Morgunblaðið - 01.12.1995, Qupperneq 76

Morgunblaðið - 01.12.1995, Qupperneq 76
Jiem£d -setur brag á sérhvern dag! MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN I, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL(SCENTRUM.1S / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85 FÖSTUDAGUR 1. DESEMBER 1995 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Spákaup- mennska hækkar fóðurverð Launanefnd ASI og VSI telur forsendur kjarasamninga halda Morgunblaðið/Kristinn FORMENN lands- og svæðasambanda ASÍ á fundi í gær áður en launanefnd ASÍ og VSÍ kom saman og gekk endanlega frá samkomulagi. Jólauppbót hækkí í 20.000 nú og 24.000 á næsta ári Meðallaunahækkun félaga í Alþýðu- sambandi íslands nemur 1,1% I^AUNANEFND Alþýðusambands íslands og Vinnuveitendasam- bandsins komst í gær að þeirri nið- urstöðu að ekki væru marktæk frá- vik frá forsendum kjarasamning- anna, sem gerðir voru í febrúar síð- astliðnum. 15.000 ASÍ-félagar hækka ekki Jafnframt ákvað nefndin að leggja til breytingu á kjarasamning- *" um á almennum markaði sem voru gerðir á bilinu 21. febrúar tit 5. apríl, þannig að jólauppbót sam- kvæmt samningunum hækki úr 13.000 krónum í 20.000 nú í desem- ber. Desemberuppbót næsta árs hækki úr 15.000 krónum í 24.000. Með þessu telur ASÍ að meðallaun félagsmanna hækki um 1,1%. í niðurstöðu launanefndarinnar kemur hins vegar fram að þeir, sem njóti nú þegar sérstakra greiðslna í desember, sem séu hærri en 20.000, fái ekki hækkun. Þetta á t.d. við um flest ASÍ-fólk sem starf- ar hjá ríki og sveitarfélögum og starfsmenn ýmissa stórfyrirtækja, alls um 15.000 manns. Desemberuppbót iðnnema er jafnframt hækkuð í 13.000 krónur á þessu ári og 15.000 á næsta ári. í niðurstöðu launanefndarinnar kemur fram að sú fullyrðing ASÍ sé rétt að samningar þeirra hópa, sem sömdu eftir að febrúarsamn- ingamir höfðu verið gerðir, einkum opinberra starfsmanna, hafi falið í sér meiri hækkanir. Fram kemur að þótt samningarnir skuldbindi ekki vinnuveitendur til viðbragða vegna þessa telji samtök þeirra mikils virði að tryggja stöðugleika á vinnumarkaði og vilji viðhalda trausti og auðvelda undirbúning næstu samninga. 800 milljóna hækkun Vinnuveitendur hækkuðu tilboð sitt í gær og telja að boð sitt um hækkun desemberuppbótar þýði 800 milljóna króna hækkun iauna- kostnaðar á samningstímabilinu. Fram kemur í niðurstöðu launa- nefndarinnar að yfirlýsing ríkis- stjórnarinnar um aðgerðir vegna kjaramála hafi greitt fyrir sam- komulagi. Nefndin telur að í ljósi fyrirheita um að verð grænmetis, eggja, kjúklinga og svínakjöts hækki ekki, megi vænta þess að kaupmáttur aukist á næsta ári. Tillagan um breytingu á kjara- samningnum fer nú til umfjöllunar í aðildarfélögum ASÍ. Hafí vinnu- veitendum ekki borizt synjun á til- lögunni fyrir 8. des., skoðast hún samþykkt. Hækkun desemberupp- bótarinnar gildir frá deginum í dag. ■ Niðurstaða/6/10/38/39 VERÐ á skepnufóðri hefur hækkað um 7-8% í haust. Ástæðan er mikil hækkun á innfluttu korni en einnig hækkun á verði fiskimjöls. Gunnar Jóhannsson, framkvæmdastjóri Fóðurblöndunnar hf., segir að þrátt fyrir þessa hækkun sé fóðurverð lægra en fýrir þremur árum. Vegna minni uppskeru hefur heimsmarkaðsverð á korni hækkað mikið. Hækkunin er misjöfn milli tegunda og hefur bygg, sem mikið hefur verið notað hér, hækkað mik- ið. Dæmi er um allt að tvöföldun í verði. Tímabundin sveifla Gunnar Jóhannsson segir að Fóð- urblandan hafi mætt verðbreyting- um að hluta með því að beina við- skiptum sínum meira til Bandaríkj- anna í stað Evrópu og minnka hlut byggsins í fóðurblöndum sínum. Hann segir að verð á innlendum fóðurblöndum hefði þurft að hækka meira en um 7-8% vegna hækkunar hráefnisverðs en Fóðurblandan hefði ákveðið að bíða og sjá til hvort þetta væri ekki tímabundin sveifla sem jafnaðist út á næstu mánuðum. Einokun ÁTVR afnumin NÝ lög um innflutning og heildsöludreifingu áfengis taka gildi í dag, en með þeim er 75 ára einokun ÁTVR á þessu sviði afnumin. Jón Ás- björnsson formaður Félags ís- lenskra stórkaupmanna segir daginn marka tímamót í sögu íslenskrar verslunar. Frá og með 1. desember mega allir heildsalar sem hafa til þess tilskilin leyfi flytja inn og dreifa áfengi til veitinga- húsa og þeirra verslana sem hafa leyfi til smásölu, en það eru eingöngu verslanir ÁTVR. Jón kveðst þeirrar skoðun- ar, að næsta skref í áfengis- málum verði að heimila einka- aðilum að reka smásöluverslun með áfengi. ■ Frelsi í smásölunni/16 Stærstu félög innan VMSÍ sögðu upp samningum TUTTUGU og þijú félög innan Verkamanna- sambands Islands sögðu upp samningum þrátt fyrir að samkomulag tækist innan launanefndar ÁSÍ og vinnuveitenda um framlengingu kjara- samninga. Innan raða þessara félaga eru um 22.000 launþegar eða um þriðjungur félags- manna ASÍ. Björn Grétar Sveinsson, formaður VMSÍ, segir þetta sýna að megn óánægja sé með þá þróun sem orðið hafi í launamálum síð- an að febrúarsamningarnir voru gerðir. Björn Grétar tók ekki þátt í afgreiðslu launa- nefndar í gær. í yfirlýsingu sem hann lagði fram í nefndinni segir að þær leiðréttingar sem launa- nefndin hafi náð samkomulagi um séu víðsfjarri því að duga til að jafna þann mun sem sé á febrúarsamningunum og samningum þeirra sem sömdu síðar. Ríkisstjórnin hafi haft forystu um að bijóta á bak aftur þá jafnlaunastefnu, sem mörkuð var í febrúar, sem hafi verið mikilvæg- asta forsenda samninganna. Öll stærstu Verkamannasambandsfélögin á Samkomulagið víðs fjarri því að jafna launamuninn, segir formaður VMSI Suðvesturlandi og Eining, stærsta verkalýðsfé- Iagið á Norðurlandi, sögðu upp samningum. Megn óánægja Sigurður T. Sigurðsson, formaður Hlífar, sagði að ríkisstjórnin væri búin að selja verka- lýðshréyfingunni sama pakkann tvisvar, fyrst í febrúar og aftur nú. Kristján Gunnarsson, for- maður Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur tók undir þetta og sagði greinilegt að klofningur væri milli forystu ASÍ og forystu VMSÍ. Jón Kjartansson, formaður Vérkalýðsfélags Vest- mannaeyja, sagði niðurstöðu launanefndar dap- urlega. Stjórnvöld og atvinnurekendur hefðu sýnt verkalýðshreyfingunni lítilsvirðingu. Þórarinn V. Þórarinsson, framkvæmdastjóri VSÍ, sagðist vonast eftir að félögin endurskoð- uðu afstöðu sína og drægju uppsagnirnar til baka. Félögin hefðu tekið ákvarðanir sínar áður en lokatilboð vinnuveitenda var lagt fram. Benedikt Davíðsson, forseti ASI, viðurkenndi að ágreiningurinn innan launanefndarinnar væri visst áfall fyrir ASÍ. Það færi ekki á milli mála að mikil óánægja væri innan ASÍ með þróun launamála og hún yrði áfram til staðar þrátt fyrir samkomulag launanefndar. Unnið yrði að því á næstu mánuðum að sameina verkalýðs- hreyfinguna um að beita því afli sem hún byggi yfir til að skapa íslensku launafólki kjör og vinnu- aðstæður í samræmi við það sem væri í þeim löndum sem við vildum helst bera okkur saman við._ Á fundi í stjórn Iðju, félags verksmiðjufólks, var samþykkt með 5 atkvæðum gegn 3 að segja samningum ekki upp. Tveir sátu hjá. Starfs- mannafélag ríkisstofnana samþykkti hins vegar uppsögn samninga, eitt aðildarfélaga BSRB.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.