Morgunblaðið - 24.11.1995, Blaðsíða 56
JlewU£d
-setur brag á sérhvern dag!
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN I. 103 REYKJAVÍK, SÍMI 669 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL@CENTRUM.IS / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
FÖSTUDAGUR 24. NÓVEMBER 1995
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Siglfirðingur og Há-
gangur II í Smugunni
Isbimir á
vappi í
kringxim
skipin
Akureyri. Morgunblaðið
„ÞAÐ kom einn hér alveg upp að
skipshlið og hafði hún með sér,“
sagði Jón Ólafur Halldórsson, skip-
stjóri á Siglfirðingi SI 150 sem nú
er í Smugunni. Isbirnir hafa sést
við skipin.
Jón Ólafur sagði að mikill ís
hefði verið á svæðinu, en hann
hefði færst hratt suður undan
norðvestanáttinni sem ríkt hefði
þar. Hann sagði að skipverjar
hefðu séð töluvert af ísbjörnum og
það sama gilti um skipveija á
Hágangi II. „Þeir koma að skipun-
um, sennilega bara af forvitni,"
sagði Jón Ólafur.
Siglfirðingur sem í gær hafði
verið í fjóra daga í Smugunni var
tæpa viku á leiðinni, en mikil bræla
var þegar þeir sigldu þangað. „Það
var ágætisveður fyrsta daginn hér
en síðan hefur verið leiðindaveður
og maður getur ekkert verið að.
Við fengum eitthvað smávegis
fyrsta daginn, en nú er ekkert að
hafa,“ sagði skipstjórinn og bætti
við að menn hefðu það ágætt um
borð, „það eina sem vantar er fisk-
ur, þá verða menn ánægðir.“
Sléttanesið er á leið í Smuguna
og bætist þá í hóp íslensku skip-
anna tveggja sem þar eru nú. •
Flugiimfer ðarþj ónust-
an gæti flust úr landi
Tekjur af flugnmfer ðarþj ónustunni
800 milljónir króna
HALLDÓR Blöndal samgönguráð-
herra upplýsti í gær að hann tæki
uppsagnir flugumferðarstjóra til
greina og störfín yrðu auglýst inn-
anlands og erlendis strax um helg-
ina. Þorgeir Pálsson flugmálastjóri
segir ekki útilokað að flugumferð-
arþjónustan flytjist úr landi til ann-
arra aðila, a.m.k. tímabundið, komi
sú staða upp að ekki fáist flugum-
ferðarstjórar til starfa.
82 flugumferðarstjórar hafa sagt
upp störfum frá og með næstu ára-
mótum en samkvæmt lögum er
heimilt að framlengja uppsagnar-
frestinn um þijá mánuði. Flugum-
ferðarstjórar fóru yfir stöðuna í
samningamálunum á félagsfundi í
gærkvöldi. Karl Alvarsson, varafor-
maður samninganefndarinnar,
sagði að fundurinn hefði lýst yfir
stuðningi við störf stjórnar og
samninganefndar og harmað að
samninganefnd ríkisins skyldi ekki
vilja ræða tilboð flugumferðar-
stjóra. Hann sagði að ákvörðun
samgönguráðherra hefði ekki verið
sérstaklega rædd enda byggjust
menn auðvitað við því þegar þeir
segðu upp að uppsögn þeirra væri
tekin gild.
Meðaltalslaunin 320 þús. kr.
Samgönguráðherra leggur málið
fyrir ríkisstjórn í dag. Hann hefur
falið flugumferðarþjónustunni að
leggja fram fyrir mánaðamót tillög-
ur um hvernig staðið verði að flug-
þjónustunni yfir flugumsjónarsvæði
Islendinga á Atlantshafi í byijun
næsta árs.
Halldór sagði að kröfur þær sem
flugumferðarstjórar hefðu sett
fram í viðræðum við samninga-
nefnd ríkisins væru metnar til
26-30% hækkunar á launakostnaði
ríkisins vegna þessarar þjónustu á
næsta ári og kröfur sem þeir hafi
sett fram til aldamóta leiði af sér
82% hækkun á launakostnaði ríkis-
ins. Samninganefnd ríkisins bauð
flugumferðarstjó'rum tæplega 8%
hækkun og í tilboðinu var einnig
falin hagræðing á vinnutíma. Með-
altalsmánaðarlaun flugumferðar-
stjóra eru 320 þúsund kr. á mánuði.
„Við getum að sjálfsögðu ekki
samþykkt kröfur af þessu tagi. Ég
sé því ekki betur en að þessi deila
sé komin á alvarlegt stig,“ sagði
Halldór.
Alþjóðaflugþjónustan, sem er
deild innan Alþjóðaflugmálastofn-
unarinnar, greiðir 95% launa 38
flugumferðarstjóra hérlendis, og
hafa íslensk flugmálayfirvöld upp-
lýst hana um gang mála. Þorgeir
Pálsson flugmálastjóri sagði að Al-
þjóðaflugmálastofnunin myndi ekki
líða að flug leggðist af á flugum-
sjónarsvæði íslendinga. Hugsanlegt
væri að flugumferðarþjónustan
flyttist úr landi til annarra aðila,
a.m.k. tímabundið, komi sú staða
upp að hér fáist ekki flugumferðar-
stjórar til starfa. Tekjur þær sem
verða til við þá þjónustu sem Flug-
málastjórn, Póstur og sími og Veð-
urstofan láta i té í tengslum við
flugumferð hér við land eru u.þ.b.
800 milljónir kr. á ári.
Umfangs-
mikil skoðun
á TF-SIF
TF SIF, björgunarþyrla Land-
helgisgæslunnar, hefur verið tek-
in í yfirgripsmikla skoðun í flug-
skýíi gæslunnar. Um er að ræða
svonefnda tíu ára skoðun. Að
sögn Hafsteins Hafsteinssonar,
forstjóra Landhelgisgæslunnar,
hefur þyrlunni verið lagt í tvo
mánuði og verður skoðunin fram-
kvæmd á þeim tíma. Hafsteinn
sagði að eftir að Landhelgisgæsl-
an eignaðist TF-LÍF væri unnt
að láta skoðunina fara fram í einu
i stað þess að yfirfara þyrluna
smátt og smátt og sagði hann að
það sparaði umtalsverðar fjár-
hæðir. Hafsteinn sagði að hjá
Landhelgisgæslunni störfuðu
mjög góðir flugvirkjar sem önn-
uðust skoðunina. Tíu ár eru liðin
síðan SIF var tekin í notkun og
á hún um 4400 flugtíma að baki.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Yinnuhópur um samskiptareglur á vinnumarkaði skilar áfangaskýrslu
Allir aðilar á vinnumark-
aði semji á sama tíma
VINNUHÓPUR um samskiptaregl-
ur á vinnumarkaði leggur til að sá
tími sem ætlaður er til viðræðna
um gerð nýrra kjarasamninga sé
afmarkaður. Keppikeflið ætti að
vera að nýr kjarasamningur liggi
fyrir þegar gildistíma eldri kjara-
samnings lýkur. Til að ná þessum
markmiðum sé æskilegt að gerð sé
sérstök skrifleg viðræðuáætlun með
tímasetningum um viðræður og hún
nái til allra aðila á vinnumarkaði,
hvort sem um sé að ræða almenna
launamarkaðinn eða opinbera
starfsmenn og hvort sem um er að
ræða aðila sem eiga aðild að ein-
hverjum heildarsamtökum eða ekki.
Fram kemur að markmið fyrr-
greindrar viðræðuáætlunar sé „að
skapa samfelldan ramma um allar
kjaraviðræður, hvort heldur þar
komi að samtök á opinberum mark-
aði eða einkamarkaði, innan eða
utan heildarsamtaka. Einnig að
setja því tímamörk hvenær stefnt
er að lokum kjarasamninga hveiju
sinni svo að samningaviðræður ein-
stakra hópa dragist ekki langt fram
eftir því samningstímabili sem í
hönd fer. Viðræðuáætlun hlýtur því
að vera formleg og staðfest og gef-
in út með þeim hætti að hún taki
til allra samningsaðila sem vilja
endurnýja kjarasamning hveiju
sinni og eiga rétt á að beita vinnu-
stöðvunum til að knýja gagnaðila til
samninga."
V erkfallsrétturinn
ekki takmarkaður
Fram kemur að vinnuhópurinn
telji ekki eðlilegt að takmarka verk-
fallsrétt en eðlilegt sé að skilyrði
fyrir beitingu hans séu ákveðnar
reglur um málsmeðferð. Telur hóp-
urinn að sterk rök þurfi ef lögbinda
ætti efnisleg takmörk við rétti stétt-
'arfélags til að fylgja eftir lögmætum
kröfum í vinnudeilum. í vinnuhópn-
um áttu sæti: Benedikt Davíðsson
og Bryndís Hlöðversdóttir fyrir hönd
Alþýðusambands Islands, Ogmund-
ur Jónasson, fyrir hönd Bandalags
starfsmanna ríkis og bæja, Birgir
Guðjónsson fyrir hönd fjármála-
ráðuneytisins, Árni Benediktsson
fyrir hönd Vinnumálasambandsins
og Þórarinn V. Þórarinsson fyrir
hönd Vinnuveitendasambands Ís-
lands. Gylfi Kristinsson, deildar-
stjóri í félagsmálaráðuneytinu, var
formaður.
■ Tími til samningaviðræðna/10
Ovænt
úrslit í
körfunni
ÓVÆNT úrslit urðu í 16-liða
úrslitum bikarkeppninnar í
körfuknattleik í gærkvöldi.
íslandsmeistarar Njarðvíkur
urðu að játa sig sigraða er
þeir mættu Haukum, Keflvík-
ingar töpuðu fyrir KR, Valur
sló Skallagrím út og Skaga-
menn lögðu ÍR-inga. Á Akur-
eyri vann Þór lið. Snæfells,
Selfoss lagði Leikni og
Breiðablik vann b-lið Njarð-
víkinga.
Síðasti leikurinn í 16 liða úr-
slitum fer fram í kvöld en þá
mæstast bikarmeistarar
Grindavíkur og Tindastóll.
■ Haukar héldu /C2