Morgunblaðið - 13.12.1994, Side 68

Morgunblaðið - 13.12.1994, Side 68
68 ÞRIÐJUDAGUR 13. DESEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ ÍÞRÓTTIR UNGLINGA/KÖRFUKNATTLEIKUR Besta stúlknaliðið frá upphafi - segir Sigurður Hjörleifsson þjálfari U-17 ára liðs stúlkna en liðið leikur á NM í Noregi dagana 26. -28.desember „FRAMFARIRNAR hafa verið gífurlegar. Fyrir sjö árum þjálf- aði ég stúlknalandslið og man þá að tvær til þrjár stúlkur voru með góða boltameðferð. Nú er fjöldinn allur af efnileg- um stelpum á aldrinum fjórtán til sextán ára að spila körfu- bolta og í þessum tuttugu manna hópi eru allir leikmenn með tæknina á hreinu," segir Sigurður Hjörleifsson, þjálfari stúlknalandsliðsins í körfu- knattleik en liðið keppir á Norðurlandamóti í Osló í Nor- egi seint í þessum mánuði. Sex landslið keppa á Norður- landamótinu, en það eru auk íslendinga lið Svía, Dana, Norð- manna, Finna og Eista og sagði Sigurður að lið sitt væri vís til alls þrátt fyrir að árangur á Norður- landamóti hafi ekki verið mikill hingað til, „Þetta er aðeins í annað sinn sem ísland sendir stúlknalið á Norðurlandamót,“ sagði Sigurður. „Fyrra skiptið var árið 1989 og þá þurfti íslenska liðið að þola fleng- ingu í öllum leikjunum en ég á ekki von á að sú saga endurtaki sig. Við eigum eftir að standa okk- ur hvort sem við náðum að vinna einhverja leiki eða ekki,“ sagði þjálfarinn. Þrátt fyrir að ísland hafi aðeins einu sinni keppt á þessu móti hafa stúlkurnar sæmilejga reynslu. Þeim gekk vel á móti í Irlandi sl. vor þar sem þær kepptu á móti með írskum félagsliðum. Allflestar stúlkumar hafa líka fengið færi á að leika með meistaraflokkum liða sinna og sumar eru lykilmenn í fyrstu deild- arfélögunum. Morgunblaðið leit inn á æfingu hjá hópnum sem fram fór í íþrótta- húsinu í Vogum á Vatnsleysis- strönd á föstudagskvöldið. Sautján af þeim tuttugu stúlkum sem boð- aðar voru mættu á æfinguna sem hlýtur að teljast góð mæting sé mið tekið af því að margar stúlk- urnar eru í próflestri. Æfingin í Vogum var sú fimmta í röðinni og framundan mikil keyrsla því alls stefnir þjálfarinn að því að ná átján æfingum áður en liðið heldur út til Osló. Til að svo verði þurfa stúlk- umar að mæta á tvær landsliðsæf- ingar á dag í nokkra daga. Margar stúlknanna hafa leikið saman í eitt og hálft ár og þær leikjahæstu eiga sjö landsleiki að baki með stúlkna- og unglingalið- inu. Sigurður sagði að ekki væri langt að bíða þangað til nokkrar þeirra stigu sín fyrstu spor með A-landsliðinu. „Ef ég væri þjálfari þess mundi ég velja helminginn af þessum stelpum í það,“ sagði Sig- urður. Það er þó ekki í hans verka- hring að velja í A-liðið heldur Svala Björgvinssonar en hann er þjálfari liðsins. Morgunblaðið/Frosti Stúlknalandsliðshópurinn skipaður lelkmönnum sem fæddir eru 1978 og síðar hefur æft að undanförnu fyrir Norðurlandamótið í körfuknattleik. Fremsta röð frá vinstri: Rannveig Randversdóttir [UMFN], Georgia Chrlstiansen [KR], Erla Reynisdóttir [Keflavík], Anita Sveinsdóttir [UMFG], Anna Pála Magnúsdóttir [Keflavík]. Önnur röð frá vinstri: Hlldur Ólafsdóttir [UBK], Sigríður Kjartansdótt- ir [UMFG], Ásta Guðmundsdóttir [Keflavík] og Júlía Jörgensen [Keflavík]. Þriðja röð frá vinstri: Þóra Bjarnadóttir [KR], Eva Stefáns- dóttir [UMFN], Alda Jónsdóttlr [Val], Svana Bjarnadóttlr [UBK] og Signý Hermannsdóttlr [Val]. Aftasta röð frá vinstri: Stefanía Ásmundsdóttir [UMFG], Kristín Þórarinsdóttir [Keflavík] og Erla Þorsteinsdóttir [Keflavík]. A myndlna vantar þær Pálínu Gunnars- dóttur [UMFN], Grétu Grétarsdóttur [ÍR] og Slgríði Ingadóttur [UMFN]. Komin í landslið eftir að hafa æft í hálft ár Svana Bjamadóttir úr UBK var aðeins búin að æfa körfu- knattleik í hálft ár þegar hún lék sinn fyrsta leik með stúlknalandsliðinu. Rúmt ár er síðan hún byijaði að æfa og á sínum fyrsta vetri lék hún með þremur flokkum á íslandsmót- inu. „Við vorum fáar sem æfðum hjá Breiðablik og það var ætlast til mikils af manni strax. Við slíkar aðstæður þarf mað- ur oft að leggja sig meira fram,“ sagði Svana sem leikur sem miðheiji enda rúmir 180 sentimetrar á hæð og því ein af hávaxn- ari stúlkum í liðinu. „Ég get þakkað Sigurði (Hjörleifssyni) þjálf- ara fyrir hvað ég hef náð langt. „Hann hefur kennt mér mikið og það var hann sem kom mér í körfuboltann. Sigurður sá mig í leikfimi í skólanum og bað mig um að byija að æfa. Ég hafði ekki mikinn áhuga á því til að byija með en lét undan og nú má segja að karfan sé númer eitt, tvö og þijú fyrir utan skól- ann. Eg get lítið tekið þátt í félagslífi í skólanum vegna þess hve oft ég er að æfa en íþróttin hefur líka gefið mér mikið. Andinn er góður í Blikaliðinu og svo hef ég lært gífurlega mik- ið síðustu þijá mánuðina," sagði Svana. Svana Bjarnadóttir, UBK. Liðið valið Sigurður Hjörleifsson þjálfari stúlknalandsliðsins valdi um helgina þær tólf stúlkur sem taka munu þátt á Norðurlandamótinu, Polar Cup í Noregi 27 - 30 þessa mánaðar. Liðið verður þannig skipað: Bakverðir Erla Reynisdóttir........Keflavík Georgia Christiansen...........KR Hildur Ólafsdóttir............Val Júlía Jörgensen..........Keflavík Rannveig Randversdóttir...UMFN Framherjar Anita Sveinsdóttir...........UMFG Ásta Guðmundsdóttir......Keflavík Pálína Gunnarsdóttir.........UMFN Stefanía Ásmundsdóttir.......UMFG Miðherjar Erla Þorsteinsdóttir.....Keflavík Kristín Þórarinsdóttir...Keflavík Svana Bjarnadóttir.....Breiðablik Vel fór á með þeim Júlíu og Stefaníu í einni pásunni. Eva, tll vinstrl og Anna Pála, taka hins vegar lífinu meö stóískri ró. Stórar stelpur frá Keflavík Við erum stubbar miðað við sumar af þeim leik- mönnum sem keppa erlendis," segja þær Erla Þorsteinsdóttir og Kristín Þórarinsdóttir hávöxnustu leikmenn stúlknaliðsins, 182 og 184 sentimetrar á hæð. Fimm leikmenn í liðinu eru yfir 180 sentimetr- um á hæð og þær stöllur hæstar, 182 og 184 senti- metrar. Báðar leika þær með Keflavíkurliðinu en sex stúlkur í unglingalandsliðshópnum koma frá félag- inu. Keflavíkurstelpumar láta oft vel í sér heyra á æfingum og það er oft stutt í glensið hjá þeim. „Það koma aldrei upp nein vandamál hjá okkur og við erum vinkonur innan vallar sem utan. Segja má að lífið sé körfubolti hjá þeim vinkonun- um þessa dagana. Þær voru á sinni annarri æfíngu á föstudaginn og daginn eftir áttu þær að spila með meistaflokki Keflavíkur og síðan beið þeirra önnur æfing með stúlknalandsliðinu. Körfubolti er því stór liður í dagskránni hjá þeim þessa dagana. Kristín Þórarinsdóttir og Erla Þorsteinsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.