Morgunblaðið - 05.05.1995, Blaðsíða 2
2 FÖSTUDAGUR 5. MAÍ 1995
-4
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Samtök fiskvinnslustööva boða vinnslustöðvun vegna boðaðs sj ómannaverkfalls
ÚTLIT er fyrir að nálægt 5 þúsund
starfsmenn í fiskvinnslu um allt land
nema á Vestfjörðum fari á atvinnu-
leysisskrá 2. júní vegna vinnslustöðv-
unar í fískvinnsluhúsum ef boðað
verkfall sjómanna skellur á og ekki
hefur samist fyrir þann tíma. í gær
sendu Samtök fískvinnslustöðva bréf
til fískvinnslufyrirtækja innan sam-
takanna þar sem þeim tilmælum er
beint til þeirra að gera nú þegar
ráðstafanir til að mæta áföllum
vegna hugsanlegs verkfalls sjó-
manna í fiskiskipaflotanum frá og
með 25. maí.
Fyrirtækin eiga tvo kosti
Er fyrirtækjunum bent á að þau
hafí tvo kosti. Annars vegar að til-
kynna nú þegar vinnslustöðvun
vegna hráefnisskorts með fjögurra
vikna fyrirvara, þannig að tilkynning
sem send væri í dag, 5. maí, tæki
gildi frá og með 2. júní. „Þann dag
gæti fyrirtækið fellt starfsfólkið af
launaskrá vegna hráefnisleysis,"
segir í bréfínu.
Hins vegar er bent á að fyrirtæk-
in geti tilkynnt hráefnisleysi með
Fiskvinnslufólk
hugsanlega fellt af
launaskrá 2. júní
þriggja daga fyrirvara. Slík tilkynn-
ing gildi í 30 daga og komi til
vinnslustöðvunar innan þess tíma
geti fyrirtækin sent starfsfólk á
kauptryggingu heim og greiði fyrir-
tækin þá dagvinnukaup en fá bætur
frá Atvinnuleysistryggingasjóði á
meðan vinnslustöðvun varir.
„Við bendum félagsmönnum á að
sjálfsagt er að gera hvort tveggja,
þar sem komið gæti til hráefnisleysis
áður en fjögurra vikna fyrirvari væri
liðinn,“ segir í bréfinu og er tekið
fram að báðir þessir möguleikar séu
í fullu samræmi við kjarasamninga
fiskvinnslufólks.
Karítas Pálsdóttir, formaður físk-
vinnsludeildar Verkamannasam-
bandsins, sagði að þetta sýndi þann
veruleika sem fískvinnslufólk stæði
frammi fyrir og sagði að kauptrygg-
ingarákvæði kjarasamninganna í
febrúar, sem áttu að tryggja aukið
atvinnuöryggi fískvinnslufólks, virt-
ust engu hafa breytt þegar á reyndi.
Atvinnurekendur ætluðu að notfæra
sér glufu í samningnum.
Hún sagði of snemmt að segja til
um hvort öll fiskvinnsluhús myndu
grípa til uppsagnar því töluverður
hluti þeirra ynni fryst hráefni og
ætti því talsverðar birgðir á lager.
Björn Grétar Sveinsson, formaður
VMSÍ, gagnrýndi samtök vinnuveit-
enda harðlega fyrir að ætla að grípa
til þessa ráðs og sagðist álíta að
þama væri verið að reyna að draga
fiskvinnslufólk inn í sjómannadeil-
una. Sagði hann að Verkamanna-
sambandið myndi skoða þessi mál
rækilega á næstu dögum.
Samkvæmt samningnum sem
gerður var í febrúar fékk fískvinnslu-
fólk rétt til að gera kauptryggingar-
samninga eftir níu mánuði í starfí
og skuldbundu vinnuveitendur sig til
að greiða starfsmönnum á kaup-
tryggingarsamningi föst laun fyrir
. dagvinnu þótt hráefnisbrestur valdi
vinnslustöðvun. Jafnframt segir í
samningnum að fyrirtæki sé heimilt
ef horfur eru á langvinnri rekstrar-
stöðvun vegna hráefnisskorts að
boða vinnslustöðvun með fjögurra
vikna fyrirvara og ef vinnslustöðvun
stafí af ófyrirséðum áföllum sé við-
komandi fyrirtæki heimilt að fella
niður launagreiðslur.
Karítas sagði umdeilanlegt hvað
teldist ófyrirséð áföll og tæplega
væri hægt að halda því fram að
vinnustöðvun vegna sjómannaverk-
falls félli undir það.
Tveir nýir
menní
stjórn SH
STJÓRN Sölumiðstöðvar hraðfiysti-
húsanna var endurkjörin á aðalfundi
SH_í gær, utan tveggja manna. .
Úr stjórn gengu Sighvatur
Bjamason, framkvæmdastjóri
Vinnslustöðvarinnar í Vestmanna-
eyjum, og Pétur Þorsteinsson, fram-
kvæmdastjóri Hraðfrystihúss
Tálknafjarðar. Nýir menn í stjóm
SH eru Auðunn Karlsson, stjómar-
formaður Frosta í Súðavík, og Gunn-
ar Tómasson, framkvæmdastjóri
Þorbjörns í Grindavík.
Aðalfundur SH/18
♦ ♦ ♦
Verkfalli
frestað
RÍKISSÁTTASEMJARI lagði í gær-
kvöldi fram miðlunartillögu í kjara-
deilu Sjómannafélags Reykjavíkur
og viðsemjenda og hefur boðaðri
vinnustöðvun 7. maí verið frestað.
Miðlunartillagan byggir á samn-
ingum ASÍ, VSI og Vinnumálasam-
bandsins frá 21. febrúar sl. auk þess
sem hún tekur til nokkurra atriða
sem leiða munu til aukinnar hagræð-
ingar og skipulagsbreytinga, sem
greitt er sérstaklega fyrir, segir í
frétt frá ríkissáttasemjara.
Atkvæðagreiðsla um tillöguna
meðal félaga Sjómannafélags
Reykjavíkúr fer fram á næstu þrem-
ur 'vikum. Að henni lokinni verða
atkvæði talin hjá ríkissáttasemjara.
Morgunblaðið/Sig. Jóns.
STARFSMENN Límtrés hf. á nýju brúnni að afhendingu lokinni.
Fyrsta mannvirkið unnið hjá Límtré hf. úr íslenskum skógi
Selfossi. Morgunblaðið.
GÖNGUBRÚ úr íslensku lerki var
afhent Skógrækt ríkisins í verk-
smiðju Límtrés hf. á Flúðum 4.
maí síðastliðinn. Það voru Finnur
Ingólfsson iðnaðarráðherra og
Böðvar Guðmundsson. fram-
kvæmdastjóri Skógræktar ríkis-
ins á Suðurlandi, sem tóku form-
lega við brúnni. Brúin er fyrsta
mannvirkið sem smíðað er úr ís-
lenskum skógi.
Efnið í brúnni er úr tijám sem
gróðursett voru 1959 og er því
aðeins 36 ára gamalt. Brúin mun
fara á viðarsýningu í Perlunni 20.
maí og gert er ráð fyrir að Skóg-
ræktarfélag Reykjavíkur muni
kaupa brúna og staðsetja hana í
Elliðaárdalnum til frambúðar.
í erindi Jóns Loftssonar skóg-
ræktarstjóra kom fram að vax-
andi áhugi er fyrir iðnaðarskóg-
rækt eða viðarskógrækt. Hann
Göngu-
brú úr
lerki
benti á að mælingar á vexti trjáa
gæfu skógarbændum góðar vonir
um arðbæra skógrækt. Hann
benti á að vinnsla á viði lofaði
góðu ekki síst vegna þess að stutt-
ar lengdir nýttust vel til límtrés-
gerðar. Nú lægi fyrir að grisja
þyrfti skógarlundi á 500 hektur-
um lands og að stórum hluta væri
um nýtanlegan við að ræða.
Guðmundur Ósvaldsson, fram-
kvæmdastjóri Límtrés hf., sagði
að lerki hefði lítið verið notað í
límtrésframleiðslu. Göngubrúin
hefði verið tekin fyrir eins og
um hefðbundna framleiðslu væri
að ræða og ýmsar prófanir gerð-
ar í leiðinni. Efnið kom frá Hall-
ormsstað í lok siðasta árs og brú-
in síðan hönnuð og framleidd af
starfsmönnum fyrirtækisins.
Hann sagði að lerkið hefði ýmsa
kosti fram yfir furu og greni svo
sem meiri styrk og veðrunarþol.
Ekkert benti til annars en lerkið
uppfyllti tæknilegar kröfur til
margs konar notkunar og gæti
orðið samkeppnishæft í verði,
sérstaklega þar sem gerðar
verða kröfur um langa endingu
utanhúss.
Mólótoff-
kokteil
hent inn í
Alþingis-
húsið
FLÖSKU með bensíni, svo-
nefndum mólótoff-kokteil, var
varpað inn um glugga í Alþing-
ishúsinu á fjórða tímanum í
fyrrinótt. Samkvæmt upplýs-
ingum Morgunblaðsins virðist
eldur hafa verið borinn að kveik
sem stóð upp úr flöskunni en
eldurinn slokknaði þegar skeyt-
inu var kastað.
Flaskan hafnaði inni í þing-
flokksherbergi Sjálfstæðis-
flokksins og braut þar rúðu en
olli ekki öðru tjóni, samkvæmt
upplýsingum Morgunblaðsins.
Næturvörður í þinghúsinu
heyrði brothljóð þegar rúða í
þingflokksherberginu brotnaði
en varð ekki var mannaferða.
Lögregla var kvödd á staðinn
sem og menn frá Rannsóknar-
lögreglu ríkisins sem hefur
málið til rannsóknar. Óljóst var
í gær hver þarna hafði verið
að verki.
Borgarleikhúsið
30 milljón-
ir í auka-
fjárveitingu
og styrk
VIÐRÆÐUNEFND fulltrúa
borgarinnar og Leikfélags
Reykjavíkur hefur lagt til að
leikfélagið fái 15 milljóna króna
aukatjárveitingu á þessu ári
vegna erfiðrar íjárhagsstöðu.
Einnig er lagt til að LR fái sér-
stakan 15 milljóna króna styrk
árlega til annarrar starfsemi í
Borgarleikhúsi en leiklistar-
starfs og að styrkur borgarinnar
til leiklistarstarfsemi verði 135
milljónir á næsta fjárhagsári.
Skýrsla nefndarinnar, sem
skipuð var 10. janúar til að
skoða málefni Borgarleikhúss-
ins, hefur verið lögð fram í
borgarráði og segir í henni að
álit nefndarmanna hafí verið
samhljóða. Auk framangreinds
er lagt til í niðurstöðu að sam-
komulag um rekstur Borgar-
leikhúss verði endurskoðað; að
skipan, starfsvettvangur og
hlutverk leikhúsráðs verði skil-
greint, leikhúsráð ráði leikhús-
stjóra, ákvæði um fastan styrk
borgarinnar til leiklistarstarf-
semi verði sett inn og að sam-
ráðsnefnd verði rekstrar- og
byggingamefnd.
Umsóknir um leyfi til bjórsölu á HM ’95 afgreiddar í Reykjavík, Hafnarfirði o g á Akureyri í gær
BORGARSTJÓRN Reykjavíkur,
bæjarráð Hafnarfjarðar og Akur-
eyrar tóku í gær til afgreiðslu um-
sóknir um leyfí til áfengissölu í
íþróttahúsum sem hýsa leiki heims-
meistarakeppninnar í handbolta þá
daga sem hún stendur. Samþykkt
var að mæla með leyfísveitingu í
Reykjavík og Hafnarfírði en á Ak-
ureyri var meirihluti bæjarráðs and-
vígur því. Bæjarráð Kópavogs sam-
þykkti í síðustu viku að mæla með
leyfisveitingu. Lögreglustjórar á
viðkomandi stöðum gefa út leyfín.
Ekki pólitískt mál
Nokkrar umræður urðu unj,málið
í borgarstjóm í gær. Borgarstjóri,
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, sagði
m.a. að málið væri ekki pólitískt
og borgarfulltrúar yrðu að gera upp
við samvisku sína hvernig þeir
greiddu atkvæði. Vilhjálmur Þ. Vil-
hjálmsson, borgarfulltrúi Sjálfstæð-
isflokksins, sagðist treysta mati
Bjórínn seldur syðra
en ekki fyrir norðan
aðstandenda keppninnar og hæfni
þeirra til að sjá um áfengissölu.
Atkvæði féllu þánnig að allir
borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks-
ins greiddu atkvæði með því að
mælt yrði með leyfísveitingu auk
Péturs Jónssonar, borgarfulltrúa
R-listans. Aðrir borgarfulltrúar R-
listans voru á móti leyfísveitingu
nema Steinunn V. Óskarsdóttir,
formaður íþrótta- og tómstunda-
ráðs, sem sat hjá við atkvæða-
greiðsluna, en hún sagðist ekki
geta gert upp hug sinn í málinu.
Samhljóða með í Hafnarfirði
og Kópavogi
Bæjarráð Hafnarfjarðar sam-
þykkti samhljóða að mæla með leyf-
isveitingu og einnig bæjarráð Kópa-
vogs í síðustu viku. Gunnar Birgis-
son, formaður bæjarráðs Kópavogs,
sagði rök bæjarráðsmanna vera þau
að á heimsmeistarakeppnum annars
staðar ættu áhorfendur þetta val
og ef íslendingar ætluðu sér að
geta sér orð sem íbúar ferðamanna-
lands yrði sami kostur að vera fyr-
ir hendi hér. En það væri líka skoð-
un þeirra að bjór ætti ekki að vera
á boðstólum ella, aðeins í undan-
tekningartilfellum eins og þessu.
Sammála áfengisvarnaráði
Fyrir fundi bæjarráðs Akureyrar
í gær lá umsögn áfengisvarna-
nefndar þar sem fram kemur að
nefndin getur ekki mælt með að
leyfi fyrir bjórsölu verði veitt.
Meirihluti bæjarráðs, Sigfríður
Þorsteinsdóttir, Framsóknarflokki,
Sieríður Stefánsdóttir, Alþýðu-
bandalagi, og Sigurður J. Sigurðs-
son, Sjálfstæðisflokki, var sammála
afstöðu áfengisvarnanefndar, en
Gísli Bragi Hjartarson, Alþýðu-
flokki, og Þórarinn E. Sveinsson
lýstu á fundinum vilja til að sam-
þykkja umsókn Greifans sem sér
um veitingasölu í höllinni.
Warsteiner eina tegundin
Hákon Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri HM-nefndar, sagði
að ef til bjórsölu kæmi þá yrði
Warsteiner-bjór sú tegund sem seld
yrði. Hann sagði að allur auglýs-
inga- og sjónvarpsréttur væri í
höndum Alþjóðahandknattleiks-
sambandsins, IHF, sem heldur
keppnina. IHF hefði gert auglýs-
ingasamning við framleiðendur
Warsteiner og því hefði alltaf verið
ljóst að ef sótt yrði um leyfi til bjór-
sölu kæmi engin önnur tegund til
greina.