Morgunblaðið - 03.06.1994, Side 10
10 FÖSTUDAGUR 3. JÚNÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Sýning og samkoma í tilefni þess að 60 ár eru frá stóra skjálftanum á Dalvík
Bærinn
riftir
samningum
BÆJARRÁÐ Akureyrar sam-
þykkti á fundi í gær að rifta
samningum við verktakafyrir-
tækið A.' Finnsson hf. vegna
framkvæmda við leikskóla í
Kiðagili og verksamningi um 5
ibúðir að Drekagili 28.
Jafnframt lagði bæjarráð til
við bygginganefnd Verk-
menntaskólans á Akureyri að
hún fyrir hönd héraðsnefndar
EyjaQarðar rifti verksamningi
um framkvæmdir við 7. áfanga
VMA. Ástæður þessarar riftun-
ar eru sagðar verulegar van-
efndir verktakans við framan-
greindar framkvæmdir.
Síðuskóli í
Glerárkirkju
Á fundi bæjarráðs Akureyrar í
gær var lagt fram uppkast að
leigusamningi við Iiigmanns-
hlíðarsókn um kennslustofur í
Glerárkirkju handa Síðuskóla.
Um er að ræða um 170 fer-
metra rými á efri hæð kirkjunn-
ar og er leigutími 5 ár frá 1.
september næstkomandi.
Lambfé hýst
í snjókomu
Mývatnssveit - Miðvikudag-
inn 1. júní fór að snjóa í Mý-
vatnssveit og snjóaði til kvölds.
Töluverðan bleytusnjó setti nið-
ur en frysti síðan með kvöldinu
og dró í skafla. Urðu bændur
að hýsa lambfé og tók alllangan
tíma að koma því í hús.
í gærmorgun var kuldalegt
að líta út, alhvít jörð niður í
byggð og hiti um frostmark.
Hálka var víða veruleg á vegum
en eftir því sem á daginn leið
hvarf snjórinn en þó var grátt
og jafnvel hvítt til fjalla.
Sauðburði er að ljúka og
ekki vitað annað en hann hafí
gengið vel. Tún eru víða orðin
vel græn og komið gras. Fugl-
inn er farinn að verpa og virð-
ist vera mjög mikið af honum
á vatninu. Allur ís fór af Mý-
vatni um síðustu helgi.
HJÓNIN Steingrímur Þorsteinsson og Stein-
unn Sveinbjörnsdóttir. Hún var að strauja en
hann í kartöflugarði þegar skjálftinn reið yfir.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
SÝNINGIN Dalvíkurskjálftinn 1934 var formlega opnuð í Ráðhúsinu á Dalvík í gær
á sama tíma og skjálftinn hófst kl. 12.43 og var kirkjuklukkum þá hringt.
Þá misstu 140 Dal-
víkingar heimili sín
„VIÐ vorum þrír að setja niður
kartöflur úti í garði sem við höfð-
um þegar við heyrðum ógnar-
miklar drunur," sagði Steingrím-
ur Þorsteinsson fyrrverandi
kennari á Dalvík sem var 21 árs
gamall þegar Dalvíkurskjálftinn
svokallaði reið yfir fyrir 60 árum,
2. júní árið 1934 en þess var
minnst á Dalvík í gær með opnun
sýningar í máli og myndum á
efstu hæð Ráðhússins.
Kartöflugarðurinn sem Stein-
grímur var staddur í erskammt
sunnan bæjarins, milli Ásgarðs
og Árgerðis. „Við höfðum það
fyrst á tilfinningunni að flugvél
væri að fljúga yfir, en hljóðið kom
úr suðvestri úr Holtsárdal og
þetta voru feikimiklar drunur.
Þegar við litum upp í dalinn það-
an sem hljóðið kom þyrlaðist í
sömu andrá upp mikið moldrok
og allt var hulið í mekki,“ sagði
hann en mikið blíðviðri var þenn-
an dag fyrir 60 árum.„einn af
þessum heitu molludögum", eins
og hann orðaði það og bætti við
að svo einkennilegt væri með
jarðskjálftann að hann hefði
heyrst, sést og fundist.
„Hamagangurin færðist í auk-
ana og þá áttuðum við okkur á
hvað var að gerast. Eg man að
ég horfði heim að bænum og sá
flucffelacj
nordiurlandis IiF
SÍMAK 96-12100 og 92-11353
þegar múrpipan á þaki hússins
brotnaði af og féll í boga niður
án þess að snerta þakið. Við hlup-
um strax heim en sem betur fer
var aðkoman ekki svo skelfileg,"
sagði Steingrímur.
Hann sagði að fólk hefði tekið
skjálftanum með jafnaðargeði og
ekki verið óttaslegið meðan á
honum stóð, en hræðslan kom
síðar. „Þessi reynsla er ofarlega
í hugum fólks sem liana upplifði,
enda er þetta einn stærsti við-
burðurinn sem hér hefur gerst
og snertir alla bæjarbúa. Þessi
ótti býr í fólkinu og ævinlega síð-
an þegar fólk finnur svona kippi
minnist það þessa og þá finnur
maður að óttin er til staðar, hann
hverfur ekki.“
Mörg hús á Dalvík eyðilögðust
í jarðskjálftanum og enn fleiri
skemmdust. Á sýningunni eru
m.a. úrklippur úr blöðum frá
þessum tíma og frásagnir af
skjálftanum og viðbrögðunum við
honum. Þar kemur m.a. fram að
forsætisráðherra, Ásgeir Ás-
geirsson, beitti sér fyrir að efnt
var til samskota meðal lands-
manna til að koma bágstöddum
til hjálpar og voru dönsku kon-
ungshjónin þau fyrstu til að láta
fé af hendi rakna en þau gáfu
5.000 krónur til söfnunarinnar.
Bæði Morgunblaðið og Dagur
tóku við fé til söfnunarinnar og
var getið um í blöðunum hveijir
hefðu gefið til söfnunarinnar.
Tjónið var talið nema um 500
þúsund krónum en um 140 manns
á Dalvík misstu heimili sitt í
skjálftanum og hafðist fólkið við
í tjöldum um sumarið.
Þess var m.a. getið að ekki
hefði verið til óbrotið leirtau í
bænum eftir skjálftann og á
heimili Steingríms og eiginkonu
hans Steinunnar Sveinbjörnsdótt-
ur er til bollastell sem ávallt hef-
ur gengið undir nafninu ,jarð-
slqálftastellið“.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
BÖRNIN vinna að útilistaverki í fjörunni við Slippstöðina-Odda.
Ungir nemendur halda
myndlistarsýningu
TVÆR listakonur frá Svíþjóð,
Ditte Rejers og Maria Hagberg
Jangsell, hafa unnið með hópi
ungra nemenda Myndlistaskólans
á Akureyri, ásamt tveimur kennur-
um við skólann, Rósu Kristínu Júl-
íusdóttur og Kristjáni Jóhannssyni.
Börnin hafa á síðustu tíu dögum
reynt nokkra mismunandi þætti
sköpunar og verður hluti verka
þeirra á sýningu sem opnuð verður
í Myndlistaskólanum í dag, föstu-
daginn 3. júní kl. 16.00. Þetta er
síðasti hluti samnorræns verkefn-
is,„Et levande Norden“, sem feng-
ið hefur nafnið Norræn æska.
Sýningin verður opin daglega
frá kl. 14.00 til 18.00 til sunnu-
dagsins 12. júní, en lokað verður
mánudag.
Dagur íþrótta og útiveru
ÁRLEGUR íþrótta- og útivistar-
dagur verður haldinn á Akureyri á
laugardaginn, 4. júní og hefst með
ávarpi Halldórs Jónssonar bæjar-
stjóra á Ráðhústorgi kl. 10.25.
Á torginu verða einnig fimleika-
og júdósýningar, Púlsinn verður
með pallaæfingar og fulltrúar
heilsugæslustöðvarinnar sjá úm
blóðþrýstingsmælingar fyrir þá sem
vilja.
Sumarlistaskolinn á Akureyri
26. júnf til 10. iúlí '94 lyrir 10-16 áia
Margir kennarar og mikið fjör. Fjölbreytt þjálfun
í myndlist, leiklist, tónlist, dansi og kvikmyndun.
Nú eru aðeins laus pláss fyrir nokkra nemendur
til viðbótar, en þátttakendur hafa tilkynnt sig frá
fjölmörgum stöðum á landinu.
Upplýsingar og skráning í síma 96-22644.
Örn Ingi.
Heilsuhlaup krabbameinsfélag-
ins hefst á hádegi við Dynheima,
hestaíþróttir verða sýndar á flötinni
austan samkomuhúss og kappróður
Sjómannadagsráðs hefst við Torfu-
nefsbryggju kl. 13.00 og verða segl-
bátar frá siglingaklúbbnum Nökkva
og trillur félagsmanna í Kletti, fé-
lagi smábátaeigenda á Pollinum.
Ókeypis aðgangur verður í sund-
laugar bæjarins og ýmsar kynning-
ar í gangi, eins og á ungbarna-
sundi og sundleikskóla.
Ferðafélag Akureyrar efnir til
gönguferðar um Vatnahjallaveg.
Éinnig verður farin skoðunarferð
um Glerárgil og gönguferð um
Oddeyrina. Félag hjartasjúklinga á
Eyjafjarðarsvæðinu efnir einnig til
gönguferðar þennan dag.
Dagskrá verður við íþróttamann-
virki, m.a. á golfvelli, Þórsvelli, KA-
velli og við íþróttahöllina auk Akur-
eyrarvallar sem verður opinn fyrir
trimmara allan daginn.
Skotfélag Akureyrar býður leið-
sögn við leirdúfuskotfimi og kynn-
ing verður á veggtennis, borðtennis
og boccia á Bjargi eftir hádegi.