Morgunblaðið - 15.02.1996, Page 43

Morgunblaðið - 15.02.1996, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 1996 43 SIGRÚN ÓSKARSDÓTTIR + Sigrún Óskars- dóttir fæddist í Reykjavík 9. júní 1931. Hún lést í Landspítalanum 7. febrúar sl. Foreldr- ar hennar voru Ey- þór Óskar Sigurðs- son bakarameist- ari, f. 1906, d. 1967, og Hulda Skúla- dóttir, saumakona og" húsmóðir, f. 1907, d. 1962. Þau bjuggu lengst af á Sunnuhvoli á Sel- Ijarnarnesi. Systk- ini Sigrúnar eru: Sigurður, f. 1933, Herdís, f. 1937, Guð- mundur Rúnar, f. 1945, og Ey- þór Örn, f. 1949. Dætur Sigrún- ar eru Hildur Jónsdóttir, f. 1958, og Eyrún Jónsdóttir, f. 1967. Maki Hildar er Jón Ágúst Þorsteinsson, f. 1958, og börn þeirra eru Sigrún H., f. 1984, og Þor- steinn Svanur, f. 1987. Sigrún var ógift en bjó um tíma með barnsföður sín- um, Jóni Bjarna Norðdahl. Hún var við nám í Kaup- mannahöfn sem ung kona en vann mesta sína starfsævi hjá Pósti og síma, nú síðast sem fulltrúi í póstmiðstöðini Ármúla. Útför Sigrúnar fer fram frá Fossvogskapellu í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. MIG LANGAR að minnst kærrar vinkonu sem allt of fljótt var tekin frá okkur. Margt kemur upp í hug- ann. Ég minnist gleði okkar þegar við uppgötvuðum að við hefðum fest okkur kaup á íbúðum í sömu blokk, á sömu hæð og meira að segja hlið við hlið. Það fannst okk- ur alveg frábært. Ég man líka hve vel hún reyndist föður mínum sem bjó hjá mér. Hún gaf sér alltaf tíma til þess að drekka með honum kaffi og spjalla við hann og ekki voru dætur hennar síðri, enda saknaði gamli maðurinn þeirra mikið þegar þær fluttu í stærri íbúð. En sam- bandið slitnaði ekki, því þær fluttu sig bara yfir í næstu blokk. Ég minnist líka sunnudagstúranna til Hveragerðis og Stokkseyrar í kaffi til Rúnars og Siggu. Þá má ekki gleyma stóru ferðinni okkar, þegar við keyrðum frá Kentucky til Niag- ara-fossa. Frá Toronto vestur til Gimli og Winnipeg. Sigrún naut ferðarinnar út í æsar. Hún var svo mikið náttúrubarn. Hún sá fagurt landslag og falleg vötn alls staðar. Við höfðum á orði að við mættum til með að endurtaka þessa ferð. Við eigum það bara eftir síðar. Sigrún var mikil fjölskyldumann- ' eskja og bar hún hag systkina sinna og fjölskyldna þeirra fyrir btjósti. Hún gladdist yfir velgengni þeirra. Það má ekki gleyma augasteinun- um hennar, barnabörnunum elsku- legu Sigrúnu og Þorsteini, sem voru henni sem lífið sjálft og átti hún alltaf nægan tíma fyrir þau. Þeirra missir er mikill. Elsku Hildur og fjölskylda og I Eyrún mín, missir ykkar er mikill , en minningin um yndislega móður mun geymast í hjörtum ykkar. Ég bið Guð að styrkja ykkur, systkini hennar og fjölskyldu þeirra, einnig Svövu móðursystur hennar, sem Sigrúnu þótti svo vænt um. Far þú í friði. Takk fyrir allt. Þín vinkona, Guðlaug. Það leið aðeins örstuttur tími frá því að Jón bróðir Torfa kynnti kær- ustuna sína Hildi fyrir okkur að við kynntumst Sigrúnu móður hennar. Þessari ljúfu, hæglátu en duglegu konu sem af elju og ástúð hafði ein alið upp tvær dætur og búið þeim gott heimili. Til þess að standa ein undir íbúðarkaupum og heimilis- rekstri hefur þurft langan vinnudag og margar fórnir. En markmið Sig- rúnar að koma dætrum sínum til manns tókst með ágætum, erfiðið krafðist samstöðu og það er vand- fundið nánara samband milli mæðgna en var á milli þeirra þriggja Sigrúnar, Hildar og Eyrún- ar. Þegar Jón Ágúst og Hildur fóru að vera saman var Jón tekinn inn í þetta litla samfélag. Seinna fædd- ust barnabörnin Sigrún og Þor- steinn sem voru augasteinar ömmu sinnar. Sigrún var frábær amma, hún var hlý og góð og það sem sjaldgæf- ara er, hún var barnabörnunum vinur og félagi sem fylgdist með daglegu amstri þeirra, hlustaði á þau og setti sig inn í hugðarefni þeirra. Það eru margar myndir sem koma upp í hugann: Sigrún geisl- andi af gleði við brúðkaup Jóns og Hildar þar sem Sigrún litla var einn- INGIMUNDUR JÓNSSON + lngimundur Jónsson fædd- ist á Klúku í Kaldrananes- hreppi í Strandasýslu 29. nóv- ember 1926. Hann lést á Sjúkrahúsi Suðurnesja hinn 30. janúar síðastliðinn og fór útför hans fram frá Ytri-Njarðvíkur- kirkju 3. febrúar. ÞEGAR ég var um 12 ára hitti ég oft mann sem kom stundum í kaffi til mömmu. Þar sátu þau og spjöll- uðu um lífsins gagn og nauðsynjar. Aldrei hefðu mér dottið í hug þá að þessi maður ætti seinna eftir að verða afi barnsins míns og reynast okkur svo vel sem hann gerði. Þetta var Ingimundur. Hann kom ósjald- an í heimsókn til okkar mæðgna í kjallarann og þar sátum við og spjölluðum saman um heima og geima. í huga mínum eru ótal margar minningar um þennan góða mann og ein þeirra er þegar hann hringdi snemma einn sunnudagsmorgun og bauð okkur mæðgunum í bíltúr austur fyrir fjall með sér og Kidda syni sínum. Þar átti að heimsækja ættingja og vini. Ég þáði boðið og af stað var brunað. Arndís mín var ekki nema u.þ.b. eins árs þá og af tillitssemi við hana stoppaði hann bílinn í hvert sinn sem þeir feðgarn- ir vildu reykja og fóru þeir út úr bílnum til að blása sinn reyk. í þessari ferð var barið að dyrum á nokkrum stöðum og þar á meðal hjá langömmu Arndísar, Oddnýju, sem bjó þá í Hveragerði. Okkur Arndísi þótti óskaplega vænt um Ingimund og viljum með þessum fáu orðum þakka honum samfylgdina og biðjum góðan Guð að blessa Steinunni og fjölskylduna. Kolbrún og Arndis. Okkur langar til að minnast kærs tengdaföður okkar, Ingimund- ar Jónssonar. Mundi, eins og hann var kallaður af ættingjum og vinum, var fjórði yngstur af ellefu systkin- um. Snemma fór hann á sjó með föður sínum og var sjómennska hans lif og yndi. Mundi var véla- vörður alla tíð eða þar til að hann fór í land vegna veikinda. Árið 1959 MINNINGAR ig skírð. í þau sex ár sem Jón og Hildur bjuggu í Danmörku var sam- band okkar við Sigrúnu mikið. Við fórum oft til hennar í kaffi og reyndum að vera hálfgerðir stað- genglar þeirra sem hún saknaði. Frá þeim stundum eru margar minningar og þá sérstaklega þeirri þolinmæði og hlýju sem hún sýndi athafnasamri lítilli dóttur okkar. Fleiri myndir koma upp í hugann, Sigrún að hjálpa til við að byggja hús Hildar og Jóns. Hjálp hennar var ekki einungis fólgin í að passa börnin, heldur taldi 'hún ekki eftir sér að naglhreinsa og mála ef því var að skipta. Það sem er sameigin- legt þessum minningum er að alltaf er Sigrún að hugsa um eða sinna öðrum. Hún var ein af þeim fágætu manneskjum sem alltaf setti ann- arra hag í fyrirrúm. Dætur hennar og tengdasonur höfðu oft af því áhyggjur að hún gleymdi sjálfri sér og sjálf urðu þau að setja mörkin, því ekki gerði hún það. Sigrún hafði áhuga á piörgu og þá sérstaklega andlegum málefn- um. í þeim efnum var hún opin og leitandi. Áður en hún veiktist var hún farin að sjá fram á starfslok sín og tíma til að sinna eigin hugð- arefnum. Fyrstu viðbrögð okkar eru að finnast hún hafa verið svikin um ávöxt erfiðis síns, en þá má ekki gleyma að verðmætustu launin hafði Sigrún þegar fengið í þeim Eyrúnu, Hildi, Jóni, Sigrúnu og Þorsteini. Velferð þeirra var það sem skipti hana mestu máli. Sigrún fær ekki að fýlgja barnabörnunum inn í fullorðinsárin en hún hefur sáð fræi í sál þeirra sem með tímanum mun bera ávöxt. Eyrúnu, Hildi og Jóni fylgja dýrmætar minningar um ástríka og ljúfa móður sem alltaf bar hag þeirra fyrir bijósti. Við vottum þeim sem og öðrum ástvin- um Sigrúnar okkar dýpstu samúð. Guð gefi þeim styrk til að takast á við sorgina. Frá því í haust þurfti Sigrún að gangast undir erfiðar aðgerðir og meðferð en um jólin leit út fyrir að horfurnar væru betri. Þá átti hún eftir eina aðgerð og sagði að nú myndi hún fara að hressast með vorinu. Lífskraftar hennar myndu eflast þegar gróðurinn tæki að lifna. Þess í stað varð atburðarás síðustu þriggja vikna hröð. Sigrún fékk ekki að njóta vorsins hér á jörð heldur kvaddi fólkið sitt og gekk æðrulaus til móts við nýja og bjartari tilvist. Guð blessi minningu hennar. Sólveig og Torfi. Elsku Sigrún mín. Nú kveð ég þig hinstu kveðju og vonast til að þrautir þínar hafi tekið enda og þú sért í góðum höndum þarna hinum megin. Ég minnist góðu stundanna sem við áttum saman þegar þú leist yfir í morgunkaffi um helgar og fékkst okkur mömmu með þér í gönguferð um nágrennið, ef þú varst þá ekki að koma sjálf úr einni slíkri. Ægis- síðan var oft gengin og víðáttur hafsins barðar augum. Það var notalegt að hafa þig hérna hinum megin við götuna. Þetta síðasta ár var þér ákaflega erfitt vegna veikindanna og hvert áfallið rak annað. Eftir hveija að- gerðina reyndum við að hughreysta þig eins og við gátum og biðja þig að halda fast í vonina og segja þér að þetta myndi allt lagast, þetta væru bara tímabundnir erfiðleikar. En enginn veit sína ævina fyrr en öll er. Maður skilur ekki hver tilgangurinn er með því að leggja slíka byrði á eina manneskju. Við viljum hins vegar trúa því að þetta hafi allt ákveðinn tilgang og verði til að þroska einstaklinginn sem komi síðan til með að nýtast ann- ars staðar til góðs. Ég átti með þér yndislegar stund- ir ásamt fjölskyldunni síðustu dag- ana fyrir andlátið. Þú vissir að hveiju stefndi og hafðir sætt þig við það. Það var svo mikil ró yfir þér og þú hræddist ekki dauðann. Þú vissir að þú værir að fara að hitta foreldra þína og önnur skyld- menni. Þú gerðir að gamni þínu og sagðir að það væri nú sniðugt ef þú bara hættir við að fara. Jæja Sigrún mín, ég vona að þér líði vel og að heilsan sé komin í lag. Elsku Eyrún og Hildur og fjöl- skylda, ég votta ykkur mína dýpstu samúð. Ég kveð þig, Sigrún mín. Þín systurdóttir, Hulda. Nokkur orð langar mig að setja á blað og minnast yndislegrar vin- konu, Sigrúnar Óskarsdóttur. Það er nær hálf öld frá okkar kynnum, en þá var hún tíður gestur á vinnu- stað mínum, Tannlæknastofu Halls L. Hallssonar, en þar vann einnig Hulda dóttir Halls, vinkona hennar og hefur vinskapur okkar þriggja varað síðan og minntumst við þess tíma oft og þeirra ánægjustunda er við áttum þá. Sigrún lauk gagn- fræðaprófi og var síðan tvo vetur í Tónlistarskólanum. Þá vann hún við saumaskap, bæði hér heima og í Danmörku, í eitt ár. Eftir það réðst hún til Pósts og síma og hef- ur starfað þar síðan, eða um fjöru- tíu ára skeið. Fyrir rúmu ári fórum við saman til Skotlands og áttum ánægjulegar stundir, en ekki gerði ég mér grein fyrir því þá að hún „gekk ekki heil til skógar“ því hún var jafnan glöð og kát. Stuttu síðar bytjaði hennar sjúkrasaga sem hefir verið mjög erfið og í haust greindist hún með krabbamein og hefir síðan verið í mjög erfiðri lyfjameðferð. 16. jan- úar fór hún á spítala og átti þaðan ekki afturkvæmt. Þar gekkst hún undir þijár erfiðar skurðaðgerðir en ekki varð við neitt ráðið. Dætur hennar, systkini, fjölskyldur og vin- ir voru harmi lostin og gerðu allt sem í þeirra valdi stóð og dvöldu hjá henni sem þau máttu. Dætrum sínum var hún einstök móðir og umvafði þær kærleika sín- um, dótturbörn, tengdasonur og systkini hennar og íjölskyldur voru henni afar kær, þá átti Svava, öldr- uð móðursystir hennar, þar góðar stundir og naut þar mikillar um- hyggju. Óll hafa þau misst mikið og Guð gefi þeim öllum styrk í sorg- inni og megi allar þær gleði- og kærleiksstundir er hún átti með þeim, veita þeim huggun í harmi. Ég vil þakka Sigrúnu vinkonu minni fyrir allar þær gleðistundir er við áttum saman á langri leið, það var gæfa að eiga hann að vini og minn- ingarnar mætar. Þó jörðin sé frosin og fokið í gömul skjól þá fylgir þeim gæfa sem treysta á ástina og vorið. Með einum kossi má kveikja nýja sól. Eitt kærleiksorð getur sálir til himins borið. Hin innsta þrá getur eld til guðanna sótt. Ein auðmjúk bæn getur leyst hinn hlekkjaða fanga. Svo fógnum þá - og fljúgum þangað í nótt, sem frelsið rikir og sígrænir skógar anga. ' (D.S.) Eyrúnu, Hildi og fjölskyldu, Svövu og systkinum Sigrúnar og fjölskyld- um þeirra, votta ég einlæga samúð mína, minning um góða konu lifir. Eirný Sæmundsdóttir. + Ástkær eiginkona mín og móðir, GUÐRÚN HALLGRÍMSDÓTTIR, Vesturgötu 3, Ólafsfirði, verður jarðsungin frá Ólafsfjarðarkirkju laugardaginn 17. febrúar kl. 14.00. Sæmundur Ólafsson, Hallgrímur Björnsson. giftist hann eftirlifandi konu sinni, Steinunni Snjólfsdóttur, þeim varð sjö barna auðið, en stórt skarð var höggvið í hópinn þegar sonur þeirra, Jón Ingi, drukknaði aðeins 19 ára gamali. Mundi hafði garnan af að ferðast og áhugi á körfubolta var mikill og ófáar ferðirnar voru farnar á leiki til að fylgjast með sonunum. Kynni okkar af Munda var góð, barnamað- ur var hann og mikill fjölskyldu- maður. Mundi var sterkur maður og stóð uppi þrátt fyrir mörg áföll í lífinu, hann naut mikillar hlýju og góðs stuðnings frá konu sinni sem hann sagði vera bestu konu í heimi. Með þessum orðum kveðjum við þig, elsku Ingimundur, og þökkum fyrir samfylgdina. Við vitum að það verður tekið á móti þér með opnum örmum fyrir handan. Elsku Steinunn, Guð styrki þig og fjölskylduna í ykkar miklu sorg. Þínar tengdadætur, Guðný og Halldís. ERFIDRYKKJUR P E R L A N sími 562 0200 + Föðursystir okkar, SIGRÍÐUR BJARNADÓTTIR, Holtsgötu 16, Reykjavík, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni föstudaginn 16. febrúar kl. 13.30. Helga Guðrún Eysteinsdóttir, Björg Hemmert Eysteinsdóttir, Jóhanna Arnljót Eysteinsdóttir. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför eigin- manns míns og föður okkar, SIGURÐAR VIÐARS SIGMUNDSSONAR, Asparfelli, Laugum. Sérstakar þakkir færum við Nick Cariglia, lækni, og öllu starfsfólki lyflækninga- deildar 1 í Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri fyrir frábæra umönnun.. Guð blessi ykkur öll. Jónína Þ. Helgadóttir, Þröstur Jón Sigurðsson, Björg Helga Sigurðardóttir, Ingi Páll Sigurðsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.