Morgunblaðið - 15.02.1996, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 1996 17
116felldir
í Súdan
FULLTRÚAR stjórnarand-.
stöðuflokksins Umma í Súdan
sögðu í gær að 116 manns
hefðu fallið og vel á annað
hundrað særst í bardögum
stjórnarhermanna við liðs-
menn uppreisnarhreyfingar í
suðurhluta landsins fyrr í
mánuðinum. 35 hinna föllnu
voru úr liði stjórnvalda og var
yngri bróðir Omars Hassans
al-Bashirs forseta meðal
þeirra, að sögn Umma. Borg-
arastríð hefur verið í landinu
í 13 ár og talið að allt að
hálf milljón manna hafí fallið.
Jafntefli
í þriðju
skákinni
ÞRIÐJU' skákinni í einvígi
Garrís Kasparovs við IBM-
skáktölvu er nefnist Dimmblá,
lauk með jafntefli á þriðjudag
eftir 39 leiki. Teflt er í borg-
inni Philadelphiu í Bandaríkj-
unum og er staðan jöfn, hvor
keppandi með hálfan annan
vinning.
Áfram deilt
um plúton-
smygl
LEYNIÞJÓNUSTA Rússlands
vísaði því á bug i gær að hún
hefði staðfest .að plúton sem
smyglað var til Þýskalands
1994 hafi verið frá Rússlandi.
Ekki hefði enn verið afhent
plútonsýni sem rússneskir vís-
indamenn þyrftu til að kanna
málið. í fyrradag fullyrtu þýsk
stjórnvöld að Rússar hefðu
staðfest upprunannn en þýska
leyniþjónustan hefur verið
sökuð um að hafa sett smygl-
ið á svið.
Fjöldagröf
reyndist frá
19. öld
FJÖLDAGRÖF, sem fannst í
grennd við Lambach í Austur-
ríki nýlega og var talin varð-
veita líkamsleifar gyðinga úr
helförinni á valdaskeiði nas-
ista, reyndist vera frá 19. öld,
að sögn sérfræðinga í gær.
Eru líkur á að um sé að ræða
bein hermanna í styijöldum
Napóleons Frakkakeisara í
upphafi síðustu aldar.
18 Pólverjar
meðal fórnar-
lamba í Birg-
enair-vél
AÐ SÖGN yfirvalda í Dómin-
íska lýðveldinu voru 18 Pól-
veijar í hópi 189 manna sem
fórust er Boeing-þota tyrk-
neska flugfélagsins Birgenair
hrapaði undan strönd landsins
í liðinni viku. Aðrir farþegar
voru flestir þýskir. Enn er
beðið eftir bandarískum
tæknibúnaði sem nota á til að
reyna að finna svarta kassann
svonefnda með upplýsingum
um flug vélarinnar. Flakið er
talið vera á allt að 2.000 metra
dýpi um 19 kílómetra frá
landi.
Mannfall
fyrir kosn-
ingar í
Bangladesh
FJÓRIR menn létu lífið og 150
særðust í sprengingum þegar alda
ofbeldis vegna kosninganna í
Bangladesh reið yfir landið í gær.
Mikill öryggisviðbúnaður var í
Bangladesh og hefur herinn verið
sendur út um allt land til að kveða
niður ofbeldi. Stjórnarandstaðan,
undir forystu Sheikh Hasina, hefur
skorað á fólk að hunsa kosningarn-
ar og er búist við lítilli kosninga-
þátttöku. A.K.M. Sadeque, yfir-
stjórnandi kosninganna, sagði að
ráðist hefði verið á kosningaskrif-
stofur og starfsmenn um allt land.
16 manns hafa týnt lífi og 500
særst í átökum vegna kosninganna
í febrúar.
Stjórnarandstaðan hefur líkt
kosningunum við gamanleik og
saka Begum Khaleda Zia forsætis-
ráðherra um spillingu og kosninga-
svik. Flokkur hennar er eini stóri
flokkurinn, sem tekur þátt í kosn-
ingunum. Forystumenn annarra
stórra flokka hafa ákveðið að snið-
ganga þær. Þeir krefjast þess að
Khaleda feli völdin óflokksbundinni
stjórn til að tryggja að kosningar
geti farið vel fram.
Útilokar ekki
aðrar kosningar
Khaleda útilokar ekki að halda
aðrar kosningar innan skamms, en
sagði að hún myndi sitja áfram
þótt þátttaka yrði aðeins tíu af
hundraði.
Mikil þátttaka var í tveggja daga
verkfalli, sem stjórnarandstaðan
boðaði til á þriðjudag. Einu farar-
tækin í boði voru vagnar dregnir
af reiðhjólum. í Dhaka og öðrum
stórum borgum voru fyrirtæki lok-
uð. Dyr stjórnarskrifstofa voru opn-
ar, en starfsfólk var fátt. Járnbraut-
arteinar voru rifnir upp og tálmar
reistir á þjóðvegum. Óttast er að
gripið verði til ofbeldis á kjörstöðum
og víða hafa kosningastarfsmenn
látið leggja sig inn á sjúkrahús til
að þurfa ekki að mæta til vinnu í
dag.
Hér sjást hermenn á götu í
Dhaka.
Braust inn og baðst hælis í rússneska sendiráðinu í Pyongyang
N-kóreskir verðir
féllu í átökunum
Moskvu, Haag. Reuter.
VOPNAÐUR maður braust inn í
rússneska sendiráðið í Pyongyang,
höfuðborg Norður-Kóreu, í gær og
hefur hann farið fram á pólitískt
hæli í Rússlandi. Talið er, að nokkr-
ir n-kóreskir verðir hafi fallið í átök-
um við manninn. Fréttir eru um,
að fyrrverandi eiginkona Kim Jong-
ils, leiðtoga N-Kóreu, sé í Hollandi
en búist er við, að hún biðji um hæli
í Suður-Kóreu.
Samkvæmt fréttum Itar-Tass-
fréttastofunnar var maðurinn vopn-
aður skammbyssu og hótaði að
svipta sig lifi ef hann fengi ekki
hæli. Talsmaður utanríkisráðuneyt-
isins í Moskvu sagði það vera í stöð-
ugu sambandi við sendiráðið í Py-
ongyang vegna þessa máls og haft
er eftir öðrum heimildum, að ósk
mannsins sé til athugunar.
Haft er eftir Rússum í Pyongy-
ang, að maðurinn hafi klifrað yfir
Sagt að fyrrver-
andi eiginkona
Kim Jong-ils sé
í Hollandi
tveggja metra háa girðingu og kom-
ist inn í byggingu rússnesku versl-
unarnefndarinnar. Hafi síðan
nokkrir n-kóreskir verðir, þrír að
sögn Interfax-fréttastofunnar, fall-
ið í átökum við hann.
Erfitt mál
Rússneskir sendimenn og fulltrú-
ar N-Kóreustjórnar áttu í viðræðum
við manninn í gær en atburðurinn
átti sér stað tveimur dögum fyrir
afmæli Kim Jong-ils, leiðtoga N-
Kóreu, en það er almennur frídagur.
Tass sagði í gær, að þetta mál
væri mjög snúið fyrir rússnesk yfir-
völd vegna samnings frá 1957 milli
Sovétríkjanna og N-Kóreu. Sam-
kvæmt honum ber að afhenda fólk,
sem biður um hæli, hafi það gerst
sekt um einhvern glæp.
Sung í Hollandi?
Talsmaður hollenska utanríkis-
ráðuneytisins kvaðst í gær ekki
geta staðfest, að Sung Hye-rim,
fyrsta eiginkona Kim Jong-ils, leið-
toga N-Kóreu, væri í Hollandi en
vildi ekki útiloka það. Það var hins
vegar fullyrt í suður-kóreska dag-
blaðinu Dong-A Ilbo, sem sagði, að
Sung og þijár konur aðrar væru
væntanlegar til Suður-Kóreu síðar
í mánuðinum.
Annað dagblað, Chosun Ilbo,
sagði á mánudag, að Sung og föru-
neyti hennar hefði komið til Sviss
frá Moskvu og hygðust sækja um
hæli í Suður-Kóreu.
Reuter
Gagnrýna sam-
komulag um vatn
Amman, Osló. Reuter.
JÓRDANAR gerðu í gær lítið úr
samkomulagi um vatnsnotkun, sem
samningamenn ísraela, Jórdana og
Palestínumanna staðfestu með
fangamarki í Osló á þriðjudag.
Sögðu þeir að þar væri ekki tekið
tillit til þarfarinnar til að skipta
vatni á milli sín.
„Það sem þeir settu saman var
hálfvolgur, lauslegur texti, sem hef-
ur enga merkingu," sagði dr. Munth-
er Haddadin, sem stjómaði samning-
um fyrir Jórdaníu í Osló og samdi
einnig um vatnsmál í friðarsáttmála
ísraela og Jórdana. „Það er ekkert
í textanum um skiptingu vatns svo
ég myndi ekki gera jafn mikið úr
þessu og gert var í fréttum."
Norðmenn tilkynntu á þriðjudag
að ísraelar, Jórdanar og Palestínu-
menn hefðu staðfest samkomulag
um notkun vatns í Mið-Austurlönd-
um. Norðmenn sögðu að búist væri
við að samkomulagið yrði undirritað
í Osló í mars eftir að viðkomandi
yfirvöld hefðu staðfest það.
Haddadin kvaðst hins vegar efast
um að það yrði samþykkt.
Þróa hljóðfráa þotu
Tókíó. Reutcr.
JAPANIR hafa ákveðið að hefja
rannsóknir og tilraunir í því skyni
að leika lykilhlutverk við þróun og
smíði næstu kynslóðar af hljóð-
fráum farþegaþotum, að sögn emb-
ættismanna.
„Átta ára verkefni fer í gang á
fjárlagaárinu 1997 með það að
markmiði að þróa tækni til smíði
hljóðfrárrar farþegaþotu. Verður
12,5 milljörðum króna varið til
þess,“ sagði talsmaður japönsku
vísinda- og tæknistofnunarinnar.
Verður miðað við að þróa tækni
til að smíða 300 sæta farþegaflug-
vél sem flogið getur allt að 10.000
kílómetra á tvöföldum hljóðhraða.
Bresk-franska þotan Concorde,
er eina hljóðfráa farþegaþotan í
þjónustu flugfélaga. Hún flýgur á
tvöföldum hljóðhraða, ber um 100
farþega og getur flogið þeim á
fjórða þúsund kílómetra.
Japanir veðja á, að mikil þörf
verði fyrir nýja hljóðfráa þotu
snemma á næstu öld.
PÉTUR PÉTURSSON
LJÓSMYNDASTÚDÍÓ
LAUGAVEGI 24 • SÍMI 552 0624