undanúrslit komst eitt par og er það sérlega glæsilegur árangur, því keppnina hófu 137 pör. Þennan dag var gömludansa- keppni nokkur dálítið áberandi. Fimmtudagur Fimmtudagurinn reyndist verða til frama, eins og svo oft áður, þá sérstaklega hjá yngri hópnum, sem keppti í jive. Þar komust að „venju" öll okkar pör í 2. umferð, þar af komust sex pör í 4. umferð og af þeim tvö í undanúrslit og er þetta einn besti heildarárangur íslendinga nokkru sinni, því keppnina hófu 67 pör. Einnig var landsliðakeppni í þess- um flokki á fímmtudeginum, þar sem íslenska Iiðið hafnaði í 5. sæti. Eldri hópurinn átti erfiðan dag, þar sem keppt var í standard- dönsunum fimm, strax daginn eftir „stóru“ keppnina í suður- amerískum dönsum. í heildina séð var árangurinn góður, þó ekkert einstakt par hafi skarað fram úr Gullverðlaunahafar ELÍSABET Sif Haraldsdóttir og Sigursteinn Stefánsson sem unnu gullverðlaun í flokki 12-13 ára í cha cha cha og rúmbu. að þessu sinni. Sesselja Sigurðar- dóttir varð fyrir því óhappi að slíta liðbönd í ökla og gat því ekki keppt meira að þessu sinni. Milit- ary two step og veleta ásamt hin- um-gömlu dönsunum voru ákaft dansaðir við mikinn áhuga og athygli íslensku paranna. Föstudagur Föstudagurinn var erfiðasti keppnisdagurinn fyrir yngri hóp- inn, en þann dag keppti hann í standard-dönsunum. Þrátt fyrir erfiða undangengna daga komust nær öll pörin áfram í 2. umferð og í undanúrslitum áttum við eitt par. Sýnir þetta að úthald paranna virðist vera í mjög góðu lagi svo og andlega hliðin sem skiptir hvað mestu máli í stórri og erfiðri keppni sem þessari. Til fjár og frama varð föstudag- urinn, eldri hópnum. Þann dag var einungis keppt í einum dansi, jive. Þar komust 20 íslensk pör, af 26, áfram í 2. umferð, 8 pör fóru áfram í 3. umferð og hafði pörunum þá fækkað í 48 úr 134, sem hófu keppnina. í undanúrslit komust þijú pör og af þeim tvö í úrslit. í úrslitum lentu Ólafur Már Sigurðsson og Hilda Björg Stefánsdóttir í 6. sæti og Þorvald- ur Gunnarsson og Berglind Magn- úsdóttir náðu þeim frækilega árangri að komast í 3. sæti. Það að komast á verðlaunapall í keppni sem þessari, þar sem 134 pör hefja leikinn, sýnir styrk og getur íslensku paranna og er þessi árangur framúrskarandi góður. Þar sem engin íslensk pör kepptu í gömlu dönsunum einbeittu þau sér að því að hvetja þau bresku, sérstaklega í premier two step! Laugardagur Laugardagurinn varð íslend- ingunum til mikillar lukku, eins og lög gera ráð fyrir. Yngri hópur- inn keppti í cha cha cha og náði þar geysilega góðum árangri; 10 af 11 pörum komust áfram í 2. umferð og í undanúrslit komust þijú pör og alla leið í úrslitin komst eitt par og hafnaði það í 8. sæti. Þessum glæsilega árangri náðu þau Hafsteinn Jónasson og Laufey K. Einarsdóttir, sem hér voru að vinna til sinna annarra verðlauna í keppninni. Eldri hópurinn hafði svo sann- arlega í meiru að snúast þennan dag, þar sem tvær keppnisgreinar voru á dagskránni fyrir þann hóp. Annars vegar var keppni í quicks- tep fyrir 12-15 ára og hins vegar var keppni í cha cha cha og rúmbu í flokki 12-13 ára. Fyrst var keppt í cha cha cha og rúmbu, en þar sem sú keppni skaraðist við quickstep-keppnina, urðu þau tvö pör sem enn voru „inni“ í cha cha cha og rúmbu að velja á milli greinanna og til mikillar lukku béldu þau áfram í suður-amerísku keppninni. Þar komust bæði pörin í undanúrslit 0g Sigursteinn Stef- ánsson og Elísabet Sif Haralds- dóttir komust í úrslit, þar sem þau gerðu sér lítið fyrir og sigruðu. Það sigrar enginn í svona keppni nema hafa mikið til brunns að bera og það hefur þetta unga og glæsilega svo sannarlega. Húrra fyrir þeim! Quickstep-keppnin gekk einnig fjarskalega vel, en þar komust flest okkar pör í 2. umferð og níu komust í 3. umferð, árangur sem fór langt framúr björtustu vonum. Engilsaxar kepptu einnig í „fjöl- breyttum" gömlum dönsum þenn- an dag sem aðra og var ekkert slegið af. Erfið en skemmtileg keppni- svika var nú á enda runnin. Samt sem áður gaf hópurinn sér tíma til að hittast á einu hótelanna, þar sem krakkarnir slettu svolítið úr klaufunum, eftir allt „stressið" og keyrsluna í vikunni. Ferðin í heild sinni gekk mjög vel. Að sögn Skarphéðins Óskars- sonar, foreldra eins keppandans, var vikan mikil upplifun og mjög skemmtileg 1' alla staði. „Árangur íslensku paranna fór einnig langt framúr þeim vonum sem maður hafði þorað að láta sig dreyma um.“ Henný Hermannsdóttir og Kara Arngrímsdóttir danskennar- ar tóku í sama streng og sögðu jafnframt að það væri augljóst að íslenskir danskennarar væru að vinna mjög gott starf í sínum skólum, það sýndi árangur keppn- innar svo ekki væri um villst. Það eina sem hægt væri að setja útá væri þessi mikla og tímafreka gömludansa-keppni, en vegna hennar þurftu íslensku pörin að bíða í uppundir tvær klst. eftir að tilkynnt yrði hvort þau kæm- ust áfram í næstu umferð. Það þarf mikinn kjark til að taka þátt í keppni sem þessari, sérstaklega fyrir þá sem eru að fara í fyrsta skipti og þekkja ekki inná gang keppninnar. Þeir sem áður hafa farið standa því betur að vígi með sína reynslu. Það að komast áfram í 2. umferð er frá- bær árangur, svo ekki sé talað um það að komast lengra. Þessir íslensku víkingar nútím- ans sem allir sóttu gull í greipar Engilsaxa, eiga mikið hrós skilið fyrir frammistöðu sína og ekki er hægt að segja annað en að hver og einn hafí unnið sinn eig- inn sigur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.