Morgunblaðið - 13.12.1994, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 13. DESEMBER 1994 53
gáskafullum atvikum sem Sævar
átti stóran þátt í. Við munum öll
eftir ferðunum með honum í vöru-
bílaakstrinum, þegar við fengum
að hjálpa til við að sturta, og skrá
niður hverja ferð í stílabók. Hann
lét okkur finnast við vera ómiss-
andi, við hjálpuðum honum í vinn-
unni og fengum prins póló og kók
fyrir. Þetta munum við öll, og einn-
ig allan tímann sem hann hafði
fyrir litlu frændsystkinin sín í leik
og alvöru og alla þolinmæðina sem
hann átti til handa okkur.
Nú þegar við erum orðin fullorð-
in hefur margt breyst. En Sævar
var alltaf stóri frændinn okkar og
þó að árin liðu stóð hann alltaf eins
og klettur með alla sína þolin-
mæði, kæti og einskæra góð-
mennsku. Hann var góður vinur
og félagi og hrókur alls fagnaðar
hvar sem hann kom. Sævar bjó
lengi í foreldrahúsum og nutum við
frændsystkinin hans góðs af því.
Hann tilheyrði Skriðó og var það
okkur alltaf tilhlökkunarefni að
hitta Sævar frænda, sem alltaf átti
til fyrir okkur nokkra brandara og
þessa sérstöku stríðni sem við urð-
um aldrei leið á. Hann gerði ekki
síst grín að sjálfum sér og gat lát-
ið okkur veltast um af hlátri yfir
skemmtilegum athugasemdum sín-
um. Það var t.d. alltaf jafn fyndið
þegar hann staglaðist á frasanum
sem allir sem þekktu hann kannast
við: „Sæbbi feiti, búinn til úr hveiti,
fæddist í Háaleiti um sexleytið."
Þetta fannst okkur alltaf jafn fynd-
ið hversu oft sem hann þuldi þetta.
Það var alveg sama hvað beðið
var um, Sævar var alltaf tilbúinn
að gera hvað sem var fyrir þá sem
honum þótti vænt um og hann var
alltaf tilbúinn til að veita athyglis-
sjúkum frændsystkinum sínum all-
an þann tíma sem við þurftum.
Hann hefur verið til staðar á erfið-
um stundum og samglaðst okkur
þegar við átti. Það verður því erf-
itt að sætta sig við það mikla tóma-
rúm sem hann skilur eftir.
En söknuðurinn er ekki sístur
hjá eftirlifandi eiginkonu hans og
fósturbörnum. Eftir að Sævar
kynntist Hrefnu sinni, og gekk
börnum hennar í föður stað, var
fátt annað sem komst að í hans
lífi. Fjölskyldan átti hug hans allan
enda var það einmitt það sem hann
hafði alltaf þráð, að eignast sína
eigin fjölskyldu. Þessi allt of fáu
ár sem hann átti með Hrefnu og
börnunum hennar voru sennilega
dýrmætust af þeim öllum. Við vilj-
um því þakka þér, elsku Hrefna,
og börnunum þínum fyrir að hafa
gert frænda okkar kleift að láta
þennan draum sinn rætast, elska
hann og virða til endaloka.
Elsku Hrefna og börn, amma,
Addi, Gunni, Dagný, Gréta, Ásta
og aðrir aðstandendur og vinir. Við
vitum að söknuður ykkar er sár,
en minningarnar eru sætar og góð-
ar og verða aldrei teknar frá okkur.
Takk fyrir allt, elsku Sævar
frændi, og vonandi líður þér vel
þar sem þú ert í góðum félagsskap
Guðs og elsku Guðmundar afa.
Sá sem eftir lifir
deyr þeim sem deyr
en hinn dáni lifir
í hjarta og minni
manna er hans sakna.
Þeir eru himnarnir
honum yfir.
(Hannes Pétursson)
Systkinabörn.
Snemma á þessu ári hringdi hjá
mér síminn og mjúk karlmannsrödd
spurði eftir „Gunna bróður“. Þetta
voru mín fyrstu kynni af Sævari
Guðmundssyni, en það má segja
að hann hafi haft hæfileika til þess
að ganga beint inn í hjarta þeirra
sem kynntust honum. Okkar kynni
urðu styttri en nokkurt okkar átti
von á. Ég vissi að Sævar átti við
alvarlega vanheilsu að stríða, en
hann var ekki kvartsár maður.
Iiann hafði til að bera smitandi
glaðlyndi og því var einstaklega
notalegt að vera í návist hans.
Hann var alúðlegur í allri fram-
komu og vildi allt fyrir alla gera.
Umhyggja hans fyrir þeim sem
honum þótti vænt um kom fram
bæði í viðmóti hans og athöfnum.
Börn löðuðust að honum, enda held
ég að Sævar hafi haft barnið í sjálf-
um sé enn í hjarta sínu. Af okkar
stuttu samverustundum að dæma
held ég að þessi orð lýsi honum
best: Tryggð, hugsunarsemi, greið-
vikni - í bland við dálítinn hrek-
kjalóm.
í síðustu viku vorum við að bolla-
legja ferðalag með þeim Hrefnu
og Sævari, en nú er hann farinn í
lengri ferð og þá gafst ekki tími
fyrir kveðjur.
Elsku Hrefna og börn, Vigdís,
systkini og fjölskyldur, þið eigið
alla okkar samúð.
Kristín og Þórarinn Björn.
Glaðværð og góðvild er það sem
fyrst kemur upp í huga okkar þeg-
ar minnst er samverustunda með
Sævari. Hann var með eindæmum
barngóður maður og hændust börn
ævinlega að Sævari. Ósjaldan
mætti maður honum á vörubílnum
sínum með lítinn koll einn eða fleiri
brosandi út að eyrum sér við hlið.
Sævar var næstelstur 6 systkina
og bjó lengst af í foreldrahúsum
að Skriðustekk .15. Við fráfall föður
síns hélt hann heimili með eftirirlif-
MINNINGAR
andi móður sinni, Vigdísi Ámunda-
dóttur. Þau reyndust hvort öðru
góðir félagar og vinir í raun. Ham-
ingjan blasti við Sævari er hann
kvæntist Hrefnu Sigurðardóttur
fyrir tveimur árum. Sævar og
Hrefna höfðu búið sér og börnum
hennar heimili í nýbyggðu einbýlis-
húsi í Hamratanga 18, Mosfellsbæ.
Þar áttu framtíðardraumarnir að
rætast, en enginn veit sinn nætur-
stað og kallið kom allt of fljótt.
Sævar fór aldrei miðjar hlíðar og
gekk að hveiju því er hann tók sér
fyrir hendur af atorku. Hann vann
við hin ýmsu störf þó afraksturinn
hafi verið mismikill eins og geng-
ur. Lengst af starfaði- hann við
vörubifreiðaakstur og jarðverks-
framkvæmdir. Nú á haustdögum
hafði hann lagt nótt við dag ásamt
samstarfsmönnum sínum við að
opna nýtt dekkjaverkstæði og
smurstöð í Breiðholti. Ánægjulegt
var að heimsækja Sævar á þennan
nýja vinnustað þar sem hann sýndi
sitt hlýja og vingjarnlega viðmót
og vildi leysa hvers manns vanda,
jafnt hárra sem lágra.
Um leið og við kveðjum þennan
góða dreng vottum við Hrefnu,
börnum hennar, eftirlifandi móður,
Vigdísi Ámundadóttur, sem og öðr-
um ástvinum hans okkar dýpstu
samúð.
Onni og Anna.
Birting afmælis- og
minningargreina
Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birtingar end-
urgjaldslaust. Greinunum er veitt viðtaka á ritstjórn blaðsins í Kringl-
unni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Hafnarstræti 85, Akur-
eyri. Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfi í númer
691181. Það eru vinsamleg tilmæli blaðsins að lengd greinanna fari
ekki yfir eina og hálfa örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega
línulengd — eða 3600-4000 slög. Greinarhöfundar eru beðnir að
hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar
greinar um fólk sem er 70 ára og eldra. Hins vegar eru birtar afmæl-
isfréttir ásamt mynd í Dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra.
t
ÞÓRIR JÓHANNESSON
Kamabaseli 26,
Reykjavík,
sem andaðist 8. þ.m, verður jarðsettur frá Fossvogskapellu mið-
vikudaginn 14. desember kl. 15.00.
Ingunn Ásgeirsdóttir,
Garðar, Hörður, Ólafur og Gunnar Rafn Jóhannessynir.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og jarð-
arför móður okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og systur,
UNNAR HERMANNSDÓTTUR
frá Hjalla
íKjós.
Guðrún Hansdóttir, Rúnar G. Sigmarsson,
Ragnheiður Hansdóttir, Bernharð Haraldsson,
Hermann Hansson, Heiðrún Þorsteinsdóttir,
Guðni Hansson,
Högni Hansson, Karin Loodberg,
Sigurður Örn Hansson, Helga Finnsdóttir,
Helga Hansdóttir, Árni Björn Finnsson,
Erlingur Hansson, Kristjana Óskarsdóttir,
Vigdis Hansdóttir, Jan Olof Nilsson,
Guðrún Hermannsdóttir,
Valborg Hermannsdóttir,
Ragnheiður Hermannsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim, sem sýnu okkur hlýhug
oq samúð við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
SIGFÚSAR TRYGGVA KRISTJÁNSSONAR,
Hjallaseli 55,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Borgarspítalans og dvalarheimilis-
ins Seljahlíðar.
Elín Guðbjartsdóttir,
Sigfús Örn Sigfússon, Margrét Jensdóttir,
Sigríður Sigfúsdóttir Kjaran, Björn Kjaran,
Helga Sigfúsdóttir, Hjalti Stefánsson,
Guðbjartur Sigfússon, Ragnheiður M. Ásgrimsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Innilegar þakkir til allra, er sýndu okkur
hlýhug og samúð við andlát og útför
föður okkar, tengdaföður, afa, langafa
og langalangafa,
SIGURJÓNS JÓHANNSSONAR
fyrrverandi yfirvélstjóra,
Skeggjagötu 6.
Jóhann Valberg Sigurjónsson, Lára J. Árnadóttir,
Sigríður Þóra Sigurjónsdóttir,
Ólafur Valberg Sigurjónsson, Ingibjörg J. Gunnlaugsdóttir,
Guðm. Valberg Sigurjónsson, Steinþórunn K. Steinþórsdóttir,
Jón Valberg Sigurjónsson,
Sigurjón Ari Sigurjónsson, Þóra Gunnarsdóttir,
Erla Sigurjónsdóttir, Guðmundur Gíslason,
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabörn.
t
Við þökkum af alhug auðsýnda samúð og vináttu við andlát og
útför móður minnar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
SIGRÍÐAR JÓNSDÓTTUR
frá Giljum.
Sérstakar þakkir til starfsfólks þriðju haeðar á Droplaugarstöðum
fyrir frábœra umönnun.
Gleðileg jól!
Jón Aðalsteinn Jónsson, Vilborg Guðjónsdóttir,
Jón Viðar Jónsson,
Guðjón Jónsson, Elfsabet Sólbergsdóttir,
Sigríður Jónsdóttir, Hrafn Óli Sigurðsson
og langömmubörnin.
t
Þökkum inninlega auðsýnda samúð og
hlýhug við fráfall ástkaers móðurbróður
okkar,
INGA S. ÁSMUNDSSONAR
tæknifraeðings,
Vesturhólum 17,
Reykjavík.
Fyrir hönd annarra aðstandenda,
Ása Gréta Einarsdóttir,
Ólafía Sigrún Einarsdóttir,
Hjálmar Ingi Einarsson,
Jakob Einarsson,
Auðbjörg Jóhanna Einarsdóttir.
Póstsendum
Handunnu
silfur
° g
guii
skartgiipii.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu við andlát og
útför móður okkar,
JÖHÖNNU C. M. JÓHANNESSON,
frá Vatneyri,
Patreksfirði.
Sérstakar þakkir til starfsfólks í Seljahlíð fyrir góða umönnun.
Unnur Friðþjófsdóttir,
Kristinn Friðþjófsson,
Kolbrún Friðþjófsdóttir,
Bryndis Friðþjófsdóttir
og fjölskyldur.
N#HÞI5IÐ
Laugavegi 21, s. 25580
Góð úlpa
er hlýjólagjöf
Mikið úrval af úlpum
með og án hettu. Stærðir 34-50