Morgunblaðið - 06.12.1994, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ
*TasBtBiafc.
. eitv.
fynrjj
ÖÖmOÍíÍ kúiýöýu mmr
Suðuriandsbraut 54, bláu húsin v/Faxafen, sfmi 682866
Bækurnarfást íJlesíum bóka- og matvömverslunum.
ÞRIÐJUDAGUR 6. DESEMBER 1994 43
AÐSENDAR GREINAR
Kröfur aldraðra
og öryrkja
Ólafur Jónsson
EFTIRLAUNAFÓLK og aðrir
þegnar velferðarkerfisins vilja ekki
láta hjá líða að minna á sín kjara-
mál og önnur mikilvæg hagsmuna-
mál lífeyrisþega nú þegar öll sam-
tök launþega eru að ganga til
samninga við sína viðsemjendur um
nýja kjarasamninga. Ekki þó að
undirbúa formlegar kröfur eða
semja uppkast að samningum því
að ekki er um neinn samningsrétt
að ræða eða aðstöðu til að fylgja
kröfum eftir með verkfallsaðgerð-
um.
Öryrkjabandalag Islands og
Landssamband aldr-
aðra eru í mjög sam-
bærilegri aðstöðu þeg-
ar réttinda- og kjara-
mál eru til umræðu í
þjóðfélaginu. Bæði
landssamböndin éru
með skipulögð félög,
grunneiningar, um allt
land og samtals yfir
23.000 félagsmenn, en
ekki einu sinni við-
ræðurétt við þau
stjórnvöld sem öllu
ráða um lífskjör þeirra
og réttindamál.
Fáir þjóðfélagshóp-
ar hafa í jafn ríkum
mæli orðið fyrir áreitni stjórnvalda
á þeim samdráttartímum sem þjóð-
in hefur upplifað að undanförnu.
Lífeyrisþegar muna flestir erfiða
tíma, jafnvel fátækt og öryggis-
leysi og þeir kvarta ekki meira en
aðrir hópar í þjóðfélaginu undan
nauðsynlegum aðgerðum stjórn-
valda ef þær ganga nokkurn veginn
jafnt yfir alla þegna þjóðfélagsins,
en aðgerðir stjórnvalda síðustu árin
fá ekki þá einkunn hjá lífeyrisþeg-
um.
Fyrrnefnd samtök öryrkja og
eftirlaunafólks hafa nú á haust-
mánuðum rætt saman um sín
kjaramál eins og önnur hagsmuna-
samtök í landinu, með hliðsjón af
þeim kjarasamningum sem fram-
undan eru. Full samstaða er hjá
þessum fjölmennu þjóðfélagshóp-
um í kjaramálum og nú telja þau
mikilvægt að kynna nokkur atriði
sem þau leggja áherslu á við undir-
búning þeirra kjarasamninga.
Landssamböndin hafa því sent
frá sér eftirfarandi kröfur í sex lið-
um.
Landssamband aldraðra og
Öryrkjabandalag íslands
leggja áherslu á eftirtalin
atriði í næstu kjarasamningum
1. Að skattleysismörkin verði
hækkuð verulega frá næstu áramót-
um. Tekjutapi ríkissjóðs verði mætt
með nýju skattþrepi á hátekjur og
fjármagnstekjuskatti.
2. Eingreiðslur samkvæmt
samningum aðila vinnumarkaðar-
ins skili sér að fullu til lífeyris-
þega. Orlofsgreiðslur og desember-
greiðslur verði greiddar út sem
prósenta af grunnlífeyri, en lág-
launabótum og viðskiptakjarabót-
um verði varið til hækkunar á
grunnlífeyri, sem greiddur er mán-
aðarlega. Ekki verði rofin tengsl
launaþróunar og bótafjárhæða til
lífeyrisþega.
3. Tvísköttun á greiðslur úr líf-
eyrissjóðum verði af-
numin. Greiðslur í lif-
eyrissjóði verði viður-
kenndar sem sparnað-
arform og fái skatta-
lega meðferð við út-
greiðslur til lífeyris-
þega samkvæmt því.
Sett verði hið fyrsta
heildarlöggjöf um
starfsemi lífeyrissjóða
í landinu og staða
þeirra og hlutverk I
tryggingakerfi þjóðfé-
lagsins skilgreint.
Greiðslur einstaklinga
inn á séreignareikn-
inga leysi engan frá
þeirri skyldu að greiða lögboðið
framlag í lífeyrissjóð, sem starfar
innan ramma laganna.
4. Að húsaleigubætur komi til
framkvæmda í öllum sveitarfélög-
um frá næstu áramótum, en tillög-
um fjármálaráðherra, um fjár-
mögnun þeirra með sparnaði í
tryggingakerfinu og lækkun lána
í félagslega íbúðakerfinu, er ein-
dregið mótmælt.
5. Að Framkvæmdasjóður aldr-
aðra og Framkvæmdasjóður fatl-
aðra sinni eingöngu sínum upphaf-
legu hlutverkum, en verði ekki
notaðir til rekstrarverkefna.
6. Tekið verði af fullri alvöru á
því siðleysi í þjóðfélaginu sem
skattsvik eru.
Fyrir einu ári, hinn 11. nóvem-
ber 1993, var formlega stofnuð
samstarfsnefnd, skipuð einum full-
trúa frá hveiju eftirgreindra lands-
sambanda: Landssambandi aldr-
aðra, Oryrkjabandalagi Islands,
Alþýðusambandi Islands, Banda-
lagi starfsmanna ríkis og bæja og
Bandalagi háskólamenntaðra rík-
isstarfsmanna. Verkefni nefndar-
innar er að gæta hagsmuna þeirra
félagsmanna samtakanna sem eru
hættir störfum vegna aldurs eða
örorku og njóta ekki fullrar vernd-
ar í kjarasamningum stéttarfélaga,
nema sérstaklega sé um það sam-
ið. Nefndin hefur unnið gott starf
við hagsmunagæslu fyrir lífeyris-
Mikillar og vaxandi
þreytu gætir hjá þeim,
--------_j--------------——
segir Olafur Jónsson,
sem þurfa að lifa af lág-
marksgreiðslum frá
Tryggingastofnun.
þega með því að tryggja þeim að-
ild að þeim eingreiðslum sem laun-
þegasamtökin hafa samið um við
viðsemjendur sína og ríkisvaldið.
Ofangreind áhersluatriði og
kröfur lífeyrisþega hafa verið
kynntar í nefndinni og njóta stuðn-
ings og velvildar hjá þeim öflugu
samtökum sem að henni standa.
Ég ætla ekki að gera hér nánari
grein fyrir þeim kröfum sem hér
koma fram en vil aðeins benda á
nokkur mikilvæg atriði sem að
baki þeim liggja.
Mikillar og vaxandi þreytu gætir
hjá þeim sem þurfa að lifa af lág-
marksgreiðslum frá Trygginga-
stofnun ríkisins. Sérstaklega er það
viðkvæmt þegar ný þjónustugjöld
bætast við útgjaldaliði hjá fjöl-
skyldum við þær aðstæður. Það er
óviðunandi álag á lífeyrisþega að
þurfa að leita aðstoðar hjá félags-
málastofnunum, eins og nú er orð-
ið algengt, til þess að eiga fyrir
brýnustu lífsnauðsynjum.
í öðru lagi verða stjórnvöld að
hætta fráleitri togstreitu um óveru-
legar launabætur til lífeyrisþega,
svonefndar eingreiðslur, sem
verkalýðshreyfingin samdi um við
stjórnvöld í tengslum við kjara-
samninga. Samið var um að lífeyr-
isþegar fengju þessar eingreiðslur
eins og launþegar, en þó stendur
fjármálaráðuneytið í langvarandi
stríði til þess að skerða þessar
umsömdu launabætur við útborgun
þeirra til lífeyrisþega.
Sú kynslóð sem nú er á eftir-
launaaldri átti mestan þátt í því
að byggja upp það velferðarkerfi
sem þjóðin býr nú við. Það kostaði
harða baráttu og verkföll að fá
atvinnuleysistryggingar og lífeyr-
issjóði fyrir alla launþega. Full
samstaða er því hjá eftirlaunafólki
um að viðhalda og bæta það vel-
ferðarkerfi sem við búum við, en
hart er nú að því vegið.
Það veldur óhug og öryggisleysi
hjá lífeyrisþegum að haldið er uppi
látlausum áróðri gegn því velferð-
arkerfi sem við búum við. Tillögur
eru fluttar um einkavæðingu á
ýmsum þáttum í heilbrigðiskerfinu
og markvisst unnið að því að bijóta
niður lífeyrissjóðakerfið, sem nú
þegar er orðið styrkasti þátturinn
í lífeyristryggingum þjóðarinnar.
Krafa Landssambands aldraðra
og Öryrkjabandalags íslands um
nýja löggjöf um starfsemi lífeyris-
sjóðanna er því byggð á kunnug-
leika á starfsemi sjóðanna, sem
ástæða væri til að gera nánari grein
fyrir.
Höfundur er formadur
Landssambands aldraðra.
brother
VX-1060
• Léttar •
• Sterkar •
• Einfaldar •
• Vinsælar •
Námskeiö innifaliö
Verft frá
19.130- kr. stgr.
1 glJVÖLl
\ Faxafen 1
/ Umboðsmenn
USTEINNhf
14, Sími 889505
um allt land.
hlutma
í víbara
samhengi!
- kjarni málsins!
-i----——-----------i
H
era þær til í þínu eldhúsi?
Ostalyst, Ostalyst2 ásamt Matarlyst
em vinsælustu matreiðslubækumar á íslandi
og hafa notið mikillar hylliJrá því aðjyrsta
bókin kom út og hejur Ostalyst selst
í tugum þúsunda eintaka.
0
Þetta em matreiðslubækur sem ættu
að vera til í hverju eldhúsí