Morgunblaðið - 18.11.1995, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 18. NÓVEMBER 1995 43
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Árni Sæberg
GUÐBJÖRGU Ágústsdóttur var í vikunni afhent viðurkenning
fyrir hönnun Þvörusleikis. Með henni á myndinni eru (f.v.) Ás-
laug Bryiýólfsdóttir fræðslustjóri, Guðrún Þórsdóttir fræðslu-
fulltrúi, Reynir Ásgeirsson framkvæmdastjóri, Sara Reynisdótt-
ir sölustjóri, Kolbrún Ingólfsdóttir aðstoðarskólastjóri, Sigrún
Magnúsdóttir formaður skólamálaráðs og Sesselja Björnsdóttir
myndmenntakennari.
Samkeppni um
Þvörusleiki
Kynningar-
dagar í
Tækniskóla
Islands
KYNNINGARDAGAR verða í
Tækniskóla íslands, Höfðabakka 9,
sunnudaginn 19. nóvember í tilefni
10 ára afmælis rekstrardeildar skól-
ans. Þar munu nemendur rekstr-
ardeildar kynna yfir 40 verkefni sem
unnin hafa verið í samvinnu við fyrir-
tæki og stofnanir.
Þar á meðal_ er stefnumótunar-
verkefni fyrir Álftastein á Borgar-
firði eystra, markaðsáætlun fyrir
ráðstefnuskrifstofu íslands og vöru-
þróun skarkolahrogna fyrir Bakka-
vör. Nám í iðnaðartæknifræði, út-
flutningsmarkaðsfræði og iðnrekstr-
arfræði veður kynnt, stjórnenedur
úr atvinnulífinu flytja fyrirlestra milli
kl. 13-16.30, gestir geta svifið um
á alnetinu og John Cleese og félagar
sjá um stjórnunarfræðslu á stóru
tjaldi.
Fyrirlestra flytja: Guðrún Högna-
dóttir, fræðslustjóri Ríkisspítalanna,
Ársæll Guðmundsson, forstöðumað-
ur hagdeildar RARIK, Óskar Hauks-
son, verkfræðingur Iðntæknistofnun,
Jóhann H. Bjamason, iðnaðartækni-
fræðingur, íslenskri vöruþróun, Ósk-
ar G. Karlsson, iðnrekstrarfræðing-
ur, þróunardeild SH, og Óskar Jós-
epsson, verkfræðingur, Hagvangi.
Málþing á 50
ára afmæli SÞ
VEGNA 50 ára afmælis Sameinuðu
þjóðanna verður efnt til opins mál-
þings um samtökin í Odda, húsi fé-
lagsvísindadeildar Háskóla íslands,
kl. 14 sunnudaginn 19. nóvember
nk. en þann dag 1946 gerðist ísland
aðili að samtökunum.
Fmmmælendur verða Bjöm Sig-
urbjörnsson, ráðuneytisstjóri, sem
fjalla mun um FAO, landbúnaðar-
stofnun SÞ, Grétar Már Sigurðsson,
skrifstofustjóri, _ um stofnanir og
lagasetningar, Ágúst Þór Árnason
um hlutverk fijálsra félagasamtaka
hjá SÞ og Yrsa Þórðardóttir um ár
umburðarlyndis. Að loknum fram-
söguerindum verða almennar um-
ræður.
Myndasýning
frá Cho Oyu
EINS og komið hefur fram í fjölmiðl-
um tókst þremur íslenskum hjálpar-
sveitarmönnum að komast á topp
Cho Oyu, sjötta hæsta fjalls veraldar
nú fyrir skemmstu.
Mánudagskvöldið 20. nóvember
munu þeir félagar segja frá ferðinni
í máli og myndum í Háskólabíó og
hefst sýningin kl. 21. Mun þar verða
blandað saman litskyggnum og
myndbandsupptökum sem teknar
voru í leiðangrinum. Haldin var sýn-
ing miðwikudagskvöldið 15. nóvem-
ber og seldust allir miðar upp.
GUÐBJÖRG Ágústsdóttir, 12 ára
grunnskólanemandi í Reykjavík,
hannar að þessu sinni jólasveina-
skeið Gull- og silfursmiðjunnar
Ernu fyrir jólin 1995. Myndin er
af Þvörusleiki, en áður hefur
Erna smíðað skeiðar með mynd-
um af Stekkjastaur, Giljagaur og
Stúfi. Að frumkvæði Guðrúnar
Þórsdóttur þjá Fræðsluskrifstofu
Reykjavíkur var ákveðið að efna
til teiknimyndasamkeppni meðal
12 ára barna um besta Þvörusleik-
inn og var mynd Guðbjargar Ág-
ústsdóttir valin. Nú hefur verið
HAUSTÞING svæðafélaga KÍ og
HÍK í Reykjavík og Reykjanes-
kjördæmi verður haldið laugar-
daginn 18. nóvember í Háskólabíói
kl. 10-16. Til umræðu á haust-
þinginu eru frumvarp til laga um
framhaldsskóla og flutningar á
rekstri grunnskóla til sveitarfélag-
anna.
Dagskráin hefst kl. 10 þar sem
Birgir Stefánsson, formaður KR,
setur þingið. Erindi flytja: Elna
K. Jónsdóttir, formaður HÍK, Am-
björg Sveinsdóttir, fulltrúi
menntamálanefndar, Danfríður
Skarphéðinsdóttir, kennari í MR,
Sævar Tjörvason, kennari í Iðn-
skólanum í Reykjavík, Ingi Bogi
Bogason, fræðslufulltrúi samtaka
iðnaðarins, og Örnólfur Thorlac-
ius, skólameistari MH. Fyrirspurn-
útbúin silfurskeið eftir myndinni.
Fyrirhugað er að efna til teikni-
myndasamkeppni að ári um mynd
af næsta jólasveini.
Gull- og silfursmiðjan Erna
hefur einnig hannað
„kökuklemmuna", sem er verð-
launagripur úr nýsköpunar-
keppni grunnskólanna. Höfund-
urinn er Atli Þór Fanndal, 12
ára, og hefur hann aðstoðað við
þróun klemmunnar. Reykjavíkur-
borg hefur fest kaup á 50 klemm-
um sem borgin mun nota til gjafa
handa tignum gestum sínum.
ir verða að loknum erindum.
Að loknu hádegishléi flytja er-
indi: Bjöm Bjarnason, mennta-
málaráðherra, Guðrún Ebba Ól-
afsdóttir, varaformaður KÍ, Vil-
hjálmur Þ. Vilhjálmsson, formaður
Sambands íslenskra sveitarfélaga,
Birgir Björn Siguijónsson, fulltrúi
kennarafélaganna í réttindanefnd,
Viktor A. Guðlaugsson, fulltrúi
Samtaka sveitarfélaga á höfuð-
borgarsvæðinu, Halldór Árnason,
fjármálaráðuneytinu, _ og Eiríkur
Jónsson, formaður KÍ.
Að erindum loknum verða fyrir-
spurnir og síðan þingslit sem Ár-
sæll Friðriksson, formaður svæð-
afélags HÍK, sér um. Fundarstjór-
ar verða Lilja M. Jónsdóttir, kenn-
ari ÆKHÍ, og Gunnlaugur Ást-
geirsson, kennari MH.
FASTEIGN ER FRAMTÍD
FASTEIGNA
Sudurlandsbraut 12 108 Reykjavik,
fax 568 7072
m
MIÐLUN
Sverrir Kristjánsson JZ
lögg. fasteignasali II
Kennarafélög ræða
skólaflutninga
Fyrirlestur um
hlutverk karla
Opið í dag kl. 11—14
Engjateigur — séreign
SÓLSTÖÐUHÓPURINN gengst fyr-
ir fyrirlestri í Norræna húsinu laug-
ardaginn 18. nóvember kl. 16.15.
Fyrirlesturinn er öllum opinn. Að-
gangseyrir er 500 kr.
Fyrirlesturinn ber heitið: Upplifan-
ir karla á stöðu sinni. Fyrirlesari
verður Jóhann Loftsson sálfræðing-
ur. Eftir fyrirlesturinn verða umræð-
ur og einnig verður flutt tónlist.
Vinningstölur 17. nóv. 1995
6 «7 *14*18*21 *24 • 25
Eldri úrslit á símsvara 568 1511
Til sölu einstaklega glaasileg 110 fm ibúð á tveimur hæðum með sérinngangi
af stórum svölum. Aökoma líkist helst raðhúsi.
Vandaöar, fallegar innréttingar og gólfefni. Yfirbyggöar svalir.
Þetta er eign fyrir vandláta.
Skipti á minni fbúö miðsvæöis æskileg.
Verö 11,9 millj. Áhvílandi ca 4,2 millj.
Minningarsjóður Guðjóns
B. Olafssonar stofnaður
ÆTTINGJAR Guð-
jóns B. Ólafssonar
hafa, í samvinnu
við Krabbameinsfé-
lagið, stofnað sjóð
til minningar um
hann. Guðjón hefði
orðið sextugur í
dag, laugardaginn
18. nóvember, en
hann lést 19. des-
ember 1993 af
völdum krabba-
meins í blöðruháls-
kirtli.
Sjóðurinn, sem
verður í vörslu
Krabbameinsfélags
íslands, á að styrkja rannsóknir
á blöðruhálskirtilskrabbameini.
Stofnfé eru minningargjafir
sem bárust félaginu þegar Guð-
jón lést auk 500.000 kr. sem
kona hans, Guðlaug B. Guðjóns-
dóttir, afhenti Krabbameinsfé-
laginu í síðustu viku.
Guðjón B. Ólafsson var fædd-
ur í Hnífsdal, lauk námi í Sam-
vinnuskólanum 1954 og starfaði
upp frá því á vegum samvinnu-
hreyfingarinnar. Hann var
framkvæmdastjóri
á skrifstofu Sam-
bandsins í London
frá 1964 til 1968
og framkvæmda-
stjóri sjávarafurða-
deildar Sambands-
ins frá 1968 til
1975. Guðjón var
forstjóri Icelandic
Seafood Corporati-
on i Bandaríkjunum
frá 1975 til 1986
og forstjóri Sam-
bands íslenskra
samvinnufélaga frá
1986.
Blöðruhálskirtils-
krabbamein er lang algengasta
krabbameinið hjá íslenskum
körlum. Ár hvert greinast að
meðaltali um 110 karlar með
þennan sjúkdóm. í frétt frá
Krabbameinsfélaginu segir að
miklar vonir séu bundnar við
að Minningarsjóður Guðjóns B.
Ólafssonar eigi eftir að efla
rannsóknir á krabbameini í
blöðruhálskirtli og varpa ljósi á
orsakir þessa algenga sjúk-
dóms.
Guðjón B.
Ólafsson
N eytendasamtökin
Viðskipti A.
Finnssonar
verði skoðuð
STJÓRN Neytendasamtakanna hef-
ur ákveðið að senda eftirfarandi til
Ríkissaksóknara og Bankaeftirlits.
„I tilefni af greinargerð „Sam-
starfshóps um bætt viðskiptasið-
ferði“ til bústjóra þrotabús A. Finns-
sonar hf. á Akureyri beinir stjóm
Neytendasamtakanna þeim ein-
dregnu tilmælum til Ríkissaksóknara
og Bankaeftirlits Seðlabanka íslands
að viðskipti A. Finnssonar hf., sem
nú hefur verið tekið til gjaldþrota-
meðferðar, við ýmsa aðila verði tekin
til gaumgæfilegrar skoðunar."
Gönguferð
í Garðabæ
SU nýbreytni hefur verið tekin upp
hjá Sjálfstæðisfélagi Garðabæjar að
efna til gönguferðar um hverfi bæj-
arins ásamt bæjarfulltrúum Sjálf-
stæðisflokksins. Fyrsta gönguferðin
verður farin nk. sunnudag. Gengið
verður um Bæjargil og Hæðarhverfi.
Áætlað er að hittast við leikskól-
ann Hæðarból og leggja af stað það-
an kl. 10.30. Gangan endar einnig
þar. Allir íbúar Bæjargils og Hæða-
hverfis em velkornnir og eindregið
hvattir til að koma í gönguferðina.
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks-
ins í Garðabæ verða einnig með við-
talstíma í húsi Sjálfstæðisfélagsins
að Lyngási 12. Fyrsti viðtalstíminn
verður laugardaginn 25. nóvember
milli kl. 10.30 og 11.30.
OPIÐ ALLAR HELGAR
FOLD
FASTEIGNASALA
Laugarvegi 170, 2 hæð. 105 Reykjavík.
Opið í dag kl. 11-14,
sunnud. kl. 13-15, virka daga kl. 9-18 -
sími 552 1400 - fax 552 1405
SELÁS - ÁRBÆR
Vorum að fá [ einkasölu þetta glæsilega 210 fm endaraðhús í Seláshverfinu. Húsið
er á þremur pöllum og eru öll loft viðarklædd. Eldhúsið er rúmgott með parketi á
gólfi, fallegri eldhúsinnréttingu og borðkrók. Stofan og borðstofan er rúmgóð og er
útgangur út á stórar vestursvalir með glæsilegu útsýn yfir borgina. Gengið er upp
nokkur þrep á efsta pall þar sem er notalegt sjónvarpshol.
Á neðstu hæðinni eru 2 barnaherbergi, rúmgott hjónaherbergi, með útgangi út í garð,
og flísalagt baðherbergi með sturtu og baðkari. Þvottahús og geymsla á hæðinni.
Garðurinn er afgirtur og i mikilli rækt. Fyrir framan húsið stendur tvöfaldur bílskúr ca
42 fm með hita, vatni og rafmagni.
Þetta er eign sem ekki má fram hjá þér fara.