Morgunblaðið - 18.11.1995, Síða 18
18 LAUGARDAGUR 18. NÓVEMBER 1995
ERLEINIT
MORGUNBLAÐIÐ
Reynt að
efla sam-
stöðuna
OSKAR Lafontaine, nýkjörinn
leiðtogi flokks þýskra jafnað-
armanna (SPD), og fráfarandi
formaður, Rudolf Scharping,
reyndu í gær að efla samstöðu
í flokknum. Var samþykkt
óljós málamiðlun þeirra um
viðkvæmt deiluefni; framlag
Þjóðvetja til friðargæslu í Bos-
níu. Stjóm Helmuts Kolils
kanslara hyggst bjóða að
Tomado-flugvélar og 4.000
manna herlið verði notað við
gæsluna. SPD mun sennilega
ekki reyna að fella tillöguna á
þingi, þrátt fyrir fordæmingu
á notkun flugvélanna.
Stjómmálaskýrendur í
Þýskalandi em margir á því
að SPD hafi þurft á nýjum
leiðtoga að halda en efast um
að friðar- og vinstrisinninn
Lafontaine muni endurreisa
flokkinn. Ný könnun, eftir að
ieiðtogaskiptin urðu kunn,
bendir þó til að flokkurinn
hafí aukið fylgið úr 28% í 34%.
Hægriblaðið Frankfurter
AUgemeine Zeitung efaðist um
að Þýskaland yrði trúverðugt
í vestrænni samvinnu undir
forystu Lafontaines vegna
þess að skoðanir leiðtogans
féllu ekki vel að vestrænum
gildum og hagsmunum.
Níu fórust
en ékki 50
TALSMAÐUR Nigeria Airwa-
ys sagði í gær að níu manns
hefðu farist er Boeing-vél fé-
lagsins hrapaði á mánudag,
ekki 50 eins og áður var talið.
Mistök hefðu valdið því að
hærri talan komst á kreik.
Hann sagði að hinir látnu
hefðu allir verið Nígeríumenn,
ekki væri enn hægt að segja
neitt um orsök slyssins.
Hús Winnie
Mandela und-
ir hamarinn?
EINN af stærstu bönkum í
Suður-Afríku bjó sig undir það
á fímmtudag að krefjast eign-
amáms í einbýlishúsi Winnie
Mandela, eiginkonu Nelsons
Mandela forseta en þau em
skilin að borði og sæng. Húsið
er ríkmannlegt, það var byggt
að mestu fyrir söfnunarfé and-
stæðinga aðskilnaðarstefn-
unnar um allan heim og er í
einum dýrasta hluta Soweto,
úthverfís Jóhannesarborgar.
Frú Mandela skuldar bankan-
um sem svarar rúmlega 10
milljónum króna og hefur að
sögn talsmanna hans ekki
svarað bréfum hans eða til-
raunum til samninga.
Flótta-
mannavandi
í Litháen
LITHÁAR eiga við vaxandi
erfíðleika að etja vegna
straums flóttafólks frá ýmsum
löndum er vill komast til Norð-
urlandanna. Á fímmtudag var
48 manns, Afgönum og
Pakistönum, vísað á brott en
þeir höfðu komið inn í landið
frá Rússlandi. Alls voru um
2.000 ólöglegir innflytjendur
handteknir í fyrra.
Samningar um frið í Bosníu
• «
Sleppa stríðs-
glæpamenn?
BANDARÍKJASTJÓRN viðurkenndi
í síðustu viku, að hún hefði ekki
látið af hendi við stríðsglæpadómstól
Sameinuðu þjóðanna í Haag allar
sannanir, sem hún hefði fyrir fíölda-
morðum Bosníu-Serba á múslimum.
Telja sumir, að ástæðan sé sú, að
henni sé umhugaðra um að koma á
friði en leiða meinta stríðsglæpa-
menn fyrir rétt. Kom þetta fram í
bandaríska dagblaðinu Christian
Science Monitor.
Bandaríska leyniþjónustan hefur
haft undir höndum í tvo mánuði
myndir af sex hugsanlegum fjölda-
gröfum við bæinn Srebrenica í Bosn-
íu án þess þó að láta þær af hendi
við stríðsglæpadómstólinn. Segja
sumir, að það sýni, að Bandaríkja-
stjóm styðji ekki dómstólinn að ná
samningum um frið í Bosníu.
Grafímar teknar upp?
Sumir embættismenn í banda-
ríska utanríkisráðuneytinu kenna
um tregðu innan leyniþjónustunnar,
CIA, en aðrir segja, að verði mynd-
imar birtar sé hætta á, að Serbar
eigi eitthvað við grafimar. Er það
raunar haft eftir heimildum innan
CIA, að Serbar séu þegar famir að
taka upp eina gröfína.
Bandaríkjastjórn hefur nú heitið
að hafa fullt samstarf við stríðs-
glæpadómstólinn en gagnrýnendur
hennar benda á, að í ágústbyijun
hafi hún gert mikið úr myndum, sem
sýna grimmdarverk Serba við Nova
Kasaba, en ekki minnst á Srebrenica
í september og október þegar Ric-
hard Holbrooke var að koma friðar-
samningum af stað.
Embættismenn hjá SÞ segja, að
myndbirtingin í ágúst hafi verið til
að dreifa athyglinni frá innrás Króa-
tíuhers í Krajina en þaðan voru
hraktir 180.000 Serbar og 60% allra
húsa þeirra brennd.
Tilboð Milosevic
Dómstóllinn krefst þess, að í
hugsanlegum samningum um frið
verði kveði á um handtöku allra, sem
hafa verið ákærðir fyrir stríðsglæpi,
þar á meðal Ratko Mladic, yfír-
manns hers Bosníu-Serba, og Rado-
van Karadzic, forseta þeirra. Banda-
ríkjastjórn hvetur til, að þessir menn
verði sviptir völdum en margir ótt-
ast, að hún muni fallast á, að þeir
fái hæli í Serbíu.
Slobodan Milosevic, forseti Serb-
íu, sem fer með umboð fyrir Bosníu-
Serba í friðarviðræðunum í Dayton,
hefur lagt fram boð um, að þeir
Mladic og Karadzic láti af völdum
en neitar að afhenda þá stríðsglæpa-
dómstólnum. Verði á það fallist ótt-
ast margir, að þá verði til lítils að
reyna að koma lögum yfir aðra
stríðsglæpamenn í Júgóslavíu fyrr-
verandi.
Reuter
Atkvæðaveiðum lokið
BARÁTTU Lech Walesa, forseta
Póllands, og mótframbjóðanda
hans, Aleksanders Kwasniewskis,
vegna forsetakosninganna á
morgun lauk á hádegi í gær. Lít-
ill munur hefur verið á fylgl fram-
bjóðendanna, en Walesa var með
nauma forystu í tveimur af þrem-
ur síðustu skoðanakönnununum.
Walesa var sigurviss og kvaðst
búast við að fá 53-60% atkvæð-
anna en fréttaskýrendur sögðu
alls ekki öruggt að hann bæri sig-
ur úr býtum.
Kwasniewski varð 41 árs í gær
og myndin var tekin þegar hann
hélt upp á afmælið ásamt stuðn-
ingsmönnum.
Gífurleg ringulreið ríkir í kjölfar uppreisnar meira en þúsund fanga i Aþenu
Reuter
Eru með allt fang-
elsið á valdi sínu
MEIRA en þúsund fangar í fang-
elsi í Aþenu hafa gert uppreisn og
náð öllum byggingum þess á sitt
vald nema aðalskrifstofunni. Upp-
reisnin hófst á sjúkrahúsi fangelsis-
ins á þriðjudag og fangamir dreifðu
lyijum sem þeir fundu þar. Slðan
hafa a.m.k. þrír fangar látið lífið
eftir að hafa tekið of stóra skammta
af lyfjunum. Einn til viðbótar fannst
látinn í-gær eftir að fangar höfðu
hengt hann og brennt lfk hans.
Lögreglan segist hafa séð 10-15
fanga liggjandi á fangelsislóðinni
en ekki var vitað hvort þeir voru
látnir eða meðvitundarlausir af
völdum lyfjaneyslu.
Fangarnir hafa gengið berserks-
gang í fangelsinu, brotið og braml-
að og kveikt í húsgögnum. Alger
ringulreið var í fangelsinu, barist
var með hnífum og að minnsta kosti
36 fangar höfðu særst. Fangelsið
var hannað fyrir 400 fanga en í
því eru nú rúmlega 1.500 fangar.
Á myndinni eru fangar við
glugga aðalskrifstofunnar áður en
lögreglan náði henni í gær.
Segir kosningaúrslitin í
Alsír sigur lýðræðisins
Algeirsborg, Paris. Reuter.
LIAMINE Zeroual, leiðtogi Alsírs og fyrrverandi
hershöfðingi, bar sigurorð af þremur mótfram-
þjóðendum sínum í forsetakosningunum á
fimmtudag. „Kosningarnar voru sigur fyrir full-
veldi þjóðarinnar og hið sanna lýðræði I landinu
og áminning til óvina Alsírs heima fyrir og erlend-
is,“ sagði hann eftir að úrslitin voru kunngerð.
Zeroual fékk 61,34% atkvæðanna og helsti
andstæðingur hans, Mahfoud Na'hnah, frambjóð-
andi múslimskra heittrúarmanna, fékk rúm 25%.
Said Saadi, sem leggst gegn stofnun íslamsks
ríkis, fékk 9,29% atkvæða og íslamski mennta-
maðurinn Noureddine Boukrouh 3,78%.
Ben Mensour innanríkisráðherra tilkynnti þessi
úrslit og sagði að kjörsóknin hefði verið rúm
75%. Helsti stjórnarandstöðuflokkurinn sagði hins
vegar að kjörsóknin hefði í mesta lagi verið 37%.
Talsmaður Nahnahs sagði að úrslitin hefðu
verið fólsuð. Um 90 eftirlitsmenn á vegum Araba-
bandalagsins og Einingarsamtaka Afríku og sex
á vegum Sameinuðu þjóðanna sögðust ánægðir
Stjórnarandstaðan segir
úrslitin fölsuð
með framkvæmd kosninganna. Þeir tjáðu sig þó
ekki um kjörsóknina.
MikiII öryggisviðbúnaðar var við kjörstaði þar
sem óttast var að íslamskir stjórnarandstæðingar
fremdu hermdarverk til að hindra kosningamar.
Alsírsk stjórnvöld vona að kosningarnar verði til
þess að binda enda á borgarastríðið, sem hefur
kostað um 50.000 manns lífið frá árinu 1992,
þegar herforingjastjómin aflýsti þingkosningum
til að koma í veg fyrir að íslamska frelsisfylking-
in (FIS) ynni sigur og gæti stofnað Islamskt ríki.
Sagði sig úr hernum
Talsmaður FIS, sem hafði hvatt Alsírbúa til
að mæta ekki á kjörstað, sagði kosningarnar
marklausar. Hann sagði að alsírski herinn yrði
að fallast á tillögu FIS og fleiri
stjórnarandstöðuflokka um
hvernig binda ætti enda á
stríðið og efna til kosninga.
Herinn hafnaði tillögunni. -
Andstæðingar sigurvegara
kosninganna litu á hann sem
fulltrúa gömlu valdastéttar-
innar, sem hefur stjórnað land-
inu með fulltingi hersins í 30
ár. Á þessum tlma hefur ríkið
safnað gífurlegum skuldum
þrátt fyrir olíulindir og fátækt aukist.
Zeroual kvaðst hins vegar vera óháður hernum
og gömlu valdhöfunum. Hann lagði áherslu á að
binda þyrfti enda á átökin við herskáa múslima
og skera upp herör gegn fátæktinni, atvinnuleys-
inu og húsnæðiseklunni sem hafa stuðlað að vin-
sældum íslamskra heittrúarmanna meðal lands-
manna. Hann kvaðst ætla að koma á sáttum og
beita sér fyrir lýðræði I landinu.
Liamine
Zeroual