Morgunblaðið - 03.06.1994, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 3. JÚNÍ 1994 7
FRÉTTIR
Lýðveldisafmælið
Dansk-ís-
lenskur
sjóður
efldur
DANIR hafa ákveðið að leggja
eina milljón danskar krónur, eða
tæpar 11 milljónir íslenskar^ í
sjóð til styrktar samvinnu ís-
lendinga og Dana, Fondet for
Dansk-Islandsk Samarbejde, í
tilefni af 50 ára lýðveldisafmæl-
isins. Ólafur G. Einarsson,
menntamálaráðherra, lagði til á
ríkisstjórnarfundi á þriðjudag að
íslendingar legðu einnig 3,5
milljónir íslenskra króna í sjóð-
inn og var það samþykkt.
Sjóðurinn var stofnaður árið
1959 og hefur að sögn mennta-
málaráðherra fyrst og fremst
styrkt námsdvalir íslendinga og
Dana í löndunum tveimur. Einn-
ig hafa rithöfundar fengið
styrki, leiðtogar æskulýðssam-
taka og veittir hafa verið styrkir
til vísindastárfa, verkmennt-
unar, listkynninga og leikhópa.
Sjóðnum er stýrt af fimm
manna stjórn og er úthlutað úr
honum einu sinni á ári.
Ólafur segir að árið 1990 hafi
höfuðstóll sjóðsins verið um 2
milljónir danskar krónur, eða um
20 milljónir íslenskra, þannig að
gjófin og framlag íslendinga sé
veruleg viðbót.
Skírteini
vegna
hönnunar
EINKALEYFASTOFAN hefur
afhent fyrsta skírteinið um
skráningu hönnunar samkvæmt
nýjum lögum um hönnunar-
vernd, sem tóku gildi 21. maí.
Frá gildistöku laganna hafa bor-
ist 6 umsóknir um hönnun-
arvernd til Einkaleyfastofunnar.
Fyrsta skírteinið var afhent
Björgvin Fredrikssen vélsmíða-
meistara. Hönnun hans, sem nú
nýtur lögverndar, ber heitið:
Jafnvægishaldari með klemmu
fyrir glas, og er glasahaldari sem
festa má t.d. við staf eða hækju
og helst glasið þá ávailt í jafn-
vægi.
I fréttatilkynningu frá Einka-
leyfastofunni segir að gert sé ráð
fyrir að alimargir muni hagnýta
sér hina nýju hugverkavernd
sem geti átt við um minni sem
stærri hönnunar- eða smfðis-
gripi. Vilji menn vernda tækni-
lega virkni uppfinningar sé hægt
að sækja um einkaleyfisvernd
samkvæmt lögum um einkaleyfi.
Ákærður fyr-
ir skilasvik
EMBÆTTI ríkissaksóknari hef-
ur gefið út ákæru á hendur Ólafi
Laufdal veitingamanni og var
málið þingfest í héraðsdómi
Reykjaness á þriðjudag. Mál-
flutningur verður um miðjan
júní.
Ólafur er ákærður fyrir skila-
svik, en honum er gefið að sök
að hafa gefið rangar upplýsingar
um eignir sínar fyrir skiptarétti,
með því að leyna eignarhlut sín-
um í 11 íbúðum á Benal Beach
á Spáni. íbúðirnar keypti Ólafur
ásamt eiginkonu sinni árin 1984-
1985, á rúmar 34 milljónir pe-
seta, eða um 17 milljónir króna.
Albúin til skógræktar
Morgunblaðið/Árni Sæberg
UM 1.000 unglingar á aldrinum 16-17 ára mættu
til skráningar í vinnu hjá Skógræktarfélagi Reykja-
víkur á miðvikudag, en þá var skipt í hópa og
þeim úthlutað verkstjórum sem eru 80 talsins í
sumar. Ekki dugði minna húsnæði fyrir allan þenn-
an fjölda en íþróttahús Fjölbrautarskólans í Breið-
holti. Gróðursetja á 900 þúsund tré i sumar og
munu unglingarnir vinna við gróðursetningu,
göngustígagerð og landgræðslu á 28 stöðum í
Reykjavík og nágrenni. Heildarkostnaður við
starfsmenn, plöntur og efni nemur 220 milljónum
í júní- og júlímánuði.
Lúðvík Geirsson um
störf bæjarfulltrúa^
og formennsku í BI
Stangast
ekkiá
LÚÐVÍK Geirsson formaður Blaða-
mannafélags íslands segist ekki sjá
að það stangist á nokkurn hátt á
að hann gegni formennsku í félaginu
áfram eftir að hann var kjörinn
bæjarfulltrúi Alþýðubandalagsins í
Hafnarfirði. Lúðvík hefur setið í
stjórn Blaðamannafélagsins í 10 ár,
og formennskunni hefur hann gegnt
síðan 1987.
Lúðvík sagði í samtali við Morg-
unblaðið að hann hefði ætlað að
segja af sér formennsku á síðasta
aðalfundi í byrjun þessa árs, en þá
hefði verið lagt hart að honum að
gefa kost á sér á nýjan leik. Á þess-
um tíma hefði öllum félagsmönnum
verið ijóst að hann gæfi kost á sér
í framboð í Hafnarfirði, og stjórn-
málaskoðanir hans hefðu ætíð verið
öllum kunnar. „Ég er kjörinn for-
maður Blaðamannafélagsins fram á
næsta ár, en annars finnst mér eðli-
legt að fjallað verði um þetta mál á
stjórnarfundi í félaginu sem haldinn
verður í næstu viku,“ sagði Lúðvík.
' H
A N
Pú gengur lengur
á góða veróinu
Stubai Jura Nevada Cristallo
Stærðir 36-48
SYMPATEX VATNSVARÐIR
Þyngd: 560 g. parið
Skór fyrir léttar gönguferðir
Stærðir 36-48
SYMPATEXVATNSVARÐIR
Þyngd: 600 g. parið
Mjög þægilegir skór
fyrir styttri og lengri göngur
Stærðir 36-48
SYMPATEXVATNSVARÐIR
Þyngd: 600 g. parið
Léttir mjúkir og þægilegir
LeðurStærðir 36-48
SYMPATEXVATNSVARÐIR
Þyngd: 840 g. parið
Sterkir, góðir I lengri göngur
\’(TÚ kr. /.}>()() ci(ð kr. I ().7()()M\('i'd Ur. IJ.IOO
Vcrð kr. 9.900
OPIÐ A LAUGARDAG KL. 10 - 16
Þar sem ferðalagið byrjar...
SEGLAGERÐIN
ÆGIR
Eyjaslóð 7 Reykjavík s. 621 780