Morgunblaðið - 18.11.1995, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ
I/IKII LAUGARDAGUR 18. NÓVEMBER 1995 25
VIIUJ LM
MAGNÚS JÓHANNSSON LÆKNIR SVARAR SPURNINGUM LESENDA
Spurning: Hefur lungnabólga
verið að ganga undanfarið og hver
eru einkennin?
Svar: Lungnabólga er tiltölulega
algengur sjúkdómur en gengur
yfirleitt ekki sem farsótt, þó að
slíkt hafi þekkst fyrr á tímum.
Hins vegar er þetta árstíðabundið
m.a. vegna þess að lungnabólga
kemur oft í kjölfar kvefs eða in-
flúensu sem eru algengust að
vetrinum og þá sérstaklega þegar
vetur gengur í garð og aftur síðla
vetrar.
Eins og áður sagði kemur
lungnabólga oft í kjölfar kvefs eða
inflúensu en það þarf þó ekki að
vera, hún er algengari í börnum
og öldruðum en í fólki á miðjum
aldri. Lungnabólga getur verið af
ýmsum gerðum og fara sjúkdóms-
einkennin mikið eftir því.
Fylgir oft
kvefi
Lungnabólga getur verið tak-
mörkuð við hluta annars lungans
eða dreifð um bæði lungun út frá
berkjunum, eins getur hún orsak-
ast af nokkrum mismunandi
tegundum baktería eða (sjaldnar)
af veirum. Algengustu einkenni
lungnabólgu eru sótthiti, hósti og
mæði eða andnauð. Eins og við
ýmsar aðrar sýkingar fá einnig
margir frunsur. Þessi einkenni
koma stundum á fáeinum
klukkustundum en það getur líka
tekið nokkra daga.
I sumum tilvikum er sótthitinn
mjög hár en líkamshitinn getur
líka verið eðlilegur. Hóstinn er oft
þurr í byrjun en síðan kemur upp-
gangur sem venjulega er gul-
grænn.eða jafnvel rauðbrúnn
(blóð). Sumir sjúklingar fá tak í
síðuna og aðrir verða stífir eða fá
jafnvel ki'ampa.
• Lesendur Morgunbluðsins geta
spurt lækninn um það sem þeim
liggur á hjartn og er tekið á móti
spurningum á virkum dögum á
milli klukkan 10 og 12 í símum
5691224 og 5691229
blettír
HJÁ Vegagerðinni þekkja menn
það vandamál sem jarðvegsröskun
á álagablettum hefur í för með sér
og reynslan hefur kennt mönnum
þar á bæ að fara varlega í þeim
efnum. Tvö nærtæk dæmi eru í ná-
grenni höfuðborgarinnar, við Álf-
hólsveg í Kópavogi og Vestur-
landsveg í Grafarholti.
í Kópavogi fundu menn þá lausn
að þrengja akbrautina þannig að
tvær akreinar renna saman í eina
framhjá álfabyggðinni og hraða-
hindrun'sett til að raska ekki um of
ró íbúa klettanna. Þegar Vestur-
landsvegur var lagður fyrir mörg-
um árum gripu menn hins vegar til
þess ráðs að flytja álfasteininn til,
með jarðvegi og öllu saman og þess
vandlega gætt að hann yrði fyrir
sem minnstu hnjaski. Hann stendur
nú afgirtur utan vegar, klofinn að
vísu, og samkvæmt heimildum inn-
an Vegagerðarinnar eru líkur til að
flytja verði hann á ný, þegar
Vesturlandsvegur verður breikk-
aður.
Davíðs
ALKUNN er sú sérviska
margra stangveiðimanna að
klæðast sérstökum fatnaði
og/eða höfuðbúnaði í þeirri trú
að þá véiðist betur. Davíð Odds-
son forsætisráðherra klæðist
alltaf sömu peysunni við veiðarn-
ar, en peysuna j)rjónaði kona
hans, Ástríður, og gaf bónda
sínum fyrir mörgum árum.
Davíð kvaðst ekki beinlínis trúa
því að hann veiddi betur í peys-
unni. „En maður verður að hafa
einhverjar tiktúrur og sérvisku i
kringum veiðarnar og ég klæðist
alltaf minni peysu og er ber-
höfðaður,” sagði forsætisráð-
heira.
Fáðu þér miða fyrir kl. 20.2o í kvöld.
-vertu viðbúinov vinningi