Morgunblaðið - 01.12.1995, Blaðsíða 26
26 FÖSTUDAGUR 1. DESEMBER 1995
ERLEIMT
MORGUNBLAÐIÐ
JOIASTJARNA!
JÓIASTJA RNAN ER KOMIN
í BIÓMAVERSIANIR UM LANDAllT
BÆJgtí&LIÍFlÐ MEÐ BIÓMUM!
BL OMAMIÐS TÖÐIN
s
Islenskir garöyrkjubcendur
um i
r
Jólastjarnan er viðkvæm fyrir kulda
og dragsúg. Því er sérstök ástæða
til að benda söluaðilum á að pakka
henni vel inn fyrir viðskiptavini sína.
íslensk jóiastjarna er ræktuð í
mörgum stærðum og
verðflokkum.
Berið saman verð og gæði!
Efnahagsr áðstafanir í Rússlandi
Vextir ogtoll-
ar á útflutn-
ingi lækkaðir
Stuðningsmenn Jeltsíns hefja baráttu
fyrir endurkjöri hans
Moskvu. Reuter.
TILKYNNT var um vaxtalækkun í
Rússlandi í gær og ennfremur var
gengi rúblunnar leyft að falla nokkuð
gagnvart dollara. Var þetta ákveðið
eftir fund, sem Borís Jeltsín, forseti
Rússlands, átti með helstu yfirmönn-
um efnahagsmála í landinu en hann
fór fram á Barvíkha-heilsuhælinu
skammt fyrir utan Moskvu. Stuðn-
ingsmenn Jeltsíns hófu í gær baráttu
fyrir endurkjöri hans sem forseta á
næsta ári.
Ákvörðun stjórnar, sem er tilkynnt
aðeins tveimur vikum fyrir kosning-
ar, á að gagnast útflutningsiðnaðin-
um sérstaklega en auk vaxtalækkun-
arinnar voru lækkuð eða felld niður
ýmis útflutningsgjöld. Þá kemur það
útflutningsiðnaðinum einnig vel, að
gengi rúblunnar gagnvart dollara
fær að lækka nokkuð.
Mikið aðhald í peningamálum og
háir vextir hafa verið helsta vopn
stjórnvalda í baráttunni við efna-
hagsóreiðuna og í tilraunum þeirra
til að þoka efnahagslífinu í átt til
þess, sem er á Vesturlöndum.
Háir raunvextir
Kommúnistar og þjóðernissinnar
segja hins vegar, að háir vextir séu
að sliga fyrirtæki í landinu og marg-
ir þeirra krefjast aukinna niður-
greiðslna, verðlagshafta og verndar
fyrir innlend fyrirtæki. Þingkosning-
ar verða í Rússlandi 17. þessa mán-
aðar og samkvæmt skoðanakönnun-
um hafa þessir flokkar verulega
meira fylgi en umbótasinnar.
Svokallaðir endurfjármögnunar-
vextir í Rússlandi eru 170% eða um
14% á mánuði og því næstum þrisvar
sinnum hærri en verðbólgan, sem er
um 4,5% á mánuði. Segja sumir hag-
fræðingar, að þetta séu hæstu raun-
vextir í heimi. Raunar er þessum
vöxtum lítið beitt en þeir eru þó
hafðir til viðmiðunar fyrir aðrar
vaxtaákvarðanir.
Blása í herlúðra fyrir Jeltsín
Vladímír Komatsjatov, sérlegur
fulltrúi Jeltsíns í Moskvu, og stuðn-
ingsmenn forsetans í 25 héruðum
Rússlands hrundu í gær af stað form-
legri baráttu fyrir endurkjöri hans í
forsetakosningunum í júní á næsta
ári. Sagði Komatsjatov, að þótt Jelts-
ín hefði ekki enn ákveðið að bjóða
sig fram, þá tryðu þeir því og treystu,
að hann gerði það.
Komatsjatov gerði lítið úr heilsu-
leysi Jeltsíns. „Það vafðist ekki fyrir
Bandaríkjamönnum að kjósa Roose-
velt þótt hann væri í hjólastól. Það,
sem máli skiptir, er að velja góðan
mann.“ Jeltsín hefur áður lýst yfír,
að hann muni taka af skarið um
forsetaframboð að loknum þingkosn-
ingunum síðar í mánuðinum. Hin
eiginlegu völd í Rússlandi fyigja for-
setaembættinu og margir líta á þing-
kosningarnar aðeins sem æfíngu fyr-
ir forsetakjörið.
Reuter
YIGAL Amir, fyrir miðju, með lögreglumenn á báðar hendur.
Banamaður Yitzhaks Rabins fyrir rétti
„Þið trúið á frið,
egtrúi
Tel Aviv. Reuter.
MORÐINGI YRzhaks Rabins, for-
sætisráðherra ísraels, sagði í gær,
að hann væri enginn ofstækismaður
og hefði framið verknaðinn eftir
vandlega íhugun og án þess að bera
hann undir rabbía.
Yigal Amir, banamaður Rabins,
kom fyrir rétt í Tel Aviv í gær en
að sögn lögreglunnar verður honum,
Hagai Amir, bróður hans, og þriðja
manninum, Dror Adani, líklega birt
ein ákæra vegna morðsins á sunnu-
dag.
„Enginn ofstækismaður“
„Ég er enginn ofstækismaður.
Það, sem ég gerði Rabin, gerði ég
eftir vandlega íhugun og til að vekja
fólk til vitundar um það, sem er að
gerast," sagði Amir. Hefur hann
águð“
áður sagst hafa myrt Rabin vegna
þess, að hann hefði látið Palestínu-
menn fá herteknu svæðin á Vestur-
bakkanum.
Amir neitaði því, að hann hefði
leitað eftir blessun rabbía á morðinu
en lögreglan í Israel hefur handtekið
níu heittrúaða gyðinga vegna þess.
Lögfræðingur Adanis segir, að skjól-
stæðingur sinn sé saklaus af morð-
inu, hann hafi að vísu farið fram á
leyfi rabbía við því en fengið þvert
nei.
Áður en Yigal Amir var leiddur
inn í réttarsalinn í gær ræddi hann
við fréttamenn og sagði, að þeir og
fleiri Israelar væru reiðubúnir að
fórna allri þjóðinni fyrir frið. „Þið
trúið á friðinn, ég trúi á guð,“ sagði
hann.
I