Morgunblaðið - 01.12.1995, Qupperneq 32
32 FÖSTUDAGUR 1. DESEMBER 1995
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Fyrsta sýn-
ing tveggja
myndlist-
armanna
SÝNING tveggja ungra mynd-
listarmanna, þeirra Ásdísar
Sifjar Gunnarsdóttur og Söru
Maríu Skúladóttur, verður
opnuð í Galleríi Geysi, Aðal-
stræti 2, laugardaginn 2. des-
ember kl. 16. Þessi sýning er
jafnframt þeirra fyrsta sýning.
Ásdís Sif sýnir fjögur verk
sem öll eru innsetningar unnar
með blandaðri tækni. Með
myndunum fylgir texti í ljóða-
formi sem leiðir áhorfandann
inn í ævintýraheim sem verkin
síðan túlka.
Sara María sýnir þrjú verk,
rýmisverk sem unnin eru með
blandaðri tækni. Verk þeirra
beggja eru öll unnin á þessu
ári og þær eru jafnframt báðar
við nám á myndlistarbraut í
Fjölbrautaskólanum í Breið-
holti.
Gallerí Geysir er opið alla
virka daga milli 9 og 23 og
um helgar milli 12 og 18. Sýn-
ingin stendur til 7. janúar.
Messíana sýn-
ir í Stöðlakoti
MESSÍANA Tómasdóttir leik-
myndahöfundur opnar mynd-
listarsýningu í Gallerí Stöðla-
koti Iaugardaginn 2. desem-
ber.
I kynningu segir: „Verkin
eru unnin með akríllitum á
japanpappír og plexígler og
mynda til samans innsetning-
una „Til sjöunda regnbogans“,
en sjöundi regnboginn, hvíti
regnboginn, geymir í sér alla
liti litrófsins. Samnefnt tón-
verk, sem lýtur sömu lögmál-
um forms og lita og hin verk-
in, verður flutt af segulbandi
á sýningartíma.”
Sýningin stendurtil 16. des-
ember og verður opin daglega
frá kl. 14-18.
Tundur-
skeyta-
flugsveitin
í bíósal MÍR
NÚ eru tvær kvikmyndir
ósýndar í syrpu þeirri um at-
burði úr síðari heimsstyrjöld-
inni, sem sýnd hefur verið í
bíósal MÍR, Vatnsstíg 10, und-
anfarnar vikur.
Á sunnudaginn verður sýnd
kvikmyndin Tundurskeyta-
flugsveitin, leikin mynd um lið-
sveitir sovétmanna sem börð-
ust gegn Þjóðveijum á norður-
slóðum.
Sýningin hefst kl. 16 og er
aðgangur ókeypis og öllum
heimill.
Sýningu
Gerðar
að ljúka
SÝNINGU Gerðar Berndsen á
vatnslitamyndum í Ráðhúsinu
lýkur þriðjudaginn 5. desem-
ber. Efniviður flestra mynd-
anna er mannslíkaminn. Nær
allar myndirnar eru unnar á
þessu ári.
Einnig er til sýnis og sölu
ævintýrabókin Margt býr í
sjónum sem Gerður samdi og
myndskreytti, en hún er ný-
komin út á vegum Pjölva.
Sýningin er opin daglega frá
kl. 12 til 18.
Karlakór Reykjavíkur og
Drengjakór Laugarneskirkju
Syngja inn jólin
AÐVENTU SÖNGUR Karlakórs
Reykjavíkur verður í Hallgríms-
kirkju laugardaginn 2. desember
og sunnudaginn 3. desmber. Báða
dagana hefjast tónleikarnir kl.
17.00. Ásamt Karlakór Reykjavík-
ur kemur Drengjakór Laugarnes-
kirkju fram á tónleikunum. Syngja
kórarnir hvor fyrir sig og einnig
saman. Með í nokkrum lögum leika
Hörður Áskelsson á orgel Hall-
grímskirkju, Martial Nardeau á
flautu, Ásgeir H. Steingrímsson
og Eiríkur Óm Pálsson á trompet
og Daði Kolbeinsson á óbó.
Á efnisskránni verða þekkt jóla-
lög, madrigalar og andleg lög af
ýmsu tagi, íslensk og erlend. með-
al höfunda má nefna Mozart, Beet-
hoven, Hjálmar H. Ragnars, Þor-
kel Sigurbjörnsson, Pál ísólfsson
og lettneska tónskáldið Andrejs
Juijáns.
Karlakór Reykjavíkur söng að-
ventusöngva í Hallgrímskirkju fyr-
ir tveimur árum og þurfti þá að
endurtaka tónleika vegna mikillar
aðsóknar. Kórinn er nú stærri en
nokkru sinni fyrr, telur yfir 70
söngvara. Hörður Áskelsson
organisti leikur með kórnum á org-
el Hallgrímskirkju og það verður
svo Friðrik S. Kristinsson, aðal-
stjórnandi kóranna beggja, sem
heldur um tónsprotann.
Forsala aðgöngumiða er hjá
kórfélögum og bókabúðum Ey-
mundsson í Kringlunni og Austur-
stræti.
Hádegisleikhús
á Leynibarnum
í BYRJUN desember efnir Leikfé-
lag Reykjavíkur til Hádegisleik-
húss. Boðið verður upp á dagskrá
hvern laugardag milli kl. 11.30-
13.30. í Hádegisleikhúsinu verður
dagskrá af ýmsum toga, þar verð-
ur boðið upp á leikin atriði, upp-
lestur, leiklestra, tónlist og fleira.
Hádegisleikhúsið verður starfrækt
í nýjasta leikrými hússins, Leyni-
barnum. í hádegisleikhúsinu gefst
gestum kostur á að kaupa léttar
veitingar gegn vægu verði. Að-
gangur í Hádegisleikhúsið er hins
vegar ókeypis.
Fyrsta dagskráin verður laugar-
daginn 2. desember nk. Þá verður
boðið upp á dagskrá helgaða verk-
um Einars Kárasonar. Margrét
Ólafsdóttir leikona mun lesa kafla
úr Djöflaeyjunni. Þá mun Tómas
R. Einarsson fjalla um rithöfund-
inn Einar Kárason frá sjónarhóli
lesanda. Flutt verður atriði úr ís-
lensku mafíunni sem frumsýnd
verður 28. desember nk. á Stóra
sviði Borgarleikhússins. Leikritið
er leikgerð af tveimur bókum Ein-
ars, Kvikasilfri og Heimskra
manna ráðum. Leikgerð sömdu
þeir Einar og Kjartan Ragnarsson
sem jafnframt er leikstjóri ís-
lensku mafíunnar eins og Djöfla-
eyjunnar. Kjartan og Einar munu
svo fjalla stuttlega um vinnu sína
við leikgerðina. Tónlist verður
fléttað inn í dagskrána. Óskar
Einarsson mun sjá um undirleik
og hljómsveitin Skárren ekkert
mun flytja nokkur lög. Þetta fyrsta
Hádegisleikhús verður opnað með
því að Dixíband frá Lúðrasveitinni
Svani leikur nokkur lög við inn-
gang Borgarleikhússins.
Leynibarinn, þar sem Hádegis-
leikhúsið er til húsa er nýjasta
leikrými Leikfélags Reykjavíkur í
Borgarleikhúsinu. Leynibarinn er
þar sem áður var Veitingabúð í
kjallara, en innréttingum hefur
verið breytt þannig að hægt sé
að nýta rýmið til leiklistar og flutn-
ings dagskrár.
HANDRIT eftir Verdi verður á uppboði hjá Sotheby’s
Handrit eftir Verdi á
uppboði hjá Sotheby’s
HANDRIT eftir Verdi verður
boðið upp hjá Sotheby’s í Lund-
únum í dag. Handritið fannst
nýlega og er úr óperunni Ot-
hello, „Willow Song“ og „Ave
maria“. Þetta er dýrmætasta
handrit sem hefur verið boðið
upp hjá Sotheby’s, áætlað mat-
verð er 150.000-200.000 pund.
Um er að ræða 19 bls. hand-
rit sem felur í sér upprunalega
útfærslu á „Willow Song“ og
ólíka þeirri útfærslu af „Ave
Maria“ sem nú þekkist. Þetta
er með fegurstu verkum Verdis
og er úr óperunni Othello sem
er byggð á harmleik eftir
Shakespeare. Othello var frum-
flutt á La Scala í Mílano, 5.
febrúar 1887.
Það er ekki vitað hvort Arr-
igo Boito, textahöfundur sem
átti um árabil langt samstarf
með Verdi, vissi um frumútgáfu
tónskáldsins af „Willow Song“.
Hérna er því um nýtt verk að
ræða.
Þetta er viðamesta handrit
sem komið hefur á uppboð eftir
Verdi. Fram til þessa hafa þau
handrit sem hafa verið boðin
upp eftir tónskáldið ekki verið
lengri en fjórar síður.
Sigríður Ingvarsdóttir hjá
Sotheby’s sagði: „Þetta er viða-
mesta handrit eftir Verdi sem
hefur komið á uppboð. Og verð-
ur eflaust mikilvæg heimild
fyrir fræðimenn á sviði tónlist-
ar.“
Á uppboðinu verður einnig
bréf sem Mozart skrifaði föður
sínum árið 1784. Áætlað mats-
verð er 60.000-100.000 pund.
Einnig verða boðin upp bréf frá
tónskáldinu Richard Strauss
sem hann skrifaði fjölskyldu
sinni þegar hann var á ferða-
lagi í Egyptalandi frá 1892-
1893. Áætlað matsverð er
30.000-40.000 pund. Þá verða
boðin upp sex bréf frá 20. aldar
rússneska tónskáldinu, Dimitri
Shostakovich sem hann skrifaði
nemanda sínum Kara Kaaray-
ev. Áætlað matsverð er 20.000
pund. Á uppboðinu verða einnig
bréf frá Antonio Stradivari sem
er eflaust einn mesti fiðlusmið-
ur sem hefur verið uppi. Bréfin
eru skrifuð til óþekkts aðals-
manns, þar sem Stradivari út-
skýrir fyrir honum hvaða lag-
færingar hafa verið verið gerð-
ar á fiðlunni hans og afsakar þá
töfina.
Litróf efnisheimsins
MYNDLIST
Ásmundarsalur
MÁLVERK
Tumi Magnússon.
Opið kl. 14-18 alla daga til 10. des.
Aðgangur ókeypis
EITT veigamesta hráefni list-
sköpunar á myndlistarsviðinu hlýtur
að vera liturinn. Litafræðin byggist
á einföldum grunni, en það hefur
löngum verið styrkur glöggra lista-
manna að ná að laða fram sérstök
litbrigði, hvort sem þau tengjast
hlutveruleikanum eða abstrakt
myndhugsun. Fjölbreytni litatóna er
nánast ótæmandi, og möguleikar
tækninnar tii að framkalla þá eru
sífellt að aukast; eftir sem áður er
það næmi hins mannlega auga lista-
mannsins sem ræður mikilvægi lit-
anna í málverkinu og skapar því líf.
Tumi Magnússon hefur í mörg
ár verið einn drýgsti listamaður okk-
ar á sviði litafræðinnar. Lengst af
voru verk hans tengd táknum hlut-
veruleikans með skemmtilegum
hætti, en síðustu misseri hafa þessi
tengsl vikið og er nú aðeins að finna
í tilvísunum í framandleg efni sem
nefnd eru í titlum verkanna; í mál-
verkunum sjálfum situr eftir sam-
spil lita, sem á stundum hefur verið
afar óvenjulegt — en hefur gengið
upp.
Þessi litvinnsla listamannsins hef-
ur notið vaxandi athygli og nýlega
hlaut hann m.a. sérstök verðlaun á
tvíæringnum í Sao Paulo í Brasilíu,
sem er ein þekktasta reglulega list-
sýningin á alþjóðavettvangi. Er þessi
viðurkenning ótvíræður vitnisburður
um að list Tuma á fullt erindi á hið
alþjóðlega svið, svo_ fleiri fái notið
hennar með okkur íslendingum.
Á þessari sýningu heldur Tumi
áfram að kanna litbrigði furðulegra
efna, en að þessu sinni hefur hann
tekið upp nýja tækni til að koma
olíulitunum til skila: í stað pensla
notar hann „air-brush“ - eða loft-
sprautu á íslensku. I stað heilla lit-
flata sem blandast saman á mörkun-
um eru málverkin nú þakin lausmót-
uðum Iitadeplum, sem virka afar
viðkvæmir, líkt og skófir, sem gætu
skemmst við minnstu hræringu.
Þessi tækni hefur verið þekkt
lengi og er mikið notuð t.d. í auglýs-
ingagerð, en myndlistarmenn hér á
landi hafa (með fáeinum undantekn-
ingum) lengst af verið feimnir við
að nota hana; hér hentar hún afar
vel við að koma fínlegu samspili lit-
anna til skila, einkum í Ijósi þess
hvaðan litirnir koma.
Sem fyrr er uppruna þeirra lita
sem Tumi er að fást við fremur að
finna í hversdagslegum og auvirðu-
legum efnum en í æðri gildum. Hér
eru þessi upprunaefni flokkuð saman
þannig að hver mynd — og það lita-
spil sem þar fer fram — er í raun
helguð ákveðnum þætti tilverunnar:
veðrun og hrörnun (nr. 2 - ryð, kjöt-
mygla, spanskgræna), fyllingum (nr.
4 - viðarfyllir, bílasparsl, amalg-
am), eiturefnum (nr. 6 - flugnaeit-
ur, joð, sæðisdrepandi krem) eða
einföldum reyk (nr. 8 - sígarettu-
reykur, kjötreykur, olíureykur).
Svo undarlega sem þessar sam-
setningar listamannsins virðast við
fyrstu sýn ganga þær ágætlega upp
í hveiju verki fyrir sig. Það er eng-
inn svipur tilviljunar í flötunum,
heldur er eins og það litróf efnis-
heimsins sem þar er að finna passi
einstaklega vel saman, og aðrar
samsetningar kæmu ekki til greina,
hversu undarlega sem það hljómar.
Slík tilfinning er vitni þess að hér
hefur verið vel vandað til verks, og
mikilvægur undirbúningur liggur að
baki þeim málverkum sem virðast
þrátt fyrir allt svo einföld að allri
gerð.
Listunnendur eru hvattir til að
láta þetta nýjasta þrep Tuma í þróun
málverksins ekki fram hjá sér fara.
Eiríkur Þorláksson
Listamaður
mánaðar-
ins hjá
Dægradvöl
LISTA- og menningarfélagið
Dægradvöl stendur fyrir
myndlistarkynningu í Hauks-
húsum á Álftanesi sunnudag-
inn 3. desember frá kl. 15 til
18. Kynntur verður listamað-
ur mánaðarins, Anna Ólafs- f
dóttir Björnsson. Hún sýnir
málverk, grafík og saumuð
verk.
Sýningin verður opin til
föstudagsins 8. desember á
hveijum degi milli kl. 15 og 18.
Bétveir
frestar
heimferð
FURÐULEIKHÚSIÐ verður
með með aukasýningu á
barnaleikritinu „Bétveir"
sunnudaginn 3. desember kl.
15 í Tjarnarbíói.