Morgunblaðið - 24.11.1995, Side 21

Morgunblaðið - 24.11.1995, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. NÓVEMBER 1995 21 ERLEIMT Campomanes ýtt til hliðar hjá FIDE Rússi tekur við stjórninni fram að næsta þingi Reuter Diönu vel tekið í Argentínu DÍANA prinsessa fékk hlýjar móttökur er hún kom til Buenos Aires í Argentínu í gær. Fjöl- miðlar sýna heimsókninni gífur- legan áhuga og er ástæðan eink- um rakin til sjónvarpsviðtals BBC-stöðvarinnar sl. mánudag. Hún sinnir einkum erindum góðgerðarsamtaka og var myndin tekin á endurhæfingar- stöð fyrir lömuð börn í argent- ínsku höfuðborginni. í dag snæðir Diana hádegisverð með Carlos Menem forseta og á morgun fer hún í hvalaskoðun- arferð. Birt var skoðanakönnun bresku sjónvarpsstöðvarinnar ITN í gær þar sem aðspurðir skiptust í tvo jafna hópa, 43%, í afstöðunni til þess hvort Karl prins ætti að taka við konung- dæmi. Hins vegar sögðu 63% að þeim Díönu bæri að skilja að lögum þar sem bæði hefðu játað hjúskaparbrot opinber- lega. „CAMPOMANES hefur sjálfur dregið sig í hlé, honum var ekki lengur vært á forsetastóli," sagði Einar S. Einarsson í samtali við Morgunblaðið en hann er fulltrúi á þingi Alþjóðaskáksambandsins (FIDE), sem stendur yfír í París. Við þingsetningu í fyrradag til- kynnti Filippseyingurinn Flor- encio Campomanes að hann hefði sagt af sér forsetastarfi eftir 13 ár á valdastóli. Höfðu mikil átök átt sér stað um stöðu hans og jafnvel hætta talin á að FIDE klofnaði upp færi hann ekki frá. Samkvæmt upplýsingum Morg- unblaðsins hafði mikið gengið á í miðstjórn sambandsins dagana fyrir þingið. Þar var upplýst að ríkisendurskoðun Filippseyja og þing landsins væru á eftir Campo- manes vegna fjármálaóreiðu. Þrátt fyrir ítrekaðar áskoranir rík- isendurskoðunarinnar hafði hann ekki gert fullnægjandi grein fyrir notkun ríkisstyrks vegna ólympíu- mótsins í skák, sem haldið var í Manila 1992. Vantar reiknings- skil fyrir a.m.k. hálfri milljón doll- ara og leikur jafnvel grunur á að hann hafi stungið þeirri fjárhæð í eigin vasa. Sömuleiðis var lögð fram stað- festing á því að Campomanes hefði greitt atkvæði í heimildar- leysi á síðasta þingi FIDE. Einnig að hann hefði boðið sig fram til forseta án þess að njóta stuðnings skáksambands heimalandsins, sem er forsenda framboðs. Lyktaði rimmu á miðstjórnar- fundinum með því að vantraust- stillaga var samþykkt með 14 atkvæðum gegn 12. Reyndar voru atkvæði Campomanesar sjálfs og fimm stjórnarmanna meðal mót- atkvæða. Krafist var nýrrar at- kvæðagreiðslu og féll tillagan þá á jöfnu. Leystist fundurinn þá upp FLORENCIO Campomanes (t.v.) á góðri stundu með Garrí Kasparov fyrrverandi heimsmeistara FIDE. en átökum og deilum að tjalda- baki lyktaði með því að forsetinn var neyddur til að segja af sér. Vegna þessara deilna dróst þing- setning í fyrradag um nær þrjár stundir. Þá liggja reikningar FIDE fyrir þinginu til samþykktar og var jafnvel talið að þeir myndu leiða til nýrra deilna um stjórnarhætti Campomanesar. Þar kemur fram að hann hefur á starfsárinu tekið sér 150.000 svissneska franka fyrir ótilgreindan kostnað aftur í tímann. A það sér engin fordæmi og sagði Einar S. Einarsson, sem sæti á í fjárhagsnefnd þingsins, að ekki væri stætt á því að sam- þykkja reikningana óbreytta. Samkvæmt frásögn Reuters- fréttastofunnar var Campoinanes látinn gjalda þess að honum hefði ekki tekist að sameina skákmenn að nýju eftir kiofning sem átti sér stað er Garrí Kasparov stofnaði Atvinnumannasambandið (PCA). í stað Campomanesar var 33 ára rússneskur milljónamæringur, Kírsan Ílúmjínov, settur í emb- ætti forseta FIDE fram að næsta þingi sambandsins. Hann er for- seti rússneska sjálfstjórnarhér- aðsins Kalmytskaja sem liggur að Kaspíahafi. Að baki framboði hans er Anatolíj Karpov fyrrver- andi heimsmeistari en það er talið Ílúmjínov til tekna að hann sé einnig góður kunningi Kasparovs. Þraukaði undarlega lengi „Þessar fréttir koma manni svo sem ekki á óvart, í raun er undar- legt hvað hann er búinn að þrauka lengi miðað við þær spilareglur sem hann hefur notast við. Það má segja að þær hafi komið hon- um í koll nú,“ sagði Friðrik Ólafs- son er hann var inntur álits á brotthvarfi Campomanesar úr for- setastóli FIDE. „Enginn frýr hon- um vits, hann hefur frekar verið grunaður um græsku. Hann virt- ist beita nokkuð undirborðsað- ferðum sem getur vart leitt til farsældar þegar til lengri tíma lætur. Líklega hefur hann ánetj- ast þessum stjórnarháttum meira og meira og það hefur komið hon- um í koll um síðir,“ sagði Friðrik. Heimsmeistaraeinvígi í Montreal Ákveðið var á þinginu að ein- vígi um heimsmeistaratitil FIDE færi fram í Montreal á næsta ári. Þar eigast við Karpov og Banda- ríkjamaðurinn Gata Kamsky. Verðlaunaféð nemur einni milljón dollara. CHATEAUX. 7 r. h 3 fC ALLA DAGA FRA 24. NÓVEMBER FRAMAÐ JÓLUM vN1AAT seö Fjór- réttaður kvöld- verður Grafinn lundi á salalbeði með gin- ogeinibeijavinaigrette Paté nieó mango- og rifsbeijacompote l’amiaskinka og marinemð rauóspretta með hvítum baunum og salvíu ★ ttumarseyði með skötuselstortetini* ★ Hamborgarhryggttr meö hunangs-sinnepssósu Bakaóur skötuselur með beikoni, hvítu smjöri og basil Gœsa- og rjúputvenna meó sólbetjasósu* Kjúklingur með bnetu- og villisveppajjilingu og kampavítis-rósmarínsósu ★ Innbökuð, súkkulaðifyllt pera með vaniUusósu tiis á Ia tnande með hindbetjasósu Nougatís með súkkulaði-Grand Mamiersósu ★ *Einungis á kvöldin. Innifalið er 1 glas af hvínim eða rauðum eðaldrykk. W BORÐAPANTANIR í SÍMA 552 5700

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.