Morgunblaðið - 15.02.1996, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 1996 29
AÐSENDAR GREINAR
Betri að-
stöðu strax!
Guðríður Margrét
Sigurðardóttir Leósdóttir
ÞEGAR Þjóðarbók-
hlaðan var opnuð 1994
vonuðust stúdentar til
þess að lausn væri
fundin á lesaðsstöðu-
vandræðum þeirra.
Annað kom á daginn
því að sá böggull fylgdi
skammrifi að húsið er
aðeins opið hluta sólar-
hrings og þá á þeim
tíma sem flestir stúd-
entar eru í skólanum.
Þannig hafa háskóla-
nemar þurft að sitja
heima kvölds og um
helgar, á meðan bók-
hlaðan stendur auð og
uppljómuð. Þessu
mikla óhagræði hefur frá upphafi
verið mótmælt af stúdentum en
hingað til hefur verið talað fyrir
daufum eyrum landsbókavarðar.
Sinnuleysi meirihluta Stúdentaráðs
hefur vakið athygli en mótmælaað-
gerðir hans hafa hingað til verið
máttlaust hjal sem engum árangri
hefur skilað. Til að mæta þessu
hefur Vaka f.l.s. tekið málið upp á
sína arma og nú fyrir skömmu stóð
félagið fyrir undirskriftasöfnun um
greiðari aðgang að hlöðunni meðal
háskólastúdenta og starfsfólks skól-
ans sem skilaði tæpum 2.500 und-
irskriftum. Listarnir voru afhentir
menntamálaráðherra sem kvaðst
mundu taka málið til alvarlegrar
athugunar.
Þegar málið er skoðað nánar
kemur í ljós að kröfur stúdenta
kosta ríkið ekki mikið. Rekstrar-
kostnaður Þjóðarbókhlöðunnar er
um 250 milljónir króna á ári en
reiknimeistarar stofnunarinnar hafa
reiknað út að 5 milljónir kosti að
halda hlöðunni opinni á kvöldin og
um helgar og er þá miðað við að
starfsemi sé í fullum gangi á öllum
hæðum. Tölur stúdenta eru reyndar
nokkru lægri því þar er t.d. gengið
út frá að nægilegt sé að hafa aðeins
ljórðu hæðina opna og stúdentar séu
reiðubúnir að gegna þjónustustörf-
um fyrir lítið fé. Hér eru því
raunsæjar kröfur á ferð sem hljóta
að verða teknar til greina sé þeim
fylgt eftir af festu og dug.
I þessum kosningum setur Vaka
lengingu afgreiðslutíma Þjóðarbók-
hlöðunnar á oddinn. Þetta mál snert-
ir flest okkar og við erum því flest
sammála um að hér verði að gera
bragarbót á. Það hlýtur að vera
krafa okkar stúdenta að tekið verði
mið af þörfum okkar fremur en að
fagurfræðileg sjónarmið verði látin
ráða í ákvörðunum um fjárveitingar.
Bætum tölvukostinn
Pottur er viðar brotinn en í les-
aðstöðumálum nemenda. Tölvumál
eru ofarlega á baugi í þeirri um-
ræðu því í þeim efnum er háskólinn
mjög aftarlega á merinni. Tölvuver
eru enn of fá og ekki öll nettengd
og tækjakosturinn er sums staðar
talsvert á eftir sinni samtíð. Engin
tölvuver eru í aðalbyggingunni og
Læknagarði svo dæmi séu tekin og
það var ekki fyrr en á þessu skóla-
ári sem tölvur komu í Lögberg. Ef
að líkum lætur koma tölvur til með
endur sem þar starfa fái hann strax
svo og að nettengingu verði komið
alls staðar á.
Vaka vill nýtt
stúdentaheimili
Sem betur fer er til líf utan bók-
anna og háskólastúdentar eiga
margt sameiginlegt eftir skólatíma.
Því miður hefur vantað einhvern
sameiginlegan vettvang fyrir þá til
að hittast á háskólasvæðinu en nú
I þessum kosningum,
segja þær Guðríður
Sigurðardóttir og
Margrét Leósdóttir,
setur Vaka lengingu
afgreiðslutíma Þjóðar-
bókhlöðunnar á oddinn.
hefur kviknað Ijós í myrkrinu. Fyrir
jól lýsti Þjóðminjasafnið áhuga sín-
um á því að kaupa húsnæði FS við
Hringbraut undir starfsemi sína.
Verði af þessum viðskiptum, sem
allar likur eru á, losna fjármunir sem
■nota má til að fjármagna byggingu
nýs Stúdentaheimilis. Vaka sér fyrir
sér að húsakynni á borð við þessi
geti hýst margs konar starfsemi sem
hingað til hefur vantað verulega í
skólann. Kjörbúð þar sem nemendur
geta keypt sér brýnustu nauðsynjar
hefur verið nefnd svo og samkomu-
salur sem nýst getur fyrir hina
ýmsu viðburði: tónleika, leiksýning-
ar, fundi o.fl. Skyndibitastaður og
kaffihús eru ekki síðri hugmyndir
en slíkt hefur gjörsamlega vantað á
háskólasvæðið hingað til. Rétt er
að taka strax fram að þessar fram-
kvæmdir koma ekki á nokkurn hátt
niður á fjárveitingum til háskólans
eða byggingarsjóðs garða.
Vaka vill að leitað verði allra leiða
til þess að nýtt Stúdentaheimili verði
að veruleika. Nú er sóknarfæri sem
við höfum einfaldlega ekki efni á
að sleppa. Af hveiju ekki að nýta
sér það?
Höfundar sitja í 2. og 3. sæti á
listn Vöku til Stúdcntaráðs.
í framtíðinni að skipta enn meira
máli í starfi skólans en þær gera
nú þegar. Ber að minnast á hug-
myndir Vöku um námsnet í því sam-
bandi en ekki er farið nánar út í það
í þessari stuttu grein, en meginfor-
sendan fyrir því.er að allir nemend-
ur hafi greiðan aðgang að tölvu
með nettengingu. Bættur tölvukost-
ur er því eitt brýnasta hagsmuna-
mál stúdenta og mikilvægt er að
haldið verði rétt á spöðunum í því.
Stúdentaráð sem hagsmunafélag
allra stúdenta hlýtur að beita sér
enn frekar en þegar hefur verið
gert í þessum málum og forgang-
skrafa er að þær byggingar sem
ekki búa yfirtölvukosti fyrir nem-
* Rcropriinit®
TIME RECORDEB CO.
Stimpilklukkur fyrir
nútíð og framtið
J. RSTVRLDSSON HF.
Skipholti 33.105 Reykjavík. sími 552 3580