Morgunblaðið - 15.02.1996, Side 47

Morgunblaðið - 15.02.1996, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 1996 47 staögreitt FRÉTTIR Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna Rit um krabbamein STYRKTARFÉLAG krabba- meinssjúkra barna hefur gefið út bæklinginn Þegar bróðir þinn eða systir er með krabbamein. í frétt frá félaginu segir: „Þeg- ar barn fær krabbamein er al- gengt að systkin þess verði útund- an á meðan meðferð stendur yfir. Líðan sjúklingsins og afdrif eru í brennidepli en þarfir annarra fjöl- skyldumeðlima eru jafnan settar til hliðar. Þetta getur valdið mikl- um erfiðleikum og jafnvel skaða hjá viðkomandi systkini. Eins og ljóst má vera af heiti bæklingsins er innihaldinu beint til systkina barns sem fengið hef- ur krabbamein og verður honum dreift í samræmi við það. Öðrum sem áhuga hafa á bæklingnum er þó velkomið að hafa samband við skrifstofu SKB. Útskýringar og ráðleggingar Innihaldið er að mestu leyti útskýringar og ráðleggingar til systkina og foreldra þeirra ásamt nokkrum dæmisögum. Bæklingurinn kom upphaflega út á vegum American Cancer Society í Bandaríkjunum, en fé- lagið hefur veitt SKB góðfúslegt leyfi til að þýða hann á íslensku og dreifa hér á landi.“ Heimsferðir semja við Viva Air MORGUNBLAÐINU hefur borist fréttatilkynning frá Heimsferðum: Heimsferðir hafa gengið frá samningum við Viva Air flugfé- lagið um flug fyrir ferðaskrifstof- una til Spánar í sumar. Viva Air sem er virtasta leiguflugfélag Spánar, er í eigu Iberia flugfélags- ins og flýgur nýjum flugflota Bo- eing 737-300 þonta. Iberia sér um alla þjónustu við félagið á flugvöll- um sem og allt viðhald og eftirlit og er það samkvæmt ströngustu kröfum um öryggismál sem sett eru í heiminum í dag. Viva Air flaug nokkrar ferðir fyrir Heims- ferðir á síðasta ári við góðan orðstír og býður rómaða þjónustu, bæði hvað varðar allar tímaáætl- anir sem og þjónustu um borð. Heimsferðir skipta þar að auki við Air Europa flugfélagið sem í dag er stærsta leiguflugfélag Spánar og eitt stærsta leiguflug- félag Evrópu í dag, á 23 Boeing þotur. Air Europa sér um flug Heimsferða til Kanaríeyja með Boeing 757 vélum sínum og er þetta þriðja árið sem félagið flýg- ur fyrir Heimsferðir en á meðal viðskiptavina Air Europa eru stærstu ferðaskrifstofur í Bret landi, Skandinavíu og Þýska landi. 109.500J staögreitt ÞYSK HAGÆÐA Bsjonvörp LOEWE Profile 870 Nicam 28" Fullkomin fjarstýring meS öllum aSgerSum ó skjá. Myndlampi (Super Black Line). Flatur skjár Beint inntengi (SCHART) sem gerir mynd frá myndbandstæki eða afruglara mun skarpari.i Hljóðmagnari Nicam víSóma (STEREO) 2 x 25 W.‘ Textavarp Tveir innbyggSir hátalarar eru i tækinu. ORION VH-1105 1 Tveggja hausa myndbandstæki 1 Fjarstýring meS aSgerSaupplýsingui ■ Scart inntenging • „ShowView" búnaSur sem breytir upptökutíma ef breyting verSur á dagskrá 1 Sjálfvirk hreinsun á myndhaus. 36.900 staögreitt 28" twin TL1 Fullkomin fjarstýring með öllum aðgerSum á skjá. Islenskt textavarp • Myndllampi (BLACK MATRIX) flatur skjár. HljóSmagnari Nicam víðóma (STERÍÓ) 2x15W eSa 30W. Tveir hátalarar eru í tækinu. Hægt er aS tengja auka hátalarasett viS tækið. Beint inntertgi (SCART) sem gerir mynd frá myndbandstæki og/eða afruglara mun skarpari. vrsA EUR0 ogVISA raðgreiðslur BRÆÐURNIR CmíSSONHF Lágmúla 8, Sími 553 8820 Umbobsmenn u m a 111 Ia n d Reykjavík: Heimskringlan, Kringlunni.Vesturland: Málningarþjónustan Akranesi, Kf. Borgfirðinga, Borgarnesi.Blómsturvellir, Hellissandi. Vestflrðlr: Geirseyrarbúðin, Patreksfirði. Rafverk.Bolungarvík.Straumur.ísafirði. Norðurland: Kf. V-Hún.,Hvammstanga. Kf. Húnvetninga, Blönduósi. Skagfirðingabúð.Sauðárkróki. Hljómver, Akureyri. KEA.Dalvík. Kf. Þingeyinga, Húsavík. Austurland: Sveinn Guömundsson, Egilsstööum. Stál, Seyöisfirði. Verslunin Vík, Neskaupsstað. Kf. Fáskrúðsfirðinga, Fáskrúðsfirði. Suðurland: Mosfell, Hellu. Árvirkinn, Selfossi. Rás, Þorlákshöfn. Brimnes, Vestmannaeyjun. Reykjanes: Stapafell, Keflavík. Rafborg, Grindavík. Helgarskák- mót hjá Taflfélagi Reykjavíkur TAFLFÉLAG Reykjavíkur heldur helgina 16.-18. febrúar helgarskákmót og verða tefld- ar sjö umferðir eftir Monrad- kerfi. í fyrstu þremur umferð- unum verða tefldar atskákir en í fjórum síðustu eru tefldar kappskákir með umhugsunar- tímanum 1 'A klst. á 30 leiki og til viðbótar 30 mínútur til að ljúka skákinni. Verðlaun verða breytileg. Grunnverðlaun verða: 1. sæti 20.000 kr., 2. sæti 12.000 kr., 3. sæti 8.000 krónur. Fyr- ir hvetja 20 þátttakendur um- fram 35 bætast við 15.000 kr. við verðlaunasjóðinn (5000 kr. á hvert sæti). Ávallt hefur mikið af sterk- um skákmönnum tekið þátt í þessum mótum og sumir mæta á næstum hvert einasta mót eins og t.d. Sævar Bjarnason, alþjóðlegur meistari og Torfi Leósson, nýbakaður Skák- meistari Reykjavíkur. Meistara- keppni í frjálsum dönsum ÚRSLIT íslandsmeistara- keppni unglinga í Fijálsum dönsum (Freestyle) verður föstudaginn 16. febrúar kl. 20 í Tónabæ. Keppendur á aldrin- um 13-17 ára allstaðar að af landinu keppa um Islands- meistaratitilinn. Mikill áhugi er fyrir keppn- inni eins og undanfarin ár og keppa um 90 keppendur í hóp- og einstaklingsdansi. Kynnir og skemmtikraftur _ verður Magnús Scheving, íslands- meistari í þolfimi, og unglinga- landslið íslands í þolfimi verð- ur með nýtt þolfimiatriði. Keppt í barnaflokki í skák KEPPNI í Barnaflokki á Skák- þingi íslands 1996 verður dag- ana 17. og 18. febrúar nk. Mótið verður haldið í Faxafeni 12, Reykjavík, og þátttökurétt eiga börn 11 ára og yngri (þ.e. fædd 1985 og síðar). Umferðartaflan er þannig: Laugardagur 17. febrúar kl. 14 1., 2., 3., 4. og 5. umferð, sunnudagur 18. febrúar 6., 7., 8. og 9. umferð. Þátttökugjald eru 500 kr. Innritun fer fram á skákstað laugardaginn 17. febrúar kl. 13.30-13.55. Kópavogur Fundur um vímuefni og varnir FRÆÐSLUFUNDUR um vímuefni og varnir gegn þeim verður haldinn í kvöld, fimmtudaginn 15. febrúar, í Digranesskóla kl. 20. Á fundinn mæta fulltrúar frá forvarnadeild Fíkniefna- lögreglunnar. Foreldrar og forráðamenn barna í Digra- nesskóla eru velkomnir. NOKKRUM verðlaunahöfum var boðið í heimsókn á Slökkvistöðina í Reykjavík. Vinningshafar í Brunavarnaátaki LSS GÓÐ þátttaka var í eldvarnaget- raun Brunavarnaátaksins sem efnt var til jafnhliða heimsókn- um í skólana í tilefni Eldvarnar- dags þann 4. desember sl. Um það bil 30 þúsund svör bárust. Dregin hafa verið úr innsendum lausnum nöfn barna, 21 að tölu, sem búsett eru víðsvegar um landið. Hvert þessara barna hlýtur eftirfarandi verðlaun: Fjöl- skylduspilið Trivial Pursuit sem inniheldur 4.800 fjölbreyttar spurningar, BRK reykskynjara sem bæði er optiskur og jónisk- ur, bol merktan LSS og sérstakt viðurkenningarskjal félagsins. Sjóvá-Almennar hf. styrktu átakið sérstaklega með því að gefa verðlaunin sem munu á næstunni verða afhent af slökkviliði heimabyggðar hvers vinningshafa. Eftirtalin nöfn voru dregin út: Olga Árnadóttir, Silfurgötu 4, 340 Stykkishólmi, Eva og Gunni Steindórsbörn, Suður- götu 111, 300 Akranesi, Hrund Jóhannsdóttir, Laugabakka- skóla, 531 Hvammstanga, Sigur- veig Petra Björnsdóttir, Aðal- götu 3,625 Olafsfirði, Davíð Hjálmar Haraldsson, Flötusíðu 2, 603 Akureyri, Kiddý Hörn Ásgeirsdóttir, Baughóli 10, 640 Húsavík, Sindri Sólheim, Mar- bakka 7, 740 Neskaupstað, Gísli Orn Reynisson, Silfurbraut 31, 780 Höfn, Fjölskyldan, Lauf- haga 1, 800 Selfossi, Benedikt Óskar Steingrímsson, Gerðis- braut 1, 900 Vestmannaeyjum, Ingvar Jónsson, Grundarvegi 17,260 Njarðvík, Ásgeir Braga- son, Ljósabergi 34,220 Hafnar- firði, Andri Már Enoksson, Vest- urbraut 21, 220 Hafnarfirði, Anton Ivar Róbertsson, Daltúni 27,200 Kópavogi, Björgvin Ragnarsson, 107 Reykjavík, Alexíus Jónasson, Nökkvavogi 37,104 Reykjavík, Brynja Björnsdóttir, Sólheimum 25,104 Reykjavík, Sæunn Ósk Erlends- dóttir, Hlaðbrekku 19, 200 Kópavogi, Rebekka Pétursdótt- ir, Dverghömrum 40,112 Reykjavík, Árni Ingimundarson, Hlíðarhjalla 72, 200 Kópavogi. Vind- og vatnsheldar Margir litir, st.: M-XXXL Bamastærðir: Nú: 4.990- Áður: 6.990.- Fullorðinsst.: M -XXXL Verð: 7.990.- Áður: 9.990. Margir litir Sendum í póstkröfu whummél^ SP0RTBUÐIN Nóatúni 17 sími 511 3555

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.