Morgunblaðið - 24.11.1995, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
FÖSTUUAGUR 24. NÓVEMBER 1995 13
Rúmlega þrjátíu Islendingar að störfum í ríkjum fyrrverandi Júgóslavíu
Aldrei verið fleiri við störf
AÐ MINNSTA kosti 31 íslendingur
er nú við störf í fyrrverandi ríkjum
Júgóslavíu um lengri og skemmri
tíma, og hafa þeir aldrei verið fleiri
samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins.
Islendingarnir eru við margvísleg
störf og á vegum nokkurra aðila,
eftir því sem næst verður komist.
Þannig eru 26 íslendingar að störf-
um fyrir Sameinuðu þjóðirnar þar,
samkvæmt upplýsingum frá Stein-
ari B. Björnssyni, framkvæmda-
stjóra hjá friðargæsluliði SÞ, flestir
sem bílstjórar fyrir undirverktaka
SÞ og stjórnendur þungavinnu-
tækja en einnig eru þar verkstjór-
ar, rafvirkjar, símamenn, útvarps-
virkjar o.fl.
Á vegum Rauða krossins eru
þrír sendifulltrúar að störfum í ríkj-
um fyrrverandi Júgóslavíu og einn
læknir starfar í heilsugæslusveit
Norðmanna á vegum utanríkisráðu-
neytisins, auk þess sem Ríkisút-
varpið hefur á sínum snærum
fréttaritara sem er á nokkurra
mánaða ferðalagi um þetta svæði.
íslendingarnir starfa víða eins og
áður sagði, meðal annars í Sarajevo,
Split, Zagreb, Pleso, Mostar og
Topusko.
Töluvert um
fyrirspurnir
Guðni Bragason, sendiráðunaut-
ur hjá utanríkisráðuneytinu, segir
töluvert um að fólk snúi sér til ráðu-
neytisins með fyrirspurnir um hvort
það geti haft milligöngu um að út-
vega störf á þessu svæði. „Þrátt
fyrir að þarna sé mikill ófriður virð-
ist það ekki fæla fólk frá því að
leita eftir störfum. Það eina sem
við getum hins vegar gert í þessu
sambandi er að benda fólki á um-
sóknareyðublöð um störf hjá SÞ,
sem það getur fyllt hér út og sent
til starfsmannaskrifstofu SÞ í New
York,“ segir Guðni.
Hann kveðst telja að ekki hafi
fyrr verið fleiri íslendingar við störf
í ríkjum fyrrverandi Júgóslavíu.
Guðni segir að ráðuneytið hafi í
fyrra gert samning við norska varn-
armálaráðuneytið um að íslending-
ar kæmu til starfa í heilsugæslu-
sveitir Norðmanna í Tuzla. Þá hafi
tveir læknar og einn hjúkrunar-
fræðingar farið þangað til starfa
og dvalist í um hálft ár.
„Síðan var ákveðið að halda
þessu áfram og fyrir nokkrum vik-
um fór læknir á okkar vegum ytra,
FYRRUM JUGOSLAVIA
eftir þjálfun í Noregi. Tveir hjúkr-
unarfræðingar voru síðan sendir
fyrir skömmu til þjálfunar í Nor-
egi, en þeir eru komnir aftur til
íslands og halda ekki út fyrr en á
næsta ári,“ segir Guðni.
Tillaga um
einkavæðingu
fríhafnarinnar
HÖRÐ orðaskipti urðu milli Hall-
dórs Blöndals samgönguráðherra
og Jóns Baldvins Hannibalssonar,
þingmanns Alþýðuflokks í Reykja-
vík, í fyrstu umræðu um þingsálykt-
unartillögu um að gera einstakling-
um og fyrirtækjum kleift að reka
tollfrjálsar vérslanir fyrir ferða-
menn í Flugstöð Leifs Eiríkssonar
á Alþingi á miðvikudag.
Ályktunartillagan kveður einnig
á um það að ,jafnframt dragi hið
opinbera sig út úr rekstri toll-
frjálsra verslana" í Leifsstöð. Guð-
mundur Hallvarðsson, þingmaður
Sjálfstæðisflokks í Reykjavík og
annar flytjenda tillögunnar, sagði
„óeðlilegt" að ríkið „sinnti þessari
starfsemi“. Margir voru sammála
um að leyfa mætti fleirum verslun-
arrekstur í flugstöðinni, en lagður
var vari við að ríkið legði niður
verslun þar.
Guðmundur sagði að ekki þyrfti
lagabreytingu til að heimila breyt-
ingu af þessu tagi vegna þess að
samkvæmt lögum væri „ríkisstjórn-
inni heimilt að reka eða leyfa rekst-
ur verslana með tollí'rjálsri vöru“ á
flugvöllum hérlendis handa farþeg-
um í utanlandsflugi. Guðmundur
sagði að hagnaður fríverslunarinn-
ar væri tæpir tveir milljarðar og
þangað hefðu komið 840 þúsund
ferðamenn á síðasta ári.
Einkavæðing Kastrup
Máli sínu til stuðnings benti Guð-
mundur á að Kastrup flugvöllur í
Danmörku hefði verið einkavæddur
á tímum Persaflóastríðsins þegar
óvissa og samdráttur ríkti í far-
þegaflugi. Engu að síður hefði tek-
ist vel til.
Steingrímur J. Sigfússon þing-
maður Alþýðubandalags í Norður-
landi eystra svaraði því til að Kast-
rup væri stór flugvöllur, sem sinnti
flugumferð á stóru svæði, og því
alls ekki sambærilegur við Leifsstöð.
Steingrímur lagði til að frum-
varpið yrði víkkað út og tæki til
allsheijar endurskoðunar rekstrar
Leifsstöðvar.
„Tillaga marklaus"
Fjárhagsvandi Leifsstöðvar flétt-
aðist inn í umræðuna og kom þá
til snarpra orðaskipta milli Halldórs
Blöndals og Jóns Baldvins Hanni-
balssonar.
Umræða um tillöguna breytti um
stefnu þegar Jón Baldvin, fyrrum
utanríkisráðherra, tók til máls og
gagnrýndi flutningsmenn fyrir að
„skora á fjármálaráðherra að gera
breytingar á rekstri, sem hann hef-
ur ekkert með að gera“. „Er þetta
ekki alvörumál?" spurði Jón Bald-
vin. „Hvað á þetta að þýða?“
Þingmaðurinn sagði að fjárhags-
vandinn væri aðalvandi Leifsstöðv-
ar og „út í hött að flytja tillögur
um breytingar á rekstrarformi áður
en fjárhagsvandi hefur verið leyst-
ur“. Jón Baldvin sagði að í fjárhags-
vanda flugstöðvarbyggingarinnar
hefði strandað á Halldóri Blöndal
samgönguráðherra. Hann hefði
fimm sinnum lagt fram tillögur
þegar hann var utanríkisráðherra
og í hvert einasta skipti hefði sam-
gönguráðherra beitt neitunarvaldi.
Halldór svaraði því til að ekki
hefði verið fallist á tillögur Jóns
Baldvins vegna þess að þær hefðu
ekki verið raunhæfar. Mál flug-
stöðvarinnar hefðu verið á hans
könnu þegar hann var utanríkisráð-
herra. „Hann skildi við þessi mál í
óreiðu þegar hann lét af embætti
og getur því engum um kennt nema
sjálfum sér,“ sagði Halldór um fyrr-
verandi samráðherra sinn.
Þakkarávarp
Öllum œttingjum mínum og vinum, nœr ogjjœr,
þakka ég símtöl, skeyti, blóm og aðrar góðar
gjafir og heimsóknir á 70 ára afmœli mínu
12. nóvember síðastliÖinn.
Sonum mínum og tengdadœtrum, barnabörn-
um og barnabarnabörnum, sem öll hjálpuÖust
aÖ við að gera daginn sem glœsilegastan, þakka
ég af heilum hug.
ÞjóÖdansafélagi Reykjavíkur þakka ég afnot
og alla aöstööu á sal þeirra í Álfabakka 14a.
GuÖ veri með ykkur öllum.
Steinunn Sigurgeirsdóttir,
Eyjabakka 6,
Reykjavík.
□yponix
1 V 1
9 \F 9
%ÓO%
-9 cxecx
E/FOnixB
H^onixE
1 V 1
AFMÆLISTILBOÐINOVEMBER
Drjúgur afsláttur, allt að 15% á stórum- og 30% á smærri tækjum.
9 9
36Ö9
5 5
E/FOnixE
cf ASKO
ÞVOTTAVÉLAR-ÞURRKARAR- UPPÞVOTTAVÉLAR
KÆLISKAPAR-FRYSTISKAPAR-FRYSTIKISTUR
NILFISK
NÝ NILFISK FYRIR NÚTÍMAHEIMILI
5-10% $ifs)Mtur
ÞÚ ÞARFT EKKI KASKO
EF ÞÚ KAUPIR ASKO!
- því Asko er trygging þín fyrir
hámarks árangri og sannkallaðri
maraþonendingu.
Nú er lag að fá sér sænskt hágæðatæki
frá Asko - með verulegum afslætti.
ASKO þvottavélar frá 69.990,-
ASKO tauþurrkarar frá 59.990,-
ASKO uppþvottavélar frá 49.990,-
f-15% AfslÁttvtr
Dönsku GRAM kæliskáparnir
eru rómaðir fyrir glæsileika,
hagkvæmni, styrk og endingu.
Þú getur valið um 20 gerðir
kæliskápa, með eða án frystis.
Einnig 8 stærðir frystiskápa og
4 stærðir af frystikistum.
Verðdæmi: GRAM KF-355E kæliskápur
með 272 I. kæli og 62 I. frysti.
HxBxD=174,2 x 59,5 x 60,1 cm.
Áður kr. 79.990,- Nú aðeins 69.990,-
3ja
ára ábyrgð
OMENGUÐ GÆÐI
5-10% AfslÁttvir
Allir vildu Lilju kveðið hafa,
en það er aðeins ein Nilfisk!
Þær eru nú reyndar þrjár,
hver annari betri.
En hvað veldur, að allir vilja eignast
Nilfisk? Er það útlitið, krafturinn,
tandurhreina útblástursloftið eða
þessi magnaða ending?
Kannski alit þetta og ennþá fleira.
Nú bjóðum við nýja Nilfisk á
tilboðsverði, frá kr. 19.990,-
INNBYGGINGAROFNAR OG -HELLUR
ORBYLGJUOFNAR MEÐ MEIRU
BORÐOFNAR FYRIR SÆLKERA
10-15% AfslÁttur
Margar gerðir og litir af ofnum til
innbyggingar, með eða án blásturs,
á verði frá 24.800,-. Helluborð með
2 eða 4 hellum, bæði „venjuleg" og
keramik. Einnig gas-helluborð.
Frístæðar eldavélar frá 39.900,-
10-15% AfslÁttur
7 gerðir: Val um ofna m/örbylgjum ein-
göngu, örbylgjum og grillelementi eða
örbylgjum, grilli og blæstri. Verðdæmi:
18 1. 800W örbylgjuofn 16.990,-
27 I. 900W örbylgjuofn 21.990,-
17 I. 800W örb. + grill 21.990,-
27 I. 850W örb. + grill + bl.38.900,-
§ O.ERRE
LOFTRÆSTING EROKKARFAG!
FqI 1—1
10-20% Afsláttur
15 gerðir og litir:
Venjulegar, hálfinnbyggðar,
m/útdregnum glerhjálmi, hálfháf-
formaðar eða til innbyggingar í háf.
Verð frá aðeins kr. 6.990,-
Mikið úrval af loftræstiviftum fyrir
hvers konar húsnæði, til heimilisnota
eða í atvinnuhúsnæði.
Gott loft skapar vellíðan og eykur
afköst. Ef þú þarft að loftræsta,
komdu þá til okkar.
Já, við erum í afmælisskapi um þessar mundir. Staðgreiðslu- og magnafsláttur, Euro-
og Visa-raðgreiðslur til allt að 36 mán., án útborgunar. FRÍ HEIMSENDING og við
FJARLÆG|UM GAMLA TÆKIÐ þér að kostnaðarlausu - um ieið og við komum með
það nýja - glæsilegt, notadrjúgt og , .... .
sparneytið - og nú á afmælisverði. || HI Fj mánud.-tÖStúd. 9-1 8
Veikomin í Fonix IU laugardaga 10-16
- heitt á könnunm og is tyrir bormn. u u
10-15% AfslÁttur
Þeir eru notadrjúgir litlu
borðofnarnir frá DéLonghi.
: Þú getur steikt, bakað og grillað að vild á
styttri tíma og með mun minni orkunotkun
en í stórum ofnum eða eldavélinni.
7 gerðir: 8 lítra, 13 lítra eða 28 lítra.
Verð frá aðeins 9.990,-
LITLU TÆKIN Á
LÁGA VERÐINU
10-30% Afsláttur
Ávaxtapressur, brauðristar, brauð- og
áleggshnífar, djúpsteikingarpottar,
dósahnífar, eggjasjóðarar, handsugur,
hárblásarar, hitamælar, hnífabrýni,
hrærivélar, hraðsuðukönnur, mat-
vinnsluvélar, mínútugrill,
rafmagnsofnar, ryksugur, ryk- og
vatnssugur, safapressur, straujárn
- og ótal margt fleira.
Sextug og síung....
/rOnix
HÁTÚNI6A REYKJAVÍK SÍMI 552 4420