Morgunblaðið - 05.08.1995, Qupperneq 14
14 LAUGARDAGUR 5. ÁGÚST 1995
MORGUNBLAÐIÐ
NEYTEIMDUR
Uppskrift vikunnar
Tveir góðir ítalir úr eldhúsinu
ÍTALIR eru sagðir smekkmenn og
lífsnautna og þess vegna flínkir í
eldhúsinu. Þeir búa til sitthvað
kjarngott og oftast fallegt líka og
hér eru tveir heitir pottar sem sam-
eina þetta. Annar er gerður úr
grænmeti og hinn státar af sjávar-
fangi. Prego er sagt í upprunaland-
inu, gjörið svo vel á íslandi.
Sjávarsalat með
rauðri olíu
100 ml græn ólifuolía
2 fínsöxuð hvítlauksrif
2 msk tómatmauk (purée)
hólf tsk milt chilliduft
hólf tsk paprikuduft
kíló af kraeklingi í skel
450 g smokkfiskur
SYNDANDI grænmeti í ítölsku fánalitunum.
skvetta af hvítvíni, ef vill
2-3 rauðlaukar
safi úr 1 sítrónu
Hitið olíuna varlega í lítilli pönnu,
setjið hvítlauk út í og bætið eftir
smástund við tómatmauki, chilli og
papriku og hafið á vægum hita í
nokkrar mínútur. Takið þá pönnuna
af hellunni og látið standa allt að
3 stundir.
Setjið stóran pott á meðalheita
plötu og látið kræklinginn í hann
ásamt góðri slettu af víni eða vatni.
Lokið pottinum og eldið krækling-
inn 5-8 mínútur. Hristið pottinn
nokkrum sinnum á meðan. Síðan
eru skeljarnar settar í skál, en þeim
sem ekki opna sig hent. Soðið er
geymt en svolitlu hellt yfir krækl-
inginn. Næst er smokkfiskurinn
settur i pott með smáskvettu af
víni eða vatni í 3 mínútur þar til
hann er rétt soðinn. Sigtið hann og
setjið í ísskkáp ef einhver bið verð-
ur á framreiðslunni.
Syndandi grænmeti
3 msk ólífuolía
50-85 g beikon í bitum
2 litlir blaðlaukar I sneiðum
2 stórir saxaðir tómatar
1 kg blöðrukól eóa broccoli í
stórum bitum
225 ml hvítvín
hvítlaukur og/eða chilli ef vill
Hellið því soði sem eftir er gegn-
um sigti og setjið í það smokkfisk,
lauk og sítrónusafa. Færið krækl-
inginn í skel upp á disk og dreifið
smokkfískblöndunni yfir. Saltið ef
vill og piprið og berið fram. Athug-
ið að vel má hafa í þessu aðrar
gerðir af sjávarfangi, hörpudisk eða
öðuskel svo eitthvað sé nefnt.
Hitið olíuna í stórum potti, setjið
í hann beikon og blaðlauk og eldið
þar til mýkist (um 20 mínútur).
SKELJAR og fleira gott í
heitu sjávarsalati.
Bætið við tómötum, grænmeti og
víni og kryddið með salti og pipar
og ef til vill hvítlauk eða chilli.
Lokið pottinum en hrærið þó í öðru
hveiju þar til kálið er orðið mjúkt.
Það tekur væntanlega aðrar 20
mínútur og best er að borða græn-
metisblönduna sem fyrst.
Áldósir æ vin-
sælli í Evrópu
70.000 tonn af áldósum voru
endurunnin í Evrópu árið 1994.
Það voru 30% evrópskra áldósa.
Endurvinnsla þeirra hefur aukist
um 20 -25% á ári frá 1987.
Endurnýting er algengust í Sví-
þjóð, Sviss og á íslandi. 90% í
Svíþjóð, 83% í Sviss og 80% á ís-
landi. í öðrum löndum Evrópu voru
minna en 65% áldósa endurunnin.
Búist er við að um aldamót verði
hlutfallið 50%. Notkun áldósa hef-
ur aukist mjög s.l. ár. Hlutfall ál-
dósa á evrópska markaðnum hefur
aukist úr 38% í 56% á 7 árum.
Drykkja- og niðursuðuframleið-
endur í Grikklandi, Svíþjóð, Sviss
og íslandi nota aðeins áldósir í
framleiðslu sinni.
AÐALHEIÐUR Héðinsdóttir,
kaffimeistari í kaffibrennslu
sinni, Kaffitári.
Kaffitár í
Kringlunni
KAFFITÁR hefur opnað expressó-
bar og kaffiverslun á 1. hæð í Kringl-
unni, en jafnframt rekur fyrirtækið
kaffibrennslu í Njarðvík. í verslun-
inni er hægt að fá malað kaffi og
kaffibaunir af ýmsum gerðum.
í tímaritinu In Good Taste, sem
samtök kaffiframleiðenda í Banda-
ríkjunum gefa út, var nýlega sagt
frá kaffikeppni sem samtökin skipu-
lögðu meðal kaffibænda í Costa
Rica. Þar fékk kaffi frá búgarðinum
Beneficio Bella Vista fyrstu verð-
laun, en Aðalheiður Héðinsdóttir,
eigandi Kaffitárs, kaupir einmitt
kaffi þaðan. Alls tóku 36 framleið-
endur þátt í keppninni og komu dóm-
ararnir fjórir frá Bandaríkjunum,
Þýskalandi og Costa Rica.
Ævmtýri og allsnægtir þar sem allt er á einum stað!
-Og af fenginni reynslu segjum viS fyrstir panta fyrstir fá!
Newcastle er engin venjuleg borg, heldur lítil og heimilisleg heimsborg sem komið hefur þúsundum Islendinga
verulega á óvart.
§► Newcastle er borg allsnægta með iðandi mannlíf, fjölbreytilegt götulíf, útimarkaði, íþróttaviðburði, menningar- og
listaviðburði, veitingahús og verslanir við allra hæfi.
»► Newcastle og nánasta umhverfi anga af sögu og menningu sem auðvelt er að njóta. Með einu skrefi er hægt að
stíga aftur í aldir og upplifa eldfjörugt miðaldaævintýri í dularfullum kastala, skoða sögu víkinganna og stórbrotna
menningu Rómverja.
Því er það engin tilviljun að Jpúsundir íslendinga elska Newccastle og allt það sem borgin hefur upp á að bjóða.
Skoðið myndir frá Newcastle og upplýsingar tíl ferðamanna á Internetinu. Heimasíðan heitir; Welcome to Newcastie og
heimilisfangið er: http://www.ncl.ac.uk/welcome.html
mæium ser&iaiviega meo.
Miðaldaveislu í Lumley kastalanum.
Heimsókn á heimili Guðanna, eins og
íbúar Newcastle kalla knattspyrnuvöllinn,
St. James Park.
Skoðunarferð til Durham, gamals bæjar
þar sem auðvelt er að gleyma sér.
/Newcastle Brown Ale, fyrir þá sem
skreppa á krána.
/Heimsókn í Beamish safnið,
óviðjafnanlegt safn þar sem gestirnir taka
sporvagn afturtil ársins 1913.
ý
Nú bjóðum við ferðir til Newcastle á ótrúlegu verði:
Kr. 22.900, Fyrir fjögurra daga ferð í miðri viku.
Kr. 000. Fyrir fimm daga helgarferð.
Kr. 16.800.- Fyrir vikuferð.
Kr. 9.800. Fyrir tíu daga ferð.
Verð miðast við staðgreiðslu fyrir 15. september. Innifalið í verði er: flug,
flugvallarskattar, gisting og morgunverður, ferðir til og frá flugvelli i Newcastle
og íslensk tararstjórn. Verð miðast viö mann í tveggja manna herbergi.
FERÐASKRIFSTOFAN
1 1
SÍMI 565 2266
◄
◄
◄
Nýr haust-
listi frá
Kays
HAUST- og vetrartíska Kays birt-
ist á 856 blaðsíðum í nýjum verð-
lista, sem fæst hjá umboðinu
B.Magnússon hf. Fyrstu 43 síðurn-
ar eru helgaðar því nýjasta frá
helstu tískuhúsum heims og þegar
flett er lengra má sjá tvær breskar
sjónvarpsstjörnur í fatnaði sem þær
völdu sjálfar.
Hagnýtar ráðleggingar á ís-
lensku fylgja, m.a. um fataval mið-
að við vaxtarlag. Þeir sem pöntuðu
úr verðlistanum í fyrra fá hann
ókeypis, en aðrir geta keypt hann
á 400 kr., sem fást endurgreiddar
við fyrstu pöntun. í póstkröfu bæt-
ist 287 kr. burðargjald við verðið.
Nöfn þeirra sem panta úr listan-
um fara í „happdrættispott“, sem
dregið verður upp úr áður en vor-
listinn kemur út í janúar. Stærsti
vinningurinn er Burberry-ferða-
töskusett að verðmæti 130 þús. kr.