Morgunblaðið - 15.06.1994, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 1994 49
f
I
)
I
J
J
J
B DENNIS Bergkamp, sóknar-
leikmaður Hollands var skírður í
höfuðið á knattspyrnukappanum
Denis Law, fyrrum leikmanni
Manchester Unitd.
Frá Forldrar Berkamps
Bob gerðu ein mistök —
Hennessy þeir athuguðu ekki
íEngiandi ag ageins eitt enn
er í nafni Denis Law.
B 25.000 Bandaríkjamenn tóku
þátt í að finna nafn á lukkudýr
(hundinn) HM. Ákveðið var að kalla
hundinn „striker“ - eða Framherj-
anrt.
■ ÞRJÚ stig eru gefin fyrir sigur
í riðlakeppninni.
M ÞEIR leikmenn sem fá gult
spjald í riðlakeppninni, taka það
ekki með sér í sextán liða úrslitin.
H AÐEINS tvær enskumælandi
þjóðir taka þátt í HM í Bandaríkj-
unum — heimamenn og írar.
B ANDONI Zubizarreta, mark-
vörður Spánveija, mun ekki leika
tvo fyrstu leiki þeirra í HM, þar sem
hann tekur út leikbann fyrir að
hafa verið rekinn af leikvelli gegn
Dönum í undankeppninni.
B ÞEIR dómarar sem sýna leik-
mönnum ekki rauða spjaldið fyrir
brot á leikmönnum aftanfrá, verða
sendir heim með næstu flugvél.
B ÁRANGUft Jackie Charltons
með landslið Irlands, hefur vakið
athugli, en írar hafa aðeins tapað
ellefu leikjum af 78 undir hans
stjórn.
® LAUN Charltons sem lands-
liðsþjálfari miðað við laun jandsliðs-
þjálfara Þýskalands og Ítalíu eru
aðeins vasapeningar, en hann hefur
214 þús. ísl. kr. á viku, árslaun
10,7 millj. kr.
H CHARLTON þénar miklu
meira á ýmsun auglýsingum, eða
321 millj. kr. á ári. Þessi spaugsami
þjálfari tekur 321 þús. kr. fýrir að
halda stutta kvöldfyrirlestra — á
léttu nótunum.
B Charlton, sem er 59 ára og
mikill áhugamaður um laxveiðar, á
tvö hús í Englandi, veiðihús á vest-
urströnd írlands og villu á Spáni.
B BRÓÐIR Jackie er Bobby,
fyrrum leikmaður Manchester
United. Þeir bræður urðu heims-
meistarar með Englandi 1966 á
Wembley.
B BOBBY var aðlaður um síðustu
helgi í Englandi og tekur hann
sæti í lágvarðadeildinni sem Sir
Robert Charlton.
® KEVIN Moran og David Kelly
leika ekki með írum í fyrsta leik
þeirra í riðlakeppninni á HM gegn
Itölum í New York á laugardag-
inn. Þeir eru báðir meiddir.
B SAUDI-Arabar eru búnir að
setja allt á annan endann í Banda-
ríkjunum. Liðið átti að koma til
Baltimore á laugardaginn en kom
ekki. „Völlurinn sem við áttum að
æfa á var ekki tilbúinn og því verð-
um við áfram hér í Pornona," sagði
forráðamaður liðsins.
■ BÚIÐ var að lagfæra háskóla-
völlinn í Baltimore og Sheraton-
hótel hafði verið bókað en á síðustu
stundu ákváðu Arabamir að vera
áfram í New Jersey.
® FRAMIIERJAR, félag áhuga-
samra Framara leita nú að nafni
á lukkudýr félagsins, sem er lifandi
blárefur. Sá sem stingur upp á
nafninu sem síðar verður fyrir val-
inu fær helgardvöld að Bifröst.
■ FRAMHERJAR hittast í kaffí-
teríu ÍSÍ fyrir leikinn í kvöld og
þar geta menn virt lukkudýrið fyrir
sér og hugað að nafngift.
ÚRSLIT
Knattspyrna
L deild kvenna:
IA - Höttur..................4:0
Laufey Sigurðardóttir 2, Áslaug Ákadóttir,
Bryiy'a Pétursdóttir.
KNATTSPYRNA
Sjötta umferð 1. deildar hefst í kvöld
Hefna Framarar
ófaranna úr
Reykjavíkurmótinu?
Sjötta umferð 1. deildar karla
hefst í kvöld með leik Fram
og KR á aðalleikvanginum í Laug-
ardal. KR er í
þriðja sæti
deildarinnar en
Fram í því
fimmta og að-
eins skilur eitt
stig liðin.
KR-ingum
var spáð ís-
landsmeistara-
titilinum fyrir
keppnistíma-
bilið en Fram var spáð frekar döpru
ári, sjöunda sæti í deildinni. Miðað
við fyrstu umferðirnar ætti leikur-
inn í kvöld að geta orðið skemmti-
legur því Framarar hafa leikið
skemmtilega knattspyrnu það sem
af er og hafa gert flest mörk allra
liða í deildinni, alls níu og fengið á
sig sjö. KR hefur ekki leikið eins
vel og liðið gerði á undirbúnings-
tímabilinu, en hefur þó krækt sér
í sjö stig með því að gera átta
mörk og fá á sig þrjú.
Liðið léku tvo leiki í Reykjavíkur-
mótinu og sigraði KR 10:1 í þeim
samanlagt. Framarar vilja örugg-
lega gleyma þeim leikjum enda
vantaði nokkra leikmenn í lið þeirra
þá, en KR-ingar voru í miklu stuði.
Það ættu því væntanlega að sjást
nokkur mörk í Laugardalnum.
Búast má við að Anton Björn
Markússon komi inn í lið Fram á
nýjan leik eftir meiðsli sem hann
hlaut í fyrsta leik liðsins gegn
Stjörnunni. Ólíklegt er að hinn ungi
og sprettharði KR-ingur Óskar
Hrafn Þorvaldsson verði búinn að
jafna sig fyrir leikinn í kvöld.
KNATTSPYRNA
Spurs áfram í
úrvalsdeildinni
>>
Félagið var sektað, það missir 12 stig
næsta ár og verður ekki með í bikarnum
TOTTENHAM Hospurfékkí
gærkvöldi þaö sem kalla má
„sterka“ áminningu. Liðinu
er gert að greiða sem svarar
rúmum 64 milljónum króna í
sekt, fær ekki að vera með í
bikarnum og byrjar í deildinni
með-12stig.
Margir óttuðust að félagið
yrði dæmt til að leika í 1.
deild I haust vegna þessa máls,
sem snýst að
Bob Hennesey mesfu um að fé‘
skrífar frá lagið hafi veitt
Englandi leikmönnum „lán“
áður en gengið
hafði verið frá kaupum á þeim
og þar með stuðlað að „réttri“
ákvörðun leikmanna. En hæsti-
réttur úrskurðaði í gærkvöldi að
liðið gæti leikið áfram í úrvals-
deildinni, en veitti því harðorða
áminningu sem mun kosta félagið
stórfé.
Tottenham er gert að greiða
600 þúsnd punda sekt auk þess
sem það fær ekki að vera með í
ensku bikarkeppninni næsta ár
og í úrvalsdeildinni verða dregin
12 stig af liðinu. Það sem er
hvað grátlegast fyrir félagið er
að þeir menn sem nú halda um
stjórnvölin, Assie Ardiles fram-
kvæmdastjóri og Alan Suger for-
seti stjómarinnar, komu hvergi
nærri þessum málum. Það sem
verið var að dæma félagið fyrir í
gær gerðist á meðan Terry Vena-
bles var stjóri hjá liðinu.
Dómarar HM
Dómaranefnd FIFA skýrði frá
því í gær hverjir dæma 24
fyrstu leikina í HM í Bandaríkjun-
um sem hefst á föstudaginn. Lög-
fræðingurinn Arthuo Brizio Carter
frá Mexíkó ríður á vaðið og dæmir
opnunarleikinn og Daninn Peter
Mikkelsen dæmir hinn leikinn á
föstudaginn. Hér á eftir fer listi
yfir dómara leikjanna:
17. júní:
Þýskaland - Bólivía
................Carter (Mexíkó)
Spánn - S-Kórea
............Mikkelsen (Danmörku)
18. júní:
Bandaríkin - Sviss
............Lamolina (Argentínu
Ítalía - írland
........Van der Ende (Hollandi)
Kólombía - Rúmenía
................Sharif (Sýrlandi)
19. júní:
Belgía - Marokó
..............Cadena (Kólumbíu)
Noregur - Mexíkó
............Puhl (Ungveijalandi)
Kamerún - Svíþjóð
.........'.........Noriega (Pení)
20. júní:
Brasilía - Rússland
..............Chong (Mauritius)
Holland - Saudi Arabía
....................Vega (Spáni)
21. júní:
Argentína - Grikkland
..............Angeles (Bandar.)
Þýskaland - Spánn
................Cavani (Úrúgvæ)
Nígería - Búlgaría
............Badilla (Kosta Rica)
22. júní:
Rúmenía - Sviss
...................Jouini (Túnis)
Bandarikin - Kólombia
...................Baldas (Ítalíu)
23. júní:
ítalia - Noregur
..............Krug (Þýskalandi)
S-Kórea - Bólivía
............Mottram (Skotlandi)
24. júní:
Mexíkó - írland
..............Röthlisberger (Sviss)
Brasilía - Kamerún
.................Carter (Mexíkó)
Síþjóð - Rússland,
............Quiniou (Frakklandi)
25. júní:
Belgía - Holland
..............Marsiglia (Brasilíu)
Saudi Arabía - Marokó
...................Don (Englandi)
Argentina - Nígería
................Karlsson (Svíþjóð)
26. júní:
Búlgaría - Grikkland
Bujsaim
Heimir
tekur vid
ÆF
IR-ingum
Heimir Karlsson, knattspymu-
maður og íþróttafréttamaður
á Stöð 2, var í gær ráðinn Jojálfari
ÍR-inga sem leika í 2. deild Islands-
mótsins í knattspyrnu. Heimir tekur
við liðinu af Ögmundi Kristinssyni
sem var látinn hætta um síðustu
helgi í kjölfar slaks gengis liðsins
í fyrstu leikjum deildarinnar. ÍR-lið-
ið hefur leiírið þrjá leiki í deildinni,
tapað þeim öllum og situr eitt á
botni deildarinnar. Markatalan er
ekki glæsileg, Breiðhyltingar hafa
gert eitt mark en fengið á sig tólf.
Heimir er ekki alveg ókunnugur
Breiðholtsliðinu því hann þjálfaði
hjá félaginu síðast árið 1987. Heim-
ir verður við stjórnvölin hjá liðinu
í fyrsta sinn í kvöld í bikarkeppni
KSÍ, en þá taka ÍR-ingar á móti
Aftureldingu úr Mosfellsbæ.
Augustine Okocha, miðvallarspii-
ari Nígeríu (nr. 10), er leikmaður með
Frankfurt. Hann er mjög kröftugur
og sókndjarfur miðvallarspilari.
„Spútnikamir“
komnir frá Nígeríu
NÍGERÍUMENN komu til Dallas í Bandartíkjunum ífyrrinótt kl.
4.30 — þrjátíu klukkustundum eftir að leikmenn landsliðs Níg-
eriu lögðu á stað frá æfingabúðum sínum fyrir utan Lagos. Leik-
mennirnir komu tíu tímum of seint, eftir átján tíma flug. Ástæð-
an fyrir seinkun þeirra var að flugfélagið Nigerian Airways var
ekki búið að tryggja vegabréfsáritin fyrir flugliða sína í tæka tíð,
en lengi vel hefur verið bann í Bandaríkjunum á beint flug þang-
að fráNígeríu.
ví er ekki að neita að leikmenn
mínir eru þreyttir eftir erfiða
ferð, en þeir náðu að leggja sig smá
stund í flugferðinni," sagði Hollend-
ingurinn Clemens Westerhof, sem
er þjálfari Nígeríuliðsins. Hann sendi
leikmenn sína strax í rúmið þegar
komið var á hótel það sem liðið dvel-
ur á fyrir utan Dallas.
Það hallast margir að því að Ní-
geríumenn verði spútnikar heims-
meistarakeppninnar, en þeir hafa 5
herbúðum sínum marga mjög leikna
leikmenn — og nær allir leika þeir
með liðum í Evrópu; Þýskalandi,
Hollandi, Spáni, Belgíu, Frakklandi
og Englandi. Nígeríumenn taka þátt
í heimsmeistarakeppninni í fyrsta
skipti og eru handhafar meistarabik-
i ars Afríku,.sem þeir hömpuðu iapríl...
„Það er ekki auðvelt að leika i
heimsmeistarakeppni. Við berum
virðingu fyrir öllum mótheijum okk-
ar, en hræðumst þá ekki," sagði
Westerhof. Nígeríumenn leika í riðli
með landsliðum Argentínu, Grikk-
lands og Búlgaríu. Fyrsti leikur Ní-
geríu verður gegn Búlgaríu á þriðJÉN
daginn kemur. Emeka Omeruah,
forseti knattspymusambands Níger-
íu, sagði að hans menn gæfu ekkert
eftir til að verða þeir sem kæmu
mest á óvart. Það sem vinnur með
Nígaríu að þeir eru ekki óvanir að
leika í hita eins og er í Dallas —
um 30 stiga hita. „Það verður ekk-
ert vandamál fyrir okkur. Þetta er
sama hitastig og er í Lagos,“ sagði
Westerhof. . ______ . .