Morgunblaðið - 28.12.1995, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 28. DESEMBER 1995 29
AÐSEIMDAR GREINAR
Ný stjórn,
ný Dagsbrún
ALVEG er það nú
með ólíkindum hvað
núverandi formaður
Dagsbrúnar heldur að
hægt sé að blekkja
hinn almenna félags-
mann í Dagsbrún. Til-
kynning hans um að
nú sé mál að hætta,
sem birtist í fjölmiðlum
nýverið, er hlægilegur
skrípaleikur. Að segj-
ast hafa verið löngu
hættur ef ekki væri
órói í félaginu, þetta
var kallað að flýja
sökkvandi skip í minni
sveit. Eftir að hafa
fengið ótal tækifæri til
Friðrik
Ragnarsson
að efla félagið innan frá á liðnum
árum er viðskilnaðurinn ekki glæsi-
legur, upplausn í stjórn, félagið á
leið inn í óvissa framtíð með stein-
atdarhugsunarhátt, gríðarleg
óánægja með stjórnina. Þeir menn
sem eiga að taka við af honum eru
ekki fýsilegur kostur, formannsefni
á leið á eftirlaun og afgangurinn
sauðtryggir meðreiðarsveinar, sem
ekki eru líklegir til stórafreka, nei
frekar treysti eg Mikka mús til að
leysa vandann. Ný og sterk stjórn
er það sem VMF-Dagsbrún þarfn-
ast, nýtt blóð, nýir menn sem koma
með ferskann og nútímalegan hugs-
unarhátt inn í forystuna, ferskan
vind sem blæs nýju lífi í íslenska
verkalýðsbaráttu og færir félagið á
öruggan hátt inn í 21 öldina. Það
er bráðnauðsynlegt að endurskoða
baráttuaðferðir Dagsbrúnar gegn
VSÍ. Við viljum efla vinnustaðaeft-
irlit, opna félagið meira, t.d auka
upplýsingastreymi til félagsmanna
um réttindi þeirra. Það
er alltof algengt að
Dagsbrúnarfélagar viti
ekki um einföldustu
réttindi sín, svo sem
að geta sótt um fæð-
ingarstyrk frá félag-
inu, sem er ca 15-
18.000 þúsund krónur.
Breyta þarf steinrunnu
kosningakerfi, stofna
deildir starfsgreina,
sem færu sjálfar með
sín samningsmál, þ.e
kosið sjálfar um sín
mál í stað þess að taka
þátt í lottóinu í Bíó-
borginni. Félagsmenn
geti kosið formann og
varaformann beinni kosningu, einn-
ig þarf að endurskoða lög og fund-
arsköp Dagsbrúnar, þeim var síðast
breytt 1958. Ennfremur þarf að
endurskoða hlutverk trúnaðarráðs,
það verður að efla skilvirkni þess
og velja inn menn með félagslega
vitund en ekki jábræðui' sem drekka
kaffi og maula jólakökur einu sinni
Ný og sterk stjórn er
það sem Dagsbrún
þarfnast, segir Friðrik
Ragnarsson, sem telur
breytinga þörf.
í mánuði og segja ekki orð allt
kvöldið. Það verður einnig að af-
nema listakosningu, þar sem slíkt
fyrirkomulag er óhentugt. Þörfin á
að aðskilja stjórn og trúnaðarráð
er orðin brýn. Ekki verði kosið í
trúnaðarráð heldur verði valið í það
úr deildunum. Nýtt framboð ætlar
sér einnig að endurskoða alla sér-
samninga Dagsbrúnar og láta fara
fram gagngera endurskoðun á
skrifstofurekstri félagsins. Einnig
mætti athuga að ráða fram-
kvæmdastjóra, en slíkt gæti
hugsanlega reynst vel. Allt eru
þetta hlutir sem meðreiðarsvein-
ar Halldórs Björnssonar, erfða-
prins jakans, hafa engan vilja
til að framkvæma, það sýna best
viðbrögðin við hugmyndum um
lagabreytingar og deildaskipt-
ingu á undanförnum árum. Þeir
vilja viðhalda úreltu samtrygg-
ingarkerfi fortíðarinnar.
Höfundur er Dagsbrúnarmaður
og kosningastjóri lista til nýrrar
stjórnar.
IÐNAÐARHURÐIR - BILSKURSHURÐIR
ÞAK- OG VEGGSTÁL
/5
ÍSVAlrfiORGA
HÖFÐABAKKA9 -112 REYKJAVÍK - SIMI: 587 8750 - FAX: 587 8751
BOSCH
Handverkfæpi
fagmannsins eru góð!
Nú uppfyllir iðnaðarmaðurinn áramótaheit sitt
-og endurnýjar gömlu græjurnar!
BOSCH umboöiö aökeyrsla frá Háaleitisbraut
BRÆÐURNIR
DIokmssonhf
Lágmúla 9 • Sími: 553 8820 • Fax: 568 8807
Söluaðilar:
Málningarþjónustan, Akranesi (Handverkfæri). GH verkstæðið Borgarnesi (Bílavara-
hlutir og fl). Póllinn, ísafirði (Handverkfæri). KEA, Akureyri (Handverkfæri og fl).
Þórshamar, Akureyri (Bílavarahlutir og fl). KÞ Húsavík (Handverkfæri og b(lavarahlutir).
Víkingur, Egilsstöðum (Handverkfæri, bilavarahlutir og (hlutir).Vélsmiðja Hornafjarðar,
Hornafiröi (Handverkfæri, bílavarahlutir og fl). Byggingavörur Steinars Árnasonar hf.,
Selfossi (Handverkfæri).
■
Með því að kaupa flugelda af Hjálparsveit skáta í Reykjavík
styrkirðu björgunarstarf sem getur skipt sköpum á neyðarstund.
%
fkKjpN''
Hjálparsveit skáta í Reykjavík