Morgunblaðið - 15.02.1996, Side 10
10 FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Á Airbus
til Dóm-
iníkana
VEGNA frétta af flugslysi í
Karíbahafínu undan ströndum
Dóminíkana viil Ingólfur Guð-
brandsson, forstjóri Heims-
klúbbs Ingólfs og Ferðaskrif-
stofunnar Prima, koma eftirfar-
andi_ á framfæri.
„í umfjöllun um þetta slys
hefur þess verið látið getið að
Dóminíkanska lýðveldið hafi
ekki réttindi tii flugs til og frá
Bandaríkjunum. Farþegar
Heimskiúbbs Ingólfs og Ferða-
skrifstofunnar Primu hafa fjöl-
mennt til Pueyto Plata og á fleiri
baðstrendur eyjunnar Dóminík-
ana undanfama vetur og þó
einkum nú frá áramótum. Þeir
fljúga með vélum Flugleiða til
New York og áfram þaðan með
flugfélaginu APA Intemational
Air til Puerto Plata eða Santo
Domingo. Þetta flugfélag flýgur
aðeins á nýjum Airbus 300 fiug-
vélum undir stjóm bandarískra
flugstjóra og er þar gætt fyllsta
öryggis. Flugfélagið er einnig
skráð í Bandaríkjunum og höf-
uðstöðvar þess eru í Miami.
Málsmetandi gestir okkar,
sem dvöldust í Puerto Plata þeg-
ar hið hræðilega flugslys átti sér
stað, hafa látið í ljós undrun sína
á því hvemig fréttir hafi verið
túlkaðar hér þar sem gefíð hefur
verið í skyn að íbúar frá strönd-
inni hafí rænt lík, að líkin hafi
verið hákarlsbitin og svo fram-
vegis. Allar fréttir af þessu tagi
hafa nú verið bomar til baka
meðal annars af bandarísku
sjónvarpsstöðinni CNN. Vélin
sökk það langt úti í hafi að þang-
að er ekki fært nema á stærri
bátum. Ekkert staðfest dæmi er
um það að nokkurt iíkanna hafi
komið upp úr sjó með áverka
eftir hákarlsbit.
Að sjálfsögðu em allir harmi
slegnir þegar slík slys eiga sér
stað og vafalaust hefur nálægð-
in við þessa hörmulegu atburði
orðið meiri vegna þess að fiug-
vélin hafði flutt ísienska farþega
á annarri flugleið á vegum ann-
arrar ferðaskrifstofu skömmu
áður en slysið átti sér stað. Við-
skiptavinir Heimsklúbbsins hafa
tekið fréttunum með stillingu
og enginn hefur afturkallað
pöntun sína til Dóminíkana af
þessum sökum. í Puerto Plata
er nýr flugvöllur með fullkomn-
um tæknibúnaði og flugöryggi
þar er engu síðra en hvar sem
er annars staðar í heiminum.
Því verður flugslysið ekki rakið
til aðstæðna á staðnum en ein-
ungis til ástands flugvélarinnar
eða mannlegra mistaka sem
væntanlega kemur síðar í ljós.“
Eldur út frá
hleðslutæki
SLÖKKVILIÐIÐ í Reykjavík var
í gærmorgun kaliað að Álfatúni
20 í Kópavogi þar sem mikinn
eld lagði frá bílskúr.
Kviknað hafði í út frá hleðslu-
tæki sem notað var til að hlaða
rafgeymi. Að sögn Bjöms Gísla-
sonar, varðstjóra hjá slökkvilið-
inu, náði eldurinn ekki að breið-
ast út og tjón varð ekki á öðru
en hleðslutækinu. Bjöm segir
að öðm hveiju kvikni í hleðslu-
tækjum og brýnir fyrir fólki að
skilja þau ekki eftir í notkun.
Ályktun fr amkvæmdaslj órnar VSÍ um breytingar á vinnulöggjöfinni
Sljórnvöld axli ábyrgð á að
skapa eðlilegan ramma
STJÓRNVÖLD hljóta ein að axla ábyrgð á því
að skapa eðlilegan ramma um saniskipti á vinnu-
markaði úr því að verkalýðshreyfingin hafnar sam-
komulagi um nauðsynlegustu breytingar á lögum
um samskipti launþega og vinnuveitenda, segir í
ályktun framkvæmdastjórnarfundar Vinnuveit-
endasambands íslands.
í ályktuninni er lýst stuðningi við það meginefni
tillagna að nýjum lögum um sáttastörf í vinnudeil-
um, sem komið hafí fram í nefnd á vegum félags-
málaráðherra, að auka skiivirkni við gerð kjara-
samninga, efla ábyrgð samtaka á samningsgerð
og setja skýrari reglur um lágmarksþátttöku í at-
kvæðagreiðslum um samninga og vinnustöðvanir.
Tilbúnir til samninga um samningagerð
Þá segir: „Meðan félög fara lögum samkvæmt
með samningsumboð fyrir starfsfólk og fyrirtæki
telur stjórnin rétt að undirritaðir samningar félaga
öðlist gildi nema marktækt hlutfall félagsmanna
hafni þeim. VSÍ styður einnig hugmyndir um auk-
ið verkstjómarhlutverk sáttasemjara við undirbún-
ing og gerð samninga og lýsir sig reiðubúið til
samninga um skipulag samningaviðræðna, eins og
lagt er til. Þá telur VSI einnig rétt að skýra miðlun-
arhlutverk sáttasemjara. VSÍ sér hins vegar ekki
rök fyrir því, að lægra hlutfall félagsmanna þurfi
hér á landi en í Danmörku til að fella miðlunartil-
lögu, þar ætti sama regla um 35% félagsmanna
að gilda.
VSI saknar þess hins vegar að engin ákvæði em
í frumvarpinu sem ætlað er að tryggja rétt manna
til að standa utan stéttarfélaga og hafna kröfum
um greiðslu gjalda til félaga sem menn eru ekki í.
Þá hefði einnig verið eðlilegt og í samræmi við
ákvæði stjórnarsáttmála núverandi ríkisstjómar að
tryggja með löggjöf lýðræðisleg vinnubrögð við
kosningu stjóma stéttarfélaga. Framangreind mál-
efni snúa að einstaklingsbundnum réttindum starf-
andi fólks en lúta einnig að samskiptum fyrir-
tækja, starfsmanna og stéttarfélaga og því nauð-
synlegt að taka á í löggjöf.
VSI telur sjálfsagðar þær tillögur sem binda
lögmæta vinnustöðvun því skilyrði að kröfur hafi
veríð lagðar fram og samningaleið reynd til þraut-
ar áður en leitað er samþykkis fyrir boðun vinnu-
stöðvunar. VSÍ telur hins vegar að ganga eigi
harðar eftir því að fullkominn stuðningur sé við
boðun vinnustöðvunar og þá þannig að fullur helm-
ingur þeirra sem þátt eiga að taka í vinnustöðvun
styðji hana í leyniíegri atkvæðagi'eiðslu. Þetta gildi
jafnt um verkföll og verkbönn. Þessu til viðbótar
er nauðsynlegt að setja í lögin ákvæði sem tor-
veldi smáhópum verkfallsaðgerðir til að knýja á
um sérhagsmuni langt umfram aðra. Takmarkanir
á rétti smáhópa eru í þágu heildarhagsmuna og
stuðla að stöðugleika og minnkandi tjóni af völdum
verkfalla. Loks kann að vera tímabært að kveða
skýrt á um rétt starfsmanna einstakra fyrirtækja
og stjórnenda þeirra til að semja sjálfir um kaup
og kjör án milligöngu samtaka atvinnurekenda og
launþega. Einkaréttur stéttarfélaga til gerðar
kjarasamninga verði þannig takmarkaður. Tillögur
um breytingar á lögum um sáttastörf í vinnudeilum
voru unnar með það að markmiði að um þær
gæti orðið víðtæk sátt. Það skýrir að VSÍ hélt
ekki til streitu framangreindum tillögum. Þeirra
sér því eðlilega ekki stað í frumvarpi eða tillögum
nefndarinnar."
Innbrot í bíla
um alla borg
LÖGREGLUNNl í Reykjavík var
í gær tilkynnt um að brotist hefði
verið inn í þrjá bila við Klappar-
stíg. Daginn áður var einnig brot-
ist inn í bíl þar. Þá var tilkynnt
um innbrot í bíla við Skildinga-
nes, Seljugerði, Skeiðarvog,
Rofabæ og Stíflusel. Ymsum verð-
mætum var stolið úr bifreiðunum.
Brotist var inn í íbúð við Hjalta-
bakka í fyrrinótt og þaðan stolið
sjónvarpstæki meðal annars. Hús-
ráðandi var erlendis. Til innbrots-
þjófsins sást skammt frá skömmu
síðar og var hann handtekinn og
færður í fangageymslu.
Lögregla fór í fyrrakvöld í hús
við Ásvallagötu og handtók 6
manns og færði til yfirheyrslu á
lögreglustöð. Hald var lagt á
áhöld til fíkniefnaneyslu, sem
fundust á staðnum.
Á þriðjudag upp úr klukkan 13
veittist bílstjóri að stöðuverði í
Bankastræd á móts við Ingólfs-
stræti. Bílstjórinn ók af vettvangi
en stöðuvörðurinn hélt á lög-
reglustöð og lagði fram kæru á
hendur manninum.
Ökumaður missti stjórn á bíl
sínum um klukkan 8 í gærmorgun
á Sætúni og lenti á umferðar-
merki. Bílstjórinn slapp ómeidd-
Ekið á svarta
Toyotu
LÖGREGLAN í Reykjavík óskar
eftir að hafa tal af ökumanni, sem
þk bifreið sinni utan í kyrrstæða
bifreið við Seljabraut á þriðjudag.
Bíllinn, svört Toyota Corolla
með númerinu Y-628, stóð
skammt frá „Þinni verslun" við
Seljabrautina. Óhappið hefur orðið
milli kl. 17.30 og 17.50 og er
vinstri afturhurð bílsins skemmd.
Sá sem olli tjóninu eða vitni að
óhappinu eru beðin um að hafa
samband við slysarannsóknadeild
lögreglunnar.
ÁREKSTUR tveggja bíla varð á mótum Holtavegar og Sæbrautar um klukkan níu í gærmorgun.
Farþegi annars bílsins var fluttur á slysadeild.
Davíð Oddsson um frumvarp 4 sjálfstæðismanna
Místök að láta Fram-
sóknarflokk ekki víta
Lúxusíbúð við Garðatorg
3ja herb. 100 fm íbúð til sölu á besta stað við Garða-
torg. Stórar svalir í suður. Bílageymsla í kjallara húss-
ins. Öll þjónusta eins og best verður á kosið í miðbæ
Garðabæjar. Gott verð. Góð kjör.
Uppl. í síma 565-6560 alla daga, 565-7875 á kvöldin.
ÞAÐ voru mistök af hálfu Sjálfstæð-
isflokksins, að láta Framsóknar-
flokkinn ekki vita af frumvarpi 4
sjálfstæðisþingmanna um erlenda
fjárfestingu í sjávarútvegi áður en
frumvarpið var lagt fram á Alþingi.
Hins vegar mun flokkurinn tryggja
framgang stjórnarfrumvarps um
sama efni.
Þetta sagði Davíð Oddsson for-
sætisráðherra þegar hann svaraði
spurningum frá stjórnarandstöðu-
þingmönnum um afstöðu Sjálfstæð-
isflokksins til stjórnarfrumvarpsins.
Það gerir ráð fyrir að heimila tak-
markaða óbeina eignaraðild útlend-
inga í sjávarútvegi en frumvarp
sjálfstæðisþingmannanna fjögurra
gerir ráð fyrir að heimila allt að 49%
beina erlenda eignaraðild.
„Ég hef sagt að það væru flokks-
leg mistök af hálfu míns flokks,
gagnvart samstarfsflokknum, að
láta ekki hæstvirtan viðskiptaráð-
herra og samstarfsflokkinn vita
hvernig málið væri vaxið. Okkur
þykir fyrir því og við skiljum þá
gagnrýni sem okkar samstjórnar-
flokkur hefur sett fram. Að sjálf-
sögðu styður Sjálfstæðisflokkurinn
stjórnarfrumvarpið og mun fylgja
því fram að það nái fram að ganga,“
sagði Davíð.
Vilja ganga lengra
Sighvatur Björgvinsson þingmað-
ur Alþýðuflokksins spurði Davíð
hvort umræddir þingmenn Sjálf-
stæðisflokksins myndu einriig leggja
fram til samræmis frumvarp um
breytingar á lögum um fiskveiði-
landhelgi íslands, til að fylgja eftir
frumvarpi sínu, eða hvort þeir hafi
verið stoppaðir á miðri leið.
Davíð sagðist ekkert geta sagt
um hvað þingmenn flokksins gerðu
í framhaldinu; það hefði ekki verið
rætt, en ljóst væri að meginatriði
umræddra fjögurra þingmanna væri
að þeir vildu sýna vilja sinn til að
ganga lengra en meginþorri þing-
flokks Sjálfstæðisflokksins, en
styddu að öðru leyti stjórnarfrum-
varpið. Finna mætti mörg dæmi
þess að þingmenn hefðu með einum
eða öðrum hætti lýst því yfir að
þeir sætti sig við niðurstöðu, sem
fengist innan flokka, þótt þeir hefðu
kosið að málið gengi fram með öðr-
um hætti.
Flutningsmenn frumvarpsins
gagnrýndu stjórnarandstöðuna fyrir
að reyna að gera málið tortryggi-
legt. Guðjón Guðmundsson sagði um
að ræða ómálefnalegt karp og Pétur
H. Blöndal sagði að upphrópanir um
að frumvarp þeirra gengi þvert á
stjórnarfrumvarpið og að þingflokk-
ur sjálfstæðismanna væri klofinn í
málinu ættu ekki við. Hann benti
á, að mörg dæmi væru um að stjórn-
arfrumvörp hefðu tekið breytingum
í meðförum Alþingis.
1. umræðu enn ólokið
Enn er ólokið á Alþingi fyrstu
umræðu um stjórnarfrumvarpið og
frumvörp sjálfstæðismannana og
tveggja þingmanna Þjóðvaka um
sama efni. Umræðunni var haldið
áfram í gær en síðan frestað aftur.
í gær tóku nokkrir þingmenn
Sjálfstæðisflokksins til máls og lýstu
stuðningi við stjórnarfrumvarpið.
Einar Oddur Kristjánsson sagðist
vera þeirrar skoðunar að ekki ætti
að leyfa útlendingum að eiga hlut í
útgerðar- og fiskvinnslufyrirtækjum
sem eru eigendur aflakvóta. Hins
vegar sagðist hann velta því fyrir
sér, í ljósi þess að hér væri frjálst
fiskverð, hvort nokkur munur væri
á fiskvinnslufyrirtækjum, sem ekki
ættu aflakvóta, og öðrum iðnaði hér
á landi og því hugsanlega eðlilegt
að heimila útlendingum að fjárfesta
þar. Einar K. Guðfinnsson þingmað-
ur Sjálfstæðisflokksins tók undir
þetta.