Morgunblaðið - 01.12.1995, Qupperneq 55
MORGUNBLAÐIÐ
MIIMIMINGAR
FÖSTUDAGUR 1. DESEMBER 1995 55
skoðaði mannlífið en á hinn bóginn
ástríðufullur grúskari sem háði
glímu við merkingu orða í kyrrþey,
fjarri heimsins glaumi.
í hans augum voru ytri tákn lífs-
gæða eftirsókn eftir vindi og það
var honum fjarri skapi að sækjast
eftir vegtyllum. En íslensk bók-
menntasaga mun varðveita nafn
hans.
Tvö verk hafa verið gefin út sem
Daníel þýddi: Sonnettur Shake-
speares komu út 1989 með formála
og eftirmála eftir Daníel sem varp-
ar ljósi á innihald Sonnettanna.
Þetta er í fyrsta sinn sem ljóðabálk-
urinn hefur verið þýddur í heild
sinni á íslensku. Fyrir einu ári komu
svo út Andalúsíuljóð arabískra
skálda. Það er ekki á allra færi að
þýða fornan texta, auk þess bundið
mál, og því mikilvægt að skáldleg
andagift, hrynjandi og hljómfall
komist til skila í þýðingunni. Þetta
tókst Daníel snilldarvel.
Ég læt hugann reika aftur til
ársins 1969 síðsurnars þegar við
hjónin dvöldum í Árgerði í nokkra
daga. Náttúran skartaði sínu feg-
ursta. Daníel taldi ekki eftir sér að
aka þremur kvinnum í beijamó dag
eftir dag. Þær voru, auk mín, Dýr-
leif og Margrét, systir hennar
(tengdamóðir mín). Aðaibláberin í
Svarfaðardal eru stærri og blárri
en annars staðar. Við þurftum því
lítið að færa okkur úr stað, slík var
beijamergðin.
En einn dýrðardaginn skall á
stormur með siydduhríð. Ég varð
fljótlega gegndrepa og ísköld en
ákvað að harka af mér. Ég taldi
víst að brátt tækju þær systur að
bera sig illa en sú varð ekki raunin
og héldu þær áfram að tína eins
og ekkert hefði í skorist. (Þingeyska
seiglan.) Til alirar hamingju tóku
þær eftir því um síðir að borgar-
mærin var að krókna úr kulda. Þá
dró Dýrleif upp talstöðina í snar-
hasti, kallaði í lækninn og bað hann
að koma í skyndi. Meðan við biðum
í skjóli við skúrvegg héldu þær í
mér lífinu með því að syngja og
segja sögur. Allar hlógum við dátt.
Og ekki leið á löngu þar til Daníel
kom á „Bláma“ sínum og bjargaði
okkur. Síðan heitt bað og tár út í
kaffið samkvæmt læknisráði. Ein
af mörgum minningum úr Árgerði
sem yljar.
Reiptogið við Elli kerlingu er um
garð gengið. Daníel og Dýrleif hafa
sameinast á ný á hinum eilífu beija-
lendum.
Við Gunnar (sem er fjarstaddur)
vottum börnum Daníels og fjöl-
skyldum þeirra okkar dýpstu sam-
úð.
Að leiðarlokum þökkum við vin-
áttu öðlingshjóna, Dýrleifar og
Daníels.
Lillý Guðbjörnsdóttir.
Meðan læknaskipti hafa verið tíð
í flestum læknishéruðum landsins
hafa Dalvíkingar og nágrannar
þeirra átt því láni að fagna að að-
eins fjórir læknar þjónuðu héraðinu
frá 1908-1982. Daníel Á. Daníels-
son var þar læknir frá 1944-1972
Nýkomin:
Skinnefni
Vatteruð spariefni
Rósótt flúnel
Stór tölusending
Ný fatamerki
Dragtaefni
Samkvæmisefni
Fínt flauel o.fl., o.fl.
Qsvirka
MÖRKINNI3
'y V.ý (VIÐ SUÐURLANDSBRAUT)
SÍMI 568 7477
BARNAHLJÓMLISTINA
færð þú hjá okkur
ÞUMALÍNA
Pósthússtræti 13 - Sími 5512136
3 dyra HYUNDAI ACCENT vw GOLF TOYOTA COROLLA NISSAN ALMERA
Rúmtak vélar 1341 cc , 1391 cc 1331 cc 1400 cc
Hestöfl 84 60 75 87
Lengd/Breidd cm 410/162 402/169 409/168 412/169
Farangursrými lítr. 380 370 309 340
Útvarp + segulb. Innifalib Innifalið Ekki innifalið Ekki innifalið
Þyngd 960 1075 1050 1035
Verð : 1.019.000 1.197.000 1.134.000 1.248.000
HYUNDAIACCENT
84 hestöfl með beinni innspýtingu,
vökvastýri, vönduðum hljómflutningstækjum,
samlitum stuðurum
og lituðu gleri.
eða í 28 ár, og vann reyndar áfram
í afleysingum og veikindaforföllum
í mörg ár til.
Daníel kemur til Dalvíkur frá
Siglufirði. Hann bjó alla tíð í Ár-
gerði rétt sunnan við Dalvík með
konu sinni Dýrleifu Friðriksdóttur.
Hann lét byggja gamla læknasetrið
að nýju árin 1944-49, og er það
með glæsilegustu húsum í héraðinu
og þó víðar væri leitað.
Daníel vann sín störf við aðstæð-
ur sem okkur þættu í dag frum-
stæðar, alla vega framandi. Hann
fékkst við vandamál sem okkur
væri nú ofviða að leysa úr hér i
héraðinu: botnlangaskurðir í eter-
svæfingu, erfiðar fæðingar, nára-
kviðslitsaðgerð með sjúklinginn
liggjandi á hurð sem hafði verið
tekin af hjörum, o.s.frv. Hann fór
oft langar og strangar ferðir um
héraðið í ófærð, stundum á skíðum
eða á hestbaki, og jafnvel ferðir þar
sem fylgdarmaður og hestur voru
leystir af í þrígang. Sterkir menn
þessir gömlu héraðslæknar, engir
sporgöngumenn þar.
Á öllum læknisferli Daníels tók
hann sér frí eina einustu viku, og
var það á Siglufjarðarárunum.
Reyndar kvaðst hánn hafa reynt
að fá einnar viku frí við annað til-
felli, en þá hefði Vilmundur land-
læknir sagt við sig að ómögulegt
væri að útvega afleysingarlækni því
það væri læknislaust í fjórum hér-
uðum, „og hvað hefur þú svo sem
við frí að gera, þú mundir bara
vera fullur í viku“. Já, honum fannst
við læknamir í dag hafa það ansi
náðugt með öll þessi tæki, heilsu-
gæslustöð og fjölda aðstoðarfólks,
og öll þessi frí.
Eftir að hann lét af læknisstörf-
um settist hann ekki í helgan stein
heldur hélt áfram að þýða Sonnett-
ur Shakespeares af miklum krafti
og gaf þýðingar sínar út. Ekki er
lengra en ár síðan að hann gaf út
þýðingar sínar á ljóðum arabískra
skálda, „Andalúsíuljóð".
Bókmenntirnar voru hans
ástríða. Hann hafði gaman af að
tala um íjarlæg lönd og fjarlæga
tíma og ferðaðist langt með hjálp
bókmenntanna þótt hann færi aldr-
ei langt frá Árgerði. Síðustu árin
var honum Andalúsía máratímabils-
ins sérstaklega hugleikin, gat hann
þannig auðveldlega lýst landi þar
sem hann hafði aldrei komið.
Við sem störfum á Heilsugæslu-
stöðinni höfðum töluverð samskipti
við Daníel, hann hafði lúmskt gam-
an af því að ögra okkur með sögum
sínum úr „praxísnum", án þess þó
að. hann væri að gorta, hann ein-
faldlega lýsti atburðum eins og
voru. Hann spurði jafnframt í þaula
um það nýjasta í læknisfræðinni,
og var vel með á nótunum, enda las
hann læknablöðin ítarlega.
Eftir að Dýrleif lést fyrir rúmu
ári var sem drægi úr lífsþróttinum
þó svo að hann hætti aldrei að njóta
bókmenntanna.
Daníel, við kveðjum þig nú og
þökkum dygga þjónustu við læknis-
héraðið. Megið þið Dýrleif hvíla
saman í friði.
Fyrir hönd starfsfólks Heilsu-
gæslustöðvarinnar á Dalvík.
Þórir V. Þórisson, yfirlæknir.
ÁRMÚLA 13 • SÍMI: 568 1200
BEINN SÍMI: 553 1236
Aukabúnaður á mynd,
állelgur og vindskeið.