Morgunblaðið - 13.12.1994, Qupperneq 68
68 ÞRIÐJUDAGUR 13. DESEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR UNGLINGA/KÖRFUKNATTLEIKUR
Besta stúlknaliðið frá upphafi
- segir Sigurður Hjörleifsson þjálfari U-17 ára liðs stúlkna en liðið leikur á NM í Noregi dagana 26. -28.desember
„FRAMFARIRNAR hafa verið
gífurlegar. Fyrir sjö árum þjálf-
aði ég stúlknalandslið og man
þá að tvær til þrjár stúlkur
voru með góða boltameðferð.
Nú er fjöldinn allur af efnileg-
um stelpum á aldrinum fjórtán
til sextán ára að spila körfu-
bolta og í þessum tuttugu
manna hópi eru allir leikmenn
með tæknina á hreinu," segir
Sigurður Hjörleifsson, þjálfari
stúlknalandsliðsins í körfu-
knattleik en liðið keppir á
Norðurlandamóti í Osló í Nor-
egi seint í þessum mánuði.
Sex landslið keppa á Norður-
landamótinu, en það eru auk
íslendinga lið Svía, Dana, Norð-
manna, Finna og Eista og sagði
Sigurður að lið sitt væri vís til alls
þrátt fyrir að árangur á Norður-
landamóti hafi ekki verið mikill
hingað til, „Þetta er aðeins í annað
sinn sem ísland sendir stúlknalið á
Norðurlandamót,“ sagði Sigurður.
„Fyrra skiptið var árið 1989 og þá
þurfti íslenska liðið að þola fleng-
ingu í öllum leikjunum en ég á
ekki von á að sú saga endurtaki
sig. Við eigum eftir að standa okk-
ur hvort sem við náðum að vinna
einhverja leiki eða ekki,“ sagði
þjálfarinn.
Þrátt fyrir að ísland hafi aðeins
einu sinni keppt á þessu móti hafa
stúlkurnar sæmilejga reynslu. Þeim
gekk vel á móti í Irlandi sl. vor þar
sem þær kepptu á móti með írskum
félagsliðum. Allflestar stúlkumar
hafa líka fengið færi á að leika
með meistaraflokkum liða sinna og
sumar eru lykilmenn í fyrstu deild-
arfélögunum.
Morgunblaðið leit inn á æfingu
hjá hópnum sem fram fór í íþrótta-
húsinu í Vogum á Vatnsleysis-
strönd á föstudagskvöldið. Sautján
af þeim tuttugu stúlkum sem boð-
aðar voru mættu á æfinguna sem
hlýtur að teljast góð mæting sé
mið tekið af því að margar stúlk-
urnar eru í próflestri. Æfingin í
Vogum var sú fimmta í röðinni og
framundan mikil keyrsla því alls
stefnir þjálfarinn að því að ná átján
æfingum áður en liðið heldur út til
Osló. Til að svo verði þurfa stúlk-
umar að mæta á tvær landsliðsæf-
ingar á dag í nokkra daga.
Margar stúlknanna hafa leikið
saman í eitt og hálft ár og þær
leikjahæstu eiga sjö landsleiki að
baki með stúlkna- og unglingalið-
inu. Sigurður sagði að ekki væri
langt að bíða þangað til nokkrar
þeirra stigu sín fyrstu spor með
A-landsliðinu. „Ef ég væri þjálfari
þess mundi ég velja helminginn af
þessum stelpum í það,“ sagði Sig-
urður. Það er þó ekki í hans verka-
hring að velja í A-liðið heldur Svala
Björgvinssonar en hann er þjálfari
liðsins.
Morgunblaðið/Frosti
Stúlknalandsliðshópurinn skipaður lelkmönnum sem fæddir eru 1978 og síðar hefur æft að undanförnu fyrir Norðurlandamótið í
körfuknattleik. Fremsta röð frá vinstri: Rannveig Randversdóttir [UMFN], Georgia Chrlstiansen [KR], Erla Reynisdóttir [Keflavík],
Anita Sveinsdóttir [UMFG], Anna Pála Magnúsdóttir [Keflavík]. Önnur röð frá vinstri: Hlldur Ólafsdóttir [UBK], Sigríður Kjartansdótt-
ir [UMFG], Ásta Guðmundsdóttir [Keflavík] og Júlía Jörgensen [Keflavík]. Þriðja röð frá vinstri: Þóra Bjarnadóttir [KR], Eva Stefáns-
dóttir [UMFN], Alda Jónsdóttlr [Val], Svana Bjarnadóttlr [UBK] og Signý Hermannsdóttlr [Val]. Aftasta röð frá vinstri: Stefanía
Ásmundsdóttir [UMFG], Kristín Þórarinsdóttir [Keflavík] og Erla Þorsteinsdóttir [Keflavík]. A myndlna vantar þær Pálínu Gunnars-
dóttur [UMFN], Grétu Grétarsdóttur [ÍR] og Slgríði Ingadóttur [UMFN].
Komin í landslið eftir
að hafa æft í hálft ár
Svana Bjamadóttir úr UBK var aðeins búin að æfa körfu-
knattleik í hálft ár þegar hún lék sinn fyrsta leik með
stúlknalandsliðinu. Rúmt ár er síðan hún byijaði að æfa og á
sínum fyrsta vetri lék hún með þremur flokkum á íslandsmót-
inu. „Við vorum fáar sem æfðum hjá Breiðablik og það var
ætlast til mikils af manni strax. Við slíkar aðstæður þarf mað-
ur oft að leggja sig meira fram,“ sagði Svana sem leikur sem
miðheiji enda rúmir 180 sentimetrar á hæð og því ein af hávaxn-
ari stúlkum í liðinu. „Ég get þakkað Sigurði (Hjörleifssyni) þjálf-
ara fyrir hvað ég hef náð langt. „Hann hefur kennt mér mikið
og það var hann sem kom mér í körfuboltann. Sigurður sá mig
í leikfimi í skólanum og bað mig um að byija að æfa. Ég hafði
ekki mikinn áhuga á því til að byija með en lét undan og nú
má segja að karfan sé númer eitt, tvö og þijú fyrir utan skól-
ann. Eg get lítið tekið þátt í félagslífi í skólanum vegna þess
hve oft ég er að æfa en íþróttin hefur líka gefið mér mikið.
Andinn er góður í Blikaliðinu og svo hef ég lært gífurlega mik-
ið síðustu þijá mánuðina," sagði Svana.
Svana Bjarnadóttir, UBK.
Liðið valið
Sigurður Hjörleifsson þjálfari
stúlknalandsliðsins valdi um
helgina þær tólf stúlkur sem taka
munu þátt á Norðurlandamótinu,
Polar Cup í Noregi 27 - 30 þessa
mánaðar. Liðið verður þannig skipað:
Bakverðir
Erla Reynisdóttir........Keflavík
Georgia Christiansen...........KR
Hildur Ólafsdóttir............Val
Júlía Jörgensen..........Keflavík
Rannveig Randversdóttir...UMFN
Framherjar
Anita Sveinsdóttir...........UMFG
Ásta Guðmundsdóttir......Keflavík
Pálína Gunnarsdóttir.........UMFN
Stefanía Ásmundsdóttir.......UMFG
Miðherjar
Erla Þorsteinsdóttir.....Keflavík
Kristín Þórarinsdóttir...Keflavík
Svana Bjarnadóttir.....Breiðablik
Vel fór á með þeim Júlíu og Stefaníu í einni pásunni. Eva, tll
vinstrl og Anna Pála, taka hins vegar lífinu meö stóískri ró.
Stórar stelpur frá Keflavík
Við erum stubbar miðað við sumar af þeim leik-
mönnum sem keppa erlendis," segja þær Erla
Þorsteinsdóttir og Kristín Þórarinsdóttir hávöxnustu
leikmenn stúlknaliðsins, 182 og 184 sentimetrar á
hæð. Fimm leikmenn í liðinu eru yfir 180 sentimetr-
um á hæð og þær stöllur hæstar, 182 og 184 senti-
metrar. Báðar leika þær með Keflavíkurliðinu en sex
stúlkur í unglingalandsliðshópnum koma frá félag-
inu. Keflavíkurstelpumar láta oft vel í sér heyra á
æfingum og það er oft stutt í glensið hjá þeim. „Það
koma aldrei upp nein vandamál hjá okkur og við
erum vinkonur innan vallar sem utan.
Segja má að lífið sé körfubolti hjá þeim vinkonun-
um þessa dagana. Þær voru á sinni annarri æfíngu
á föstudaginn og daginn eftir áttu þær að spila með
meistaflokki Keflavíkur og síðan beið þeirra önnur
æfing með stúlknalandsliðinu. Körfubolti er því stór
liður í dagskránni hjá þeim þessa dagana.
Kristín Þórarinsdóttir og Erla Þorsteinsdóttir.