Morgunblaðið - 15.02.1996, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 15.02.1996, Qupperneq 1
88 SÍÐUR B/C/D 38. TBL. 84. ÁRG. FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Tyrkland Afram viðræður Ankara. Rcutcr. MESUT Yilmaz, leiðtogi Móður- landsflokksins, sem fer nú með stjórnarmyndunarumboð í Tyrklandi, ákvað í gær að halda áfram viðræð- um við Velferðarflokkinn, flokk heit- trúaðra múhameðstrúarmanna, eftir fund með Necmettin Erbakan, leið- toga flokksins. Kosið var í Tyrklandi 24. desem- ber á síðasta ári en enn hefur ekki tekist að ná saman meirihlutastjórn. Telja margir fréttaskýrendur að við- ræður Yilmaz og Erbakans séu síð- asti möguleikinn til stjórnarmyndun- ar líkt og þingið er skipað. Nái þeir ekki saman verði að halda þingkosn- ingar á ný. Til þessa hafa flestar viðræður um stjórnarmyndun ekki varað lengur en í klukkustund. Fundur þeirra Yilmas og Erbakans stóð hins vegar í þijár klukkustundir og hefur það vakið upp vonir um að stjórn kunni að vera í burðarliðnum. Reuter. UNG stúlka kannar heiðursvörð austurrískra hermanna, sem bíða eftir því að leggja af stað til Bosníu. Þar verða þeir undir stjórn Atlantshafsbandalagsins fyrstir austurrískra hermanna. Haagdómstóllinn boðar ákærur gegn múslimum Pale, Haag. Reuter. BOSNIU-Serbar hafa slitið öllu sam- bandi við NATO-herliðið vegna framsals tveggja serbneskra for- ingja til stríðsglæpadómstólsins í Haag. Tilkynnt var í gær, -að á næstu vikum verði einnig birtar stríðsglæpaákærur á hendur nokkr- um múslimum en fyrstu réttarhöldin munu byija 7. maí nk.. John Kirkwood ofursti og tals- maður NATO í Sarajevo sagði, að samskiptin við Serba væru nú sama og engin og væri sendinefnd þeirra á förum frá borginni. Annar tals- maður NATO, Mark Rayner undir- ofursti, sagði þessa stöðu vera mjög alvarlega enda hefðu helstu tals- menn Serba ekkert látið í sér heyra í sex daga. Með þessu eru Serbar að mót- mæla framsali tveggja foringja, Djordje Djukics herforingja og Aleksa Krsmanovics ofursta, til dómstólsins í Haag en þeir eru sak- aðir um stríðsglæpi. Karadzic, for- seti Bosníu-Serba, sagði í gær i Pale, höfuðstað Serba, að með hand- töku mannanna hefðu fyrirheit Day- ton-samkomulagsins um ferðafrelsi verið að engu gerð. „Við getum ekki tekið þátt í við- ræðum um framtíð landsins á sama tíma og verið er að handtaka serb- neska foringja," sagði Karadzic en sjálfur er hann á skrá yfir eftirlýsta stríðsglæpamenn ásamt Ratko Mladic, yfirhershöfðingja Serba. Richard Goldstone, aðalsaksókn- ari stríðsglæpadómstólsins, sagði í gær, að búast mætti við ákærum á hendur nokkrum Bosníu-múslimum fyrir stríðsglæpi á næstu vikum en til þessa hafa 45 Serbar og sjö Kró- atar verið ákærðir. Jafnframt var tilkynnt, að fyrstu stríðsglæparéttarhöldin hæfust 7. maí nk. þegar Bosníu-Serbinn Dusan „Dusko“ Tadic kæmi fyrir réttinn en hann var handtekinn í Þýskalandi. William Perry, varnarmálaráð- herra Bandaríkjanna, sagði í Wash- ington í gær, að hermenn NATO- liðsins í Bosníu myndu fá fyllri upp- lýsingar um menn, sem grunaðir væru um stríðsglæpi, til að þeir gætu tekið þá, yrðu þeir á vegi þeirra. NATO-liðið myndi hins vegar ekki leita þá uppi. Lét Perry þessi orð falla eftir að fréttir birtust um, að Karadzic hefði farið óáreittur um ýmsar varðstöðvar í Bosníu. Bob Dole, leiðtogi repúblikana í öldungadeild Bandaríkjaþings, og fleiri þingmenn hafa krafið Bill Clin- ton forseta skýringa á þessum frétt- um um að Karadzic hafi farið um varðstöðvar NATO-hersins óhindr- aður . Gramm hættur Washington. Reuter PHIL Gramm, öldungadeildarþing- maður frá Texas, lýsti því yfir í gær að hann væri hættur að sækjast eftir útnefningu sem forsetaefni Repúblikanaflokksins. Gramm vildi ekki lýsa yfir stuðn- ingi við neinn annan frambjóðanda en gagnrýndi íhaldsmanninn Pat Buchanan fyrir að vilja verndar- stefnu í viðskiptamálum. Sagðist Gramm aldrei eiga eftir að geta stutt slíka stefnu þar sem hún væri í eðli sínu andstæð því sem Repúblikana- flokkurinn stæði fyrir. Gramm hafði lagt allt kapp á að vinna sigur á kjörfundi repúblikana í Louisiana og var það mikið áfall fyrir hann er Buchanan varð þar efstur. -----»■■■»■♦- Maccanico mistókst Róm. Reuter. ANTONIO Maccanico skilaði í gær stjórnarmyndunarumboði til Oscars Luigis Scalfaros, forseta Ítalíu, og sagði að tveggja vikna viðræður við flokkabandalög á vinstri og hægri kanti stjórnmáianna hefðu engan árangur borið. Stefnir nú allt í kosn- ingar. Maccanico sagði blaðamönnum að hann væri „afar bitur“ yfir því að tilraunirnar til að mynda stjórn á þverpólitískum grunni til að leggja drög að breytingum á stjórnarskrá og kosningalöggjöf skyldu hafa farið út um þúfur vegna pólitískra hindr- ana. Scalfaro þarf nú að ákveða hvort hann hyggst leysa upp þingið, sem setið hefur í tæp tvö ár, og boða kosningar í apríllok, einum þremur árum á undan áætlun. ítölsk dagblöð spáðu því að kosið yrði 21. eða 28. apríl. Forsetinn á þess einnig kost að fela einhveijum öðrum stjórnar- myndunarumboð eða reyna að fá Lamberto Dini, sem sagði af sér embætti forsætisráðherra 11. janú- ar, til að sitja áfram út júní. Evrópuþingið vill þrengja að Hollywoodefninu Strassborg. Reuter. Kasparov með betri stöðu Fíladelfíu. Reuter. GARRÍJ Kasparov háði í gær fjórðu skák sína við IBM-ofurtölv- una „Deep Blue“, sem talin er vera öflugasta skáktölva er smíðuð hefur verið og reiknar út 100 millj- ónir leikja á hverri sekúndu. Seint í gærkvöldi mátu skáksér- fræðingar stöðuna svo að Kasp- arov, sem lék með hvítu, hefði nokkuð betri stöðu en tölvan, sem lék slavneska vörn. Var talið að Kasparov hefði komið henni nokk- uð úr jafnvægi með óvenjulegum riddaraleik í fjórða leik. Tölvan vann fyrstu skákina í þessu sex leikja einvígi, Kasparov aðra en jafntefli var í þriðju skák- inni. Verðlaunaféð er 33 milljónir. Reuter Jeltsín á heimaslóðum BORÍS Jeltsín Rússlandsforseta var innilcga fagnað er hann kom til heimaborgar sinnar Jekater- ínborgar í gær. Fastlega er gert ráð fyrir að hann muni lýsa því þar yfir í dag hvort hann gefi kost á sér í forsetakosningunum síðar á árinu. EVRÓPUÞINGIÐ samþykkti í gær tillögur um að herða reglur um að meirihluti dagskrár evrópskra sjón- varpsstöðva skuli vera evrópskt efni. Þannig vill þingið þrengja að utanaðkomandi sjónvarpsefni, einkum Hollywoodkvikmyndum og öðru bandarísku efni. Þingið hefur rétt til sameigin- legrar ákvörðunar, ásamt ráðherr- aráði Evrópusambandsins, um breytingar á tilskipun ESB frá 1989 um sjónvarpsefni. Þingið vill að skilyrði laganna um að sjón- varpsstöðvar helgi meirihlutann af dagskrá sinni evrópsku efni verði framfylgt með „lagalega skilvirkum hætti“. Núverandi la- gatexti gerir eingöngu ráð fyrir að sjónvarpsstöðvar uppfylli þetta Ráðherraráð and- vígl breytingnm skilyrði „þar sem því verður við komið.“ Eftir að Frakkar hættu von- lausri baráttu sinni fyrir hertum reglum í þessu efni á síðastliðnu ári, samþykkti ráðherraráðið á fundi í nóvember að breyta ekki lögunum frá 1989. Nú gæti því orðið þörf á samningaviðræðum þingsins og ráðherraráðsins um málið. Framkvæmdastjórn ESB hefur tilkynnt þinginu að hún styðji afstöðu ráðherraráðsins. Evrópuþingið vill einnig herða reglur um sjónvarpsauglýsingar og sjónvarpsmarkaði og að sambæri- legar reglur gildi fyrir nýja miðla á borð við alnetið. Samtök fijálsra sjónvarpsstöðva í Evrópu sögðu á blaðamannafundi að þau hörmuðu þessa niðurstöðu Evrópuþingsins og að hætta væri á að þetta myndi leiða til að alls- heijar reglur yrðu settar um aug- lýsingamarkaðinn. Slíkt myndi draga úr fjárfestingu og fækka atvinnutækifærum. Sögðu forystu- menn samtakanna það bera ótrú- legri skammsýni vott hjá Evrópu- þingmönnum ef þeir teldu þessar aðgerðir eiga eftir að koma sjón- varpsiðnaðinum til góða til lengri tíma litið. ■ Frönsk iit,varpslög/16

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.