Morgunblaðið - 16.04.1994, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. APRÍL 1994
27
„Leiðtoginn mikli“ í Norður-Kóreu 82 ára
Mikið tilstand en
fagnaðarefnin fá
Seoul. The Daily Telegraph.
MIKIÐ er um að vera í Norður-Kóreu um þessar mundir og Py-
ongyang, höfuðborg, er blómum prýdd. „Leiðtoginn mikli“, Kim
Il-sung, varð 82 ára gamall í gær en allt tilstandið breytir engu
um það, að hann hefur yfir litlu að gleðjast. Norður-Kóreumenn
eru bláfátækir miðað við frændur sína í suðri og lífskjörin versna
ár frá ári.
Leiðtoginn lofsunginn
UNGAR, norður-kóreska stúlkur dansa
og syngja „Leiðtoganum mikla“ til lofs
og dýrðar og sú innfellda er frá sérstök-
um afmælisfundi, sem Kim Il-sung var
þó ekki viðstaddur.
Óttast lifrarbólgu-
sýkingu hjá konum
KOMIÐ hefur í Ijós á írlandi að í birgðum af bóluefninu Anti-D
getur leynst veira lifrarbólgu af gerð sem nefnd er C, að sögn
dagblaðsins The European. Stjórnvöld hafa því ákveðið að láta
kanna hvort um 100.000 konur sem hafa fengið bóluefnið séu sýkt-
ar en Anti-D er gefið barnshafandi konum með blóð af rh-gerð
sé fóstrið með rh+-blóð, ella getur barnið orðið þjáð af blóðleysi,
fengið heilaskaða eða jafnvel fæðst andvana.
og þriðjungurinn jafni sig af sjálfd-
áðum.
Bandamenn Kims og Norður-
Kóreu fyrrum hafa flestir snúið
við honum baki og jafnvel kín-
verska stjórnin sendir ekki hátt-
settan mann til Pyongyang vegna
hátíðarhaldanna. Yang Song-chul,
stjórnmálaskýrandi í Suður-
Kóreu, segir, að Norður-Kóreu-
menn séu eins og utangarðsmaður
í samfélagi þjóðanna og hann seg-
ir, að Kim Il-sung óttist tæknilega
yfirburði suður-kóreska og banda-
ríska hersins. Yfirlýsingar hans
um að Seoul verði eytt í eldi séu
aðeins veikleikamerki.
Kommúnistastjórnin í Norður-
Kóreu hefur einnig áhyggjur af
vaxandi ókyrrð í landinu. Hún
hefur í raun viðurkennt gjaldþrot
stefnu sinnar með því að koma
upp fríverslunarsvæðum við borg-
irnar Rajin og Sonbong á landa-
mærum Kína og Rússlands og ljóst
er, að „Leiðtoginn mikli" er
hræddur. Það sést meðal annars
á viðbrögðum hans við þeim mögu- .
leika, að Suður-Kóreustjórn veiti
170 mönnum, sem flýðu úr norður-
kóreskum skógarhöggsbúðum í
Rússlandi, hæli sem pólitískum
flóttamönnum. Kim hótar hefnd-
um fái mennirnir hæli en Suður-
Kóreustjórn er á báðum áttum.
Fari af stað flóttamannaskriða
gæti það valdið hruni Norður-
Kóreu eins og Austur-Þýskalands
á sínum tíma og þá yrðu Suður-
Kóreumenn að standa undir kostn-
aði við uppbygginguna.
Suður-Kóreumenn óttast sem
sagt skyndilegt hrun í Norður-
Kóreu en þeirra von er, að suður-
kóresk fái með tíð og tíma að fjár-
festa i Norður-Kóreu. Þannig
gætu þau smám saman breytt
kerfinu eða upprætt kommún-
ismann innanfrá.
Þotur hætt
komnar yfír
Eistlandi
Moskvu. Reuter.
TVÆR breiðþotur rákust nærri
því að saman á sunnudag í eistn-
eskri lofthelgi, að sögn eistn-
eski-ar fréttastofu.
Boeing-747 þota frá Air France
á flugi í vesturátt og DC-10 þota
Finnair á flugi í norðurátt voru
hættulega nálægt hvorri annarri,
að sögn Viktors Popov flugmála-
stjóra. í fyrra lá við árekstri
breskra og suður-kóreskra farþega-
flugvéla á sama stað. Eistneskir
embættismenn segja flugumsjónar-
búnað þar í landi löngu úreltan og
endurnýjun hans myndi kosta 40
milljónir dollara.
C-veiran getur aðeins komist í
líkamann sé efninu dælt í æð en
það er gert á Irlandi og bíða þvi
margar konur milli vonar og ótta,
sumar þora jafnvel ekki að fara í
skoðun. Enn sem komið er hafa
aðeins verið staðfest sýkingartilvik
af ofangreindu tagi á írlandi og í
austurhluta Þýskalands en talið
víst að þau finnist víðar. í Bret-
landi er Anti-D sprautað í vöðva
en yfirvöld þar í landi hafa samt
ákveðið að auka eftirlitið.
Anti-D hefur verið talið eitt-
hvert öruggasta bóluefni í heimin- -
um. C-lifrarbólguveiran var fyrst
uppgötvuð 1989 og tveim árum
síðar var fundin upp traust aðferð
til að greina hana. Lítið er enn
vitað um hegðun hennar, aðeins
að langur tími líður frá smitun þar
til einkenni koma í ljós, jafnvel 20
ár.
Það veldur mörgum áhyggjum
að veiran getur tekið sér bólfestu
i líkamanum án þess að nokkur
einkenni komi í ljós, stundum eru
þau auk þess svo veik að minnir á
væga flensu. Þótt veiran geti vald-
ið svo alvarlegum sjúkdómi að íjar-
lægja þurfi hluta lifrarinnar telur
írskur sérfræðingur, dr. John Heg-
arty, að flestar þær konur sem
hafi smitast fái aðeins væga bólgu.
I nýrri skýrslu segir að innan við
10% þeirra sem fái sjúkdóminn
geti átt á hættu að fá skorpulifur
Rcutcr
Flugdrekaflug í Peking
GAMALL maður lætur flugdreka sinn, sem er eins og svín í laginu,
svífa yfir Torgi hins himneska friðar í Peking. Vorið er nú komið í
höfuðborg Kína og flykkjast eigendur flugdreka og áhugamenn á
öll opin svæði í borginni með dreka sína.