Morgunblaðið - 15.06.1994, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 15.06.1994, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ og SÞ hafa eldflaugagall á fjalla- toppi við þetta skarð. Ég sé að allt er gert til varnar flutningafólki SÞ í þessum flutningum. Þarna suðurfrá erum við einmitt á svæðinu þar sem vitað er að Bos- níumúslimar eru að safna saman mikiu liði við átakalínuna. Hyggjast taka „vasa“ sem skagar inn í við Kaday. Þegar þeir hefla slíka sókn, svara Serbarnir venjulega með því að senda flugskeyti yfir bæinn. Því var þessa daga nokkur taugatitr- ingur og sérstakt bann við að friðar- gæslumenn væru á ferli utan skyldustarfa og alltaf í skotvesti og brynvörðum vögnum. Skotflaug frá Himmelbjerget Flugvöllurinn í Tuzla liggur 20 km frá bænum. Enn einu sinni var verið að opna hann fyrir umsaminni umferð fyrir Sameinuðu þjóðirnar undir þeirra stjórn og með sam- þykki allra aðila. í sólskininu virtist hann líka ákaflega friðsamlegur, þar sem refur skokkaði eftir braut- inni. Illusín flutningavél friðargæsl- unnar lenti kl. 13.40 og renndi upp að afgreiðsluskúr og nokkrir far- þegar gengu inn. Klukkan 13.45 kom fiugskeyti og lenti skammt frá og kl. 13.48 var flugvélin komin á loft aftur með ailan farminn. Þetta hafði gerst áður og gígar eftir flaugar m.a. rétt hjá franska slökkviliðinu. Norski ofurstinn Tom Johanson, yfirmaður flugvallarins, sagði að reynt yrði aftur eftir frek- ara tal við Serbana. En ákvörðun var tekin af Rose hershöfðingja í aðalstöðvunum í Sarajevo um að beðið yrði meðan þeir væru að draga menn að samningaborði í Genf. En okkur væri óhætt að lenda á þyrlunum þar morguninn eftir, sagði Johansen, því Serbarnir mundu áreiðanlega ekki vilja fá til- kynningu inn á samningaborðið í Genf um að þeir hefðu skotið niður Sameinuðuþjóðavél. Af hveiju þá að senda flugskeyti inn? Þetta er eitthvert óskaplega fíngert spil, sem enginn skilur alveg. Enn eitt til- brigði við vitleysuna. Gæti verið að þeir séu að reyna að ögra Samein- uðu þjóðunum til að kalla á Nato þotuna í eftirlitsfluginu, til að eyði- leggja víghreiður þeirra í „Himmel- bjerget", hæðinni sem maður sér þarna við flugbrautarendann og þaðan sem þeir m.a. sendu flug- skeyti á dönsku eftirlitssveitina fyr- ir skömmu. Þá lá nærri að svo færi. Serbarir eiga orðið erfitt með að halda svo stóru landsvæði. En hvað gerist ef verður að veija Friðar- gæsluliðið með flugskeyti úr Nato- flugvél? Tom Johanson er þeirrar skoðun- ar að það megi alls ekki gerast. „Við erum hér til að hjálpa, til að slá á stríðið. Við gerum það ekki ef við aukum átökin með Natóflaug frá Friðargæslunni. Þá höfum við sett blett á hinn bláa fána Samein- uðu þjóðann og verðum að fara út. Hver á þá að tryggja Bosníubúum mat og veija fólkið á verndarsvæð- unum. Ef einhver aðilinn vill okkur út, þá verðum við að fara. „Nú hafa þessir stríðsaðilar, Króatar, Serbar og Múslimar tækifæri til að ná friðarsamningum, sem þeir hafa ekki aftur eftir þetta sumar. Ég spái því að við náum vopnahléi eft- ir sex mánuði." En hann eins og allir aðrir eru þeirrar skoðunar að skammt dugi að neyða aðila til samninga eða skipta landinu milli þjóðarbrotanna. Þau verði að búa saman. Ekki var Tim Baldie, fram- kvæmdastóri alls Friðargæsluliðs- ins í fyrrum Júgóslavíu jafn bjart- sýnn. Hann sagði að valkostirnir væru þrír: 1. Að ná vopnahléi, sem margfaldi afskipti Friðargæslu SÞ, sem nú þegar er með 38 þúsund manna lið og kostar 1,5-1,7 milljarð dollara. 2. Að láta ástandið enn versna í algera „kaos“ og „anarkí". Ef Friðargæslan gæti þá ekki leng- ur neitt gert, þá yrði hún að draga sig út. 3. Friðargæsluliðið gæti þvælst fyrir, eins og það hefur gert og gerir það gagn sem það megnar til varnar fólkinu. Og það spáði Tim Boldie að yrði niðurstaðan áfram. MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ1994 21 m MAWÆPÆÐR/ÆtTiTiI KRABBAMEINSFELAGSINS 1994 VEITTU STUÐNING - VERTU MEÐ! í þetta sinn voru miðar sendir körlum, áaldri|iump3ja - 75 ára. Við þökkum öllum þeim sem þegar hafa borgað miðana og minnum tiiná á góðan málstað og verðmæta vinninga. Greiða má í banka, sparisjóði eða pöstafgrfiðslu fram að dráttardegi, 17. júní. Vakin er athygli á því að hægt er að borga með greiðslukorti (Visa, Eurocard). Hringið þá í sírna^l) 621414. Hver keyptur miði eflir sókn og vörn gegn krabbameini! mmmmmmmmá wmmmmmmmmi S-Ö Ferðasímakort Lykill að þjónustu í yfir 40 löndum fyrir þá sem þurfa að ná sambandi hratt og örugglega. Kortin eru fáanleg í tveimur gerðum: Reikningskort: Afhent án endurgjalds en símanotkun kemurtil greiðslu á símareikningi korthafa hér heima. Sótt er um reikningskortin á næstu póst- og símstöð. HMgaiBgi mx Fyrirframgreidd kort: Seld á póst- og símstöðvum um land allt. Kortin kosta 800 krónur eða 2500 krónur. Oö • Ótvíræður sparnaður og aukin þægindi þegar hringt erfrá hótelum erlendis. A kortunum eru númer og leiðbeiningar sem nota á þegar hringt er. Það eina sem þarf er aðgangur að tónvalssíma með tökkum og símanúmer þjónustunnar í hverju landi fyrir sig. Ferðasíma^ Fyrsta útgáfa fyrirframgreiddu kortanna er tileinkuð 50 ára afmæli íslenska lýðveldisins. 123 01 j -j -i G OTT F Ó L K

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.