Morgunblaðið - 17.06.1994, Qupperneq 34
34 FÖSTUDAGUR 17. JÚNÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
Að athöfninni lokinni tók ég aftur til óspilltra
málanna, því ég var að keppast við að raða niður í
sæti helstu gestunum í kvöldveisluna sem hefjast
átti kl. 19. Boðið hafði verið eins mörgum og frek-
ast var hægt að koma fyrir í báðum sölunum á
Hótel Borg og þeir dugðu í rauninni ekki til, því ríkis-
stjómin hafði viljað bjóða fleiri gestum ef húsrúmið
hefði leyft það. Svo naumur var tíminn að ég og
aðstoðarfólk mitt vorum að leggja síðustu nafnakort-
in á sína staði þegar fyrstu veislugestimir tóku að
streyma inn í veitingasalina. Þá hraðaði ég mér heim
til þess að hafa fataskipti og kom sér vel hversu
stutt var heim til mín.
Um veisluna skrifaði Ásgeir Ásgeirsson á þessa
leið í grein um hátíðahöldin hinn 18. júní í ritinu
um lýðveldishátíðina: „Um kvöldið var haldin veisla
að Hótel Borg og boðið þangað svo mörgum sem
húsrúm leyfði. Forsætisráðherra stýrði veisluhaldinu
fyrir hönd ríkisstjórnarinnar og bauð gesti vel-
komna. Forseti sameinaðs Alþingis talaði fyrir minni
forseta ríkisins, en hann minntist ættjarðarinnar.
Utanríkisráðherra ávarpaði erlenda sendimenn, en
ambassador Bandaríkjanna svaraði fyrir þeirra hönd.
Veisluna sátu auk þess alþingismenn, ýmsir embætt-
ismenn og fulltrúar helstu félagasamtaka. Þótti veisl-
an fara vel fram og vera virðuleg hátíðarlok."
Post festum
Fimmtudaginn 22. júní hélt forseti íslands sína fyrstu
veislu að Bessastöðum. Boðsgestir voru ríkisstjóm,
forseti sameinaðs Alþingis, forseti Hæstaréttar,
sendiherrar erlendra ríkja, formenn stómmálaflokk-
anna, fulltrúi Vestur-íslendinga og nokkrir embættis-
menn.
Skömmu eftir að sest var að borðum stóð forset-
inn upp og bað gestina að drekka skál Danakonungs
og Danmerkur, lék síðan Lúðrasveit Reykjavíkur, sem
komið hafði verið fyrir í hliðarsal, „Det er et yndigt
land“. Síðan bað forseti veislugesti að drekka skál
Bandaríkjanna og þjóðhöfðingja hennar. Síðan var
drakkin skál Breta, Norðmanna, Svía, Sovétríkjanna,
Hollendinga, Frakka og þjóðhöfðingja þeirra, en lúð-
rasveitin lék eftir hveija skál þjóðsöng hlutaðeigandi
þjóðar.
Þá bað forseti gestina að drekka skál allra þeirra
ríkja, er sýnt höðu hinu unga lýðveldi vináttuvott á
einn eða annan hátt. Loks bað forseti þess að drukk-
in væri skál hins íslenska lýðveldis og var síðan leik-
inn þjóðsöngurinn, „Ó, guð vors lands“.
Engar ræður vora fluttar í veislunni.
900
Sauðfé
Þúsund
896.192
Landbúnadur
1944-1994
Hlutur landbúnaðar í vinnuafli
1940 1950 1960 1970
1980
1990
800
£
................... . " . . . . , ,. srí... .
4,8'
487.312
Verðmæti landbúnaðarframleiðslunnar
1950-92 Vísitala, 1980 er sett á 100
Hlutur landbúnaðar í landsfram-
leiðslu árið 1990 nam 2,87%
1950 ’55
Á upphafsárum lýðveldisins
var garðagróður einkum
kartöflur og rófur.
Nú er framleiðsla grænmetis
og garðávaxta mjög fjölbreytt,
sérstaklega vegna tilkomu ylræktar,
mjólkurafurðir em orðnar margbreytilegar,
Nautgripaafurðir,
mjólk og kjöt
Sauðfjár-
afurðir
Svínakjöt,
alifuglaafurðir o.fl.
\_ Garða-og
gróðurhúsaafurðir
Hlunnindi og aðrar afurðir
svína- og
alifuglarækt
hefur stóraukist,
tilraunir með
loðdýraeldi hafa
gengið misjafnlega...
ÆmmBk 'wBst
v¥ *
... og fiskeldi virðist
sjá fram á betri tíð.
Kjötneysla á mann 1992
- Hrossakjöt, 2,7 kg
- Alifuglakjöt
Svínakjöt ^autakjöt
1945 1950 1955 1960 1965 1970 1975 1980 1985 1990
Heimild:
Hagstofa Isiands
og Þjóðhagsstofnun
H
\-5 0.1
6,3 \ 12,1
m
30,5 kg
Kindakjöt