Morgunblaðið - 15.02.1996, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 15.02.1996, Blaðsíða 42
42 FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 1996 MORGUNBLAÐIÐ MINNIIMGAR t Elskuleg dóttir mín, systir okkar og mágkona, JÓHANNA SVANDÍS ÓLAFSDÓTTIR, Réttarholtsvegi 39, Reykjavík, lést f Landspítalanum 13. febrúar sl. Ingibjörg Sturludóttir, Magnús Ólafsson, Herdís Heiðdal, Slgríður P. Ólafsdóttir, Ingimar Halldórsson. t Elskulegur bróðir okkar og frændi, KRISTJÁN JÓNSSON frá Teigarhorni við Berufjörð, er lést laugardaginn 10. febrúar, verður jarðsunginn frá Djúpavogskirkju laugar- daginn 17. febrúar kl. 15.00. Systur og frændfólk. t Eiginmaður minn, ANTON EIÐSSON, Hrísey, andaðist 7. febrúar. Jarðarförin fer fram frá Hríseyjarkirkju laugardaginn 17. febrúar kl. 14.00. Fyrir hönd vandamanna, Elín Hansdóttir. t Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, LEIFUR EIRÍKSSON, Hlemmiskeiði, Skeiðum, verður jarðsunginn frá Ólafsvallakirkju laugardaginn 17. febrúar kl. 14.00. Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Orgelsjóð Ólafsvallakirkju. Ólöf S. Ólafsdóttir, Ólafur F. Leifsson, Harpa Dis Harðardóttir, Eiríkur Leifsson, Brynhildur Gylfadóttir, Ófeigur Á. Leifsson, Þórdís Bjarnadóttir, Jóna Srf Lerfsdóttir, Hjörvar Ingvarsson og barnabörn. t Útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, MÖRTU DANÍELSDÓTTUR, Vesturgötu 7, Reykjavík, sem lést í Sjúkrahúsi Reykjavíkur 6. febrúar sl., fer fram frá Fossvogs- kirkju föstudaginn 16. febrúar kl. 13.30. Björn K. Lárusson, Gunnar D. Lárusson, Anna Þrúður Þorkelsdóttir, Ragnar Lárus Gunnarsson, Ragnhildur Anna Gunnarsdóttir, Anna Þrúður Guðbjörnsdóttir, Þorkell Máni Gunnarsson. t Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, SOFFÍA I. JÓHANNSDÓTTIR, Hamraborg 18, Kópavogi, verður jarðsungin frá Kópavogskirkju í dag, fimmtudaginn 15. febrúar, kl. 15.00. Hrafn Þórhallsson, Jóna Guðlaugsdóttir, Ingibjörg Þórhallsdóttir, Rúnar Karlsson, Jóhann Þórhallsson, Joni Gray og barnabörn. + Soffía Ingibjörg Jóhannsdóttir fæddist á Mjóabóli í Haukadal í Dala- sýslu 17. febrúar 1916. Hún lést á Borgarspítalanum 6. febrúar síðastlið- inn. Foreldrar Soff- íu voru Halldóra Ólafsdóttir frá Vatni í Haukadal og Jóhann B. Jensson hreppstjóri frá Ha- rastöðum á Feils- strönd. Soffía var sjöunda í röð níu systkina. Hin voru Kristján bóndi á Efri Múla í Saurbæ, Jens Elís bóndi í Sælingsdal í Hvammssveit, Þorsteinn versl- unarmaður í Reykjavík, Ólafur bóndi á Skarfsstöðum í Hvammssveit, Lára húsfreyja í Reykjavík og Jens Ingvi í Kefla- vík, sem öll eru látin og eftirlif- andi bræður, Guðbjartur bóndi í Miklagarði í Saurbæ og Skarp- héðinn trésmiður í Keflavík. Soffía giftist 14. desember 1940 Þórhalli A. Pálssyni, borg- arfógeta í Reykjavík, en hann lést 17. júní 1965. Börn þeirra eru: 1) Hrafn, f. 5. febrúar 1944, vél- ” stjóri í Reykjavík, kvæntur Jónu Guð- laugsdóttur hús- móður, og eiga þau þijú börn, Þórhall Inga verkfræðing, Maríu Guðlaugu læknanema, og Hrafnhildi grunn- skólanema. 2) Jó- hann, f. 28. nóvem- ber 1950, verslun- armaður í Banda- rikjunum, kvæntur Joni Gray efna- fræðingi. Jóhann á synina Stef- án menntaskólanema og Arnar Snæ. 3) Ingibjörg, f. 13. febrúar 1953, hjúkrunarfræðingur í Reykjavík, gift Rúnari Karls- syni tölvunarfræðingi og eiga þau tvo syni, Kára Þór sálfræði- nema og Hlyn Inga mennta- skólanema. Soffía starfaði hjá Byggingarsamvinnufélagi starfsmanna ríkisstofnana frá 1965 til 1979, síðustu árin sem framkvæmdastjóri félagsins. Útför Soffíu fer fram frá Kópavogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15.00. t Faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi, SKÚLI ÞÓRÐARSON, sem lést 8. febrúar sl., verður jarðsunginn frá ísafjarðarkirkju laugardaginn 17. febrúar kl. 14.00. Ágústa Skúladóttir, Kjartan T. Ólafsson, Svandfs Skúladóttir, Páll Theodorsson, Skúli Þ. Skúlason, María Jóakimsdóttir, Árni H. Skúlason, Laufey Þorsteinsdóttir, afa-, langafa- og langalangafabörn. SOFFIAI. JÓHANNSDÓTTIR t Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og Iðngamma, MARÍA M. ÁSMUNDSDÓTTIR myndlistarkona frá Krossum, verður jarðsungin frá Neskirkju föstudag- inn 16. febrúar kl. 13.30. Áslaug Sigurðardóttir, Jón Eiríksson, Stefana Karlsdóttir, Ólafur Jón Ólafsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Ástkær móðir mín og fósturmóðir, ÞÓRHILDUR MARGRÉT VALTÝSDÓTTIR frá Seli, Austur-Landeyjum, til heimilis ■ Ljósheimum 11, andaðist aðfaranótt 14. febrúar. Valtýr Sigurðsson, Sverrir Kristjánsson. t Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,' tengdafaðir og afi, SIGURJÓN SVEINSSON múrari, Miðtúni 3, Reykjavík, lést í Sjúkrahúsi Reykjavíkur, deild 7A, miðvikudaginn 14. febrúar. Útförin fer fram í kyrrþey að ósk hins látna. Halla Hersir, Edda Sigurjónsdóttir, Viðar Sigurjónsson, Selma Abazy, Ómar Sigurjónsson, Sveinn Sigurjónsson, Andri Örvar Jónsson. MIG LANGAR að minnast elsku- legrar konu og vinkonu minnar með nokkrum orðum. Við Soffía urðum vinkonur fyrir meira en 30 áriim, þegar eiginmenn okkar unnu saman hjá Borgarfóg- etaembættinu í Reykjavík, en þá var það til húsa í Tjamargötu 4. Soffía var gift öðlingsmanninum Þórhalli Pálssyni, sem síðan varð borgarfógeti hjá embættinu. Við hjónin kynntumst Soffíu konu hans örlítið seinna og varð það upphaf langrar og góðrar vináttu okkar. Við skiptumst á heimsóknum, fór- um saman til vina og kunningja beggja og oftar en ekki var sett upp spilaborð og spilað brids, en það var okkar besta skemmtun. Eg á ótal skemmtilegar minning- ar frá góðu og glöðu árunum okkar saman. Við Soffía og tvær vinkonur stofnuðum síðan bridsklúbb og spil- uðum saman í mörg ár okkur til mikillar ánægju, en Soffía var ágætis spilakona, enda vel gefrn og hugsandi manneskja. Ég hugsa oft með söknuði til þessara ára, því ég lærði svo margt af henni og þótt fimmtán ár væru á milli okkar þá var Soffía svo ung í anda og gefandi að mér fannst hún vera jafnaldra mín. Hún hélt sér ákaflega vel og var það ótrúlegt hve ungleg hún var alla tíð. Ég held að bjartsýnin og góða skapið hafi þar skipt miklu máli. Soffía var hrókur alls fagnaðar, fyrirmyndar húsmóðir og góð móð- ir barna sinna. Heimilið sat í fyrirrúmi eins og títt var i þá daga, en hún gaf sér alltaf tíma til að hitta og taka á móti vinum og kunningjum þeirra, en þau hjónin voru ákaflega vin- mörg. Þórhallur var alltaf tilbúinn að hjálpa öllum ef hann gat, sér- lega þeim sem minna máttu sín. Reyndist hann manni mínum góður lærifaðir í þessum efnum. Þórhallur lést aðeins 50 ára gamall og var öllum harmdauði sem þekktu hann. Þá reyndi fyrst á þrek og dugn- að Soffíu, en hún sýndi sannarlega hvað í henni bjó. Með sínum dugn- aði og atorku kom hún börnum sínum til mennta og eru þau dug- legt og ekki síst gott fólk í dag, og veit ég að þau sakna móður sinnar sárt. Soffía var afar sjálfstæð kona, bjartsýn og glöð. Aldrei kvartaði hún, þótt veik væri orðin, og sagði alltaf þegar ég spurði hana um líð- an hennar „að sér liði bara ágæt- lega“ og reyndi að gera gott úr öllu. Trygglyndi var henni í blóð borið og þótt við hittumst ekki oft hin síðari ár, þá höfðum við síma- samband og fylgdumst hvor með annarri, þótt í fjarlægð væri. Soffía vinkona mín verður mér ógleymanleg og vil ég þakka henni að lokum allt það góða og skemmti- lega sem hún skildi eftir hjá mér og örugglega öllum sínum mörgu vinum sem nutu þess að eiga hana að. Börnum hennar og afkomendum öllum votta ég mína dýpstu samúð. Guð blessi minningu Soffíu Jó- hannsdóttur. __ Ásta Hauksdóttir. Erfidrykkjur Glæsileg kafíi- hlaðbord, íallegir salir og mjög góð þjónusta Upplýsingar ísíma 5050925 og 562 7575
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.