Morgunblaðið - 15.02.1996, Blaðsíða 16
16 FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR: EVRÓPA
Efnt til sam-
keppni
um útlit
evró-seðla
EVRÓPSKA gjaldmiðilsstofnunin
(EMI) gengst nú fyrir samkeppni
á meðal hönnuða peningaseðla í
ríkjum ESB um útlit á evró-seðlun-
um, sem settir verða í umferð upp
úr aldamótum ef áætlanir um evr-
ópskt myntbandalag (EMU) ganga
eftir.
Hönnuðirnir eiga að hanna seðla
fyrir sjö upphæðirj 5,10, 20, 50,
100, 200 og 500 evró. Þeir geta
valið um tvenns konar hönnun.
Annars vegar er gert ráð fyrir að
útlit seðlanna sé í hefðbundnum
stíl og tengist ákveðnum tímabilum
í sögu og menningarlífi Evrópu.
Þannig verði öðrum megin á seðl-
inum mynd af einhveiju af stór-
mennum Evrópusögunnar og/eða
mynd af listaverki, hlut eða upp-
finningu. Hinum megin verði mynd
af byggingu, sem sé dæmigerð
fyrir viðkomandi tímabil.
Hvað er evrópskt og
hvað er þjóðlegt?
Búast má við deilum um það
hvað sé sögulegt og evrópskt og
hvað tengist fyrst og fremst ein-
stökum þjóðum Evrópu. Þannig
er ekki víst að mynd af Napóleoni
vekti sömu viðbrögð í öllum vænt-
anlegum aðildarríkjum EMU. Þess
vegna býður EMI hönnuðunum
einnig upp á annan kost; að útlit
peningaseðlanna verði abstrakt
og í anda nútímalegrar listhönn-
unar. Hönnuðir benda á að slíkt
Reuter
ENN veit enginn hvemig evró-
seðlar og -mynt, sem leysa
mynt aðildarríkjanna af hólmi,
munu líta út.
sé ekki einfalt verkefni, meðal
annars vegna þeSs að slík lausn
gæti gert fölsurum auðveldara
fyrir að líkja eftir evró-seðlunum.
Þegar (og ef) EMI verður að
Seðlabanka Evrópu árið 1999,
mun stofnunin hafa lokaorðið um
útlit evróseðlanna. Mörg önnur
atriði þarf að leysa, til dæmis
stærð seðlanna, en Evrópuríkin
nota mjög misstóra peningaseðla.
Aðeins reyndir seðlahönnuðir
fá að taka þátt í samkeppninni og
eru þeir valdir af seðlabönkum
aðildarrikja Evrópusambandsins.
Frönsk út-
varpslög til
athugunar
Brussel. Reuter.
TILRAUN franskra stjórnvalda til
að draga úr ensku efni á öldum Ijós-
vakans er nú til skoðunar hjá fram-
kvæmdastjórn Evrópusambandsins.
Embættismenn hjá framkvæmda-
stjórninni sögðust hafa áhyggjur af
því að frönsk lög sem kveða á um
að 40% af leiknum lögum hjá út-
varpsstöðvum skuli vera á frönsku,
ella komi til hárra sekta, væru á
skjön við ákvæði um fijálst flæði
vöru og þjónustu innan Evrópusam-
bandsins.
„Við erum að kanna málið,“ sagði
embættismaður og bætti við að mál-
ið snerist um það hvort að þau hlut-
föll sem lögin, er tóku gildi af fullum
krafti í janúar, kvæðu á um væru
réttlætanleg út frá því sjónarmiði að
vemda franska menningu án þess
að þau hefðu slæm áhrif á ftjáls við-
skipti.
Irar settu sambærileg lög á sínum
tíma til að vernda írska söngvara
gegn flóði enskrar tónlistar en var
bent á það af framkvæmdastjórninni
í fyrra að lögin mismunuðu eftir þjóð-
emi.
Franskar útvarpsstöðvar hafa
mótmælt lögunum harðlega og segja
að hreinlega sé ekki til nægjanlega
mikið af tónlist á frönsku til að fylla
dagskránna. Hafa samtök evrópskra
útvarpsstöðva tekið málið upp við
framkvæmdastjórnina.
Philippe Douste-Blazy, menning-
armálaráðherra Frakklands, mun í
dag eiga fund með Karel van Miert,
sem fer með samkeppnismál í fram-
kvæmdastjórninni, en embættismenn
sögðu ólíklegt að þetta mál myndi
bera þar á góma.
Ástæðan er sú að það er Mario
Monti, sem fer með málefni innri
markaðarins, er hefur málið til rann-
sóknar.
Frakkar hafa um langt skeið hald-
ið því sjónarmiði á lofti að Evrópa
verði með einhverjum ráðum að veij-
ast engiisaxnesku menningarflóði í
tónlist og kvikmyndum frá Banda-
ríkjunum.
Þijú ný ríki í OECD
• ÞRJÚ fyrrverandi kommún-
istaríki í Austur-Evrópu, Pól-
land, Ungverjaland og Slóvakía,
munu fá aðild að Efnahags- og
framfarastofnuninni (OECD) á
næst.u mánuðum, að sögn
framkvmdasljóra OECD, Jean-
Claude Paye. Tékkland hefur
þegar fengið aðild að OECD.
Ríki Austur-Evrópu líta á OECD-
aðild sem mikilvægan áfanga á
leið til aðildar að Evrópusam-
bandinu.
• TYRKLAND hefur hafið
diplómatíska herferð til að út-
skýra sína hlið á Eyjahafsdeil-
unni fyrir ráðamönnum Evrópu-
sambandsins og NATO. Deniz
Baykal utanríkisráðherra mun í
vikunni funda með Malcolm Rif-
kind, utanríkisráðherra Bret-
lands, Hans van den Broek,
utanríkismálastjóra ESB, og
Javier Solana, framkvæmda-
stjóra NATO. Tyrkir telja stuðn-
ingsyfirlýsingu ESB við Grikk-
land í deilu ríkjanna um skerið
Imia eða Kardak hafa verið
„óheppilega" og segir talsmaður
utanríkisráðuneytisins að hún
hafi verið kveikjan að ferð Bayk-
als.
ERLEINIT
Deilt um nýja skoðanakönnun á Spáni
Hægrimönnum spáð
miklum kosningasigri
Madrid. Reuter.
TALSMAÐUR félagsfræðistofnunar
ríkisins á Spáni, Joaquin Arango,
sagði í gær að skoðanakönnun um
fylgi stjórnmálaflokka sem birt var
í dagblaðinu ABC í gærmorgun,
hefði ekki verið gerð af stofnuninni.
Samkvæmt niðurstöðunni fær
stjórnarflokkur sósíalista (PSOE)að-
eins 118 til 119 þingsæti en hægri-
flokkurinn Alþýðufylkingin (PP)
nýtur vaxandi vinsælda og er spáð
172 sætum.
„Við gerðum enga heildarkönnun,
allar tölurnar eru tilbúningur," sagði
Arango. Stofnun hans er rekin af
upplýsingamálaráðuneytinu og
stundum sökum um hlutdrægni.
„Ég skil Arango vel - það er hlut-
verk hans að neita því að hann hafi
stjórnað könnuninni, hann er stjórn-
málamaður," sagði Jose Antonio
Sentis, einn af ritstjórum ABC, sem
styður PP af miklu kappi.
Þingkosningar verða 3. mars.
Sósíalistar hafa verið við völd frá
1983, þeir hafa nú 159 sæti og styðst
minnihlutastjórn Feiipe Gonzalez
forsætisráðherra við flokk Katalóna
sem spáð er nokkru fylgistapi í könn-
uninni. PP hefur nú 141 sæti en
mun aðeins skorta fjögur sæti til
að hafa meirihluta, 176 þingsæti,
ef könnunin gengur eftir.
Þekktur, fyrrverandi dómari og
stuðningsmaður sósíalista, Francisco
Tomas y Valiente, var skotinn til
bana á háskólaskrifstofu sinni
skammt frá Madrid í gær. Sögðu
lögregluyfirvöld að allt benti til þess
að einn af hermdarverkamönnum
Baska í ETA-samtökunum hefði ver-
ið að verki.
Trúlofun
Játvarðs
prins á
næsta leiti?
Reuter
Hvalabjörgun
London. Daily Telegraph.
TRÚLOFUN Játvarðs, yngsta sonar
Elísabetar Bretadrottningar, og
Sophie Rhys-Jones virðist á næsta
leiti þar eð hirðin hefur nú tekið að
sér að skipuleggja dagskrá hennar.
Frá og með þessari viku verða
þeir sem óska þess að fá Rhys-Jones
til að vera viðstödd hvers kyns sam-
komur eða viðburði að setja sig í
samband við Sean O’Dwyer ofursta,
einkaritara prinsins.
Sú staðreynd, að starfsmaður
hirðarinnar hafi með einkadagskrá
hennar að gera, er sterkasta vís-
bendingin um að prinsinn muni senn
tilkynna um formlegra samband
þeirra, sem staðið hefur í tvö ár.
Líklega var það of mikil bjartsýni
að búast við tilkynningu um trúlofun
á Valentínusardeginum, degi elsk-
enda, en vinir þeirra telja, að tíðinda
sé að vænta fyrr en ella.
Hvorki hertogaynjan af Jórvík né
prinsessan af Waies fengu aðstoð
af því tagi sem nú á við um Rhys-
Jones fyrr en trúlofun þeirra við
drottningarsynina Karl prins og
Andrés hafði verið gerð opinber.
Orðrómur um trúlofun fékk byr
undir báða vængi í nóvember sl. er
Sophie Rhys-Jones lét af starfi hjá
fyrirtæki á sviði almannatengsla í
London. Hún sinnir ráðgjöf fyrir
fyrirtækið í hlutastarfi og lengi vel
kom það boðum áfram til hennar.
Nú hefur fyrirtækinu hins vegar
verið bent á að beina öllum fyrir-
spurnum beint til einkaritara Ját-
varðs, að hennar eigin ósk, eins að
sögn talsmanns hirðarinnar.
HVALAVINUM á Nýja Sjálandi
tókst í gær að bjarga 27 höfrung-
um, sem fjarað hafði undan við
Farewell Split á Suðurey, en sjö
voru áður dauðir. Var þá mikil
hvalavaða úti fyrir ströndinni og
var óttast, að hún synti líka á
land. Ekki er vitað hvað það er,
sem ruglar hvali, einkum smá-
hvali, svo í ríminu, að þeir synda
á land en vísindamenn segja, að
hvalir, sem eru dregnir út, endi
yfirleitt aftur uppi á ströndinni
skömmu síðar.
Þýska flughetjan Ad-
olf Galland látin
London. The Daily Telegraph.
ADOLF „Dolfo“ Galland hershöfðingi, einn
þekktasti orrustuflugmaður Þjóðveija í síðari
heimsstyijöldinni, lést nýlega, 83 ára að aldri.
Gaiiand varð yngsti hershöfðingi orrustuflug-
sveita í þýska fiughernum árið 1941 og skaut
niður 104 óvinaflugvélar í stríðinu. Hann gat
sér orð fyrir hugrekki í orrustum og þótti einn-
ig mjög djarfhuga í samskiptum við yfirboðar-
ana, Göring og Hitler, sem véku honum frá í
janúar 1945.
Þegar breski flugherinn fékk yfírhöndina í
orrustunni um Bretland reitti Galland Göring
til reiði með því að óska eftir breskum orrustuflugvél-
um. Síðar kallaði hann einnig yfir sig reiði Hitlers þeg-
ar hann bað nasistaleiðtogann um að láta hætta að
rægja breska flugmenn í útvarpi.
Vinur breskra flugmanna
Galland lagði til orrustu við þekktustu flughetjur
Breta, svo sem Bob Stanford-Tuck og Douglas Bader.
Hann bar virðingu fyrir flugmönnum óvinahersins og
varð vinur þeirra eftir stríð. Tuck, Bader og
Galland héldu til að mynda fyrirlestra saman
í Bandaríkjunum.
Galland féll í ónáð hjá Göring vegna deilna
um aðferðir í baráttunni við breska flugherinn.
Göring sakaði hann um föðurlandssvik og setti
hann í stofufangelsi. Galland hafði ákveðið að
svipta sig lífí þegar Hitler skarst í leikinn og
fól honum að stjórna úrvalsflugsveit, sem var
búin nýrri gerð orrustuþotna, Me 262. Þotum-
ar oliu mikium usla meðal bandamanna en
margar þeirra voru þó skotnar niður.
Galland fór í síðustu árásarferð sína skömmu fyrir
lok stríðsins og neyddist til að nauðienda og var tekinn
til fanga. Hann var ekki látinn laus fyrr en 1947 og
ári síðar var hann fenginn til Argentínu til að byggja
upp flugher landsins.
Galland flutti aftur til Þýskalands árið 1955, hóf
störf fyrir flugfélagið Air Lloyd og varð stjórnarformað-
ur þess. Hann var einnig eftirsóttur sem ráðgjafi í flug-
málum lengi eftir stríðið.
Adolf Galland