Morgunblaðið - 01.09.1994, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 1. SEPTEMBER 1994 29
AÐSENDAR GREINAR
Ríkissjóður hefur óseðj-
andi þörf fyrir peninga,
segir Kristín Sigurðar-
dóttir, sem telur skatta
á atvinnubifreiðar allt
of háa.
úar 1991 til þeirrar tölu er gildir
frá febrúar 1994 er 43,68% (í létt-
asta flokki úr 4,58 kr./km í 6,57
kr./km og í þyngsta flokki úr
17,51 kr./km í 25,16 kr./km).
Hækkunin á þungaskatti frá upp-
hafi árs 1988 til ársins í ár er
146,66%! Hin síðari ár hafa menn
hins vegar ekki treyst sér til þess
að hækka taxta sína. Flestir eru
að fá sömu krónutölu fyrir þjón-
ustu sína nú og fyrir þremur árum.
Það er nógu slæmt, þó að ríkis-
valdið sé ekki jafnframt að taka
sífellt stærri hlut af tekjunum.
Þegar skattur á hvern ekinn kíló-
metra hækkar sífellt meðan tekj-
urnar standa í stað eða dragast
saman þá eykst hlutfallsleg skatt-
lagning mjög hratt. Það gerir
ástandið enn verra að kostnaður
vegna viðhalds og rekstrar hefur
hækkað verulega síðustu ár en
gengisbreytingar o.fl. hafa m.a.
leitt til hækkunar á olíu og vara-
hlutum. Hagkvæmni flutninga
hefur bein áhrif á samkeppnis-
stöðu íslenskrar framleiðslu og
þjónustu og þar með einnig at-
vinnustig í landinu. Dýrir flutning-
ar geta eyðilagt marga möguleika.
Það getur því ekki verið með lang-
tímahagsmuni í huga ef stefnt er
að því að lama atvinnugreinina
með skattlagningu. Er að furða
þó að menn velti fyrir sér hver
stefna ríkisvaldsins sé gagnvart
atvinnurekstri bifreiða?
Stundum hefur því verið haldið
fram að það sé eðlilegt að atvinnu-
bifreiðar séu skattlagðar mjög
mikið vegna þess að þær setji
mest álag á vegakerfið. En er það
nú alveg víst? Draga atvinnubif-
reiðar ekki verulega úr notkun
einkabifreiða? Hætt er við því að
ef dregið verður verulega úr þess-
ari þjónustu, kalli það á stóraukna
notkun einkabifreiða þó að verk-
efni verði aðeins leyst að örlitlum
hluta á þann hátt. Er það ekki
augljóst, eftir nokkra umhugsun,
að atvinnubifreiðar minnka í raun
álagið. Þetta sama vegakerfi er
svo fjármagnað af eigendum bif-
reiða og gerir sú skattlagningin
miklu meira en að standa undir
öllum vegaframkvæmdum.
Atvinnubifreiðar leiða til
mikilla möguleika
Nú er það svo að langmestir
flutningar okkar fara fram á landi.
Bættar samgöngur hafa skilað
þjóðinni miklum hagsbótum. Ýms-
ar stórmerkar framfarir hafa orðið
vegna möguleika sem bættar sam-
göngur bjóða. Atvinnurekstur um
allt land, í þéttbýli og dreifbýli,
er háður því að greiðlega gangi
að flytja fólk og vörur af öllu tagi.
Byggingariðnaður, framleiðsla af
flestu tagi og ferðamannaþjón-
usta, svo fátt eitt sé nefnt, yrðu
veikburða og lítils megnug ef ekki
kæmi til öflug þjónusta atvinnubif-
reiða af öllum gerðum.
Flutningur á fólki og vörum
stendur undir velferð okkar. Þessa
þjónustu þarf því að efla fremur
en að draga úr henni máttinn.
Ríkisvaldið verður að skilja að
þessi lind er löngu þurrausin.
P.S. í Samtökum landflutninga-
manna eru eftirtalin félög: Banda-
lag íslenskra leigubifreiðastjóra,
Félag hópferðaleyfishafa, Félag
sérleyfishafa, Félag vinnuvélaeig-
enda, Landssamband vörubifreiða-
stjóra, Landvari, landsfélag vöru-
bifreiðaeigenda á flutningaleiðum,
Trausti, félag sendibifreiðastjóra,
og Ökukennarafélag íslands.
Höfundur er framkvæmdastjóri
Félags vinnuvélaeigenda og
formaður Samtaka
landflutningamanna.
ff Frátta- og IræSsluþiónustan
c'C?Wisskóli Jóns Péturs og Köru ck5)ansskóli Auðar Haralds
Bolholti 6, sími 36645 Grensásvegi 12, sími 39600
^NÝcinsskóli Heiðars Ástvaldssonar
Brautarholti 4, sími 20345
"^azzballettskóli Báru
Stigahlíð 45, sími 813730
8 ___ VvSa wí *
^N^ansskóli Hermanns Ragnars
■ T Faxafeni 14, sími 687730
IV
c\3lansskóli Sigurðar Hákonarsonar
Auðbrekku 17, sími 641111
C^ýi dansskólinn
Reykjavikuivegi 72, sími 652285
’anslína Huldu
Þarabakka 3, sími 71200
cN7,agný Björk, danskennari
Smiðjuvegi 1, sími 642535
^Ý^anssmiðjan
Engjateigi 1, simi 689797
f
Jj/ Dansráð íslands
| tryggir rétta tilsögn
‘Da.nsslffiCamir
þar sem dansinn er fyrir alla
t i I b o ð
bókabúðu m
HMIDHÆG ORBABOK HANDA
NEMENDUM Á ÖUDM SKÚIASHGDM
fæst í næstu
bókabúó
Rúmlega 500 blaðsíður
Um 30.000 uppflettiorð
Auðskilið hljóðritunarkerfi
Núgildandi dönsk stafsetning
Beygingar og önnur málfræðiatriði samkvæmt
nýjustu reglum
Dönsk-íslensk skólaorðabók Máls og menningar er
stytt útgáfa af Dansk-íslenskri orðabók sem út kom
árið 1992. Hún er einkum ætluð nemendum í grunn-
og framhaldsskólum en orðaforðinn ætti einnig að
nýtast íslenskum almenningi til skilnings á daglegu
dönsku máli.
F O R 1_ A G 1 Ð
MÁL OG M E N N 1 N