Morgunblaðið - 05.05.1995, Qupperneq 28
28 FÖSTUDAGUR 5. MAÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
Jafnrétti í
stjórnmálum
FRÁ því að ríkis-
stjórn Sjálfstæðisflokks
og Framsóknarflokks
var mynduð þann 23.
apríl síðastliðinn hafa
farið fram líflegar um-
ræður um stöðu kvenna
í íslenskri pólitík en þó
aðallega um stöðu
kvenna innan Sjálf-
stæðisflokksins. Hefur
afstaða hóps Sjálf-
stæðra kvenna þess
efnis að fylgi einstakra
frambjóðenda í próf-
kjörum og röðun á
framboðslistum sé eðli-
legur útgangspunktur
við val í trúnaðarstöður
verið gagmýnd á óvæginn hátt bæði
utan og innan Sjálfstæðisflokksins.
Þessi umræða hlýtur að vekja spurn-
ingar um það hvernig þessum málum
er háttað hjá öðrum stjórnmáia-
flokkum en Sjálfstæðisflokknum og
hvort að þrátt fyrir gagnrýni þá sem
Sjálfstæðar konur hafa orðið fyrir
sé ekki samhljómur á milli þess sem
þær hafa haldið fram og þess sem
tíðkast hjá hinum flokkunum. Við
skulum skoða þetta nánar.
Alþýðubandalagið hefur aldrei
skipað konu ráðherra
Þingflokkur Alþýðubandalagsins
samanstendur af 2 konum og 7 körl-
um, þ.e. 22% konur sem er sama
hlutfall og fyrir kosningar. í þing-
flokki Sjálfstæðisflokksins eru hins
vegar 4 konur sem er sama tala og
fyrir kosningar og gerir 16% af þing-
flokknum. Enginn hinna þingflokk-
anna hefur eins margar konur og
þingflokkur Sjálfstæðisflokksins
enda stærsti þingflokkurinn.
Alþýðubandalagið hefur aldrei
skipað konu sem ráðherra gagn-
stætt Sjálfstæðisflokknum sem
tvisvar sinnum hefur skipað konur
í ráðherraembætti, þær Auði Auðuns
og Ragnhildi Helgadóttur, og var
reyndar fýrstur flokka til þess. Al-
þýðubandalagið hefur hins vegar
einu sinni skipað konu í embætti
forseta Sameinaðs þings en Sjálf-
stæðisflokkurinn hefur einu sinni
skipað konu forseta Sameinaðs
þings og einu sinni skipað konu for-
seta Alþingis, Salome Þorkelsdóttur
í bæði skiptin. Alþýðubandalagið
hefur hins vegar einu sinni kjörið
konu formann þing-
flokks en Margrét Frí-
mannsdóttir gegndi því
embætti í tvö ár en vék
þá fyrir Ragnari Arn-
alds sem keppti um
sætið við Svavar Gests-
son sem frægt varð.
Svavar Gestsson var
svo kjörinn formaður
þingflokks Alþýðu-
bandalagsins fyrir
nokkrum dögum.
Allir þingmenn Al-
þýðubandalagsins sem
hér hafa verið nefndir
hafa skipað efstu sætin
á listum síns flokks í
sínu kjördæmi nema
Guðrún Helgadóttir sem skipaði
annað sætið í Reykjavík þegar hún
var forseti Sameinaðs þings en Sva-
var Gestsson sem skipaði efsta sæt-
ið var þá ráðherra. Því er fróðlegt
að velta fyrir sér hvernig Alþýðu-
bandalagið hefði valið sína 3 ráð-
herra ef þjóðin hefði verið svo óhepp-
in að fá yfir sig vinstri stjórn. Hefði
formaður flokksins, Olafur Ragnar
Grimsson, efsti maður í Reykjanes-
kjördæmi, orðið ráðherra? Hefði
Steingrímur J. Sigfússon, varafor-
maður flokksins og líkiegur eftir-
maður Ólafs Ragnars, efsti maður í
Norðurlandi eystra, orðið ráðherra?
Hefði Svavar Gestsson, efsti maður
í Reykjavík, þar sem flokkurinn á 3
þingmenn, orðið ráðherra? Eða hefði
einhver þeirra ekki gert kröfu um
ráðherrasæti svo að Margrét Frí-
mannsdóttir, fyrrverandi þingflokks-
formaður og efsti maður á Suður-
landi, fengi ráðherraembætti? Ég
leyfí mér að efast um það.
Framsóknarflokkurinn skipar
konu í fyrsta sinn
Framsóknarflokkurinn skipar nú
konu ráðherra í fyrsta sinn, 25 árum
eftir að Sjálfstæðisflokkurinn skip-
aði konu ráðherra í fyrsta skipti.
Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðis-
ráðherra skipar enda efsta sætið á
lista flokksins í Vesturlandskjör-
dæmi. Valgerður Sverrisdóttir var
kjörin þingflokksformaður fyrir
nokkrum dögum síðan en hún skipar
annað sætið í einu sterkasta kjör-
dæmi flokksins, Norðurlandskjör-
dæmi eystra, en efsti maðurinn,
Guðmundur Bjarnason, er ráðherra.
Það er augljóst hvaða regla gildir
hjá Framsóknarflokknum.
Alþýðuflokkurinn og Rannveig
Hjá Alþýðuflokknum eins og hjá
Sjálfstæðisflokknum hafa konur
tvisvar orðið ráðherrar. Annars veg-
ar Jóhanna Sigurðardóttur, þáver-
andi varaformaður flokksins sem
skipaðí annað sætið í Reykjavík, en
efsti maður, Jón Sigurðsson, var líka
ráðherra sem og þriðji maður sem
var þá formaður flokksins, Jón Bald-
vin Hannibalsson. Hins vegar skip-
aði flokkurinn Rannveigu Guð-
mundsdóttur, efsta mann flokksins
í Reykjanesi, ráðherra eftir að Guð-
mundur Ámi Stefánsson hafði sagt
af sér. Rúmu ári áður hafði flokkur-
inn hins vegar gengið framhjá Rann-
veigu og skipað Guðmund Árna ráð-
Alþýðubandalagið hefur
aldrei skipað konu sem
ráðherra, segir Ami
M. Mathiesen, og
Framsóknarflokkurinn
í fyrsta sinn nú.
herra. Rannveig vann hins vegar
efsta sætið i miklum prófkjörsslag
við Guðmund Árna síðastliðinn vetur
og var kjörin formaður þingflokks
fyrir nokkrum dögum.
Lokaorð
Það fer því ekkert á milli mála
að þeir flokkar sem mest hafa gagn-
rýnt Sjálfstæðar konur vinna eftir
sömu „reglum“ og þær hafa lagt til
grundvallar því að gagnrýna ekki
hlut kvenna við ráðherraval Sjálf-
stæðisflokksins. Þegar litið er til
afhroðs Kvennalistans í síðustu
kosningum þá ættu allir þeir sem
virkilega vilja vinna að jafnrétti
kynjanna að fagna starfi því sem
Sjálfstæðar konur hafa unnið. Sjálf-
stæðar konur eru auðvitað ekki
hafnar yfir gagnrýni en þær eiga
ekki skilið þá ódrengilega gagnrýni
vinstri flokkanna sem þær hafa orð-
ið fyrir að undanförnu.
Höfundur er alþingismaður.
Árni M. Mathiesen
Heimaþj ónusta
í sængurlegu
UNDANFARIÐ
hefur verið töluverð
umræða í þjóðfélaginu
um niðurskurð í heil-
brigðiskerfinu. Þessi
umræða einkennist
eins og svo oft áður
af hugmyndum sem
varpað er fram, oft
að vanhugsuðu máli,
og eru lítt til þess
fallnar að draga úr
kostnaði þegar til
lengri tíma er litið.
Nauðsyn er á áætlun-
um til lengri tíma, sem
sátt ríkir um meðal
heilbrigðisstétta og
stjómmálamanna,
áætlunum sem ekki breytast þó
að nýir menn taki við stjórnartau-
munum.
Nú hefur verið ákveðið að á
fæðingadeild Landsspítalans og
Fæðingarheimili Reykjavíkur,
skuli sængurlega eftir eðlilega
fæðingu vera 4 sólarhringar og
er gripið til þessa ráðs vegna nið-
urskurðar. Hugmyndir hafa komið
fram um að stytta sængurleguna
enn frekar á komandi misserum.
Ljósmæður hafa árum saman
unnið sem sjálfstæðir fagaðilar við
að sinna konum í meðgöngu, fæð-
ingu og sængurlegu. Nýlega var
breytt samningi þeim sem Ljós-
mæðrafélagið hefur við Tiygg-
ingastofnun ríkisins um heima-
fæðingar. Opnaðist þá sá mögu-
leiki að konur geti fætt á fæðing-
arstofnun en legið sængurlegu
heima. Konur geta því farið heim
innan 36 klst. frá fæðingu og feng-
ið heimaþjónustu ljósmóður í 7
daga. Með því að hafa 36 klst.
viðdvöl á fæðingarstofnun gefst
konum kostur á að sofa fyrstu
nóttina á stofnuninni.
Hverjar eiga kost á þessari
þjónustu?
Þær konur sem eiga að baki
áfallalausa meðgöngu og fæðingu
eiga kost á að liggja sængurlegu
heima. Æskileg skilyrði þess að
sængurlega í heimahúsi sé raun-
hæfur valkostur eru:
• aðúim eðlilega meðgöngulengd
sé að ræða, 37 vikur
• að fæðingin sé eðlileg
• að barnið sé full-
burða 2800 gr
• að bamið sé heil-
brigt
• að konan hafi
möguleika á aðstoð í
sængurlegunni
• að aðstæður á
heimili séu ákjós-
anlegar.
Fæðingarstofnun á
hveijum stað kann þó
að setja önnur viðmið
en hér hafa verið talin.
Heimaþjónusta
ljósmæðra er liður í
að veita samfellda eða
heildræna þjónustu
(þ.e. sömu fagaðilar
fylgja konu eftir í meðgöngu fæð-
ingu og sængurlegu) en reynslan
sýnir að þar sem samfelld þjón-
Konur sem eiga að baki
áfallalausa meðgöngu
og fæðingu eiga kost á
að liggja sængurlegu
heima, segir Helga
Gottfreðsdóttir, sem
hér fjallar um heima-
þjónustu í sængurlegu.
usta er veitt hefur heilbrigðis-
starfsfólk betri yfirsýn yfir heil-
brigðisferil og líðan móður og
barns.
Þeim konum sem hafa áhuga á
að kynna sér þessa þjónustu frek-
ar er bent á að ræða þennan val-
möguleika við Ijósmóður í mæðra-
skoðun. Allar ljósmæður með ljós-
mæðraleyfi hér á landi mega ann-
ast vitjanir til kvenna eftir fæð-
ingu. Einnig á að liggja frammi á
göngudeildum og heilsugæslu-
stöðvum, þar sem mæðravernd fer
fram, bæklingur um þessa þjón-
ustu sem Ljósmæðrafélag íslands
gaf út í lok síðasta árs.
Höfundur er Ijósmóðir &
Fæðingarheimili Reykjavíkur.
Helga
Gottfreðsdóttir
í SÍÐASTA tölublaði VR-blaðs-
ins er grein um blómafijókom eft-
ir Ólaf G. Sæmundsson næringar-
fræðing sem ég finn mig knúinn
til að svara. Olafur byijar grein
sína svo glæsilega á að vitna í við-
tal við Gissur Guðmundsson hér í
Morgunblaðinu að því er virðist í
þeim einum tilgangi að hæða orð
hans. Ég þekki Gissur og er þess
fullviss að hann léti ekki hafa eft-
ir sér staðlausa stafi. Alltaf er leitt
þegar ungt fólk, líkt og stúdentinn
í leikriti Holbergs, þykist yfir upp-
runa sinn hafið eftir að hafa aflað
sér réttinda til að skrifa nokkrar
skammstafanir aftan við nöfn sín.
Ætli flestum sé ekki hollt að minn-
ast að því hærra sem haninn hreyk-
ir sér á haugnum því verri verða
afleiðingamar þegar undirstaðan
brestur.
Ólafur er langorður um heimsku
þeirra sem trúa á lækningamátt
blómafijókorna og segir þau alls
ekki innihalda nein undraefni. í
hugum okkar sem dáumst að nátt-
umnni og því á hversu undursam-
legan hátt hún hefur séð fyrir öll-
um þörfum okkar teljum það töfra
og undur að hægt sé að ganga svo
að segja út fyrir húsdyr sínar og
fá þar öll þau næring-
arefni sem líkaminn
þarfnast án þess að
gleypa verksmiðju-
framleidd efni. Ólafur
er að því er virðist einn
af fáum sem enn
þijóskast við að viður-
kenna að því náttúra-
legri og minna unnin
sem varan er því holl-
ari verður hún að telj-
ast.
Heimsfrægur
loddari?
Ólafur kannast ekki
við Dr. Paavo Airola
né heldur kollegar hans í Banda-
ríkjunum þó hann leggi áherslu á
að þar hafi hann numið sín fræði.
Árið 1986 kom út hjá bókaforlag-
inu Iðunni bók Dr. Airola, Heil-
brigði og vellíðan á kápubaki henn-
ar má finna eftirfarandi:
„Höfundurinn, dr. Paavo Airola,
er heimsþekktur næringarfræðing-
ur og sérfræðingur í lífrænum
lækningum. Hann var fyrstur til
að kynna þessa nýju fræðigrein í
Bandaríkjunum og er í fremstu röð
þeirra sem á hana leggja stund.
Dr. Airola hefur jafn-
framt skrifað fj'ölda
bóka um lífrænar
lækningaaðferðir.
Hann er forseti al-
.þjóðasamtaka um líf-
ræna læknisfræði og
meðlimur í heimssam-
tökum um rannsóknir
á menningarsjúkdóm-
um, næringu og um-
hverfi.“
Virt bókaforlag
uppi á íslandi hefur
sem sagt látið blekkj-
ast af loddara. Ég
ferðast mikið og
vegna áhuga á nátt-
úralækningum hef ég jafnan sótt
ráðstefnur og fyrirlestra um slík
mál, meðal annars hjá John Bitsch
sem er frægur danskur náttúru-
læknir en hann vitnar mikið í Ai-
rola. Sama má segja um kollega
hans í Ástralíu og í ritum víða að
úr heiminum er vitnað í skrif hans.
Dr. Airola er ótrúlega vel þekktur
loddari þó Ólafur Sæmundsson á
íslandi hafi ekki heyrt hans getið.
Úr því má hins vegar bæta og er
Ólafl velkomið að fá að láni hjá
mér bækur og rit svo hann geti
Tæplega er verið að
leggja til, segir Ragnar
Þióðólfsson, að við
hverfum aftur til hins
einhæfa fæðis og land-
lægra hörgulsjúkdóma.
sannfærst um að Dr. Airola heitinn
var vissulega til. Postulinn Tómas
sannfærðist ekki um að Kristur
væri upprisinn fyrr en hann fékk
að taka á síðusári hans og hefur
orðstír hans síðan einkennst af
háði og dárskap enda ber hann enn
í dag viðurnefnið trúarlausi.
Ef guð ætlaði manninum að
fljúga hefði hann gefið
honum vængi
Eftir almennan inngang á þess-
um nótum snýr Ólafur sér að
krossferð gegn blómafijókornum
sem fæðubótarefni og telur sig
vera að hrekja fullyrðingar sem
hann hefur lesið í bæklingum og
víðar og byijar á þessari gullvægu
röksemd. Er hollt og gott fyrir
býfluguna jafn hollt og gott fyrir
mannskepnuna? Hér er á ferð
gamla þversögnin; hefði guð ætlast
til þess að mennimir flygju hefði
hann gefið þeim vængi. Eigum við
ekki að neyta káls af því það er
hollt og gott fyrir snigla? Eigum
við að láta mjólk vera vegna þess
að hún er framleidd fyrir kálfa?
Ef svona er haldið áfram er hætt
við að fátt verði eftir á matseðlum
heimilanna.
Ætli staðreyndin sé ekki einfald-
lega sú að menn hafa valið sér
fæðu eftir staðháttum og reynt
eftir bestu getu að bjarga sér. Við
hér á norðurslóðum höfum alla tíð
mátt búa við mun rýrari kost en
fólk í suðlægari löndum en auknar
samgöngur og betri tækni hefur
gefíð okkur tækifæri til að nýta
okkur það besta úr þeirra fæði.
Tæpast er Ólafur að leggja til
að við hverfum aftur til hins ein-
hæfa fæðis og landlægra hörgul-
sjúkdóma sem hér vora viðvarandi
fyrr. á öldum. Kannski væri Ólafi
hollt að minnast þess að það var
íslenska skarfakálið og fjallagrösin
að ógleymdu lýsinu sem þá björg-
uðu mörgum frá bana. Ekki era
svo mjög margir áratugir síðan
Ólafur og kollegar hans þóttust
hafa fundið með rannsóknum sín-
um að lýsið væri hinn versti skað-
ræðisdrykkur. Annað er uppi á
teningnum nú.
Höfundur er áhugamaður um
n&ttárulækningar.
Síðasti móhíkaninn -1
Ragnar Þjóðólfsson