Morgunblaðið - 15.02.1996, Side 12
12 FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Samheiji hf. hættir viðskiptum við Eimskip
Allir flutningar Samherja og
dótturfyrirtækja til Samskipa
„OKKAR samningi við Eimskip lauk
nú um áramótin og í framhaldi af
því ákváðum við að ganga til samn-
inga við Samskip um flutningana,"
sagði Þorsteinn Már Baldvinsson,
framkvæmdastjóri Samheija hf., í
samtali við Morgunblaðið, en fyrir-
tækið á hlut í Samskipum. Eigendur
Samhetja hafa ákveðið að hætta öll-
um viðskiptum við Eimskip sem hef-
ur séð um 50% af öllum flutningi
fyrirtæksins undanfarin ár.
Auk þess að sjá um sjóflutninga
fyrir Samheija hefur dótturfyrirtæki
Eimskips, Dreki, séð um fiutninga á
landi fyrir Samheija og einnig hafa
starfsmenn Eimskips séð um löndun
úr skipum fyrirtækisins. Samheiji
hefur leigt aðstöðu í húsnæði Eim-
skips í Oddeyrarskála til fjölda ára
en flutti úr því húsnæði nýlega.
Vissulega mikil vonbrigði
„Það eru okkur vissulega mikil
vonbrigði að sjá á eftir viðskiptum
við Samheija, sem hefur verið einn
okkar stærsti viðskiptavinur undan-
farin ár. Ekki síst fyrir það að við
höfum lagt mikið á okkur til að auka
og bæta þjónstuna, m.a. með beinum
siglingum frá Akureyri til erlendra
hafna. Einnig eru það okkur mikil
vonbrigði að ekki skuli leitað til okk-
ar um hugsanlega endumýjun samn-
ingsins," sagði Garðar Jóhannsson,
forstöðumaður Eimskips á Akureyri.
Garðar sagði að þessi nýja sigl-
ingaleið félagsins hefði getað hentað
Samheija vel og stytt fyrirtækinu
flutningstímann til Bretlands og
meginlands Evrópu um 3-5 daga.
„Varan hefði þá farið héðan á mið-
vikudegi og verið komin út á mánu-
degi, sem hefði getað aukið þeirra
sveigjanleika í sölu- og markaðsmál-
um verulega.“
Getur haft áhrif á
starfsmannafjölda
Garðar sagði að sú ákvörðun Sam-
heija að hætta að láta Eimskip sjá
um landanir úr skipum sínum gæti
haft áhrif á þann starfsmannafjölda
sem nú er í Oddeyrarskála. „Við er-
um með 8 fastráðna starfsmenn í
vöruafgreiðslu og til viðbótar em
teknir inn lausamenn í landanir, sem
fylla 2-3 stöðugildi á mánaðargrund-
velli,“ sagði Garðar.
Þorsteinn Már segir að það sé í
þessu eins og öðru, að margir geti
veitt þjónustu, hvort sem er í flutn-
ingum eða öðru en Samheiji hafi
tekið ákvörðun um að ganga til
samninga við Samskip. „Við höfum
verið í viðskiptum við Samskip sl. tvö
ár og fyrirtækið séð um hluta af
okkar flutningum. Það sem hins veg-
ar gerist nú er einfaldlega það að
við förum með alla okkar flutninga
þangað, bæði fyrir Samherja, Strýtu
og Söltunarfélag Dalvíkur."
Sáttir við samninginn við
Samskip
Hefði ekki verið betra fyrir ykkur
að láta þessi tvö stóru flutningafyrir-
tæki bjóða í ykkar flutninga?
„Við erum sáttir við okkar samn-
ing við Samskip og hvaða aðferðir
menn nota, verður hver og einn að
gera upp við sig. Við erum hins veg-
ar sáttir við þessa niðurstöðu," sagði
Þorsteinn Már.
Styrktarsjóður
Heimahlynn-
ing*ar
STOFNAÐUR hefur verið sjóður til
minningar um Bjama Sigurðsson
prentsmiðjustjóra POB hf. Prentuð
hafa verið minningarkort sem hönnuð
voru af Kristjönu R. Tryggvadóttur
ekkju hans. Þeir sem vilja minnast
Bjama Sigurðssonar geta keypt
minningarkort í öllum blómabúðum á
Akureyri frá og með deginum í dag.
Ágóði mun renna til Heimahlynningar
á Akureyri, en starfsfólk hennar
reyndist Bjama heitnum og fjölskyldu
mjög vel í veikindum hans.
----♦ ♦ ♦---
Mælt með
Eiríki Birni
ÍÞRÓTTA- og tómstundaráð Akur-
eyrarbæjar mælti með því samhljóða
á fundi sínum í vikunni að Eiríkur
Bjöm Björgvinsson, íþróttafulltrúi á
Egilsstöðum verði ráðinn í stöðu
íþrótta- og tómstundafulltrúa Akur-
eyrarbæjar.
Alls sóttu 15 manns um stöðuna en
einn þeirra dró umsókn sína til baka.
Fjögur fyrirtæki hlutu viðurkenningu
atvinnumálanefndar
Samherji fyrirtæki
ársins á Akureyri
SAMÍHERJI hf. er fyrirtæki ársins
1995 á Akureyri og var forsvars-
mönnum fyrirtækisins afhent við-
urkenning atvinnumálanefndar
Akureyrarbæjar í hófi sem haldið
var af því tilefni í gær. Þá voru
fjögur fyrirtæki heiðruð sérstak-
lega, en þau eru nokkurs konar
þverskurður af akureyrsku at-
vinnulífi. Nefndin ákvað á síðasta
ári að taka upp þann sið að veita
árlega því fyrirtæki sem skaraði
fram úr viðurkenningu og er
markmiðið að vekja athygli á ár-
angri akureyrskra fyrirtækja og
Akureyri sem athafnabæ.
„Eftir nokkurra ára deyfð er
atvinnuleysi nú minna en verið
hefur um árabil og umsvif ýmissa
fyrirtiekja eru að aukast auk þess
sem ný skjóta upp kollinum. Það
er þó mest um vert að andinn í
bænum er allur annar en hann var
fyrir aðeins fáum misserum,"
sagði Guðmundur Stefánsson, for-
maður atvinnumálanefndar, við
afhendingu viðurkenningarinnar.
Gera út fjórtán skip
Guðmundur rakti sögu Sam-
herja, en fyrirtækið var stofnað
árið 1983 þegar ísfisktogarinn
Guðsteinn GK var keyptur, honum
var siðar breytt í frystitogara og
sem fékk nafnið Akureyrin EA.
Skipunum hefur síðan fjölgað með
ótrúlegum hraða, Samherji á nú
6 frystitogara hér á landi, tvo
fersk-rækjutogara og eitt nóta-
skip sem jöfnum höndum veiðir
rækju og loðnu. Þá gerir fyrirtæk-
ið út frystiskip frá Færeyjum og
fjóra frystitogara frá Þýskalandi
eða alls 14 skip. Aflaheimildir fé-
lagsins eru yfir 17 þúsund tonn í
þorskigildum hér við land auk
aflaheimilda í Færeyjum og
Þýskalandi.
Samherji á einnig helmingshlut
í Strýtu og á liðnu ári eignaðist
félagið Söltunarfélag Dalvíkur.
Þessi tvö fyrirtæki vinna árlega
um 9.000 tonn af rækju og Strýta
kaupir auk þess verulegt magn
af grásleppuhrognum og síld til
vinnslu í verksmiðju sinni. Þá hef-
ur Samherji stofnað til samstarfs
við Royal Greenland á Grænlandi.
Starfsmenn Samheija og dótt-
urfyrirtækja á íslandi og Færeyj-
um eru yfir 400 og velta fyrirtækj-
anna nam um 5 milljörðum á síð-
asta ári. Velta í landvinnslu nam
á sama tima 2,2 milljörðum.
Starfsmenn í landi eru um 200
talsins. Þá er árlega velta
Deutsche Fischfang Union um 2,2
milljarðar og starfsmenn um 240.
„Mér finnst það vel til fundið
hjá atvinnumálanefnd að vekja at-
hygli á því sem er að gerast í at-
vinnulífinu á Akureyri," sagði Þor-
steinn Már Baldvinsson fram-
kvæmdastjóri Samherja en að hans
mati er atvinnulíf í bænum í sókn.
„Ég lít á þetta sem viðurkenningu
á því að við og okkar starfsmenn
séum að gera góða hluti.“
Fjögur fyrirtæki heiðruð
Fjögur fyrirtæki voru einnig
heiðruð en þau eru Kaupfélag
Eyfirðinga einkum fyrir tvennt,
starfsemi KEA Nettó sem stuðlað
hefur að lækkun vöruverðs í bæn-
um og framleiðslu og markaðs-
setningar Mjólkursamlags KEA á
svaladrykknum Frissa fríska sem
seldur var í 4 milljónum lítra á
liðnu ári. Þá hlutu PH-snyrtivör-
ur, Purity Herbs, viðurkenningu,
en fyrirtækið hefur vaxið úr nán-
ast engu og dreifir nú snyrtivörum
úr náttúrulegum efnum um land
allt og í vikunni fór fyrsta send-
ingin á erlendan markað. Sand-
blástur og málmhúðun sem er
umsvifamikill innflytjandi og leið-
andi á sínu sviði fékk einnig viður-
kenningu og loks Kjarnafæði en
starfsemi fyrirtækisins hefur vax-
ið mjög undanfarin ár og er nú
eitt af stærstu matvælafyrirtækj-
um landsins.
„ÉG LEYFI mér að fullyrða að engir einstakl-
ingar hafa nokkru sinni lagt neitt svipað til
atvinnumála hér í bænum og þeir Samheija-
frændur," sagði Guðmundur er hann afhenti
þeim Þorsteini Má Baldvinssyni og Kristjáni
Vilhelmssyni viðurkenninguna.
Morgunblaðið/Kristján
ÁSTA Sýrusdóttir framkvæmdasljóri Purity
Herbs, Magnús Gauti Gautason kaupfélagsstjóri
KEA, Eiður Gunnlaugsson framkvæmdastjóri
Kjarnafæðis og Jón Dan Jóhannsson fram-
kvæmdasljóri Sandblásturs og málmhúðunar.
Laun bæjarfulltrúa og nefndarmanna hækkuðu um 9% um áramót
Einn nefndarmanna
afþakkaði launahækkun
Hlutabréf í
Dagsprenti hf.
Tilboði
hafnað
STJÓRN KEA hefi'i' hafnað til-
boði hlutafélagsins Upphafs hf. í
hlutabréf KEA og Kaffibrennslu
Akureyrar hf. í Dagsprenti hf.,
sem gefur út dagblaðið Dag. KEA
og Kaffíbrennsla Akureyrar, dótt-
urfyrirtæki KEA, eiga rúm 52% í
Dagsprenti.
Jóhannes Sigvaldasori, stjórnar-
formaður KEA, sagði að tilboð
Upphafs hf. hefði verið of lágt.
Hann sagði það ekki hafa verið
mikið til umræðu innan KEA að
selja hlutinn í Dagsprenti en hins
vegar yrði það skoðað ef viðun-
andi tilboð berst. Jóhannes sagði
að endurskipulagning á rekstri
Dagsprents væri að skila sér.
Reksturinn á síðasta ári hafi geng-
ið þokkalega.
Þetta er í annað sinn sem þeir
aðilar sem standa að Upphafi hf.
gera tilboð í hlutabréf KEA og
Kaffíbrennslunnar í Dagsprenti.
ORÐIÐ hefur verið við ósk Odds
Halldórssonar, sem situr í íþrótta-
og tómstundaráði og bygginga-
nefnd Akureyrar og er varamaður
í bæjarstjórn, um að þóknun fyrir
störf hans í þágu bæjarins hækki
ekki. Laun bæjarfulltrúa og þeirra
sem sitja í ráðum og nefndum á
vegum Akureyrarbæjar hækkuðu
um 9% um síðustu áramót, en þau
miðast við þingfararkaup.
Oddur lét bóka að hann væri
mjög ósáttur við að á sama tíma
og verið væri að leita allra leiða
til að draga úr launakostnaði
starfsmanna, m.a. í íþróttamann-
virkjum bæjarins, fái fulltrúar í
nefndum hækkun á sinni þóknun
langt umfram hækkanir á almenn-
um vinnumarkaði. Hann sendi
launafulltrúa bæjarins erindi þar
sem hann óskaði eftir að fá sömu
greiðslu fyrir fundarsetu og gilti
fyrir hækkun og hefur bærinn fall-
ist á þá ósk.
„Ég átti satt að segja ekki von á
að orðið yrði við þessari beiðni og
hafði því hugsað mér að láta mis-
muninn renna til einhvers líknarfé-
lags. Ég er ánægður með að hafa
fengið þessu framgengt, það verða
þá nokkrar krónur eftir í bæjar-
sjóði," sagði Oddur, en hann lagði
óformlega til á fundi bæjarstjórnar
síðasta haust að laun bæjarfulltrúa
yrðu lækkuð.
Enginn afþakkað
launahækkun áður
„Ég man ekki til þess að menn
hafí afþakkað launahækkun áður,“
sagði Karl Jörundsson starfsmanna-
stjóri Akureyrarbæjar. „Ég fékk
formlegt erindi frá Oddi þar sem
hann óskaði eftir að fá sömu laun
og fyrir hækkun. Vilji menn ekki
taka þá launahækkun sem í boði er
vil ég helst ekki ganga í berhögg
við þeirra sannfæringu." Karl sagði
að aðrir er málið varðaði hefðu ekki
fylgt í fótspor Odds. Eftir hækkun
eru greiddar 4.290 krónur fyrir
hvern fund, en var áður 3.915 krón-
ur.
Fyrir um einu ári var samþykkt
tilllaga um greiðslu til bæjarfulltrúa
og annarra þeirra sem starfa í nefnd-
um og ráðum á vegum Akureyrar-
bæjar. Laun bæjarfulltrúa miðast
við þingfararkaup alþingismanna,
en það var 178 þúsund krónur fram
til 1. september síðastliðinn þegar
það hækkaði í 195 þúsund krónur.
Samþykkt var á fundi bæjarstjórnar
á liðnu hausti að fresta því að hækka
laun bæjarfulltrúa, en hækkunin tók
gildi um síðustu áramót.
Forseti bæjarstjórnar hefur 35%
af þingfararkaupi í föst laun á mán-
uði, varaforsetar fá 25% föst laun
og aðalmenn í bæjarstjórn fá 20%
þingfararkaups í laun á mánuði.
Fundarseta er innifalin í öllum tilvik-
um. Aðalmenn í bæjarráði fá til við-
bótar 20% föst laun á mánuði og
2,2% fyrir hvern fund. Fyrir setu í
nefnd eru greidd 2,2% og til viðbót-
ar fá varaformenn 50% álag á þá
fundi sem þeir stjórna.
Formenn með mishá laun
Laun formanna nefnda eru nokk-
uð mismunandi. Formenn félags-
málaráðs, kjarasamninganefndar og
kjaranefndar fá 15% föst laun á
mánuði, formenn atvinnumálanefnd-
ar, húsnæðisnefndar, íþrótta- og
tómstundaráðs, stjórnar veitustofn-
ana, skólanefndar og framkvæmda-
nefndar fá l0% föst laun á mánuði
en formenn annarra nefnda 5% föst
laun á mánuði.