Morgunblaðið - 24.11.1995, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 24.11.1995, Qupperneq 12
12 FÖSTUDAGUR 24. NÓVEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ RANNÍS Rannsóknarráð Islands auglýsir styrki úr Tæknisjóði með umsóknarfrest til 15. janúar 1996: „Tæknimenn ífyrirtæki“ Styrkirnir eru veittir úr Tæknisjóði til fyrirtækja í þeim tilgangi að ráða vísinda- og/eða tæknimenntaðan starfskraft. Styrkir eru veittir til allt að þriggja ára og nema hálfum launakostnaði sérfræðings. • Umsækjendur geta verið fyrirtæki sem eru að hefja nýsköpun en hafa ekki vísinda- eða tæknimenntað starfslið í þjónustu sinni, en hafa að öðru leyti bolmagn og forsendur til nýsköpunar. • Gert er ráð fyrir að í umsóknum komi fram áform fyrirtækja um þróunarstarf og eflingu á tæknigetu fyrirtækis og bættri samkepþnisstöðu þess á markaði. Eyðublöð og leiðbeiningar (einnig á tölvudisklingi) verða tilbúin 27. nóv. nk. og skal sækja til Rannsóknarráðs íslands, Laugavegi 13, sími 562 1320, fax 552 9814. FRETTIR Hvað segja þau um stöðuna í kjaramálunum? Valdimar Guðmannsson, formaður ASN Nægt tilefni til uppsagnar „ÞESSI greinargerð Þjóðhags- stofnunar staðfestir að það hefur gilt hér allt önnur launastefna eftir að við sömdum í febrú- ar. Það er viður- kennt að við þyrftum að fá um 3.000 kr. launahækkun til að standa jafn- fætis öðrum og þá eru kennar- amir ekki PHIUPS um yfirburði PHIIIPS Umboðsmenn: Akweyri, Rodiónousl Akranes, Hijómsýn, Bygingahuúá Blönduós, Kf Húnvefnmga Borgornes, Kf Boigftfðtngo Búfkiidolur, finoi Slefómson Djúpwogwf, ICA.S.1 Drongviej, Kf Stóngrimsfjoföor E^ssloöif, Kf HéroWiöa bkifjÖfSur, flisOuðnoson fóskrúðsfjorður, Heigi ingoson fkrteyri, Björgvin ÞórÖorson Grmdovðt, Rofborg Grurafefjðrfkrr, Guóra HoBgrimsson Hofrwrfj., Roftekjov. Skúkj bófss., Rofrrwetti Helio, Mosfeö Hefesondur, Blóraslurvellir Hólmovik, Kf Sleingf ímsf íurÓor Húsovl, Kf Wngeyinga, Bókov. P. Stefónss. Hvomimlongi, Kf Vestuf- Hónvelningo Hvofsv&Hof, KfRong* *ingo Höfn Hornofirói, KJLSK. höfjwfof, PólUnn Keflovfe, Somkoup, Rodjókjollorinn Heskoupssloiur, YerslunmVík ókjfsfjöróur, Vofeerg, Rodíóvinnusloftm Polreksfjörk, Rofbúi Jónosra Reyóorfjjpður, KfHéroósbúa Reykjavík, Heimskrmgíofi Kringlunni Souóorkróki, Kf Skogfirðingo Selfoss, Rofsel SjgMjorður, Aðo&úðín Vestmonneyjar, fyjorodió Þorlókshöfn, Rós Þórshðfn, Kf longnesingo Vopnofjördur, Kf VopnfirÓingo VikMýrdol, Kf Árnesmga Nú býðst PHILIPS PT 4521 sjónvarpstæki á sérstöku tilboði. Þetta eru hágæða 28" stereo tæki sem eru búin myndgæðum sem finnast aðeins hjá PHILIPS. Rétt verð: PHILIPS PT 4521 • Black Matrix myndlampi • CTI litastýring • Nicam stereo • íslenskt textavarp • Easy logic fjarstýring með aðgerðastýringu á skjá • 2 scarttengi • Beintenging fyrir hljómt. (Surround) • Spatial hljómbreytir Tilboð: j TIL 24 MÁNAOA Heimilistæki hf SÆTÚNI 8 SfMI 569 15 OO *• © reiknaðir inn í dæmið,“ sagði Valdimar Guðmannsson, formað- ur Alþýðusambands Norðurlands. „Það er hópur innan verkalýðs- hreyfingarinnar, og ég tilheyri honum, sem hefur haldið því fram að þetta eitt og sér sé nægileg ástæða til uppsagnar. Megin- markmiðið með febrúarsamning- unum var að laun skyldu hækka í krónutölu og að samningarnir ættu að vera jafnlaunasamningar. Þetta markmið hefur verið marg- brotið. Það er meira að segja þannig að þeir sem hærri laun höfðu fyrir fengu mest. Þegar verið var að semja var því lýst yfir að þjóðarbúið þyldi ekki miklar launahækkanir og að við yrðum að viðhaida stöðugleik- anum. Undir þessum kring- umstæður var launastefnan mót- uð. Það er síðan ríkið sjálft sem gengur á undan og semur við sína starfsmenn um meiri hækkanir en við fengum. Það er ekki hægt að ætlast til að okkar fólk sætti sig viðþessa mismunun. Ég hef verið að fara á milli vinnu- staða og verið á mörgum fundum og man ekki eftir jafnákveðnu hljóði í fólki. Þetta geta sljómmála- mennimir að mörgu Ieyti rakið til sín. Þær hækkanir sem þeir fengu var sú olía sem glóðin þurfti til að það kviknaði bál.“ Meirihluti aðildarfélaga Al- þýðusambands Norðurlands er búinn að afla sér heimildar til að segja samningum upp. Valdimar sagði að best væri ef launanefndin gæti komist að samkomulagi um að bæta félagsmönnum ASI upp þann mismunun sem er þeim í óhag. Hann sagði ekki útilokað að samningum yrði sagt upp óháð niðurstöðu launanefndar. Hann viðurkenndi að félögin yrði í erfið- ari stöðu til að heyja sína kjara- baráttu ef þau segðu samningum sjálf upp. Betra væri að samning- um yrði sagt upp á vettvangi launanefndarinnar ef til uppsagn- ar þyrfti að koma. „Ég tel að fé- lögin hafi þessa heimild. Þau hafa ekki framselt þetta vald alfarið í hendur launanefndarinnar.“ SigurðurIngvarsson, formaður ASA Uppsögn fáist ekki leiðrétting „EF EKKI fæst leiðrétting verður samningum sagt upp. Það liggur alveg ljóst fyrir. Það kemur í ljós á næstu dögum hvað ríkisvaldið og atvinnurek- endur eru tilbúin til að gera. Bolt- inn er þjá þeim,“ sagði Sigurður Ingvarsson, for- maður Alþýðu- sambands Aust- urlands. „Þau viðbrögð sem við teljum okkur hafa fengið frá rikisstjórn og atvinnurekendum eru ekki full- nægjandi. Ég tei að það sé skyn- samlegast fyrir þessa aðila að reyna að ná saman við okkur eins og við erum að bjóða upp á án þess að efna til allsheijar ófriðar í þjóðfélaginu. Það er n\jög fast þrýst á okkur forystumennina frá okkar félags- mönnum. Mönnum finnst þetta vera algjört prinsippmál. Samn- ingsaðilar settu sér það markmið að fara í launajöfnun, þótt hún væri ekki stór, en niðurstaðan varð þveröfug. Við sættum okkur ekki við það.“ Sigurður sagði að eins og stað- an væri í dag væru horfur á að fulltrúar ASI í lauuanefnd gætu sagt upp samningum með vísan i að forsendur samninga, um verð- lagsþróun og yfirlýsingu ríkis- stjórnar, hefðu ekki staðist. „Það er alveg ljóst að ríkis- stjórnin hefur ekki uppfyllt það sem hún lofaði. Það er rétt að verðlagsforsendurnar hafa staðist hingað til, en ég held að það séu verulegar blikur á lofti með þró- unina á næsta ári. Lánskjaravístit- alan hefur verið að hækka. Við teljum að það eigi eftir að koma inn einhver þensla. Ef það gerist ekki bendir það til þess að svigr- úmið til launahækkana hafi verið meira en menn töldu.“ Hansína Stefánsdóttir, formaöur ASS Launa- stefnan er brostin „KRAFAN um launahækkanir er mjög sterk. Alþýðusamband Suð- urlands hélt þing i byrjun sept- ember. Það vildi nú þannig til að fundur hófst degi eftir að úr- skurður Kjara- dóms var birtur og þar kom fram sterk ályktun um að samnings- forsendur væru brostnar og sú afstaða hefur ekki breyst hjá fólki,“ sagði Hansína Stefánsdótt- ir, formaður Alþýðusambands Suðurlands. „Mat manna á því hvaða for- sendur þurfa að vera fyrir hendi svo hægt sé að segja samningum upp er dálítið mismunandi. Þegar var gengið frá þessum kjarasamn- ingi var skrifað undir ákveðnar forsendur og samningsaðilar gáfu út ákveðna yfirlýsitigu um launa- stefnu. Það er kannski ekki síst á henni sem fólk samþykkti samn- ingana. Mín skoðun er sú að launa- stefnan sé brostin og þá er ansi lítið orðið eftir til að byggja á framhald samninga. Það vantar býsna mikið upp á yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar og þau svör sem komu frá ráðherr- unum í gær eru ekki fullnægj- andi. Þeir segja ekkert um það hvenær þeir ætla að hrinda í fram- kvæmd því sem á vantar. Við vilj- um fá tryggingu fyrir því að það verði gert.“ Grétar Þorsteinsson, formaður Samiðnar Hægt að komast hjá alvarlegum árekstrum „MÉR lýst ekki allt of vel á stöð- una. Það er megu óánægja hjá okkar félagsmönnum með kjörin. Menn hafa nokkra daga í viðbót til að koma þessum málum í höfn. Það þurfa að koma önnur og skýrari svör frá sljórnvöldum og það þurfa einnig að koma jákvæð viðbrögð frá atvinnurekendum ef á að takast að forðast hér alvar- lega árekstra. Ef slík viðbrögð koma ekki eru verulegar líkur á að samningum verði sagt upp eða að það verði órói á vinnumarkaði, sem er auðvitað afar slæmur,“ sagði Grétar Þorsteinsson, for- maður Samiðnar. Miðstjórn Samiðnar kemur sam- an til fundar í dag. Grétar sagði að á fundinum yrði mótuð afstaða fyrir formannafund ASÍ, sem haldinn verður nk. sunnudag.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.