Morgunblaðið - 05.05.1995, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 5. MAÍ 1995 2c
LISTIR
A rauðum skóm
QUO Vadis - hvert ligg’ur leið?,
var yfirskrift óvenjulegrar sýn-
ingar sem var í St. Mariæ kirkj-
unni á Helsingjaeyri í Danmörku
fyrir skömmu. Þar sýndi lista-
konan Kirsten Dufour 4.000 pör
af notuðum skóm, sem raðað var
upp eins og á skákborði. Innsetn-
ingin var seld í lokin og prýða
rauðu skórnir nú heimili víðs
vegar um Danmörku.
Tímarit
• HAUSTIÐ 1994 kom útfyrsta
bindi Proxima Thulé en það er
nýtt tímarit á sviði norrænna
fræða. Er það jafnframt fyrsta
tímarit á franskri tungu sem er
helgað þessum fræðum. Að út-
gáfunni steudur Félag norrænna
fræða í Frakklandi, sem hefur
aðsetur við Ecole pratique des
Hautes Études í París. Ritsljóri
tímaritsins er Fran^ois-Xavier
Dillmann, en honum til ráðgjafar
er fjölmenn ritstjórn sérfræð-
inga.
I formála að ritinu er greint
frátilurð þess. Vorið 1992 stóð
École pratique des Hautes Étu-
des fyrir nokkrum fræðafundum
í tilefni af sýningunni „Les Vik-
ings ... Les Scandinaves et
„Europe 800- 1200“. Áþessum
fundum kom fram sú hugmynd
að gefa út tímarit um norræn
fræði á frönsku. Proxima Thulé
er helgað vísindalegri umfjöllun
um forna norræna menningu og
sögu, s.s. bókmenntir, rúna-
fræði, trú og goðafræði og alla
aðra helstu þætti á sviði bók-
menntafræði, textafræði, sagn-
fræði og fornleifafræði er varða
þetta efni. I hveiju bindi er ráð-
gert að greinarnar varði einkum
tiltekið meginefni.
í þessu fyrsta bindi eru átta
greinar. Frédéric Durand gefur
sögulegt yfirlit um athuganir á
óvenjulegum forngrip sem
fannst við Uunartoq-fjörð á
Grænlandi sumarið 1948. Else
Roesdahl fjallar um hringvirkin
í Danmörku, þ.e. Trelleborg á
Sjálandi, Nonnebakken á Fjóni
og Aggersborg og Fyrkat á Jót-
landi. Lucien Musset birti ritdóm
um bók Niels Lund: De hærger
og de brænder, en hún fjallar
um samskipti Danmerkur og
Englands á víkingaöld. Gillian-
Fellows-Jensen birtir grein um
norræn örnefni í Normandie.
Vladimir Vodoff skrifar um vík-
inga á austurvegi. Pirkko-Liisa
Lehtosalo-Hilander fjallar um
vitnisburð fornleifafræðinnar
um skartgripi og klæði frá vík-
ingaöld í Finnlandi. Jan Ragnar
Hagland segir frá nýlegum upp-
götvunum á rúnaristum í Björg-
vin og Þrándheimi og túlkun á
þeim. Loks er að finna bókfræði-
legt yfirlit um norræn fræði síð-
ustu ára sem Fran?ois-Xavier
Dillmann hefur tekið saman.
Nýjar bækur
• BARÁTTA um vald. Konur í
bæjarsljórn Reykjavíkur 1908-
1922 eftir Auði Styrkársdóttur
háskólakennara er komin út.
Bókin skiptist í fimm megink-
afla, auk formála og samantekt-
ar. Fyrsti kafli fjallar um upphaf
kvenréttindabaráttu erlendis á
19. öld og stjórnmálaþáttöku
kvenna með kvennaframboðum
í byijun 20. aldar, bæði hér
heima og erlendis. Annar kafli
rekur sögu stjórnmálafélaga í
Reykjavík í byijun þessarar ald-
ar, þátttöku kvenfélaga og fram-
Iag til bæjarstjórnarmála og við-
horf ráðamanna til stjórnmálaaf-
skipta kvenna. I þriðja kafla er
greint ítarlega frá framboðum
og kosningaúrslitum í Reykjavík
á árunum 1908-1918. í fjórða
kafa segir frá stefnumálum
kvenna í bæjarstjórn.
Háskólaútgáfan gefur út. Bók-
in er 136 bls. aðlengd ogíhenni
eru 12 töflur þar sem m.a. eru
sýndar niðurstöður kosninga í
Reykjavík. Þar er einnigskrá
yfir allar konur er setið hafa í
bæjarstjórn, skrá yfir fjölda
kvenbæjarfulltrúa flokkanna til
þessa dags og ítarleg nafnaskrá.
Barátta um vald fæst í flestum
bókaverslunum ogkostar 1.790
kr. Háskólaútgáfan sér um dreif-
ingu.
------» » ♦------
Listakonur
frá Krist-
iansand
SÝNING á listaverkum eftir norsk-
svissnesku listakonuna Ninu Gjest-
land og norsk-dönsku listakonuna
Ann Rasmussen verður opnuð á
laugardag kl. 15 í Heklusalnum á
Akureyri.
Báðar eru þær búsettar í Krist-
iansand og eru þekktar fyrir lista-
verk sín í Noregi og þá sérlega
fyrir veflistaverk.
Þær eiga víða verk í opinberri
eigu í Noregi, bæði altaristeppi og
annan myndvefnað.
Þá sýnir Ann Rasmussen einnig
minni verk sín, sem eru útsaumur
og málaðar glermyndir, í Gallerí
Allrahanda í Listagilinu.
Þessar listakonur hafa aðstoðað
veflistakonuna Else Maria Jakobs-
en sem sýnir verk sín í Listasafni
Akureyrar á sama tíma í tilefni
Kirkjulistaviku á Akureyri.
Allt að 70% afsláttur
Mikið úrval af vönduðum skíðabúnaði, útivistarfatnaði, viðlegubúnaði,
skíðasamfestingum og mörgu öðru. Það munar um minna þessa dagana.
Verið velkomin á bílskúrsdagana 27. apríl - 10. maí
*Gegn staðgreiðslu.
Póstsendum samdægurs Snorrabraut 60 • Sírni 561 2045 (Peningar eða Debetkort.)