Morgunblaðið - 28.12.1995, Side 4
4 FIMMTUDAGUR 28. DESEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Hjálparstofnun kirkjunnar
3.000 njóta að-
stoðar umjólin
UM 900 umsóknir um aðstoð bár-
ust Hjálparstofnun kirkjunnar fyrir
jólin. Aðstoðin felst í matarpökkum
sem innihalda m.a. kjötmeti, ávexti,
kartöflur, kaffi og mjólkurafurðir.
Einnig fékk stofnunin jólatré gefins
og gengu þau öll út. Umsóknir í
ár eru ekki fleiri en í fyrra að sögn
Jónasar Þórissonar framkvæmda-
stjóra Hjálparstofnunarinnar.
„Við gátum hjálpað öllum sem
leituðu til okkar í ár og munar þar
mikið um kjötið sem við fengum
frá bændasamtökunum en það er
alltaf það dýrasta í pökkunum. Við
erum búin að afgreiða um 800 af
þeim umsóknum sem bárust. Ég
býst við að þeir sem eftir eru komi
milli jóla og nýárs. Ég gæti trúað
að gjafirnar nýtist allt að 3.000
manns. Þetta er mjög breiður hóp-
ur og ekki nein ein ástæða fyrir
því að leitað er eftir aðstoð. Sumir
eru til dæmis að leita sér stundar-
aðstoðar en aðrir eru á lágmarks
atvinnuleysis- eða örorkubótum og
ráða ekkert við að gera sér glaðan
dag. Sá hópur er nokkuð stór,“
sagði Jónas.
Hjálparstofnunin er einnig með
dreifingarstöð á Akureyri og þar
voru um 30 umsóknir afgreiddar.
Ortröð hjá Mæðrastyrksnefnd
Hjá Mæðrastyrksnefnd fengust
þær upplýsingar að mikil örtröð
hefði verið hjá þeim á föstudag
fyrir jól og biðraðir langt út úr
dyrum en engar tölur um fjölda
þeirra, sem til néfndarinnar leituðu,
liggja fyrir. Óvenjulítið fékkst af
framlögum til nefndarinnar í ár og
sérstaklega lítið var um peninga-
gjafir. Til nefndarinnar leita mest-
megnis einstæðar mæður og frá-
skyldar konur og að sögn Unnar
Jónasardóttur, formanns hennar,
hefur aðsóknin sjaldan verið þvílík.
„Það er svo margt sem kemur upp
á og fólk virðist ekki geta Iifað af
því sem það hefur. Við létum alla
hafa mat og matarmiða sem við
kaupum í Hagkaup og Bónus og
það kerfí hefur gefíst vel. Einnig
er ýmislegur glaðningur annar sem
okkur er gefínn, og við gefum fólki,
eins og kerti og spil t.d.,“ sagði
Unnur.
Andlát
HILMAR FENGER
HILMAR Fenger,
stórkaupmaður, lézt á
Landspítalanum á
Þorláksmessu, 76 ára
að aldri.
Hilmar var fæddur
í Reykjavík 29. sept-
ember 1919, sonur
hjónanna Johns Feng-
er, aðalræðismanns
og stórkaupmanns, og
Kristjönu Fenger.
Hilmar lauk prófi frá
Verzlunarskóla ís-
lands 1938 og stund-
aði verzlunarnám í
Berlín 1938-39.
Hilmar gegndi ýmsum störfum
við Heildverzlun Nathan og Olsen
hf. í Reykjavík og var fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins
1958-89. Þá stýrði hann innkaupa-
skrifstofu fyrirtækisins í New
York 1942-46.
Hann var kosinn í stjóm Toll-
vörugeymslunnar hf. við stofnun
fyrirtækisins og sat þar um all-
mörg ár, um nokkurt skeið sem
formaður. Þá var hann ritari í
stjóm Félags íslenzkra stórkaup-
manna 1959-62, varaformaður
1962- 63 og formaður félagsins
1963- 67. Hilmar var kjörinn heið-
ursfélagi FÍS. Hann
sat í stjóm Amerísk-
íslenzka verzlunar-
ráðsins frá stofnun
þess og til dauðadags.
Hann > var endur-
skoðandi Verzlunar-
bankans um árabil og
í varastjóm Verzlun-
arbankans og síðar
Eignarhaldsfélags
Verzlunarbankans.
Hilmar Fenger
gegndi ýmsum öðrum
trúnaðarstörfum,
t.a.m. fyrir skáta-
hreyfinguna, Rotary
og Det Danske Selskab, þar sem
hann var formaður um allmörg
ár. Þá var hann ræðismaður Kýp-
ur um árabil. Hann sat um tíma
í stjórn Verzlunarráðs íslands og
í stjórn Verzlunarskólans, þar af
í nokkur ár sem formaður. Hann
sat lengi í stjórn Félags sjálfstæð-
ismanna í Nes- og Melahverfí, um
tíma sem formaður. Hann hlaut
fálkaorðuna 1964 og Dannebrog-
orðuna 1973.
Eftirlifandi eiginkona Hilmars
er Borghildur Björg Fenger. Synir
þeirra em John og Vilhjálmur.
Morgunblaðið/Pétur Kristjánsson
Miklar skemmdir í bruna í Reykhúsinu hf. á Seyðisfirði
Vélar og vörur brunnu
ELDSVOÐI varð á Seyðisfirði aðfara-
nótt jóladags. Rétt fyrir klukkan tvö
um nóttina var tilkynnt um eld í svo-
kölluðu Liverpoolshúsi þar sem Reyk-
húsið hf. er til húsa. Það var íbúi hand-
an götunnar sem tilkynnti um eldinn
og hafði rafmagn farið af húsinu þar
vegna eldsins. Þegar slökkviliðið kom
á staðinn var efri hæð hússins alelda
og farið að loga mikið upp úr hluta
þaksins. Húsið stendur nálægt sjó og
reyndist auðvelt að komast í vatn, þó
hið mikla frost ylli smávægilegum erf-
iðleikum. Slökkviliðinu tókst að ráða
niðurlögum eldsins á rúmlega klukku-
tíma. Verið er að rannsaka upptök
eldsins og niðurstöður ekki fengnar,
en flest bendir til þess að kviknað hafí
í út frá olíukyndingu.
. Ljóst er að miklar skemmdir hafa
orðið á húsinu, sem og vélbúnaði,
innanstokksmunum og framleiðslu-
vörum Reykhússins hf. Ekki er komið
í ljós hversu mikið af saltfíski sem
var í húsinu er ónýtur, en reyktar
afurðir og frosin ýsa sem var í frysti-
gámum við húsið virðast hafa sloppið
við skemmdir. Þrátt fyrir þetta er
víst að tjónið nemur milljónum og
gæti jafnvel hlaupið á tugum millj-
óna. Akvörðun hefur ekki verið tekið
um áframhaldandi starfsemi Reyk-
hússins þar sem 3-4 menn vinna að
jafnaði.
Þá er ekki síst eftirsjá að húsinu
ef svo færi að það yrði dæmt ónýtt,
því það er eitt af elstu húsum bæjar-
ins. Að stofni til er það talið vera frá
um 1880.
Staðan ef flugumf er ðar stj ór ar hætta störfum um áramót
Áfram veitt þjónusta
við innanlandsflug
ÞORGEIR Pálsson flugmálastjóri
segir að innanlandsflug verði með
svipuðum hætti og verið hefur þó
flugumferðarstjórar leggi niður störf
um áramót. Hann segir að hvorki
Félag íslenskra atvinnuflugmanna
né Alþjóðasamband flugmanna (IF-
ALPA) hafí sent Flugmálastjóm at-
hugasemdir við viðbúnaðaráætlun
stofnunarinnar.
Þorgeir segir að Flugmálastjóm
hafí veitt FÍA og IFALPA ítarlegar
upplýsingar um viðbúnaðaráætlun
stofnunarinnar, en til hennar kann
að þurfa að grípa um áramót ef 82
flugumferðarstjórar hætta störfum.
Hann segir að hvorugur þessara að-
ila hafí sent Flugmálastjórn athuga-
semdir. Fulltrúar FÍA hafí þó lýst
almennum áhyggjum á fundi með
Flugmálastjórn 19. desember sl.
Þorgeir segir fréttir um að Al-
þjóðasamband flugmanna hafi haft
samband við Alþjóðaflugmálastofn-
unina (ICAO) vegna viðbúnaðaráætl-
unarinnar vera úr lausu lofti gripn-
ar. Alþjóðaflugmálastofnunin og yf-
irmenn flugstjórnarmiðstöðvar á N-
Atlantshafí hafi farið yfír áætlunina
og samþykkt hana.
6-7 blindflug á sólarhring
Þorgeir segir í sambandi við full-
yrðingar um að innanlandsflugið
muni raskast vegna þess að í stað
flugstjómarþjónustu verði aðeins veitt
flugupplýsingaþjónusta yfír íslandi sé
rétt að hafa í huga að aðeins séu 6-7
bindflug að jafnaði á sólarhring í inn-
anlandsflugi yfír íslandi. Það sé
grundvallarregla í flugi að flugstjóri
beri ætíð ábyrgð á öryggi loftfars
síns, þar með talið að tryggja aðskiln-
að þess frá öðrum loftförum, hver svo
sem þjónustan sé frá hendi flugum-
ferðarþjónustunnar.
Flugmenn í innanlandsflugi muni
sem fyrr fá allar sömu upplýsingar
um flugumferð. Flugmálastjórn muni
halda uppi eftirliti með flugumferð
yfir Islandi með ratsjá. Þorgeir segir
að þess vegna sé af og frá að halda
því fram að flugmenn muni ekki fá
jafngóðar upplýsingar um flugum-
ferð eins og þeir hafa núna.
Þorgeir bendir á að flugupplýs-
ingaþjónusta sé alls ekki ný af nál-
inni á íslandi. islenskir flugmenn
noti slíka þjónustu á ísafjarðar- og
Egilsstaðaflugvelli sem og öðrum
áætlunarflugvöllum landsins, nema í
Reykjavík, á Akureyri og í Vest-
mannaeyjum. í viðbúnaðaráætlun
Flugmálastjórnar sé því verið að
færa þessa þjónustu yfir allt landið.
Þorgeir bendir ennfremur á að ís-
lénskir flugmenn þekki flugupplýs-
ingaþjónustu víða í störfum sínum
utan íslands.
Frost fór í 32,3° C á
Möðrudal á Fjöllum
MJÖG kalt hefur verið á Norðausturlandi
undanfama daga og fór frost í 32,3° C í
fyrradag á Möðrudal á Fjöllum. Vilhjálmur
Vemharðsson sagði að ábúendur á Möðrud-
al létu frostið ekki á sig fá. Vindur væri
hægur og því væri auðvelt að búa við frost-
ið. Gert er ráð fyrir því að mikið frost verði
áfram um norðanvert landið næstu daga.
Það er algengt að frost fari vel niður
fyrir 20° á Möðmdal á FjöMum á vetuma.
Vilhjálmur sagði að þetta væri hins vegar
óvenjulegur kuldakafli að því leyti að þetta
mikla frost væri stöðugt allan sólarhring-
inn. Frá 20. desember hefði frost ekki verið
undir 24° C og síðustu þijá daga hefði það
ekki farið niður fyrir 27° C.
Vatn látið renna
„Við höfum haft það ágætt undanfarna
daga, bæði menn og skepnur, þrátt fyrir
frostið. Þetta er allt í lagi meðan það er
logn eins og verið hefur. Kuldinn fer hins
vegar að bíta mjög mikið um leið og fer
að hreyfa vind,“ sagði Vilhjálmur.
Vilhjálmur sagði að vatn hefði verið látið
renna úr krönum allan sólarhringinn síðustu
daga. Þetta væri gert til að koma í veg
fyrir að það frysi í vatnsleiðslum.
Frostið 30-33° í Bárðardal
Frostið á Möðrudal á Fjöllum í gær var
að jafnaði um 29° C. í fyrradag fór frostið
niður í 32,3° C. Það er mesta frost síðan
1988, en þá fór það niður í 32,5° C.
Samkvæmt mælingum Veðurstofunnar
var frost í Bárðardal mest 30° C og á Gríms-
stöðum á Pjöllum mældist tæplega 29° C
frost, sem er mesta frost sem þar hefur
mælst í 30 ár. Þrátt fyrir mikið frost á
þessum slóðum var ekki nema 11° C frost
á Hveravöllum.
Tryggvi Harðarson, bóndi í Svartárkoti í
Bárðardal, segir að frost hafí farið þar um
tíma niður í 33® á jóladagskvöld og á annan
í jólum hafí mælirinn einnig „rokkað í kring-
um 30°“.
„Það er búið að vera ágætisfrost hér
undanfarið," sagði Tryggvi. „Hins vegar er
hér mun minna frost í dag (í gær) eða inn-
an við 20°. “
Tryggvi segir að oft áður hafí orðið svona
mikið frost í Bárðardalnum en hins vegar
séu nokkur ár síðan það gerðist síðast. „Hér
er blæjalogn og hálfgert meginlandsloftslag
og þetta mikla frost hefur ekki gert okkur
nokkuð til. Þó varð að sleppa messu í Lundar-
brekku á annan í jólum og bamasamkomu,
þar sem menn áttu í vandræðum með að
koma bflum sínum í gang,“ sagði Tryggvi.
Haraldur Eiríksson veðurfræðingur sagði
að ástæðan fyrir þessum frosthörkum væri
veikur hæðarhryggur yfir landinu og kulda-
hæð yfir Norðausturlandi. „Það hefur verið
hægur vindur og léttskýjað þannig að það
hefur verið mikil útgeislun. Við þessar að-
stæður kólnar mjög mikið niður við jörð.“
Haraldur sagði að búast mætti við áfram-
haldandi frosthörkum á norðaustanverðu
landinu næstu daga. Þó væri ólíklegt að það
yrði jafmikið og það hefði verið síðustu daga.