Morgunblaðið - 18.11.1995, Side 13

Morgunblaðið - 18.11.1995, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. NÓVEMBER 1995 13 lögsögunnar. Fiskistofnar, sem dregið hefur verið úr veiðum á, eru að jafna sig, til dæmis við Noreg og Namibíu. Þetta er hins vegar undantekning, segir greinar- höfundur. Hvorki sjómenn á minni bátum né á verksmiðjuskipum sjái sér hag í því að draga úr veiðum, því ef þeir geri það komi aðrir og veiði fiskinn. Sjósóknin aukist því stöðugt og úthafsveiðiskip frá Spáni, Kína, Rússlandi, Póllandi, Japan, Suður-Kóreu, Taiwan og fleiri hrekist af eigin miðum, þar sem veiðar hafi dregist saman og sigli um öll heimsins höf. Eins og fyrr var sagt leitaði blaðamaðurinn víða fanga og í greininni kemur fram að hann fór einn túr með togaranum Svalbaki, sem var á karfaveiðum. Hann lýsir skipinu sem tæknilega fullkominni verksmiðju, en veiðarnar gangi illa. Þegar loks verður vart veldur afl- inn í netinu vonbrigðum, „aðeins tvö tonn í neti sem getur halað 60 tonn“. Island kemur aftur við sögu í málsgrein, þar sem greinarhöfund- ur nefnir að togarinn Rex hafi verið tekinn við veiðar í breskri lögsögu. Rex hafi verið í eigu ís- lendinga, skráður á Kýpur og með færeyskri áhöfn, en slíkur alþjóð- legur bræðingur sé algengur þegar reynt sé að komast undan því að hlíta fiskveiðilögum. Fiskifræði ónákvæm visindi Michael Parfit skrifar einnig um fiskifræði, sem hann segir óná- kvæm vísindi. Hann hefur eftir túnfiskveiðimönnum í Bandaríkj- unum að þeir sjái vöður af fiski þar sem vísindamenn segi engan fisk lengur. „Þessi óvissa er dæmi- gerð fyrir það hve ómarkviss fiski- fræðin er. Það er hægt að telja þann fisk sem veiðist, en erfitt er að telja fiskinn í sjónum,“ segir í greininni. Greinarhöfundur segir að enn frekari takmarkanir við „frelsinu á sjónum“ muni líta dagsins ljós, en margir telji einu raunverulegu lausnina felast í fækkun í fiskveiði- flotanum. Án fækkunar sé stjórnun fiskveiða því líkust að ætla að grafa skurð með skörungi. Þá er fjallað um kvóta við strendur Alaska. Þar hafi verið reynt að stytta fiskveiðitímabilið til að koma í veg fyrir ofveiði, en það hafi haft í för með sér að sum- ar tegundir hafi verið veiddar af ótölulegum fjölda skipa, sem öll hafi ráðist til atlögu á mjög skömmum tíma. Þess í stað hafi verið gripið til þess ráðs að úthluta kvóta, sem yfirleitt sé byggður á fiskveiðireynslu. Þar rheð aukist sókn á miðin ekki, því eina leiðin til að ná í fiskveiðiheimild sé að kaupa hana af næsta manni. Kost- urinn sé einnig sá, að sá sem eigi hundraðshluta af heimiluðum kvóta sjái sér hag í að styrkja stofninn, því hagur hans vænkist eftir því sem heildarveiðin aukist. Kvóti af þessu tagi veki hins vegar margar spurningar, s.s. hvernig eigi að deila honum á rétt- látan hátt, hvemig eigi að koma í veg fyrir að stórfyrirtæki kaupi upp kvótann, hvernig eigi að koma í veg fyrir að sjómenn kasti lítt verðmætum fiski til að nýta kvót- ann sem best og hvort réttlátt sé að einstaklingar fái almennings- eign til ráðstöfunar, án þess að gjald komi fyrir. Tímamótaviðburður við Kanada Kanadamenn stöðvuðu veiðar spánska togarans Estai og færðu hann til hafnar. „Þetta var í fyrsta skipti sem ráðist var að skipi frá öðru ríki utan 200 mílna efnahags- lögsögunnar og það fært til hafn- ar,“ segir greinarhöfundur og telur að Estai-málið hafi markað tíma- mót í sjávarútvegsmálum. Það hafi enda dregið dilk á eftir sér, til dæmis hvað varði afstöðu annarra ríkja til yfírráða þeirra á alþjóðleg- um hafsvæðum. AKUREYRI „ Af klettum og steini“ í Deiglunni LJÓSMYNDASÝNING Ingu Sól- veigar Friðjónsdóttur verður opnuð í Deiglunni í dag. Hún lauk BA-prófi frá San Francisco Art Institute 1987 og hefur síðan haldið einkasýningar bæði hér á landi og erlendis, m.a. í Rússlandi, Englandi og Bandarikjunum. Á sýningunni í Deiglunni sem hlotið hefur titilinn „ Af klettum og steini" er enn fjallað um steina, en nú á gjörólíkan hátt. ----»■ ♦.»-- Messur AKUREYRARPRESTAKALL: Sunnudagaskóli á morgun kl. 11.00. Öll börn velkomin. Munið kirkjubíl- ana. Hátíðarmessa verður í Ákur- eyrarkirkju á morgun í tilefni af 55 ára afmæli kirkjunnar. Séra Sigurð- ur Guðmundsson vígslubiskup préd- ikar. Óskar Pétursson syngur. Messa á FSA kl. 10.30. GLERÁRKIRKJA: Biblíulestur og bænastund í dag, laugardag, kl. 13.00. Barnasamkoma kl. 11.00 á morgun, foreldrar hvattir til að koma með börnum sínum. Guðsþjónusta kl. 14.00. Arnaldur Bárðarson guð- fræðingur prédikar. Fundur æsku- lýðsfélagsins kl. 18.00 sama dag. HJÁLPRÆÐISHERINN: Basar í dag kl. 15.00. Laufabrauð og kökur til sölu. Sunnudagaskóli kl. 13.30 á morgun, almenn samkoma kl. 20.00. Heimilasamband kl. 16.00 á mánu- dag, krakkaklúbbur á miðvikudag kl. 17.00, hjálparflokkur kl. 20.30 á fimmtudag. HVÍTASUNNUKIRKJAN: Vakn- ingasamkoma kl. 20.30 í kvöld, John og Dorothy Zpinden, biblíukennarar frá Englandi tala. Safnaðarsam- koma kl. 11.00 á morgun, vakninga- samkoma kl. 15.30, Zpinden-hjónin tala á báðum samkomunum. Biblíu- lestur á miðvikudag kl. 20.30. Bæna- samkoma kl. 20.30 á föstudag. HÚSAVÍKURKIRKJA: Sunnu- dagaskóli á morgun, kl. 11.00, for- eldrar hvattir til að mæta með börn- um sínum. Guðsþjónusta kl. 14.00. Fermingarbörn aðstoða. Vænst er þá.tttöku fermingarbarna og foreldra þeirra. -----» » ♦---- Paul Weeden í, jassveislu“ JASSTÓNLEIKAR verða haldnir á Hótel KEA á sunnudagskvöld, 19. nóvember og hefjast þeir kl. 21.00. Þeir eru haldnir í tengslum við heimsókn hins víðkunna jassgítar- leikara Paul Weeden til landsins og eru lokaatriði jassnámskeiðs ,jass- smiðjunnar“ á Akureyri en hann var þar aðalleiðbeinandi. Auk Pauls Weeden koma fram á tónleikunum, Björn Thoroddsen, er gítarleikari, Árni Scheving, víbra- fónleikari og úr hópi Akureyringa þau Ragnheiður Ólafsdóttir, söng- kona, Karl Olgeirsson á píanó, Árni Ketill Friðriksson, trommuleikari og bassaleikarinn Jón Rafnsson ásamt jasshljómsveitum sem tekið hafa þátt í námskeiðinu. Sverrir Leósson vill kaupa Krossanes fyrir 160 milljónir Bæjarstjóri segir til- boðið berast of seint JAKOB Björnsson, bæjarstjóri á Akureyri, segir að tilboð Sverris Leóssonar útgerðarmanns í hluta- bréf bæjarins í Krossanesi hafi bor- ist of seint og ekki sé ástæða til að taka málið upp að nýju. Sverrir segist ekki trúa því að hans tilboð sé út úr myndinni enda sé það 10 milljónum króna hærra en þeirra sem hæst buðu, en hann lagði fram tilboð sitt í verksmiðjuna á fimmtu- dagskvöld. Þremur aðilum var gef- inn kostur á að bjóða í verksmiðj- una og rann fresturinn út á þriðju- dag. Þeir, sem sýnt höfðu áhuga á að kaupa hlut bæjarins í loðnuverk- smiðjunni, fengu að senda inn tilboð og bárust þijú. Bæjarráð sam- þykkti á fimmtudag að fela bæjar- stjóra að ganga til samninga við Þórarin Kristjánsson, fram- kvæmdastjóra Gúmmívinnslunnar hf., sem bauð fyrir hönd hóps sem samanstendur af starfsmönnum verksmiðjunnar, stofnanafjárfest- um, eigendum loðnuskipa og fleiri. „Málið var í ákveðnum farvegi, við gáfum þeim sem lýst höfðu áhuga á verksmiðjunni kost á að senda inn formleg tilboð og sá frest- ur rann út á þriðjudag, því er tilboð Sverris Leóssonar einfaldlega of seint fram komið og að mínu mati er ekki tilefni til að taka málið upp aftur,“ sagði Jakob Björnsson, en málið verður afgreitt á fundi bæjar- stjórnar á þriðjudag. Viðræður hefjast fljótlega Jakob sagði að samningaviðræð- ur um sölu á Krossanesi hæfust fljótlega á grundvelli tilboðs Þórar- ins og félaga, en það hefði uppfyllt þau skilyrði sem sett voru fyrir sölunni, þ.e. að ábyrgðum bæjarins upp á um 300 milljónir króna yrði aflétt, viðunandi verð fengist fyrir hlutabréfin og að verksmiðjan yrði áfram rekin í bænum. „Ég tel þetta tilboð vel ásættanlegt og það var tvímælalaust áhugaverðast af þeim þremur sem bárust," sagði Jakob, sem gerði sér vonir um að ef allt gengið að óskum gæti bæjarstjórn staðfest söluna á fundi sínum 5. desember næstkomandi. % Vilja sjálfsagt fá sem mest fyrir bréfin Sverrir Leósson sagðist hafa lagt fram alvörutilboð, en það hljóðar upp á 160 milljónir króna. Eignar- hluti Akureyrarbæjar í verksmiðj- unni er 110 milljónir króna að nafn- verði. „Ég trúi ekki öðru en að bæjarfulltrúrar hugsi um það fyrst og síðast að fá sem mest fyrir bréf- in. Þessu máli er ekki lokið, það á eftir að afgreiða það í bæjarstjórn og ef bæjarfulltrúar telja mig ekki traustsins verðan þá verða þeir að s'egja mér það,“ sagði Sverrir, sem taldi tilboð sitt hagstæðara en þau sem bárust fyrr, en í því fælist m.a. að létta af ábyrgðum bæjarins á fyrirtækinu. Gagnrýnir vinnubrögðin Hann gagnrýndi þau vinnubrögð sem viðhöfð voru í málinu, að að- eins þremur aðilum var gefinn kost- ur á að bjóða í hlutabréfin fyrir ákveðinn tíma. Eðlilegasti fram- gangsmáti málsins hefði verið sá að auglýsa bréfin til sölu á almenn- um markaði og opna þau síðan í viðurvist þeirra sem buðu. Það sé venjan í svona málum og þannig sætu allir við sama borð. „Mér finnst bæjarstjóri ekki geta horft fram hjá þessu tilboði okkar og trúi ekki öðru en hann vilji ræða það við mig,“ sagði Sverrir. Jónasar minnst JÓNASAR Hallgrímssonar var minnst á afmælisdegi skáldsins síðastliðið fiinmtudagskvöld með kvöldvöku í Þelamerkur- skóla. Hana sóttu um 100 manns. Nemendur höfðu skreytt skól- ann með myndefni úr ljóðum Jónasar. Meðal þeirra sem komu fram var Erla Rut Gunnarsdóttir i 2. bekk í Þelamerkuskóla en hún söng á kvöldvökunni. Morgunblaðið/Diðrik Jóhannsson Tónleikar til styrktar Flateyr- inguin STÓRTÓNLEIKAR til styrktar Flateyringum verða haldnir í íþróttahöllinni á Akureyri á morgun kl. 16. Um 140 manns stíga á svið og leggja málefninu lið. Dagskráin hefst á hug- vekju sr. Péturs Þórarinsson- ar. Þá tgkur við Sinfóníu- hljómsveit Norðurlands, vel styrkt Qolda hljóðfæraleikara sem koma víða að. Rannveig Fríða Bragadóttir óperusöng- kona syngur og Kór Tónlist- arskólans á Akureyri. Einnig koma fram Tryggvi Hubner, Borgardætur, Ciga- rettes, Tjarnarkvartettinn, KK og Pálmi Gunnarsson. Allir sem að tónleikunum standa gefa vinnu sína og ýmis fyrirtæki í bænum hafa greitt kostnað sem óhjá- kvæmilegur var, þannig að hver einasta króna sem kem- ur inn sem aðgangseyrir skil- ar sér í söfnunina Samhugur í verki. Miðaverðið er 1.000 krónur og 500 fyrir börn yngri en 12 ára. Þeir sem vinna að undirbúningi búast við troð- fullri höll. NÝ BÓK UM INNHVERFA ÍHUGUN Transcendental Meditation Vísindin um Veruna og listin að lifa eftir Maharishi Mahesh Yogi ■ Komin er út í íslenskri þýðingu hin | málefni og heilbrigði og þá sem stunda ■ Bókin er 320 blaðsíður og prentuð í sígilda bók Maharishi Mahesh Yogi, Innhverfa íhugun, TM. Hún er grund- ! mjög takmörkuöu upplagi. Tekið er við Science of Being and Art of Living. vallarrit um einfalda íhugunartækni pöntunum í símum: 562 8485 og Bókin er fyrir áhugafólk um andleg Maharishi. Útgefandi, Ar-útgáfa. 555 4610, fax: 565 4831. Kvöld: 555 4611.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.