Morgunblaðið - 24.11.1995, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 24. NÓVEMBER 1995 33
MINNINGAR
ARNAR
GUÐBJÖRNSSON
+ Arnar Guð-
björnsson fædd-
ist 10. febrúar 1932
á heimili foreldra
sinna í Hafnarfirði.
Hann lést 15. nóv-
ember síðastiiðinn í
Landspítalanum.
Foreldrar hans voru
Guðbjörn Einars-
son, bóndi í Hákoti
á Alftanesi, og kona
hans, Ragnhildur
Dagbjört Arngríms-
dóttir. Guðbjörn og
Dagbjört eignuðust
fimm börn. Þau
voru auk Arnars: Alda, Reynir,
Gróa og Anna. Guðbjörn í Há-
koti lést 5. apríl 1966 og Dag-
björt kona hans 7. febrúar 1991.
Arnar starfaði við búskap og sá
um mjólkurflutninga af Álfta-
nesinu. Eftir það stofnaði hann
Hákot sf., verktakafayrirtæki,
ásamt Reyni bróður sínum.
Hinn 19. júlí 1969 giftist Arnar
Ragnhildi Nikulásdóttur frá
Hafnarfirði. Þau
komu sér upp heim-
ili í Hákoti á Álfta-
nesi. Þau eignuðust
þrjú börn. Þau eru
Guðbjörg, f. 17. des-
ember 1968, sam-
býlismaður hennar
er Ástgeir Finnsson
og barn hennar er
Andri Már, heimili
þeirra er í Ólafsvík;
Auður, f. 22. mars
1970, sambýlismað-
ur hennar er Marís
GM Gilsfjörð og
börn þeirra eru
Arnar Leví og Kristín Birna,
heimili þeirra er í Reykjavík;
Nikulás, f. 30. júlí 1973, maki
hans er Anna Kristín Sigvalda-
dóttir og barn þeirra er Birgitta
Rós, heimili þeirra er í Hafnar-
firði. Sljúpsonur Arnars er
Ómar Tómasson, f. 22. júní 1960,
sambýliskona hans er Linda
Björk Halldórsdóttir, heimili
þeirra er í Hafnarfirði, börn
hans eru Elísabet og Hildur
Emma.
Utför Arnars fer fram frá
Bessastaðakirkju í dag og
hefst athöfnin klukkan 13.30.
ELSKU Arnar.
Við söknum þín öll! Þetta var
löng barátta og erfið fyrir þig og
allt þitt fólk, en þú varst alltaf svo
duglegur og góður. Þú sagðir allt-
af, til að hugga okkur hin, að þetta
færi að lagast og með bjartsýni
þinni fékkstu okkur til að trúa því
að þetta myndi lagast. Þú áttir svo
margt ógert sem þú vildir gera.
Elsku Arnar minn, ég þakka all-
ar góðu stundirnar sem við áttum
saman, bæði sem börn og fullorðin.
Maður gat alltaf komið og talað
um allt við þig og þú varst alltaf
jafn rólegur, góður og hughreyst-
andi. Ekki síst vil ég þakka þér
fyrir hvað þú varst börnum mínum
góður, eins og besti faðir, enda
hugur þeirra allra hjá þér. Eg vildi
þakka með þessum fátæklegu orð-
um fyrir allt.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Ég bið góðan guð að blessa þig
og fjölskyldu þína alla. Elsku Ragga
mín, megi guð styrkja þig og ýkkur
öll í þessari miklu raun.
Þín systir,
Anna.
Það voru þungbærar fréttir sem
við fengum miðvikudaginn 15. nóv-
ember um að Arnar frændi o.kkar
hefði látist þá um morguninn. Margs
er að minnast því Arnar var alveg
einstakur maður, blíðlyndur og barn-
góður og reyndist ölium vel sem
kynntust honum.
Fyrstu minningar okkar um Arnar
eru frá því að hann bjó í Hákoti hjá
ömmu, þar sem hann reyndist okkur
öllum einstaklega vel og okkur þótti
hann vera besti frændi sem hægt
væri að eiga. Okkur er enn í fersku
minni hvað við urðum glöð þegar
Arnar heimsótti okkur í fyrsta sinn
með Röggu sína ásamt Ómari, syni
hennar. Arnar tók Ómari strax sem
sínum eigin syni og við eignuðumst
nýja frænda. Síðar fluttum við öll í
sama húsið á Hraunkambinum og á
þeim tíma sem Arnar og Ragga
bjuggu á efri hæðinni áttum við þar
okkar annað heimili. Alltaf var jafn
gott að heimsækja þau því móttök-
urnar voru aldrei af verri endanum.
Ófá voru þau skiptin sem við
strákarnir fengum að sitja í vörubíln-
um hans Arnars þegar hann var við
vinnu, heilu dagana, og ógleym-
anlegar eru þær stundir þegar stopp-
að var til að fá sér að borða. Margt
var það sem við lærðum hjá honum.
M.a. kenndi hann okkur að þekkja
allar bílategundirnar og sum okkar
fengu af honum ólæknandi bíladellu.
Eftir að þau fluttu út á Álftanes
breyttist það ekkert að heimili þeirra
var jafn opið okkur sem fyrr. Okkur
eru einnig minnisstæðar útilegurnar
á Þingvöllum og sú mikla tilhlökkun
sem þeim fylgdi.
Við minnumst með hlýhug elsku-
legs frænda, sem háði hetjulega
baráttu við illvígan sjúkdóm, og er
fráfall hans þungbært öllum sem
hann þekktu og kynntust góð-
mennsku hans.
Elsku Ragga, Ómar, Guðbjörg,
Auður, Nikki og fjölskyldur, við
sendum ykkur okkar innilegustu
samúðarkveðjur, megi góður Guð
styrkja ykkur í ykkar miklu sorg.
Erna, Pétur, Benedikt,
Axel og Ragnhildur.
'íslensk náttúra
býr yfir sjaldgæfum
ferskleika sem kemur
fram í afurðum hennar.
íslensk ber eru Ijúffeng
og rík af vítamínum
sem við ættum
að neyta meira af.
Einn möguleikinn er:
BLÁBERJABAKA
Fylling:
1 lítri bláber
1 l/2dl sykur
Bökudeig:
150g FLÓRU smjörlíki
41/2 - 5dl hveiti
2 msk sykur
6 möndlur m/hýði
2 msk rjómi
Myljið FLÓRU smjörlíki,
hveiti og sykur saman.
Bætið rjómanum í
og hnoðið hratt í mjúkt
deig. Kælið. Þrýstið
2/3 af deiginu út í smurt
bökuform og vel upp með
hliðunum. Hálfbakið
botninn við 200°.
Takið hann þá úr ofninum
og bætið bláberjunum í,
stráið sykri yfir og leggið
renninga úr afganginum
af deiginu ofan á. Bakið áfram
þar til bakan er fallega gulbrún.
Gott með rjóma.
nm
SMJÖRLÍKISGERÐ