Morgunblaðið - 03.12.1994, Síða 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN I 103 REYKJAVÍK
SÍMI 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 3040 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
LAUGARDAGUR 3. DESEMBER 1994
VERÐ I LAUSASOLU 125 KR. MEÐ VSK
Morgunblaðið/Kristinn
Kveikt á Hamborgartrénu
LJÓS á 15 metra háu jólatré
voru tendruð á hafnarbakkan-
um í Reykjavík í gær og er tréð
gjöf frá Hamborg. Hamborg-
arbúar hafa gefið Islendingum
jólatré frá árinu 1965, en þá
var fyrsta tréð flutt til landsins
með vélskipinu Isborgu. Arleg
afhendingjólatrés erþakklæt-
isvottur til íslendinga fyrir
matargjöf til barna í Hamborg
á árinum eftir síðari heims-
styrjöld.
78 ára gamall upphafsmaður
gjafarinnar, Hermann Schliinz,
afhenti tréð á nýja Miðbakkan-
um að viðstöddum sendiherra
Þýskalands, Helmut Schatz-
schneider og hafnarstjóra,
Hannesi Valdimarssyni.
Réðust á og rændu
ellefu ára telpu
ELLEFU ára telpa varð fyrir þeirri
óskemmtilegu reynslu að tveir
unglingspiltar réðust á hana við
Hlemm í fyrrakvöld, hrintu henni
og spörkuðu í hana, hrifsuðu af
henni peningaveski og tæmdu það.
Fullorðin kona kom telpunni til
bjargar en þegar hún birtist forð-
uðu strákarnir sér á hlaupum.
Telpan var á leið á íþróttaæfingu
og var að bíða eftir strætisvagni
Hverfisgötumegin við biðstöð
Strætisvagna Reykjavíkur á
Hlemmi rétt fyrir klukkan sjö í
fyrrakvöld. Hún segist hafa spurt
annan piltanna, sem einnig voru
að bíða eftir strætó, hvað klukkan
væri. Hann sagði henni það en
réðst síðan umsvifalaust að henni,
hrifsaði af henni veskið sem hún
hélt á í hendinni og hrinti henni.
Hún datt aftur fyrir sig, niður af
stéttinni og ofan í poll á götunni.
Þar sparkaði annar þeirra í bakið
á henni. Þá bar að fullorðna konu
og strákarnir hlupu niður Hverfis-
götu. Veski telpunnar lá í polli og
búið að tæma það.
Stóð allslaus eftir
Gamla konan gaf henni pening
í strætó en telpan stóð algjörlega
bjargarlaus eftir árásina og þorði
ekki að labba yfir á lögreglustöð
af ótta við að rekast á strákana
aftur. Hún segir að ekkert annað
fólk hafi verið þarna við Hlemm
fyrir utan gamlan mann sem sat
hálfsofandi á bekk.
Móðirin segir að telpan sé ekki
með teljandi líkamlega áverka en
hún hafi orðið fyrir áfalli og verið
alveg stjörf þegar hún kom heim.
Hún hafi því strax haft samband
við lögreglu til að kæra málið en
vegna þess að telpan hafi ekki
þorað út úr húsi, ekki einu sinni
niður á lögreglustöð með foreldrum
sínum, hafi lögreglumenn komið
heim og tekið skýrslu þar. Málið
er nú komið til Rannsóknarlög-
reglu ríkisins.
Kærar þakkir
til konunnar
Telpan gat gefið greinargóða
lýsingu á piltunum tveimur. Annar
var frekar hávaxinn með brún
augu, dökkt axlarsítt hár, bundið
í tagl, í svörtum gallajakka og blá-
um gallabuxum. Hinn var með
skollitað hár, lítill, frekar þybbinn,
með blá eða blágrá augu. Hann
var klæddur í svartan, hnepptan
leðurjakka. Telpan telur að þeir séu
á aldrinum 14 til 17 ára.
Mæðgurnar vilja koma á fram-
færi kæru þakklæti til konunnar
sem kom telpunni til bjargar við
Hlemm. Þá er konan vinsamlegast
beðin um að hafa samband við
Rannsóknarlögregluna fig aðrir
þeir sem hugsanlega hafa orðið
vitni að því sem gerðist.
Vistmenn á sambýli fyrir heilabilaða fluttir vegna sjúkraliðaverkfalls
„Algjört
neyðar-
úrræði“
í GÆR voru níu vistmenn á Lauga-
skjóli, sambýli fyrir sjúklinga með
Alzheimer og aðra heilabilunarsjúk-
dóma, fluttir yfir á hjúkrunarheimilið
Skjól vegna verkfalls sjúkraliða.
Heimilismenn eru á aldrinum
77-89 ára og allflestir hrjáðir af
alvarlegum elliglöpum vegna sjúk-
dóma sinna. Öll röskun á högum
þeirra er því varhugaverð.
„Fellur þetta þungt“
„Við myndum ekki flytja fólkið
nema alveg tilneydd. Þetta er algjört
neyðarúrræði, sem við gripum fyrst
til þegar búið var að útiloka allar
leiðir aðrar,“ segir Aðalheiður Vil-
hjálmsdóttir, hjúkrunarfræðingur og
forstöðumaður á Laugaskjóli.
■ Eins og flótti/4
20 kílóum
af lyfjum
stolið
PAKKA með meira en 20 kílóum af
lyfjum var stolið frá vöruafgreiðslu
BSÍ síðdegis í gær. Lyfm átti áð
senda vestur á land.
í gærkvöldi handtók lögreglan
karlmann á fimmtugsaldri sem grun-
aður er um aðild að málinu. Ekki
hafði tekist að hafa upp á lyfjunum
þegar Morgunblaðið fór í prentun.
Samkvæmt upplýsingum RLR
voru ekki nein eftirritunarskyld lyf
í sendingunni, það er svokallað
„dóp“, sem vímufíklar eru sólgnir í.
Engu að síður voru þama lyfjateg-
undir sem geta verið hættulegar,
bæði hjartalyf og geðlyf.
-----♦ ♦ «----
V egir rofn-
uðu í vatna-
vöxtum
Deildarsljóri í norska sjávarútvegsráðuneytinu
Staðan í Barentshafs-
deilunní er óbreytt
DEILDARSTJÓRI í norska sjávarút-
vegsráðuneytinu segir að staðan í
deilu Íslendinga og Norðmanna um
fiskveiðar í Barentshafi sé óbreytt
og samningaviðræður við íslendinga
ekki líklegri en áður, þótt atkvæða-
greiðslan um ESB-aðild í Noregi sé
afstaðin. íslenzkir ráðherrar hafa
sagt að ekki þýddi að vonast eftir
samningsvilja af hálfu Norðmanna
fyrr en eftir atkvæðagreiðsluna.
„Það hefur ekkert breytzt í mál-
inu,“ sagði Stein Ove, sem hefur tek-
ið þátt í viðræðum um sjávarútvegs-
mál fyrir hönd norskra stjómvalda.
Stuðningur ESB áfram vís
Hann sagði að Norðmenn myndu
áfram eiga stuðning ESB-ríkjanna
vísan í deilunni, end_a ættu þau hags-
muna að gæta. „íslendingar hafa
lagt málið þannig upp að eitthvað
myndi breytast með þjóðaratkvæða-
greiðslunni. Það er misskilningur.
Það er óbreytt ástand, því að íslend-
ingar halda áfram að veiða þorsk í
Barentshafinu með hætti, sem við
teljum óþolandi."
Ove sagðist búast við að íslenzkir
og norskir embættismenn myndu
hittast aftur á svipuðum fundi og
haldinn var í Kaupmannahöfn 11.
október. Ekki væri búið að dagsetja
slíkan fund og engin ákvörðun verið
tekin um að fallast á pólitískar við-
ræður um lausn deilunnar.
MIKIÐ rigndi á Austurlandi í gær
og skemmdust vegir. í gærmorgun
mældist 15,5 stiga hiti á Vopnafirði
og hlýtur það að teljast til tíðinda
þegar komið er fram í desember.
Að sögn Haraldar Eiríkssonar veð-
urfræðings er þetta þó ekki eins-
dæmi. í janúar 1992 mældist til
dæmis 18,8 stiga hiti á Dalatanga.
Haraldur segir það helst gerast á
Austurlandi og N-Austurlandi að svo
hár hiti mælist að vetrarlagi og staf-
ar það af hnúkaþey.
Suðurfjarðai-vegur við Naustaá í
Fáskrúðsfirði fór í sundur í vatna-
vöxtunum í gær og var lokað. Var-
aði Vegagerðin vegfarendur við að
vera á ferð á þessum slóðum vegna
vatnavaxta og skriðuhættu allt frá
Reyðarfirði og austur í Breiðdal.
Einnig var vegurinn í Fljótsdal lokað-
ur við Kelduá. Þá flaut vatn yfír
veginn við Skriðuvatn í Skriðdal og
var hann aðeins jeppafær.