Morgunblaðið - 15.02.1996, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 15.02.1996, Blaðsíða 24
24 FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 1996 MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREINAR stgr. cst <Z 1 2 3 V* i f 6 7 8 9 S, Z, * 0 # AWiorote Nýt iítili GSM á kynningarver&i Audiovox GSM - 650 263 g með rafhlöðunni sem fylgir símanum • Rafhlaða endist í 70 mín. samtal eða 18 klst. bið • Tekur stórt kort PÓSTUR OG SÍMI Söludeild Ármúla 27, slmi 550 7800 Þjónustumiðstöö í Kirkjustræti, simi 550 6670 Söludeild Kringlunni, sími 550 6690 Póst- og símstöövum um land allt Foreldravandamál? FÍKNIEFNA- NEYSLA unglinga hefur verið mikið til umræðu í fjölmiðlum að undanförnu og eru skiptar skoðanir um hvernig stemma eigi stigu við þessum ófögnuði. Reynt hefur verið að bijóta vanda- málið til mergjar, m.a. í sjónvarpsþáttum þar sem fjöldi fólks hefur tjáð sig um það hvem- ig komast megi að rótum vandans. Margt athyglisvert . hefur komið fram sem gæti dregið úr fíkniefna- neyslu unglinga og beint þeim inn á heilbrigðar brautir. Stöku sinn- um hefur verið minnst á foreldra og ábyrgð þeirra í þessari umræðu en fæstir virðast þora að segja það hreint út að foreldravandamálið í þjóðfélaginu er mun meira en unglingavandamálið. Hvers vegna leiðast unglingar út í óreglu, verða óöruggir og utanveltu? Fyrst og fremst vegna þess að samband þeirra við for- eldrana er ekki byggt á gagn- kvæmu trausti, kærleik, trúnaði og „eðlilegum" samskiptum. Það er deginum ljósara að barn, sem geislar af lífsgleði, sjálfstrausti, jákvæðni og andlegri vellíðan, end- urspeglar þær heimilisaðstæður sem það býr við. Það eru hverf- andi líkur á því að börn, sem alast upp við andlega vellíðan og um- hyggju, missi fótanna. Ég er full- komlega sammála móðurinni sem hélt því fram í Almannrómi á Stöð 2 á dögunum að „forvarnirnar“ hefjist þegar barnið er í vöggu. Börn skynja það strax hvort þeim er sýnd ástúð og kærleikur og fyrstu árin eru mikilvægust hvað þetta varðar. Hversu margir for- eldrar spyrja börnin sín reglulega hvernig þeim líði? Hvort þeir geti gert eitthvað fyrir þau? Hvað þau hafi verið að gera í skólanum? Hversu margir foreldrar láta börn- in virkilega finna hversu mikið þau eru elskuð, bæði með orðum og athöfnum? Þá er ég ekki að tala um að stilla þeim upp fyrir framan sjónvarpið, henda í þau öli og sælgæti eða kaupa þau til hlýðni. Eg geri mér fyllilega grein fyrir því að við lifum í hröðu þjóðfélagi þar sem flestir þurfa að hafa mik- ið fyrir því að eiga ofan í sig og á en það er samt eng- in afsökun fyrir af- skiptaleysinu gagn- vart unga fólkinu. Hversu margir for- eldrar hafa spurt sig þessara spurninga? Hver er tilgangurinn með lífínu? Hvemig myndi ég veija þeim tíma ef ég ætti aðeins ár eftir ólifað? Og ekki síst; Hvað skiptir mestu máli í Iífinu? Eru það 300 fermetr- ar af steypuskemmd- Þorgrímur um sem er grátlegur Þráinsson minnisvarði um árin sem eigendurnir áttu að vera í blóma lífsins en upplifðu sem fölnaðar rósir og rifrildi? Er það blásanseraða glæsikerran sem hafði húsbóndann í hlekkjum aukavinnunnar í liðlega 1.000 klukkutíma á árinu og gerði það að verkum að hann kvaddi börnin sín á morgnana, þegar þau sváfu og heilsaði þeim að kvöldi — þeg- ar þau sváfu? Skyldi viðkomandi hafa setið yfir rúmum barna sinna og grátið þann tíma sem hann upplifði aldrei með þeim? Eða - skiptir það mestu máli að dást að nokkur hundruð þúsund krónum uppi á vegg í formi málverka eftir misgóða listamenn? Svari hver fyrir sig! Því miður virðist þurfa að slá okkur hressilega" utanundir annað slagið, eins og hörmungarnar í Forvarnirnar hefjist þegar bamið er í vöggu. Þorgrímur Þráinsson skrifar um heimilis- aðstæður og mótun ungviðis. Súðavík og Flateyri gerðu, til að vekja okkur til umhugsunar um hvað skipti okkur mestu máli. Og hvað við erum í raun lánsöm að fá að lifa. Við eigum ekki að taka því sem sjálfsögðum hlut að vera heilbrigð og sleppa við stóráföll. Það eru forréttindi að fá að ala upp barn og hafa það að láni í ákveðinn tíma. Því miður virðast sumir misnota þessi forréttindi eða hreinlega ekki átta sig á þeim. Erum við þessir foreldrar sem tölum um unglingavandamál, fíkniefnavaneyslu og ofbeldi - og skiljum ekki hvað vakir fyrir börn- unum okkar? Unglingavandamál skapast vegna þess að það eru í flestum tilfellum foreldravandmál og agaleysi á heimilum. Hvernig erum við sem fyrirmyndir? Hversu mörg okkar reykja og drekka í návist barnanna okkar? Bönnum þeim eitt og annað en erum sjálf í stöðugu sukki og svínaríi? Og skiljum svo ekkert í því af hveiju barnið okkar hafi leiðst út í ógöng- ur. Hversu margir foreldrar gefa sér tíma til að ræða við börnin sín um lífið og tilveruna, gefa þeim tíma til að létta á hjarta sínu? Af hveiju hætta sumir að faðma börn- in sín þegar þau komast á ungl- ingsaldurinn? Öll viljum við ást og umhyggju, ekki síst bömin sem verða að fá hvatningu og skilning frá foreldrunum - til þess að lifa af í þessu þjóðfélagi. Við berum ábyrgð og ættum að taka okkur saman í andlitinu. Hætta að liggja fyrir framan sjónvarpið tímunum saman og væla um það að við höfum ekki tíma fyrir börnin! Sum- um gæti reynst erfítt að byija allt í einu á því að veija tíma með barninu sínu og bera því jafnvel við að þeir kunni það ekki. En það er hægt að byija smátt; gefa sér korter á dag, auka síðan tímann og fjölbreytnina. Brydda upp á ýmsu sem eflir traust og einlæg samskipti. Margvíslegar forvarnir eru af hinu góða, svo sem áróður í fjöl- miðlum, hvatning til íþróttaiðkun- ar, fyrirlestrar með sláandi dæm- um um afleiðingar vímu- og fíkni- efnaneyslu og svo mætti lengi telja. En foreldrar eiga að vera besta forvörnin og það er kominn tími til að ræða það á opinskáan hátt. Hættum að kenna öðrum um, lítum í eigin barm og spyijum okkur oftar: Hvað skiptir mestu máli? Velferð okkar í lífinu er undir sjálfum okkur komin! Höfundur er foreldri og blaða- maður. Fíkniefnavandinn Tími skyndiákvarðana er runninn upp! FÍKNIEFNAVANDINN hefur komið aftan að okkur íslending- um. Ekkert sérlega hljóðlega, en samt virðast flestir svo óskaplega óviðbúnir. Stjórnvöld og foreldrar standa agndofa — það eru helst unglingarnir sem vita hvað gera skal. Hin æðisgengna leit að úr- ræðum stendur yfir. Tími skyndi- ákvarðana er runninn upp! Nýlega tilkynnti ríkisstjórnin að 12 milljónum króna skyldi veitt til að koma á laggirnar ráðgjafarmið- stöð í vímuefnavörnum við barna- og unglingageðdeild. Margir AUDER MaUir eða gljáandi, Iveir sanian, Vorlitirnir fjrir varir, injúkir, Ijo'sir og fágaðirtónar. IVolaðu rinii litatón en með mismunandi áferð. T.dHaiylulf mi‘ð Híihj Shimmer. Hinor Imagi': lllnvirlilir frá ESTEE LAUDERi kynntu |iér iig pnííaðu nvju lilina í verslun okkar. H Y G E A snyrtivfrurerjlun KfUNGLUNNIOG AUSTURSTRÆTI # þurftu að láta segja sér þessi tíðindi tvisv- ar. Á enn einu sinni að setja nýja þjónustu á laggirnar í stað þess að efla það sem fyrir er? Lítum nánar á málið: Nýlega var með- ferðarheimili fyrir unga vímuefnaneyt- endur — Tindar á Kjalarnesi — lagt nið- ur, enda virtist stjóm- völdum ekki þörf á svo viðamiklum aðgerðum gegn vímuefnavand- Áskell Örn anum. Tindar starfa Kárason áfram sem dagdeild og ráðgjafarþjónusta. Þar er starfsfólk sem hefur langa reynslu af m'eðferð og ráðgjöf og hafa sumir fengið þjálfun erlendis á kostnað íslenska ríkisins. Þessi starfsemi heyrir undir félagsmála- ráðuneytið. Skyldu þau hafa rætt saman Ingibjörg og Páll? Á að gefa Tindum frí? í Reykjavík er starfandi fræðslumiðstöð í fíknivömum með tilstyrk menntamálaráðuneytisins. Fá þeir frí líka? Eða skyldu þau hafa bollalagt eitthvað um þetta, Ingibjörg og Björn? Er það kannski stefna ríkisstjórnarinnar að hvert ráðuneyti hafi sína eigin ráðgjafarþjónustu? Skv. lögum skulu sveitarfélög veita ráðgjöf af þessu tagi og var ætlað að taka við hlutverki Unglingaráðgjafar- innar, sem verið hafði einkar hent- ugur kostur fyrir foreldra og ungl- inga í vanda. Þar spöruðu skatt- borgarar dálitla upphæð ... nánar tiltekið um 12 milljónir! Verst að sparnaðurinn varð svona skamm- lífur ... Að öllu gamni slepptu, þetta: Auglýst er eftir heildarsýn æðstu ráðamanna. Margt er þegar gert til þess að andæfa gegn vaxandi vímu- efnavanda, en for- ystu- og stefnuleysi skapar hættu á að fé og kraftar nýtist ekki sem best. Þeir sem hingað til hafa verið ráðnir af íslenska rík- inu til að vinna gegn vandanum eiga þetta stefnuleysi ekki skilið. Barna- og unglinga- geðdeild, sem lengi hefur aðeins getað sinnt broti af því sem henni er ætlað að sinna, á þetta heldur ekki skilið. Við eigum þá kröfu á hendur blessaðri ríkis- stjórninni okkar, að þar viti hægri höndin hvað sú vinstri gerir. Við eigum bágt með að skilja hvers vegna ein stofnun er sett á lagg- Er það stefna ríkis- stjórnarinnar, spyr * •• Askell Orn Kárason, að hvert ráðuneyti hafi eigin ráðgjafar- _________þjónustu?__________ irnar í dag og önnur á morgun til þess eins að báðar svelti til ólífis á nokkrum missimm. (Gerir ekk- ert til, við stofnum bara nýtt, seg- ir þá einhver!) Slík vinnubrögð, lesendur góðir, eru því miður lýs- andi þegar þessi málaflokkur er annars vegar. Það heitir „að bregðast skjótt við“. Megum við fara fram á aðeins meiri yfirvegun í næstu umferð? Höfundur cr forstöðumaður Með- ferðarstöðvar ríkisins fyrir ungl- inga.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.